Morgunblaðið - 27.10.1996, Blaðsíða 14
14 E SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
borðum og stólum er mikið. Atík þess sérsmíðum
við húsgögn eftir óskum viðskiptavihav
Hönnuður Mocca stóla: Pétur B. Lúthersson FHI
Sœtir sófar
á óviðjafnanlegu verði
HÚSGA GNALA GERINN
Smiðjuvegi 9 (gul gata)-Kópavogi-sími 564 1475 Opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-14.
KOSTA BODA
Kringlunni, sími 568 9122
í glaesilega búð,
fulla af nýjum
og lallegum
gj afavörum.
INNAN VEGGJA HEIMILISINS
SKÁL úr leir, eða „faience“, frá
versluninni Hamborg.
DÆMI um bolla úr Vitro-postulíni frá verslun-
inni Villeroy og Boch.
MATARSTELL úr postulíni.
Undraveröld
postulínsins
MATAR- og kaffistell
eru framleidd úr ólíkum
efnum og nefnast því
„bone china“, postulín,
vitro-postulín og „fai-
ence“ eða leir. Munurinn
liggur í mismunandi hrá-
efnum og aðferðum sem
notaðar eru við fram-
leiðsluna. Hráefnunum
er blandað saman á ólík-
an hátt og þau brennd
við mismunandi hitastig.
Allar tegundirnar eru
framleiddar úr postul-
ínsleir, leír, feldspati og
kvars sem er ein algeng-
asta steintegund jarðar.
Við framleiðslu „bone
china“, eða er auk þess-
ara efna notuð aska af
beinum.
Feldspatið og kvarsið
er mulið og allt járn fjar-
lægt og efnin síðan
blönduð vatni. Að lokum
er postulínsleir og leir
blandað saman við.
Efnablandan er síðan
mótuð í bolla, diska,
könnur og svo framveg-
is. Mótunin er mismun-
andi eftir því hvort hlut-
urinn er holur að innan
eða ekki. Þegar búið er
að móta hráefnið í sitt endanlega
form er því komið fyrir á eldföstum
hillueiningum sem settar eru í
brennsluofninn. Fyrst eru munirnir
í ofninum hitaðir rólega, síðan eru
þeir hitaðir upp í ákveðið hitastig
og að lokum kældir niður aftur.
Þetta ferli getur tekið allt upp í
einn sólarhring og jafnvel Iengur.
Margir framleiðendur brenna
postulín sitt á þennan hátt að
minnsta kosti tvisvar til að gera
það enn sterkara. í fyrri brennsl-
unni er hitastigið í brennsluofninum
um 1230 gráður. Ef postulínið er
skreytt er það mynstrað og síðan
gleijað áður en seinni brennslan fer
fram. Seinni brennslan er snögg-
brennsla og er hitastigið allt að
1100 gráður.
Kínverskt „bone china“
„Bone china“ inniheldur að stór-
um hluta ösku af beinum (40-50%)
sem gerir það að dýrustu postulíns-
tegundinni. „Bone china“ hefur ver-
ið þekkt meðal Evrópu-
þjóða í um 200 ár en
kom upphaflega frá
Kína. Framleiðslan
krefst sérstakrar tækni
og þekkingar. Askan
kemur frá búfénaði og
saman stendur af litlum
beinum úr fótleggjum
skepnunnar. Það er
þessi aska sem gefur
„bone china“ útlit sitt.
Það er mun hvítara en
postulín, hefur meiri
gljáa og er mýkra við-
komu. „Bone china“ er
svo þunnt að það er
næstum því gegnsætt,
en er engu að síður
sterkara en annað
postulín. Það má setja í
uppþvottavél ef skreyt-
ingin hefur verið sett á
áður en glerungurinn
var brenndur, það er að
segja ef skreytingin
liggur undir glerungn-
um.
Postulín
Hefðbundið postulín
er hvítara og sterkara
en til dæmis leir. Hlut-
imir eru ekki eins gegn-
sæir og hlutir úr „bone
china“. Þeir eru þyngri og þykkara
í þeim. Einnig er hvíti liturinn kald-
ari og ögn grárri. Vitro postulín
kom fyrst á sjónarsviðið í Banda-
ríkjunum árið 1930. Vitro er dregið
af orðinu „vitreous" eða gleijaður,
glerkenndur. Sérstökum efnum er
blandað við vitro-postulínið sem
kaila fram þennan hlýja mjólkurlit
sem einkennir það. Postulínið er
brennt á ákveðin máta sem gerir
það mjög sterkt.
Vitro-postulín þolir vel hnjask og
yfir ÍOO gerðir
Arinnsteinn.
Náltúruílísar og steinn
Handgerðar
mexíkónskar flísar.
Marmari o.íl.
Gamaldags
hreinlætistæki og baðkör.
■ Landsins mesta úrval
of flísum t hólf og gólf
larálS Síðumúla 21, s. 588 9311 og 533 4400.