Morgunblaðið - 30.10.1996, Qupperneq 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1996
BLAD
Leigukvóti og varanlegur
þorskkvóti lækkar í verði
• STARFSMENN Netagerðar
Vestfjarða, Ólafur Skúlason og
Einar Gunnlaugsson, voru að
bæta stykki í troll Gauksins GK
þegar ljósmyndari Morgun-
Morgunblaðlð/Goili
blaðsins hitti þá á bryggjunni í
Bolungarvík á dðgunum.
leiguverð á afia-
Eftirspum er engin ennþá ,‘6KL^"úr
að söffn kvótamiðlara LIU hVÍ:,;! “6. læ^\er
° verio að bjoða varanleg-
an þorskkvóta á 600 kr. kg sem er talsverð verðlækkun frá því í upphafi kvóta-
ársins, þann 1. september sl. Þrátt fyrir það hefur enn engin eftirspurn verið
eftir þorskkvóta, hvorki varanlegum né til leigu, að sögn Björns Jónssonar,
kvótamiðlara hjá LÍÚ.
3 Læknisþjónusta
með hjálp
fjarskiptatækni
Rannsóknir
5 Rækjuveiðarnar
á Flæmska
hattinum
Markaðsmál
0 Erfðatæknin
getur breytt
forsendunum
í laxeldinu
„Þ'að er beinlínis enginn áhugi, varla
hringt og spurst fyrir. Ætli menn séu
bara ekki búnir að átta sig á því að
dæmið gengur ekkert upp með því að
kaupa varanlegan þorskkvóta til sín á
svo háu verði á sama tíma og verð fyr-
ir leigu er svo lágt sem raun ber vitni.
Við vitum að leigukvótaverð hefur áhrif
á viðskiptin, en eftir því sem leigan er
ódýrari, því síður er spenningur fyrir
viðbót í varanlegum aflaheimildum.
A sama tíma í fyrra var í september
og fram í október veruieg eftirspurn
eftir kvóta, en þá var verð á varanlegum
þorskaflaheimildum 460 kr. kg og
leigðuverðið um 90-95 kr. kg. Eins og
staðan er í dag, er ekki saman að jafna
að kaupa varanlegar þorskaflaheimildir
fyrir 600 kr. án þess að eiga möguleika
á því að leigja kvótann fyrir meira en
68 kr. eða þaðan af minna,“ segir Björn.
30 þúsund tonna
viðbótarheimildir
Lækkandi kvótaverð má án efa skýra
að einhverju leyti með því að bætt var
yfir 30 þúsund tonnum við þorskaflahá-
markið á því fiskveiðiári, sem nú stend-
ur yfír, miðað við árið í fyrra.
„Það hlýtur að þýða að meira fram-
boð sé af þorski sem aftur hlýtur að
kalla á lækkandi verð. Mér finnst hins-
vegar hafa orðið mjög snögg breyting
á þessu nú því yfirleitt ef varanlegar
þorskaflaheimildir hafa komið inn til
sölu, hafa þær nánast horfið eins og
skot þó viðskipti með kvóta séu langai-
gengust í formi skipta á aflaheimildum
án þess að nokkur einasta króna fari á
milli manna,“ segir Björn.
Aðspurður um hvort ætla mætti að
um samantekin ráð kvótakaupenda
gæti verið að ræða í ljósi engrar eftir-
spurnar til þess að þrýsta kvótaverðinu
niður á við, svaraði Björn því til að
honum þættu slík samráð í raun og
veru ekkert óeðlileg þar sem að menn
vildu fá kvótann sem ódýrastan.
„Ég hef á hinn bóginn ekki nokkra
trú á því að neitt svoleiðis sé í gangi,“
segir Björn.
Fréttir Markaðir
Aukning á
Evrópumarkaði
• UM ÞAÐ bil 11% sölu-
aukning varð á sölu Iceland
Seafood Ltd., markaðs- og
sölufyrirtæki íslenskra
sjávarafurða, á Evrópusam-
bandsmarkaðnum fyrstu
níu mánuði þessa árs miðað
við sömu mánuði í fyrra. Á
Evrópumarkaðssvæðinu
rekur IS þrjár skrifstofur,
eina í Bretlandi, aðra í
Frakklandi og þá þriðju í
Þýskalandi./2
Lítil veiði
við Eldeyna
• LÍTIL síldveiði hefur ver-
ið við Eldeyna frá því að
Árni Friðriksson fann þar
síld í síðustu viku. í gær-
morgun voru aðeins tvö skip
á Eldeyjar-miðum, Jón Sig-
urðsson GK, sem landar í
Grindavík, og Elliði GK sem
landar á Akranesi, en bæði
þessi skip fengu í fyrradag
leyfi sjávarútvegsráðuneyt-
isins til þess að stunda síld-
veiðar á svæðinu í flottroll
allan sólarhringinn, en áður
mátti aðeins nota flottroll
frá 7.00 á morgnana til
19.00 á kvöldin./4
Burðargeta
aukin um 4001.
• NÓTASKIPIÐ Örn KE 13
heldur til veiða í dag eftir
miklar breytingar í Póllandi
í sumar. Segja má að allur
framhluti skipsins sé nýr og
ber það eftir breytingarnar
1.100 til 1.200 tonn af síld
og loðnu og er með búnað
til kælingar aflans um borð.
Áður bar Örn 750 tonn, en
hann var smíðaður í Noregi
1966 og var síðan lengdur
1976./7
Landa fiski
fyrir skipin
• LÖNDUN ehf. var stofn-
uð árið 1987 og hefur að-
stöðu við Reykjavíkurhöfn.
Fyrirtækið sinnir þörfum
útgerða varðandi löndun
sjávarafurða og veitir aðra
almenna þjónustu við fiski-
skip. Þeir Stefán Siguijóns-
son, framkvæmdastjóri, og
Svavar Ásmundsson, þjón-
ustusijóri, segja fyrirtækið
leitast við að veita vandaða
og skjóta þjónustu og bjóða
nauðsynlegan tækjabúnað
og úrval manna við að landa
úr fiskiskipum hvar sem er
í Reykjavíkurhöfn./8
Mikið veitt
utan landhelgi
• FISKAFLI íslendinga ut-
an landhelgi var orðinn
rúmlega 254.000 tonn
fyrstu níu mánuði þessa árs.
Langmest af aflanum er
norsk-íslenzka síldin, tæp-
lega 165.000 tonn. Rúmlega
51.000 tonn hafa veiðzt af
úthafskarfa, en þar af hafa
um 4.000 tonn verið tekin
úr kvóta Grænlendinga.
Rækjuveiðar á Flæmska
liattinum hafa aukizt gífur-
lega milli ára og námu nú
um 18.500 tonnum. Þorsk-
afli í Barentshafi nam
18.300 tonnum.
Afli utan landhelgi
f janúar-september 1996
í tonnum, botnfiskur óslægður
Úthafskarfi
51.435t
Þorskur
18.285 t
Rækja I
18.4941
Rækja II
6011
Annar afli 723t
Rækja I = á Flæmingjagrunni
Rækja II = á Dohrnbanka
Mikill afli
kominn á land
Afli í janúar- sept.
þrjú síöastliðun ár
tonnum, botnfiskur óslægður
1995 1996
hús.
tonn
1.000
|
ft’
ALLUR AFLI
Parafloðna
Par af botnf.
þar af þorskur
• FISKAFLINN í septem-
bermánuði siðastliðnum
varð alls um 60.000 tonn,
sem er heldur meira en tvö
síðustu árin, en miklu
minna en árið 1993, þegar
153.000 tonn bárust á land.
Það sem af er árinu er afl-
inn hins vegar orðinn
1.514.185 tonn samkvæmt
bráðabirgðatölum Fiskifé-
lagins. Það er mun meira
en á sama tíma tvö síðustu
ár, er aflinn þetta tímabil
varð 1.056.033 tonn og
1.239.773 tonn. Mestu mun-
ar um mikla loðnuveiði, sem
þegar er orðin meira en
milljón tonn./6