Morgunblaðið - 27.10.1996, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996 E 31
INNNAN VEGGJA HEIMILISINS
GALDURINN við að halda
alpafjólu fallegri er að forð-
ast örar hitabreytingar.
POTTAKRÝSINN er fjölær
jurt sem garðyrkjumenn
geta fengið til að blómgast
á öllum tímum árs.
í heimahúsum hættir fólki til að
vökva plönturnar of mikið á
veturna. En með því móti raskar
það eðlilegu vamarkerfi þeira
gagnvart skammdeginu. í ofanálag
eru gefnir fullir áburðarskammtar
þótt dagsbirtan sé lítil sem engin.
Á þessari ofgjafaráráttu þarf að
sigrast. Til þess að plönturnar geti
nýtt áburðargjafir sér til vaxtar
og velmegunar þarf sólarljós - og
þeim mun meira af því sem áburð-
arskammtarnir eru sterkari. Ef
gefinn er áburður á veturna er
mest hætta á því að áburðarsöltin
hlaðist upp í moldinni og fari að
hafa þveröfug áhrif við það sem
til var ætlast.
Áburðarsöltin fara þá að virka
á sama hátt og matarsalt og draga
vatnið út plöntunum og fylla
plöntufrumurnar í staðinn með
saltpækli. Þetta er í raun sama
ferli og fram fer þegar við fram-
leiðum saltkjöt! Plönturæturnar
eyðileggjast og plantan þenst út
af pæklinum og getur staðið dauð,
en græn, í nokkrar vikur án þess
að við tökum eftir því. Oftast er
um seinan að bjarga nokkru þegar
hin sýnilegu einkenni koma í ljós.
Þess vegna þarf að hafa hugfast
að gefa ekki áburð nema í afar
daufri blöndu yfir vetrarmánuðina
(nóvember t.o.m. febrúar) og draga
STOFULYNG dafnar ekki
árið um kring inni i híbýlum
manna.
STOFUGRENI verður mjög
stórt og fyrirferðarmikið
með tímanum.
eins mikið úr vökvun og framast
er unnt. Vökva frekar oft en lítið
í hvert skipti oghalda moldinni sem
næst þurri í flestum tilvikum.
Sumar í mars
f mars, aftur á móti, hefur sum-
arið innreið sína á ný hvað stofu-
blómin varðar. Þá er sól komin
nokkuð hátt á loft og fer hækk-
andi með lengri dögum og -meiri
birtu. Því er óhætt að fara að huga
að því að umpotta stofublómunum
okkar strax í fyrstu viku marsmán-
aðar. Stækka pottana fyrir plöntur
sem uxu mikið í fyrrasumar. Bæta
nýrri mold ofan á pottana hjá
plöntum sem við viljum ógjarnan
að bæti miklu við sig í ár og skipta
alveg um mold á blómstrandi plönt-
um eins og havaírósum og pel-
argóníum án þess að stækka pott-
ana hjá þeim.
Um leið og pottað er á vorin er
gott að nota tækifærið og klippa
og stytta greinar sem vaxið hafa
út úr þeim ramma sem vi hverri
plöntu er sniðinn fyrir sig. Klipping
stuðlar líka að frískum nývexti og
þéttari plöntum. Það er ágætt að
hafa það fyrir reglu að stýfa smá-
vegis af plöntum eins og benja-
mínfíkusi öðru hvoru með nokkru
millibili allt sumarið, þannig hald-
ast þær þéttar og síungar.
Stigi
tilað
rýnaí
„MÉR fannst stiginn ljótur og
þrepin voru orðin slitin. Þetta
var ódýr lausn sem mig langaði
til að prufa, en óraði reyndar
ekki fyrir allri þessari vinnu
við hann,“ segir Ólöf Kristjáns-
dóttir um mjög óvenjulegan
stiga sem prýðir heimili hennar
að Hólavegi 65 á Siglufirði.
Stiginn er allur klæddur
erlendum dagblaðaúrklippum,
alls fjórum lögum sem límd
voru með veggfóðurslími hvert
ofan á annað og síðan lakkað
yfir fjórar umferðir með glæru
parketlakki.
Erlendu dagblöðin
betra hráefni
Ólöf sagðist hafa tekið
ákveðin erlend dagblöð fram
yfir þau íslensku, þar sem í
þeim var þykkari pappír.
Aðalvandamálið var hinsvegar
að finna rétta límið, því
prentsvertan vildi renna út ef
of sterk límefni voru notuð.
„Annars má segja að þetta
hafi verið heimilisiðnaður fjöl-
skyldunnar um tveggja mánaða
skeið, að taka eitt og eitt þrep
niður í bílskúr og klæða í
þennan nýja búning og við
erum alsæl með árangurinn.
Óneitanlega vekur stiginn tals-
verða athygli hjá þeim sem eru
að koma hingað í fyrsta skipti
en það þarf engum að leiðast í
stiganum, því nóg er af
áhugaverðu efni til að rýna í.“
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
STIGI Ólafar er klæddur fjórum lögum af erlendum
dagblaðaúrklippum.
LAURA ASHLEY
ooroar,
gardínuefní,
og áklæðí.
%istan
\j Laugavegi 99, sh
Laugavegi 99, sími 551 6646
Við opnun Álfaborgar kostaði algeng flís eins og
Helsinki 20x20 kr.1526/m2.
Nó 10 árum síðar kostar sama flísin kr. 1750 / m2.
Við hðfum ákveðið að bjóða hana með 12,8% afslætti,
eða á sama verði og við opnun Áifaborgar.
Blær lidinna tíma
er okkar
w ■ I .1 7
' STEREO-SKAPUR
V 19.900,-
SUÐURLANDSBRAUT 22 • SIMI 553 7100