Morgunblaðið - 29.10.1996, Page 41

Morgunblaðið - 29.10.1996, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1996 41 MINNINGAR ORRIMÖLLER EINARSSON + Orri Möller Einarsson fæddist í Reykjavík 13. maí 1976. Hann lést á Landspítalan- um 17. október síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akur- eyrarkirkju 28. október. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og bezta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótti þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, - Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, - drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. (Sig. Kr. Pétursson.) Elsku Sússý, þú hefur verið svo dugleg og staðið með elsku dréngnum þínum í þessari baráttu. Það er svo sárt að þurfa að sjá á eftir einkabarni sínu, hann sem var orðinn svo stór og karlmann- legur og þú varst alltaf svo stolt af honurri. Einar minn, síðustu mánuðirnir hafa verið þér erfiðir, þú varst svo duglegur að vera hjá Orra þínum þegar hann var fyrir sunnan á Landspítalanum og tengslin milli ykkar voru orðin svo sterk. Við kveðjum þig, elsku Orri, með söknuði og trega í hjarta og biðjum góðan Guð að styrkja for- eldra þína og ástvini. Guð geymi þig. Alma og Birgir. Elsku Orri okkar. Nú er þessari erfíðu baráttu lokið. Þú barðist vel, varst alltaf mjög sterkur og reyndir að láta þennan illvíga sjúkdóm hafa sem minnst áhrif á þig. Við erum viss um að þú ert kominn á betri stað, og þér líður nú vel. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Við viljum votta foreldrum, ætt- ingjum og vinum okkar dýpstu samúð, megi guð styrkja ykkur í sorginni. 4. G, Menntaskólanum á Akureyri. Það er oft sagt að þeir sem guðirnir elska deyi ungir, sem á svo sannarlega við um hann Orra okkar. Það er erfitt að þurfa að kveðja slíkan vin svó snemma, sem ætíð hefur verið okkur við hlið. Orri var svo lífsglaður og kátur og vildi alltaf taka þátt í öllu sem var að gerast og þá helst fá að stjórnast með í hlutunum sem honum fórst líka vel úr hendi. Hann var mjög mikil félagsvera og leið alltaf vel í góðra vina hópi. Hann var góður og traustur vinur og þó að orðin séu fá er hugsunin mun meiri. Elsku Orri, við viljum þakka fyrir okkar yndislegu samveru- stundir og munum ætíð minnast þín í hug og hjarta. Þungur er harmur, þú ert horfinn, vinur, þöglar við horfum yfir djúpið kalda. Brotinn er vængur, burtu ungur hlynur, bitur þau sköp er slíku sári valda. Elsku Sússý og Einar, megi Guð og góðir hlutir styrkja ykkur í ykkar djúpu sorg. Regína og Eydís Elva. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp- lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega linuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skirnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Þökkum hlýjar kvefijur og vinsemd við andlát og útför TORFA HJARTARSONAR fyrrv. tollstjóra og sáttasemjara ríkisins. Hjörtur Torfason, Nanna Þorláksdóttir, Ragnheiður Torfadóttir, Þórhallur Vilmundarson, Helga Sóley Torfadóttir, Róbert M. Kajioka, Halla Thorlacius, Sveinbjörn Þorkelsson. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við frá- fall og útför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, ÚLFARS KARLSSONAR. Guðrún Eva Úlfarsdóttir, Karl Úlfarsson, Ágústa Edwald, Jón O. Edwald, Steindór Úlfarsson, Sigríður Jóna Jónsdóttir, Ásgeir Þáll Úlfarsson, Margrét Alda Úlfarsdóttir, Guðbjartur Gunnarsson, Emelfa Dóra Petersen, Vagner Petersen, barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn. Skipamiðlunin, Síðumúla 33 Höfum á skrá sóknarbáta: Flugfisk 22f lína, handfæri. Flugfisk 22f hand- færi, einn með öllu. Trébát framb. lína, hand- færi og grásleppa. Aflahámarksbátar: Skel 80 m. 40 tonnum. Færeyingur m. 13 tonnum. Sómi 860 m. 109 tonnum. Aflamark: Bátar af öllum stærðum og gerðum. Höfum kaupanda að 150-200 tonna afla- marksskipi. Vegna mikillar eftirspurnar vant- ar allar gerðir skipa og báta á skrá. Skipamiðlunin, Síðumúla 33, sími 568 3330. Sölustjórar: Eggert Jóhannesson, Friðrik Ottósson. Lögfræðingur: Erling Óskarsson. Framhaldsuppboð Neöangreint lausafé verður boðið upp á framhaldsuppboði fyrir utan skrifstofu sýslumansins á Hólmavík á Hafnarbraut 25, Hólmavík, miðvikudaginn 6. nóvember 1996 kl. 14.00 að kröfu tollstjórans í Reykjavík: Bifreiðin I-2570, fast númer FY-641, Toyota Hi-Lux árg. 1980. Greiðsla við hamarshögg. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki sýslumanns. Sýslumaðurinn á Hólmavik, Ólafur Þ. Hauksson. ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu verslunarhúsnæði á Norðurbrún 2, Reykjavík, 60 fm brúttó. Er við hliðina á nýrri Ellefu-ellefu verslun. Hentart.d. sem blómabúð - ísbúð - fisk- búð - filmuframköllun - vídeóleiga. Upplýsingar í síma 557 3131 eða 893 0731. Verslunarhúsnæði óskast í miðbæ Reykjavíkur eða verslunarkjarna, ca 30-60 fm. Upplýsingar í síma 897 1784. TIL SÖLU Fyrirtækjasala Hóls kynnir nú til sölu: Heildverslun - innflutn- ingur (18012) Um er að ræða þekkt fyrirtæki á sviði innflutn- ings á eldhústækjum og búnaði fyrir hótel, veitingahús og matvælaframleiðslu, einnig húsgagnainnflutningur. Fyrirtækið er með mikla viðskiptavild hérlendis og erlendis. Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu fyrir- Skipholti50b f«Is im“ Jörðin Þórustaðir í Vatnsleysustrandarhreppi Til sölu er jörðin Þórustaðir í Vatnsleysu- strandarhreppi sem er að hálfu í eigu þrota- bús Silfurlax hf. Jörðin er landmikil og nær frá sjó og upp að Keili. Á henni er nýlegt 160 fm einbýlishús og gömul útihús, m.a. fjós, hlaða, skemma og lítið fiskverkunarhús. Til greina kemur að selja eingöngu 50% eign- arhlut þrotabúsins eða jörðina alla. Skiptastjóri þrotabús Silfurlax hf. gefur nán- ari upplýsingar í síma 554 5200. ÁSGEIR MAGNÚSSON HDL LÖGMANNSSTOFA HAMRABORG 10 • 200 KÓPAVOGUR SlMI 554 5200 • FAX 554 3916 /singar FÉLAGSLÍF □ Edda 5996102919 l 1 Atkv. □ Hlín 5996102919 VI 1 Frl. BibUuskólinn við Hoítaveg Á gömlum síðum Biblíunnar Næstu fjögur mánudagskvöld verður námskeiö um seinni hluta spádómsbókar Jesaja. Skúli Svavarsson, kristniboði, skoðar, les valda kafla og svarar ýmsum spurningum um þennan merka hluta Gamla testamentisins. Skráning í síma 588 8899 til 1. nóvember. Námskeiðsgjald er 1.200 kr. V Frá Sálarrannsóknarfélagi íslands Breski umbreyt- ingamiðlillinn Diane Elliot hefur hafið störf hjá fé- laginu. Diane býð- ur upp á umbreyt- ingafundi fyrir hópa og einka- fundi i lestri og Tarrot eða lestri og áruteikningu. Að þessu sinni verður Diane hér í aðeins 2 vik- ur. Þeim, sem hafa áhuga á að hitta hana, er bent á panta tíma sem fyrst. Allar upplýsingar og bókanir i síma 551 8130 milli kl. 10 og 12 og 14 og 17 alla virka daga og á skrifstofunni ( Garðastræti 8. SFÍ. AD KFUK, Holtavegi. Gildi bænarinnar í starfi KFUK og mikilvægi fyrirbæ'nar í kristnu samfélagi. Elísabet Haraldsdótt- ir, Sigrún Gísladóttir og Svein- björg Arnmundsdóttir hugleiða efni fundarins. Allar konur velkomnar. Nýbýlavegi 30, Kópavogi, gengið inn Dalbrekkumegin Hugleiðsluferð út í náttúruna undir stjórn og leiðsögn Krist- ínar Þorsteinsdóttur. i kvöld mun Kristín Þorsteins- dóttir bjóða upp á hóphug- leiðsluferð út í nátturuna ef veð- ur leyfir. Farið verður með rútu rétt út fyrir bæjarmörkin og sett- ur upp bálköstur og hugleitt undir berum himni við varðeld. Skilyrði er að stilla sé og stjörnu- bjart - ef svoleiðis veður verður ekki fellur ferðin niður. Þeir sem hafa áhuga mæti í Sjálfefli, Ný- býlavegsmegin eigi síöar en kl. 20 vel klæddir og með teppi og hvað sem þeir sem telja sig þarfnast til að vera hlýtt. Þeir sem treysta sér ekki til að sitja á jörðinni komi með stóla með sér. Áætluð heimkoma er milli kl. 23 og 24. Verð kr. 1.000. Allir velkomnir. - kjami málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.