Morgunblaðið - 29.10.1996, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
LHenn
■ á sameining-
arbraut
47. ársþing Landssambands hestamannafé-
laga var haldið í Stapa í Reykjanesbæ 25.
* og 26. október þar sem sameining LH og
Hestaíþróttasambands Islands í ein heildar-
samtök hestamanna var meðal þeirra mála
sem tekin voru fyrir. Valdimar Kristinsson
sat þingið og greinir hér frá því helsta
sem þar bar á góma.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
LOFT var lævi blandið þegar greidd voru atkvæði um hvort leggja skyldi niður starfsemi L.H. en
tvær atkvæðagreiðslur þarf á tveimur þingum í röð til að slík aðgerð nái fram að ganga.
HART var tekist á í umræðu um það
hvort starfsemi LH skuli aflögð til
að leggja grunninn að sameiningu
við Hestaíþróttasambandið. I hita
„ leiksins hótuðu stjómarmenn afsögn
og aðrir úrsögn úr samtökunum ef
samþykkt yrði að leggja samtökin
niður. í umræðunni komu fram góð
og gild rök á báða bóga um kosti
og galla þess að sameinast og vera
alfarið innan vébanda íþróttasam-
bands íslands.
Á valdi tilfinninganna
Fyrir þinginu lá tillaga frá þeim
þremur nefndarmönnum sem voru
fulltrúar LH í hinni svokölluðu sam-
einingamefnd um að leggja niður
starfsemi samtakanna ásamt ítarlegri
greinagerð og svo drög að lögum
sameinaðra samtaka. Einnig lá fyrir
tillaga stjómar um að mál þetta yrði
rætt á fundum félaga í haust og vet-
ur þar sem tekin yrði afstaða með
eða móti sameiningu. Það er skemmst
frá því að segja að mestur tími þings-
ins fór í þessa umræðu og var oft
býsna heitt í kolunum. Eftir allnokkra
umræðu þegar hismið fór að greinast
frá kjamanum kom vel í ljós að niður-
lagning á starfsemi samtakanna kom
mjög við kviku margra andstæðinga
sameiningar. Mátti glöggt skynja að
mótstaðan var fyrst og fremst tilfínn-
ingalegs eðlis og rökin oft á tíðum
spunnin þar í kring. Öllum má ljóst
vera e^'r Þessa umræðu að tilfínning-
ar eldri kynslóðar sér í lagi, gagnvart
LH, rista djúpt og menn voru ekki
tilbúnir að breyta þar örlítið um um-
hverfí. Fram kom í máli margra and-
stæðinga sameiningar að hér væri
komin af stað þróun sem ekki yrði
stöðvuð. Eigi að síður væru þeir ekki
tilbúnir að taka skrefíð á þinginu.
Sameining fjárhags- og
félagsleg hagsbót
Málflutningur sameiningarsinna
snerist meira um málefnið sjálft og
var bent á að niðurlagningartillagan
sem fór mjög fyrir brjóstið á and-
stæðingunum, væri eingöngu nauð-
synleg tæknileg aðgerð í sameining-
'jd arferlinu. Töldu sameiningarmenn
flest rök hníga að því að sameining
væri til mikilla hagsbóta fyrir hesta-
menn bæði frá fjárhagslegum og
félagslegum sjónarhóli séð. Athygl-
isvert var að í málflutningi ýmissa
andstæðinga var bent á að lítil skyn-
semi væri að fara undir væng
íþróttasamtakanna þar sem hver
höndin væri uppi á móti annarri og
deilt um hvort sameina eigi ÍSÍ og
Ólympíunefnd íslands. Daginn eftir
gerist það svo á þingi ÍSI að tekið
er af skarið um sameiningu þessara
aðila.
Áfram unnið að sameiningu
í allsheijamefnd var gerð beyting
á tillögu stjórnarinnar þar sem
hnykkt var á um að vinnu við samein-
ingu skuli fram haldið á grundvelli
tillagna nefndarinnar að lögum sam-
einaðra samtaka og skipaðir þrír
menn í sameiginlega nefnd með HÍS
sem fara skuli með málið. Sagði
ennfremur að niðurstöður skuli liggja
fyrir eigi síðar en 1. maí nk.
Nefndin lagði til að þessir þrír
menn skyldu kosnir á þinginu og
sprattu upp miklar deilur um þetta
atriði og töldu nokkrir að hér væri
um alvarlegt vantraust á stjórnina
að ræða. Endirinn varð sá að þessu
var breytt á þann veg að stjórnin
skyldi skipa þessa menn og þannig
var tillagan samþykkt með nánast
öllum greiddum atkvæðum.
Kosning í nefnd gaf góða raun
Athyglisvert er í þessu sambandi
að á síðasta þingi voru þrír fulltrúar
LH í sameiningamefndina kosnir af
þinginu. Skemmst er frá þvi að segja
að aldrei fyrr hefur nefnd á vegum
LH unnið af slíkum krafti sem þessi
nefnd gerði, svo ekki er með réttu
hægt að segja að aðferðin hafi gefíð
slæma raun. Það má svo fljóta með
að einn ræðumanna nú taldi að í
fyrra hefði verið farið á bak við
stjómina því þeir hefðu verið í-kaffi
þegar samþykkt var á þinginu í
Garðabæ að þingið skyldi kjósa í
nefndina.
Mikil spenna ríkti við atkvæða-
greiðslu um niðurlagningartillöguna
þar sem þurfti 73 greiddra atkvæða
til að hún næði fram að ganga. Fram
kom tillaga um að viðhöfð yrði leyni-
leg atkvæðagreiðsla og önnur um
nafnakall en báðar vora felldar.
Lyktir urðu þær að meðmæltir niður-
lagningu vora 58 en 49 voru á móti.
Vantaði 14 atkvæði upp á að tillagan
yrði samþykkt en Ijóst þótti að marg-
ir sameiningarsinnar hefðu greitt
atkvæði á móti.
Otvíræð skilaboð um
sameiningu
Ekki virtist ágreiningur eftir á um
hver væra skilaboð þingsins og því
KVENMAÐUR er nú loksins kominn inn á stjómarheimihð hjá LH
og þótti mörgum tími til kominn. Stjómina skipa annars sem hér
segir, aftari röð frá vinstri Jón Bergsson, Halldór Gunnarsson, Sig-
bjöm Bjömsson og Sigurgeir Bárðarson, í fremri röð Sigríður Sig-
þórsdóttir, Birgir Siguijónsson og Guðbrandur Kjartansson.
MIKIÐ mæddi á þeim sameiningarnefndarmönnum Sveinbirni
Sveinbjörnssyni, Sigurði Magnússyni og Haraldi Þórarinssyni.
Þurftu þeir að einbeita sér að glósunum meðan á umræðu um
sameiningarmálin stóð sem hæst.
Nýkjörinn formaður LH, Birgir Sigurjónsson
Skilaboðin að halda áfram sameiningu
„NIÐURSTAÐAN á
afgreiðslu samein-
ingartillagnanna var
málamiðlun og
þannig hlaut það að
fara,“ sagði nýkjör-
inn formaður LH,
Birgir Siguijónsson,
í lok þingsins í sam-
tali við Morgunblað-
ið. „Ef tillagán um
að leggja niður sam-
tökin hefði náð fram
að ganga er hætt við
að tvær fylkingar
hefðu myndast inn-
an hreyfingarinnar
og ekki gott að segja
hvernig mál hefðu þróast í
framhaldi af því.
Persónulega hefði
ég viljað fá þá til-
lögu samþykkta því
sú niðurstaða hefði
flýtt fyrir að end-
anleg niðurstaða af
eða á hefði fengist
um sameiningu. En
fyrst ekki náðust
sættir um slíkt var
þetta næstbesti kost-
urinn,“ sagði Birgir
ennfremur.
Um framhaldið
sagðist hann gera
ráð fyrir að unnið
verði áfram að sam-
einingu í samræmi
við samþykkt þingsins á þing-
skjali 14. Málið verður sent út
Birgir
Sigurjónsson.
í félögin þar sem leitað verður
álits hins almenna félagsmanns
en það hafi vantað inn í umræð-
una. Sagði Birgir auðveldara
fyrir þingfulltrúa á næsta þingi
að taka ákveðna afstöðu þegar
fyrir liggi skýr fyrirmæli frá
félögunum.
