Morgunblaðið - 29.10.1996, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eyjaferðir hf. í Stykkishólmi auka þjónustuna
Tveggja skrokka
skemmtiferðaskip
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
NYTT skemmtiferðaskip í eigu
Eyjaferða hf. sigldi inn í Stykkis-
hólmshöfn laugardaginn 25. októ-
ber sl. Um er að ræða skip sem
keypt var frá Noregi, 26 metrar á
lengd og rúmir 9 metrar á breidd.
Skipið er tveggja skrokka og er
fyrsta skipið af þessu tagi á íslandi.
Skipið er knúið tveimur 1.200
ha. vélum og er meðalganghraði
þess rúmar 20 mílur fullhlaðið. Það
er smíðað árið 1976 og árið 1984
var allur búnaður þess endurnýjað-
ur, þ.á m. vélar. Skipið tekur um
130 manns í sæti, aðbúnaður er
góður og innréttingar líta mjög vel
út.
Það voru margir Hólmarar sem
tóku á móti hinu nýja skipi Eyja-
ferða er það lagðist að bryggju.
Gestir fengu að skoða skipið og
boðið var upp á veitingar og
reynslutúr út á Breiðasand.
Leitað í þijú ár
að stærra skipi
Að sögn Péturs Ágústssonar og
Svanborgar Siggeirsdóttur, eig-
enda Eyjaferða, hefur fyrirtækið
verið að leita að stærra skipi und-
anfarin þrjú ár. Svo var það í sum-
ar að fréttist af skipi í Sandnessöen
í Noregi og fór Pétur því út að
skoða skipið og leist mjög vel á það
og gerði tilboð sem var tekið. Skip-
ið var í eigu Helgelands Trafikksel-
skap og var aðalbátur fyrirtækisins
og notaður til feijusiglinga í Norð-
ur-Noregi. Fyrirtækið hefur fengið
nýtt skip og því var það tilbúið að
selja þetta. Pétur fór út til Noregs
ásamt þremur öðrum að ná í skip-
ið. Fyrst sigldu þeir til Álasunds
og þaðan var stefnan tekin til
Færeyja. í Færeyjum urðu þeir að
stoppa í íjóra daga vegna veðurs.
Péturs segir að skipið hafi vakið
athygli í Færeyjum. Þar eru menn
að kanna breytingar á feijusigling-
um á milli eyjanna. Tveir ráðherrar
úr Landsstjóminni komu að skoða
skipið og fór Pétur með samgöngu-
málaráðherrann í siglingu og leist
honum vel á skipið. Þegar byr gaf
var stefnan sett á Hornafjörð og
þaðan siglt til Stykkishólms. Pétur
segir að ferðin hafi gengið vel og
skipið reynst í alla staði mjög vel.
Fengu þeir slæmt veður síðasta
spölinn og kom þá í ljós hversu
gott sjóskip nýja Brimrúnin er.
Að sögn Péturs ákapar nýja skip-
ið mikla möguleika í ferðaþjónustu
við Breiðafjörð. Nú verður hægt
að veita stærri hópum betri þjón-
ustu.
Hafrún áfram í siglingum
Fyrirtækið mun áfram hafa Haf-
rúnu í siglingum og er ætlunin
næsta sumar að setja upp nýjar
ferðir, t.d. stórhvalaskoðun út af
Breiðafirði og lengri dagsferðir.
Það tekur t.d. ekki nema 2'/2 tíma
að sigla að Látrabjargi. í vetur
verður tíminn notaður til endurbóta
á skipinu. Útbúin verður góð veit-
ingaaðstaða og verður þá hægt að
bjóða þjónustu þeim sem vilja halda
upp á merk tímamót við öðruvísi
aðstæður.
Pétur sagðist vera bjartsýnn á
framtíðina. Hann er þess fullviss
að hægt sé að auka ferðamanna-
strauminn til Stykkishólms, en for-
sendur þess séu þær, að til staðar
sé þjónusta fyrir ferðamenn og eft-
ir því sem hún sé fjölbreyttari, sé
auðveldara að fá fólk til að koma
í Hólminn og dvelja þar. Ferðaþjón-
ustufyrirtækin verði að hafa frum-
kvæðið og þessi skipakaup séu lið-
ur í því.
FORRÁÐAMENN Eyjaferða hf. í Stykkishólmi, hjónin Svan-
björg Siggeirsdóttir og Pétur Ágústsson.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
FYRSTA tveggja skrokka skipið á íslandi kom til heimahafnar
i Stykkishólmi um síðustu helgi.
Varahlutir í VW Golf
Athugasemd frá Heklu hf.
VEGNA fullyrðinga Ingimars Sig-
urðssonar um að varahlutir séu
þeir sömu í VW Golf bíla sem fram-
leiddir eru í Mexíkó og Þýskalandi
vill Hekla hf. taka eftirfarandi
fram:
Bifreiðin SE721 sem er fram-
leidd í Mexíkó lenti í tjóni í júlí sl.
Af 15 hlutum sem skipta þurfti um
passaði aðeins einn frá Þýskalandi.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd:
„Vegna orðalags yðar í grein
um innflutning á notuðum bílum,
í sunnudagsblaði Morgunblaðsins,
ber að harma að þér hafið sérstak-
lega valið að gera tollafgreiðslu
bíla á Selfossi tortryggilegan, um-
fram aðra staði.
Hefðuð þér leitað eftir upplýs-
ingum um hvort fjöldi afgreiðslna
gæti átt sér eðlilegar skýringar
hefðuð þér m.a. fengið upplýsingar
um að tollafgreiðslur á Selfossi eru
fyrir Árnes-, Rangárvalla- og Vest-
ur-Skaftafellssýslu. Einnig hefðuð
þér fengið upplýsingar um að af-
kastamiklir milliliðir eru búsettir í
sýslunni og er ekki á neinn hátt
Hlutirnir sem skipta þurfti um
voru m.a. þessir: Frambretti, fram-
hurð, afturhurð, innri stuðari fram-
an, ytri stuðari framan, aðallukt
framan. Auk ýmissa annarra
smærri hluta.
VW í Þýskalandi benti strax á
að panta þyrfti þessa hluti frá
Ameríku þar sem þeir fengjust
ekki hjá þeim.
hægt að ætla þeim, eða öðrum
innflytjendum bíla, að vera óheið-
arlegir eða óheiðarlegri en áðrir.
Lög og reglur um innflutning,
og þá eftirlit með innflutningi, eru
í engu frábrugðin öðrum tollum-
dæmum og athugasemdir endur-
skoðunar hafa ekki verið fleiri eða
alvarlegri en hjá öðrum.
Þess er farið á leit við yður að
þér takið þessa ábendingu til at-
hugunar og bréfkorn þetta til birt-
ingar á ekki minna áberandi stað
en greinin var, svo og tilvísun í
hana á baksíðu.
Virðingarfyllst,
f.h. sýslumannsins á Selfossi,
Ragnar Ólafsson,
skrifstofustjóri."
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Heklu
hf.:
„Enginn efast um mátt fjölmiðla,
og allra síst efast menn um mátt
virtra fjölmiðla eins og Morgunblaðs-
ins. Það er því siðferðileg skylda
hvers fjölmiðils að fjalla um mál á
eins faglegan og hlutlausan hátt og
frekast er unnt. Það er eðli margra,
ef ekki flestra mála, að menn hafa
á þeim misjafnar skoðanir. Eigi að
fjalla á .faglegan hátt um slík mál,
hlýtur að verða að eiga sér stað öfl-
un ákveðinna grunnupplýsinga.
Blaðamaður getur ekki annað, á
frumstigi málsins, en leitað þessara
gagna víða; með því að hafa sam-
band við a.m.k-. nokkra aðila sem
tengjast málinu á ólíkan hátt og einn-
ig reynt að fá þá sem engra hags-
muna eiga að gæta til að tjá sig um
málið.
Eitt þeirra mála sem Morgunblað-
ið hefur fjallað um er innflutningur
notaðra bíla. Eins og komið hefur
fram í íjölmiðlum hefur innflutningur
notaðra bíla stóraukist í kjölfar
breyttra reglna. Nú nemur þessi inn-
flutningur um 20% af heildar bílainn-
flutningi til landsins og svarar það
til innflutnings eins stærsta bílaum-
boðsins. Menn hafa gjarnan spurt:
Hvers vegna er þessi innflutningur
svo mikill sem raun ber vitni? Hverrt-
ig stendur á því að ekkert bílaumboð-
anna annast þennan innflutning?
Ekki þarf að leita langt eftir svörum:
Við breyttar reglur sem tóku gildi
vegna nýja GATT-samningsins hafa
myndast glufur sem því miður sumir
hafa nýtt sér á óheiðarlegan máta.
Bílaumboðin starfa skv. gildandi lög-
um og reglum um innflutning bíla
og þau geta ekki á neinn hátt farið
í kringum þessar reglur.
Hvað varðar umfjöllun Morgun-
blaðsins um málið má segja „að betra
sé heima setið en af stað farið“. Víkj-
um nánar að þessu:
í blaðinu er látið í veðri vaka að
bílaumboðin séu á móti samkeppni
og þess vegna agnúist þau út í inn-
flutning notaðra bíla. Þetta er al-
rangt. I bílgreininni er mikil og hörð
samkeppni, eins og vera ber. En sam-
keppni verður að vera á jafnréttis-
grundvelli, allir aðilar verða að lúta
sömu viðskiptareglum. Hér má geta
þess að í ýmsum greinum viðskipta-
lífsins mætti gjaman fjalla um skort
á samkeppni. Þær greinar sem hér
um ræðir læt ég ónefndar, en flestir
ættu að geta sagt sér á hvaða sviðum
það er.
Blaðamaður Morgunblaðsins birtir
viðtal við „formann löggiltra bíla-
sala“. Bílasalinn hefur náttúrulega
sína skoðun á málinu og nefnir auk
þess dæmi um það þegar bílaumboð-
in fara með rangt mál. Blaðamaður-
inn gerir ekkert í því að kanna hvort
fleiri hafi sömu sögu að segja og
þessi bílasali. Blaðamaðurinn kannar
ekki heldur hina hliðina á málinu;
þ.e.a.s. er bílasalinn, sem er heimild-
armaður blaðsins, önigglega að fara
með satt og rétt mál. Skiptir það
ekki máli fyrir Morgunblaðið að les-
endur blaðsins fái sem raunsannasta
mynd af þeim málum sem blaðið
tekur til umfjöllunar?
Eitt af því sem bílasalinn nefnir í
viðtali sínu er dæmi um innflutning
á ákveðnum bíl. Bílasalinn fullyrðir,
hvað þann bíl varðar, að bílaumboðið
fari með rangt mál. í þessu tilfelli
er málið mjög einfalt. Hér er ekki
spurning um skoðun eins eða neins
- hér snýst málið eingöngu um stað-
reyndir. Til stuðnings þessu máli
nefni ég dæmi af Golf, framleiddum
í Mexíkó, sem keyptur var frá
Kanada. Bíllinn lendir í tjóni og leit-
að var til Heklu um varahluti. Af
þeim 15 varahlutum sem vantaði í
bílinn var eingöngu hægt að nota
einn sem framleiddur var í Þýska-
landi, en það var vatnskassahlífín.
Sérpanta þurfti 14 hluti frá Banda-
ríkjunum (sjá meðfylgjandi gögn).
