Morgunblaðið - 29.10.1996, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996 37
►
)
)
I
>
I
9
í
I
I
1
i
I
j
í
I
I
I
I
I
J
I
OLINA SIGRIÐUR
BJÖRNSDÓTTIR
+ Ólína Sigríður
Björnsdóttir
var fædd á Siglu-
firði 17. nóvember
1927. Hún lést á
Sjúkrahúsi Siglu-
fjarðar 21. október
síðastliðinn. For-
eldrar Ólínu voru
hjónin Konkordia
Ingimarsdóttir, f.
14.6. 1905 á Ólafs-
firði, og Björn Ól-
sen Björnsson, f.
11.9. 1903 á Akur-
eyri. Systkini Ólínu
eru: Þóra, Erlend-
ur, Margrét, Ágúst og Björn.
Ólína giftist Hólmsteini Þór-
arinssyni 8.4. 1950.
Börn þeirra eru: 1)
Jóninna, gift Grími
Laxdal og eiga þau
þrjú börn. 2) Sig-
urður, kvæntur
Sigurlaugu Þór-
hallsdóttur, eiga
þau fjögur börn. 3)
Díana, gift Viðari
Konráðssyni, eiga
þau fjögur börn. 4)
Oddný, gift Mark-
úsi Ingasyni og eru
börn þeirra tvö.
Útför Ólínu fer
fram frá Siglu-
fjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Eg var í fimmta bekk í MR þeg-
ar ég kynntist núverandi eiginkonu
minni á balli í Glaumbæ. Með okkur
tókust strax góð kynni og mál þró-
uðust þannig að ég ákvað að keyra
kæmstuna norður til Siglufjarðar,
þá um vorið. Eftir töluvert bras
náðum við norður og þá hitti ég
Ólínu Björnsdóttur, sem varð síðan
tengdamóðir mín.
Eg man að mér þótti hún aðsóps-
mikil, en móttökurnar vom einstak-
ar. Hún hafði útbúið margralaga
tertu, sem var svo góð að annað
eins hef ég aldrei smakkað. Ég
gerði mér oft leið norður um sumar-
ið og tók Ólína ætíð á móti mér
með veislum og einstöku atlæti.
Ólína var mjög ákveðin kona og
gustaði af henni allan daginn við
heimilisstörfin. Við rökræddum
málefni líðandi stundar og eilífðar-
málin og hafði hún ákveðna skoðun
á öllum málum og lét ekki vaða
yfir sig. Ég lærði brátt að meta lífs-
speki og ákveðnar skoðanir hennar.
Heimili okkar hjónanna var á
höfuðborgarsvæðinu og því mikil
fjarlægð norður á Sigló. Ólína
fylgdist alla tíð vandlega með okkur
og hikaði ekki við að nota tæknina
og hringja eða koma í heimsókn.
Ef eitthvað bjátaði á eða eitthvað
stórt stóð til þá stóð ekki á Ólínu
að koma suður og leggja okkur lið.
Þegar maður horfir til baka þá fyll-
ist maður þakklæti fyrir hjálpsemi
hennar og þá alúð sem hún sýndi
okkur. Ferðimar til Siglufjarðar
urðu margar og kærkomnar, því
þar vorum við alltaf velkomin og
það að fara til Sigló var eins og
að fara í frí.
Ólína reykti frá okkar fyrstu
kynnum og er það trú mín að
lungnaþemba og öndunarerfíðleikar
eftir langvarandi reykingar, hafi
eyðilagt heilsu hennar. Það krafta-
verk gerðist þó að hún ákvað að
hætta að reykja, þegar skaðsemi
reykinganna varð ljós, en skaðinn
var þegar skeður. Dró nú jafnt og
þétt af heilsu Ólínu og þurfti hún
að vera inni á sjúkrahúsi meir og
meir, þar til hún varð að vera með
súrefniskút.
Allan tímann sem hún barðist við
sjúkdóm sinn, var hún óþreytandi
að spyija tíðinda og fylgjast með
okkur og börnum okkar. Hagur
okkar skipti hana miklu máli. Ast
hennar og umhyggja var takmarka-
laus.
Ég er mjög þakklátur að hafa
hlotið þá gæfu að eiga Ólínu fyrir
tengdamóður og vin.
Blessuð sé minning hennar.
Grímur Laxdal.
Það er eins og öll orð hverfi úr
huga mínum þegar kemur að því
að kveðja. Það er á svona stundum
sem við áttum okkur á því hversu
stutt þetta líf er. Tíminn flýgur
áfram og áður en við vitum af kem-
ur að endalokum. Það er erfítt að
hugsa til þess að nú sértu farin,
elsku amma mín. Mér er það svo
minnisstætt hve gaman mér þótti
í æsku að heimsækja ykkur afa
norður á Siglufjörð, enda voru mót-
tökurnar ekki af verri endunum
þegar litla ömmu- og afastelpan
kom i heimsókn.
Elsku amma, þú varst með þeim
gáfuðustu konum sem ég hef
kynnst á minni stuttu lífsleið, og
þau voru ófá ráðin sem þú gafst
mér. Alltaf frá því ég var lítil, og
við löbbuðum í gegnum Strákagöng
inn á Máná, varst þú að búa mann
undir að takast á við hinar ýmsu
ógnanir sem vilja oft verða á lífs-
leiðinni. Alltaf lögðuð þið afi mikið
upp úr þvi að við barnabömin mynd-
um ganga menntaveginn. Þótt að
þú værir veik fylgdist þú alltaf vel
með hvað við værum öll að gera
og, síðast en ekki síst, fengum við
alltaf að frétta hvað þú værir stolt
af okkur, þegar eitthvað gekk á í
okkar lífí.
Amma, þú kenndir mér að maður
uppsker eins og maður sáir,og mun
óg ávallt hafa það að leiðarljósi.
Berglind systir er núna úti í Frakk-
landi og fékk því ekki tækifæri til
að koma að kveðja þig. En með það
í huga hversu stolt þú varst af henni
að vera að fara til Frakklands í
framhaldsnám verður söknuðurinn
henni auðveldari. Elsku amma, við
syrgjum þig öll sárt. En við megum
ekki vera eigingjörn. Huggun okkar
er sú að núna hefur þú það miklu
betra og hefur fengið að sjá frels-
ara þinn og ert sameinuð ástvinum
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, faUegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
IIÖTEL LOFTLEIBIR
þínum. Við vitum að við munum
öll sameinast á ný, hinum megin
við móðuna miklu og það gerir mér
söknuðinn léttari.
Hvíl þú í friði og þökk fyrir allt.
Þín nafna,
Ólína.
Elsku amma.
Mig langar að minnast þín með
fáeinum orðum, því að á svona
stundu kemst ég ekki hjá þvi að
hugsa til þín.
Þrátt fyrir að ég vissi að kallið
gæti komið hvenær sem væri er það
samt erfítt þegar það loks kemur.
Bestu árum æsku minnar varði ég
hjá þér og afa á Sigló og ég held
að ég hafí ekki verið nema ijögurra
eða fímm ára gömul, þegar ég
heimtaði að fara ein norður.
Alltaf var mér tekið opnum örm-
um og oft óskaði ég að sumarið
tæki aldrei enda. Ég minnist þess
er ég og Steini frændi vorum alltaf
hjá þér á sumrin og bjuggum til
heilu borgimar úr sandi fyrir utan
húsið hjá þér, og það sem þú gast
hlegið er sundlaugarferðimar vom
orðnar þijár á dag, það var sko
langbest að eiga ömmu og afa sem
áttu heima beint á móti sundlaug-
inni.
Elsku amma, allt sem þú tókst
þér fyrir hendur gerðir þú með
glæsibrag. Garðurinn þinn bar þess
merki því hann var alltaf svo falleg-
ur, fullur af allskonar blómum og
plöntum og man ég þá sérstaklega
eftir hádegisblómunum þínum en
þau opnuðust alltaf er sól skein á
þau.