Taldi Birgir að héðan í frá
tæki minnst tvö ár að sameina
LH og HÍS. Hann túlkaði skila-
boð þingsins á þá leið að meiri-
hluti væri fyrir sameiningu og
myndi hann vinna í þeim anda.
Hann kvaðst vel sáttur við um-
ræðuna um sameiningarmálið.
„Hér var verið að fjalla um afar
viðkvæmt málefni og menn voru
að mestu málefnalegir í ræðu-
stól,“ sagði Birgir að endingu.
má ljóst vera að fyrir dyrum stendur
að LH og HÍS sameinist svo fremi
sem ekki kemur eitthvað óvænt upp
í umræðunni. Spumingin virðist fyrst
og fremst sú um hversu langan tíma
það tekur.
Þinghaldið að þessu sinni var í
ýmsu frábrugðið öðram þingum. Til-
lögur voru óvenju fáar og urðu sum-
ar nefndir að búa til tillögur sem
voru ágætar en ekki stórmerkilegar.
Hvað kynbótanefndinni viðkemur er
af sem áður var. Þar var áður fyrr
að öllu jöfnu fjörlegust umræðan og
oft hart tekist á. Nú var þetta eins
og skemmtilegur saumaklúbbur sem
lagði til vel viðeigandi þakkir til Þor-
kels Bjarnasonar fyrrverandi hrossa-
ræktarráðunautar fyrir vel unnin
störf og hinu að gætt sé að vinnuá-
lagi á kynbótadómara. Jafnframt
bent á að óheppilegt sé að byggingar-
dæma hross á sama stað og þau eru
sýnd í reið. Sem sagt kynbótanefnd
í frekar mjúkum málum, öfugt við
það sem áður var.
Af öðram samþykktum má nefna
að nú mun leyfilegt að nota leður-
botna í keppni en hóflengd verður
takmörkuð við 100 millimetra. Á
stórmótum verður rifið undan einum
í hesti A og B-flokki samkvæmt út-
drætti, og rifið undan til að kanna
hvort blý leynist undir botni eða í
skeifu.
Þá leggur þingið til að efnt verði
til fundar um breytingar á móta-
haldi. Breytingar á skilyrðum til að
menn öðlist landsdómararéttindi
voru samþykktar. Þá voru sam-
þykktar ýmsar venjubundnar brýn-
ingar til hestamanna og annarra,
t.d. Vegagerðarinnar, um ýmis mál-
efni eins ogs reiðvegagerð og fleira
í þeim dúr.
Kona inn
í karlaveldið
Nokkrar breytingar urðu á stjórn
samtakanna og ber þar hæst að kjör-
inn var nýr formaður, Birgir Sigur-
jónsson, Sörla. í kjöri hans felast
einnig skilaboð um sameiningarvilja
því hann lýsti því yfir svo ekki færi
neinn í grafgötur um skoðanir hans
að hann væri eindreginn sameining-
arsinni og myndi vinna ákveðið að
þeim málum. Var hann kjörinn með
meginþorra atkvæða. Aðrir í stjóm
era Guðbrandur KjartanssOn Fáki,
varaformaður, Sigurgeir Bárðarson
Geysi, gjaldkeri, Halldór Gunnarsson
Létti, Jón Bergsson Freyfaxa, Sig-
björn Björnsson Faxa, og Sigríður
Sigþórsdóttir sem kemur ný inn og
er hún fyrsta konan í stjórn í langan
tíma. Konur hafa alltaf átt erfítt
uppdráttar innan LH og má með
sanni segja að þar hafi ríkt fullkom-
ið karlaveldi. 1 varastjórn vora kjörn-
ir Marteinn Valdimarsson Glað, Birg-
ir R. Gunnarsson Fáki, Haraldur
Þórarinsson Sleipni, Sigfús Helgason
Létti, og Sigurður Ragnarsson And-
vara.
Nýkjörinn formaður tilkynnti að
næsta þing yrði haldið á Egilsstöðum
að ári og sleit að því búnu sam-
komunni.