Morgunblaðið - 27.10.1996, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
IIMNAIM VEGGJA HEIMILISINS
SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996 E 27
Svampdýnur
Dýnur eru af mörgum gerðum
og eru fimm megingerðir á mark-
aðinum. Svampdýnur geta verið
tvenns konar, úr venjulegum
svampi og latex-svampi. Munur-
inn er sá að í latex-svampinum
eru boraðar holur svo hann legg-
ist saman þar sem þunginn er en
þehjist út þar sem stuðnings er
þörf, til dæmis við mjóbak. Marg-
ir telja best að hafa latex-svamp
gegnum alla dýnuna og að dýnan
sé ekki þynnri en 15 sentímetrar.
Samt sem áður getur 12 sentí-
metra þykk dýna verið nægilega
þykk fyrir börn eða litlar mann-
eskjur. Stundum er latex og
svampur lagt saman þannig að
öðrum megin sé svampur og latex
hinum megin. Gott er að hafa
stífan kant á dýnunni því hann
styður við og auðveldara er því
að fara fram úr.
Springdýnur
Gormafjöldi í springdýnum er
mismunandi og hefur áhrif á
þyngdardreifingu í dýnunni og ef
gormarnir eru of fáir' eða stórir
verður dýnan grófari. Gormafjöldi
segir hins vegar ekki allt um
gæði dýnunnar. Fjöldi snúninga
á hverjum gormi segir til um stíf-
leika hverrar dýnu, eða hversu
mikið hann getur lagst saman.
Þyngra fólk þarf stífari gorma.
Þykkt dýnunnar má ekki vera of
mikill ef viðkomandi er hávaxinn
þvi þá verður eftirgjöfin of mikil.
Dýnurnar eru oft lagskiptar til
þess að halda hita og tekur efsta
lagið, sem oft er úr bómull, við
raka líkamans.
Vatnsdýnur
Mörgum finnst þægilegt að
liggja á vatnsdýnu en erfitt getur
reynst að standa upp því þær
gefa mikið eftir. Ef stuðning-
skantur er á dýnunni er það hins
vegar auðveldara. Dýnurnar eru
dempaðar mismikið allt frá engu
upp í 99% en sumir eru þeirrar
skoðunar að eiginleikar vatnsins
njóti sín síður ef dýnurnar eru
mikið dempaðar. Einnig þarf að
passa að hafa ekki of mikinn
þrýsting á vatninu þar sem dýnan
gefur þá ekki nógu mikið eftir,
til dæmis fyrir axlirnar. Vatnið
styður alls staðar við líkamann
en ef tveir liggja á sömu dýnu
GRÆNBLÁR hitabrúsi frá
Bodum sem óneitanlega
minnir á varalit.
^>SILF
Krinclunr
BUÐIN
Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- ÞarfærÓu gjöfma -
hreyfist hinn ef annar hreyfir sig.
Því gildir sú regla sem endranær
að dýnur þurfa að vera tvískiptar.
Sjúkradýnur eru úr ýmiss kon-
ar efnjim, til dæmis seigri eða
teygjanlegri froðu sem gerir að
verkum að viðkomandi sekkur
svolítið ofan í dýnuna. Þær eru
aðallega notaðar á sjúkrastofum
og fyrir fólk sem þarf að liggja
lengi vegna veikinda.
Yfirdýnur
Yfirdýnur eru meðal annars
framleiddar úr svampi, froðuefni
og geli. Æskilegt er að þykkt
yfirdýnunnar sé 2,5-5 sentímetr-
ar. Ef fólk er ánægt með rúm sitt
í helstu meginatriðum getur yfir-
dýna reynst vel en hún kemur
hins vegar ekki í stað nýrrar dýnu
ef sú gamla er úr sér gengin. Að
lokum má bæta því við að fólk
verður auðvitað að sofa í rúminu.
Það er sama hvernig rúmið er ef
sofið er hálfum svefni framan við
sjónvarpstækið.
BRÚNÁS-INNRÉTTINGAR
FYRIR ELDHÚS, BAÐ- OG SVEFNHERBERGI
BRÚNÁS-INNRÉTTINGAR
bjóða viðskiptavinum faglega ráðgjöf
INNANHÚSSARKITEKTS VIÐ VAL Á
BRÚNÁS-INNRÉTTINGUM
BRÚNÁS-INNRÉTTINGAR
ÍSLENSK HÖNNUN - ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA