Morgunblaðið - 29.10.1996, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
íslendingar komust í átta liða úrslit á ÓL í brids
Morgunblaðið/GSH
JÖN OG Sævar við upphaf leiksins við Lettland í gærmorgun. Skömmu síðar var leikurinn stöðvað-
ur því Lettar mættu ekki til leiks við hitt borðið. Björn fyrirliði er lengst til vinstri.
Langþráðum
áfanga náð
í taugaslítandi lokaumferð riðlakeppni
Olympíumótsins í brids á Ródos í gær héldu
íslendingar 3. sæti í sínum riðli og keppa
við Indónesíu í átta liða úrslitum í dag. Guð-
mundur Sv. Hermannsson fylgdist með
spilamennskunni eins og taugamar leyfðu.
„VIÐ ERUM kátir, það er engin
spurning. Við erum búnir að ná
nýjum áfanga í íslenskri bridssögu
að komast í þessi langþráðu átta
liða úrslit Ólympíumótsins. Þetta
er búið að vera erfítt og það er
mikil spenna í mannskapnum í
augnablikinu og við getum ekkert
annað en reynt að ná henni niður
og komast inn á þægilega braut
aftur,“ sagði Björn Eysteinsson,
fyrirliði íslendinga, eftir að riðla-
keppninni lauk í gær.
Þá hafði íslenska bridsvélin hikst-
að aðeins undir lokin og veruleg
spenna ríkti um hvort íslendingam-
ir næðu að tryggja sér sæti í úrslita-
keppninni.
Islenska liðið virtist vera að sigla
lygnan sjó inn í úrslitin þegar gær-
dagurinn hófst. Fyrsti leikurinn í
gær varð þó heldur endasleppur.
Mótheijamir voru Lettar og Jón
Baldursson og Ævar Þorbjömsson
byijuðu vel í opna salnum og örugg-
ur sigur virtist blasa við. En væntan-
legir mótheijar Guðmundar Páls
Arnarsonar og Þorláks Jónssonar
mættu ekki til leiks í lokaða salnum
og eftir hálftíma bið var leikurinn
blásinn af. íslendingar fengu þó nítj-
án stig og jafnframt kærkomna
hvfld sem gæti nýst þeim vel í dag.
Næstsíðustu andstæðingamir
voru Rússar, sem voru í sjötta sæti
riðilsins. Hægt var að fylgjast með
úrslitum spilanna jafnóðum í þétt-
setnum sýningarsal og Islending-
arnir byijuðu ágætlega þegar þeir
fengu sveiflu í fyrsta spili. En
nokkrum spilum síðar fóru Rúss-
arnir að raða inn stigum meðan
ekkert gekk hjá íslensku spilurun-
um. Þetta spil er dæmi um það:
Bæði lið spiluðu fjóra spaða. Jón
og Sævar spiluðu samninginn í
norður þá kom austur út með laufa-
kóng og skipti í tígul. Eftir það
komst Sævar ekki hjá því að gefa
tvo slagi á tígul, einn á lauf og einn
á hjarta.
Við hitt borðið var suður sagn-
hafi. Þar kom Aðalsteinn Jörgens-
en út með tígulkóng og fékk að
eiga slaginn. Til að bana spilinu
varð hann nú að spila laufi undan
ásnum, svo Matthías Þorvaldsson
í austur kæmist inn og gæti spilað
tígli gegn sagnhafa. En það lá
ekki í augum uppi að grípa þyrfti
til slíkra örþrifaráða svo Aðal-
steinn tók laufásinn og spilaði
meira laufi. En nú gat sagnhafi
fríað hjartalitinn og hent tígultap-
slag í borðið.
Stærsta tapið
Leikurinn endaði loks 6-24 fyrir
Rússa en þetta var fyrsti leikurinn
sem íslendingar töpuðu stórt í riðla-
keppninni. Fyrir síðustu umferðina
var staðan sú, að íslendingar máttu
við því að tapa síðasta leiknum
gegn Búlgaríu 12-18 miðað við að
Rússar ynnu Kenýa 25-5.
Aftur var hægt að fylgjast með
stöðunni í öllum leikjum og það
varð fljótt Ijóst að Rússar myndu
vinna sinn leik með yfirburðum. A
meðan sigu íslendingarnir hægt og
rólega fram úr Búlgörum, þar til
að Búlgararnir náðu skyndilega að
jafna leikinn með því að segja og
vinna hæpna slemmu.
Nú fór hjartað upp í háls á ís-
lensku áhorfendunum en Guðmund-
ur Páll og Þorlákur róuðu þá fljótt
aftur með þessu spili:
Norður
♦ KG7643
¥2
♦ Á83
♦ 643
Vestur Austur
♦ 10 ♦ D2
¥ Á974 ¥ 865
♦ KD104 ♦ 762
♦ Á1082 4^0075
Suður
♦ Á985
¥ KDG103
♦ G95
♦ 9
Norður
♦ Á65
¥Á7
♦ ÁG10965
♦ Á6
Vestur Austur
♦ K10982 ♦ DG74
¥D2 ¥85
♦ D843 ♦ 72
♦ 74 ♦ K10985
Suður
♦ 3
¥ KG109643
♦ K
♦ DG32
Við annað borðið passaði Búlgar-
inn með suðurspilin en Sævar opn-
aði á einum spaða með vesturspilin.
Norður doblaði og Jón í austur
stökk í þijá spaða. Suður sagði fjög-
ur hjörtu sem voru pössuð til Jóns
sem sagði fjóra spaða. Enn sagði
Búlgarinn fimm hjörtu sem hann
spilaði svo og fékk tólf slagi.
Við hitt borðið öpnaði Þorlákur
hins vegar á fjórum hjörtum með
suðurspilin og eftir það gat Guð-
mundur Páll ekki sagt minna en
sex hjörtu. Vestur spilaði út laufi
sem austur tók á kóng og hann
skipti í spaða. Það tók Þorlákur
með ás og síðan ás og kóng í hjarta.
Þegar drottningin féll var slemman
unnin og átta liða úrsíitin tryggð.
Þetta spil skipti einnig miklu
máli í hinum riðlinum því Danir
tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum
með því að segja og vinna slemm-
una.
Gátu andað Iéttar
íslendingar unnu að lokum leik-
inn 19-11 og allir gátu varpað
öndinni léttar „Og þetta sem átti
að vera svo rólegur dagur,“ heyrð-
ist einn spilarinn stynja.
„Við máttum alltaf búast við að
fá eitt högg á okkur því það er
nánast útilokað að spila 35 umferð-
ir án þess að fá skell. En að fá
þetta högg í næstsíðasta leik þegar
mótið var í sem mestri spennu,
magnaði spennuna. En nú er þetta
verkefni búið og það verður að eyða
kvöldinu og nóttinni í að þurrka það
algjörlega út, horfa fram á veginn
og koma til leiks í átta liða úrslitun-
um með hreinan huga“, sagði Bjöm
Eysteinsson.
Lokastaðan í riðli íslendinganna
var þessi:
Ítalía 692
Tævan 659
ísland 652
Rússland 645
ísrael 643,5
Bretland 636
Holland 633
Noregur 629
Bandaríkin 620
Brasilía 608
í hinum riðlinum urðu Frakkar
efstir með 691 stig, þá Indónesar
með 676, síðan Pólveijar með 642
stig og loks Danir með 633 stig.
Efstu liðin í riðlunum máttu velja
sér andstæðinga úr hinum riðlinum
í átta liða úrslitunum, sem fara
fram í dag. Frakkar völdu Rússa
sem andstæðinga og ítalir völdu
að spila gegn Dönum. íslendingar
spila því við Indónesa og Pólveijar
gegn Tævan. í kvennaflokki spila
Bandaríkin og Holland, Kína og
ísrael, Bretland og Austurríki og
Kanada og Þýskaland.
Einstakur námsárangur við Háskólann
Hæsta einkunn
í áratugi
ÁRMANN Jakobsson, 26 ára
gamall Reykvíkingur, útskrif-
aðist sl. laugardag með meist-
arapróf í íslenzkum bókmennt-
um frá heimspekideild HÍ með
hæstu einkunn sem veitt hefur
verið í deildinni frá því núgild-
andi einkunnakerfi var tekið
upp fyrir 20 árum. Hann fékk
10 fyrir lokaritgerð sína og
meðaleinkunnina 9,67.
Þessi einkunn er sú næst-
hæsta sem gefin hefur verið
yfirleitt samkvæmt gildandi
einkunnakerfi en sú hæsta, 9,77,
féll í skaut lyfjafræðings sem
útskrifaðist árið 1991. Sá árang-
ur sem næst kemst árangri Ár-
manns í sambærilegu prófi var
9,42 á cand. mag.-prófi í bók-
menntafræði árið 1986. Ef B.A.-
próf eru meðtalin er sá árangur
sem næst kemst 9,60, en þessum
árangri náði nemi í almennum
málvísindum árið 1993.
Kom á óvart
Aðspurður kvað Ármann
þennan árangur hafa komið sér
nokkuð á óvart. „Ég hef ekki
fengið svona einkunn síðan ég
byrjaði í íslenzkunni," sagði
Ármann, „enda fara þeir spar-
lega með þær hérna.“ Prófrit-
gerð Ármanns ber titilinn „I
leit að konungi" og fjallar um
konungsmynd íslenzkra kon-
ungasagna. Aðalleiðbeinandi
Ármanns við smíði hennar var
Ásdís Egilsdóttir.
Ármann fæst nú við að að-
stoða tvo kennara sína við rann-
sóknastörf, hann veitir norskum
nemum við Háskólann aðstoðar-
kennslu í Islendingasögunum
og hefur auk þess hafið undir-
búning doktorsverkefnis síns
sem hann segir verða áfram-
hald á rannsóknum á Konunga-
sögum.
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
GALLI á hönnun og uppsetningu snjóflóðavarnanna í Fífladölum
fyrir ofan Siglufjörð íeiddi til skemmda í óveðri 20. október.
Snjóflóðavarnir í Siglufirði
Galli á hönnun
og uppsetningu
Siglufirði. Morgunblaðið.
GALLI á hönnun og uppsetningu
stoðvirkja snjóflóðavarnanna í
Fífladölum fyrir ofan Siglufjörð
leiddi til skemmda, er hluti nýja
búnaðarins sviptist upp í óveðri 20.
október síðastliðinn.
Framleiðandi snjóflóðavarnanna
er austurríska fyrirtækið J. Martin.
Kom fulltrúi þess, Walter Kettler,
ásamt austurrískum snjóflóðasér-
fræðingi, Joseph Hopf, og mönnum
frá Veðurstofu íslands til Siglufjarð-
ar um helgina, að líta á og meta
tjónið, sem talið er nema nokkrum
milljónum króna.
Megineiningar stoðvirkja snjó-
flóðavarnanna eru óskemmdar og
þrátt fyrir að virkin hafi fallið upp
í fjallshlíðina hafa stærstu og dýr-
ustu einingar þeirra ekki skemmst.
Niðurstaða athugunarinnar er sú
að ákveðinn galli er á hönnun stoð-
virkjanna og uppsetningu þeirra. Er
hann ekki sérstaklega tengdur ís-
lenskum veðuraðstæðum því álíka
atvik hafa einnig átt sér stað í Sviss
þár sem þennan búnað er víða að
finna. En framleiðendur höfðu hins
vegar ekki gert ráð fyrir að þetta
myndi gerast hér á íslandi.
Einfalt að lagfæra gallann
Að sögn Tómasar Jóhannessonar,
jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu ís-
lands, er tiltölulega einfalt að laga
þennan hönnunargalla og þegar er
búið að senda norður til Siglufjarðar
þau tæki og tól sem nota þarf við
lagfæringarnar. Mun búnaðurinn
verða fluttur með þyrlu upp í fjallið
um leið og veður leyfir.
Framleiðandi búnaðarins mun
bera allan kostnað við viðgerðir
vegna skemmda á stoðvirkjunum en
Ofanflóðasjóður ákveðinn kostnað
við endurbætur á festingunum.