Morgunblaðið - 29.10.1996, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996 7
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
INDRIÐI Pálsson við verðlaunasafn sitt á sýningunni.
Grand Prix til íslend-
ings í fyrsta sinn
INDRIÐI Pálsson varð á laugardag
fyrstur íslendinga til að hljóta
Grand Prix verðlaun fyrir frí-
merkjasafn sitt. Hann segir verð-
launin heiður fyrir sig og alla ís-
lenska frímerkjasafnara. Dómarar
frá fimm þjóðlöndum tóku ákvörð-
un um verðlaunaveitinguna.
Indriði hefur safnað frímerkjum
í tæp 60 ár, frá tíu ára aldri. „Það
hófst þegar faðir minn gaf mér
gömul frímerki sem faðir hans
hafði átt. Eftir það hefur söfnun-
aráráttan verið í mér. Ég hafði
alltaf augun opin fyrir frímerkjum
og bréfum á ferðalögum erlendis,
sem fylgdu störfum mínum sem
Indriði Pálsson
hefur safnað frí-
merkjum í 60 ár
forstjóra Skeljungs, en ég fór ekk-
ert að vinna í þessu fyrr en ég
hætti því starfi, fyrir sex árum
síðan.“
Safnið nær yfir póstsögu áranna
1836-1902, tímabil sem er á frí-
merkjamáli ,,Classic Iceland", eða
hefbundið Island. „Til þess að
skilja uppbyggingu safnsins þarf
að vera sæmilega vel að sér í ís-
lenskri atvinnu- og persónusögu á
þessu tímabili. Ýmis póstskjöl í
safninu vísa til þekktra atvika og
einstaklinga sem settu svip sinn á
íslenskt þjóðlíf á þessum tíma.
Meðal annars ýmislegt sem tengist
Pétri Péturssyni biskupi, Dillon
lávarði, sem Dillonshús er kennt
við, Einari Benediktssyni, Einari
Jónssyni myndhöggvara og fleir-
um.“
Indriði segist ekki vita hvert
verðmæti safnsins er, enda hafi
hann ekki safnað frímerkjum í
hagnaðarskyni. Hann segir að enn
megi bæta safnið, sérstaklega með
enn betri eintökum ýmissa frí-
merkja og umslaga.
Metað-
sókná
frímerkja-
sýningn
TALIÐ er að norræna frímerkja-
sýningin, Nordia 96, sem haldin
var á Kjarvalsstöðum um helgina,
hafi verið fjölsóttasta frímerkja-
sýning sem haldin hefur verið hér
á landi.
Að sögn Sigurðar R. Pétursson-
ar, formanns sýningarstjórnar, er
áætlað að sýningargestir hafi verið
um fímmtán þúsund, þar af komu
hátt í tíu þúsund manns á sunnu-
dag. Um hundrað erlendir frí-
merkjasafnarar komu til landsins
til að sýna og skoða. Meðal þeirra
voru Knud Mohr, varaforseti Al-
þjóðasamtaka frímerkjasafnara, og
Ingolf Kappelrud frá Evrópusam-.
tökum frímerkjasafnara. Þeir sögðu
báðir um íslensku sýninguna að hún
væri ein sú besta og skemmtileg-
asta sem þeir hefðu séð.
Nordia-frímerkjasýningin er
haldin á hverju ári á einhveiju
Norðurlandanna, nema þegar al-
þjóðleg sýning er í gangi. Sýningin
var í fyrsta sinn haldin hér á landi
árið 1984, aftur 1991, og í þriðja
sinn á þessu ári. Aðsóknin nú er
mun betri en á fyrri sýningum.
Sigurður segir að árangurinn megi
að hluta til skýra með samkeppni
sem haldin var fyrir níu til tólf ára
börn þar sem þeim var boðið að
taka þátt í samkeppni um að teikna
tillögur að frímerkjum. Einnig hafi
góður árangur Indriða Pálssonar
haft áhrif, en hann varð á laugar-
dag fyrstur íslendinga til að vinna
Grand Prix-verðlaun á slíkri sýn-
ingu fyrir frímerkjasafn sitt.
metra
MAÐUR féll um 7 metra nið-
ur af þaki við Laufrima í Graf-
arvogi um klukkan níu á laug-
ardagsmorgun.
Talið var að hann hefði
axlarbrotnað auk þess sem
hann kvartaði undan eymsl-
um í fæti. Hann var fluttur á
slysadeild með sjúkrabifreið
þar sem hann gekkst undir
rannsókn.
Vinnueftirlit ríkisins og
tæknideild lögreglunnar fóru
á slysstað til að kanna drög
óhappsins frekar.
-------------——:
■■■: . ■ ■
SUZUKl
rÝirliýáiii.
BA?cS° °00°1!ftoD
0
SUZUKI
MEÐ: aflmikilli 16 ventla vél • vökvastýri
• veltistýri • samlæsingum • þjófavörn •
rafdrifnum rúðuvindum • rafstýrðum
útispeglum • útvarpi/segulbandi með 4
hátölurum • upphituðum framsætum •
öryggisloftpúðum fyrir ökumann og
farþega í framsæti • styrktarbitum í
hurðum • samlitum stuðurum.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.