Hvað þetta mál varðar hefði vand-
virkni og metnaður blaðamannsins
getað tryggt fagmannlega umfjöllun
og um leið komið í veg fyrir að óorði
væri kastað á fyrirtæki, í þessu til-
felli Heklu. Jafnframt hefðu lesendur
Morgunblaðsins fengið rétta og
sanna mynd af málinu - en það er
fyrir lesendur blaðsins sem það kem-
ur út - eða er ekki svo?
Enn er ekki öll sagan sögð. I
greininni fullyrðir bílasalinn:
„Volkswagen framleiðir bíla i Mex-
íkó og selur þá í Evrópu." Hér er
farið með rakalaus ósannindi. Bíl-
arnir sem framleiddir eru í Mexíkó
eru seldir til Kanada, Bandaríkjanna
og Suður- og Mið-Ameríku. Bílarnir
sem framleiddir eru í Evrópu eru
fyrir Evrópumarkað, Asíu, Afríku
ög Mið-Austurlönd. Þetta ætti
glöggur blaðamaður að geta sagt
sér sjálfur; hélt hann virkilega að
bílarnir væru fluttir frá Mexíkó til
Evrópu og svo væru Evrópubílarnir
fluttir til Mexíkó og Suður-Amer-
íku!!! Sem viðbót má geta þess að
einstaka Mexíkóframleiddur bíll hef-
ur komið til Evrópu eftir ýmsum
leiðum. Eigendur þessara bíla hafa
jafnan lent í vandræðum með þessa
bíla sína í Evrópu þar sem varahlut-
ir eru ekki fyrir hendi. Ekki þarf
að taka fram að Hekla mun að sjálf-
sögðu, hér eftir sem hingað til, reyna
að veita þessum bílaeigendum, eins
og öðrum viðskiptavinum, sem allra
besta þjónustu.
Það er auðvelt, en getur verið
mjög afdrifaríkt í blaðamennsku, að
gera mistök. Morgunblaðið hefur
sýnt það í gegnum árin að fag-
mennska þar á bæ er oft til fyrir:
myndar og hefur farið vaxandi. I
sunnudagsblaði Morgunblaðsins, í
grein sem annar blaðamaður skrif-
aði og varðaði einnig málefni Heklu,
voru einmitt viðhöfð þau vinnubrögð
sem sárt er saknað í þessari grein
sem hér hefur verið fjallað um. Hér
er fátt sem minnir á rannsóknar-
blaðamennsku, gæðamat eða hlut-
leysi. Leiðréttingar á fram komnum
ósannindum eru oft erfiðar í fram-
kvæmd. Þetta ættu engir að vita
betur en blaðamenn og einmitt þess
vegna þyrftu þeir að Ieggja meiri
metnað í vinnu sína.“
Aths. ritstj.:
Morgunblaðið hefur fjallað ítar-
lega að undanförnu um innflutning
á notuðum bílum. í þeirri samantekt
hafa komið fram sjónarmið Bíl-
greinasambandsins, talsmanna ein-
stakra bílaumboða, bílasala, bíla-
kaupenda og stjórnvalda.
í grein í Morgunblaðinu sl. sunnu-
dag um innflutning á notuðum bílum
eru ákveðin ummæli höfð eftir Ingi-
mari Sigurðssyni, formanni Félags
löggiltra bílasala, um innflutning á
Volkswagen Golf bifreið frá Kanada.
Vegna athugasemdar frá forráða-
mönnum Iieklu hf. skal tekið fram,
að Morgunblaðið lítur á slík um-
mæli sem trúnaðarmál á milli blaðs-
ins og viðmælenda þess þar til þau
hafa birst í blaðinu. Af þeim sökum
var óhugsandi að bera þau undir
talsmenn Heklu hf. fyrir birtingu.
Forráðamenn Heklu hf. þurfa hvorki
að kenna blaðamönnum Morgun-
blaðsins fagleg vinnubrögð né
kvarta undan umfjöllun blaðsins um
fyrirtæki þeirra.
Athugasemd