Handlagin varstu og þegar ég
var lítil þá sendir þú mér ótal kjóla
og voru þeir hver öðrum fallegri
og vona ég nú að staðurinn sem
þú ert nú komin á sé með stómm
blómagarði svo þú getir dáðst að
þeim á nýjan leik.
Elsku amma, þakka þér fyrir allt
saman, minninguna um þig geymi
ég í hjarta mínu að eilífu.
Vertu sæl.
Elsku afi, missir þinn er mestur
og vona ég að Guð vaki yfír þér
og gefí þér von um að þið munið
hittast á ný.
Kveðja,
Konný Björk Viðarsdóttir.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir.amma og langamma,
KRISTÍN LILY KJÆRNESTED,
Þórufelli 20,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn
26. október.
Steingrímur Nikulásson,
Annie K. Steingrímsdóttir,
Margrét Lísa Steingrímsdóttir, Helgi Þorgils Friðjónsson,
Nikulás Á. Steingrímsson,
Friðfinnur Á. K. Steingrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
BJÖRN ÞÓRÐARSON
frá Gilhaga,
Blönduhli'ð,
Hörðudal,
sem lést í Sjúkrahúsinu á Akranesi
þriðjudaginn 22. október, verður jarð-
sunginn frá Prestbakkakirkju í Hrútafirði
föstudaginn 1. nóvember kl. 13.30.
Aðstandendur hins iátna.
+
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
EINAR SIGURJÓNSSON,
skipstjóri
og fyrrverandi forseti
Slysavarnafélags íslands,
Háholti 16,
Hafnarfirði,
varð bráðkvaddur sunnudaginn 27. októ-
ber.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhanna Brynjólfsdóttir,
Brynja Einarsdóttir
og Sigurjón Einarsson.
+
Móðurbróðir okkar,
TÓMAS HÓLM VILHJÁLMSSON,
Kirkjustræti 2,
Reykjavík,
lést á öldrunardeild í Hátúni 10B 22. október.
Jarðarförin hefur þegar farið fram.
Sérstakar þakkir til starfsmanna Hjálpræðishersins í Reykjavík.
Snorri Steinþórsson,
Vilhjálmur Steinþórsson.
+
GUÐNI GUÐMUNDSSON
bóndi
■ Hellatuni,
Ásahreppi,
er látinn.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valgerður Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Valgerður Magnúsdóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, stjúpi, afi og langafi,
KRISTJÁN HÓLMSTEINN
HELGASON
(Lillifrá Bjargi),
Njálsgötu 85,
Reykjavík,
andaðist í Landspítalanum aðfaranótt
26. október sl.
Guðrún Ó. H. Jóhannesdóttir,
Matthildur Kristjánsdóttir, William E. Calvert,
Ásgeir J. Kristjánsson, Hólmfríður Á. Vilhjálmsdóttir,
Kristrún Kristjánsdóttir, Halldór Guðmundsson,
Elín G. Kristjánsdóttir, Kristjón H. Ólafsson,
Gunnlaugur Þ. Kristjánsson, Vigdfs H. Ólafsdóttir,
Helgi Kristjánsson, Sæunn Guðmundsdóttir,
Alda B. Indriðadóttir, Einar Bjarnason,
Pétur B. Indriðason, Sigurveig Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir, sonur, tengdasonur,
mágur og svili,
SKÚLI SIGURÐSSON
lögfræðingur,
Bauganesi 4,
Reykjavfk,
er látinn.
Kristfn Þ. Hauksdóttir,
Haukur Skúlason, Hilma Hólm,
Skúli Skúlason,
Sigurður Skúlason,
Sofffa Sigfinnsdóttir,
Ólöf Sigurjónsdóttir,
Marfa Hauksdóttir, Þórarinn Einarsson
og aðrir vandamenn.