Morgunblaðið - 06.11.1996, Blaðsíða 1
JNrogtiitlifafeito
D
1996
MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER
BLAD
Keflvíkingar
verða áminntir
Á FUNDI aganefndar KKI í gær voru teknar
fyrir tvær kærur sem bárust að lokinni viður-
eign Keflavíkur og KR sl. fimmtudag. „Niður-
staða okkar var sú að Keflvíkingar verða
áminntir í framhaldi af kæru Einars Einarsson-
ar dómara,“ sagði Gunnar Aðalsteinsson, vara-
formaður aganefndar, í gærkvöldi, en Einar
kærði Keflvíkinga vegna áhorfanda sem fór inn
á völlinn og tók fast í handlegg hans. Keflvíking-
ar kærðu Oskar Kristjánsson, KR, fyrir óprúð-
mannlega framkomu. „Kæru Keflvíkinga var
vísað frá á þeim forsendum að hún barst of
seint samkvæmt lögum KKÍ. Kærufrestur er
tveir sólarhringar frá því að leik lýkur en þessi
kom ekki fyrr en á mánudaginn," bætti Gunnar
við. Hann var formaður aganefndar á þessum
fundi þar sem formaðurinn Jón Eysteinsson vék
úr aganefndinni því hann er Keflvíkingur.
FRJALSIÞROTTIR
Martha Ernstsdóttir hlaupakona úr ÍR varð önnur í Amsterdam-maraþoninu
Veðrið setti stórt
strik í reikninginn
að voru sex til átta vindstig allan tímann
sem hlaupið stóð yfir og það var hrika-
legt að hlaupa við þessar aðstæður. Af þessu
leiddi að tíminn var ekki eins góður og ég
hafði gert mér vonir um,“ sagði Martha Erns-
tsdóttir, hlaupakona úr ÍR, en hún varð í
öðru sæti í Amsterdam-maraþonhlaupinu á
sunnudaginn við ákaflega erfiðar aðstæður.
Tíminn hennar var 2:39.33 klst.
„Veðrið kom öllum í opna skjöldu og olli
heimamönnum miklum vonbrigðum. Ekki
bætti úr skák að um morguninn rigndi tals-
vert og þar af leiðandi voru göturnar blautar
og nokkur raki í loftinu."
Martha sagði að þrátt fyrir að alltaf væri
gaman að hlaupa maraþonhlaup væru það
vonbrigði þegar veðrið setti strik í reikninginn
eins og að þessu sinni. „Hlaupari hleypur
ekki nema tvö eða þrjú maraþonhlaup á ári.
Þetta er ekki eins og á styttri vegalengdunum
þar sem hægt er að endurtaka leikinn við
fyrsta tækifæri og freista þess að bæta sig
þá.“ Martha segist hafa fyrirfram gert sér
vonir um að geta bætt fyrri árangur en af
því hafi ekki orðið. Hún á best 2:38.05 klst.
frá Rotterdam-maraþoninu í vor. Hún sagðist
vera í góðri æfingu og að því leyti hefði ekk-
ert verið til fyrirstöðu. Þetta var þriðja mara-
þonhlaup Mörthu í keppni um ævina og lak-
asti tíminn. „Ég var að gera mér vonir um
að geta hlaupið á allt að fjórum mínútum
betri tíma en raun varð á. Það kemur heim
og saman við það sem mótshaldarar sögðu,
að tími þeirra bestu hefði orðið ijórum til
fimm mínútum betri ef veðrið hefði verið
eðlilegt.
Ég reyndi að hafa hlaupið sem jafnast því
síðast þegar ég hljóp vegalengdina fór ég
fyrri hlutann of hratt. Vindurinn var hins
vegar þannig að stundum stóð hann í fangið
og á milli var hann í bakið eða á hlið. Það
gerði það að verkum að mér tókst ekki að
hafa hlaupið eins jafnt og áætlanir voru um.
Lengst af hljóp ég ein og það er slæmt að
vera ekki í hópi við þessar aðstæður til þess
að hafa einhvern til að skýla sér. Síðustu sjö
kílómetrana var vindurinn beint í fangið og
þegar tveir kílómetrar voru eftir fékk ég
magakrampa sem varð ekki til létta undir
með mér.“
Martha segist ekki ætla að einbeita sér
að hlaupum næstu mánuði. Hún sé í námi
og stefni á að ljúka því næsta vor. Auk þess
ætli hún að vinna með náminu. Þar af leiði
að minni tími verði til æfinga á næstunni.
„Ég er langt frá því að vera hætt, en ég
verð að eiga fyrir salti í grautinn og það
verður að hafa forgang næstu mánuði.“
• ‘ m
: ■
Atvinnu-
maðurinn
eftir heima
AFREKSIÞROTTIR
Um 19 milljörðum kr.
hevtið í íþróttamiðstöð
LIECHTEN STEIN mætir tíl
leiks í Makedóníu í riðia-
keppni heimsmeistarakeppn-
innar á laugardag án eina
atvinnumanns síns en liðin
eru í riðli með íslendingum
sem heimsækja írland um
helgina. Mario Frick, miðju-
maður hjá Basel í Sviss, tekur
út leikbann en Ralf Oehri var
valinn í staðinn. Hann missti
af leiknum í Litháen í liðnum
mánuði, sem Liechtenstein
tapaði 2:1, þar eð hann fékk
sig ekki lausan úr vinnu.
Liechtenstein tapaði fyrri
leiknum á móti Makedóníu 3:0
en um var að ræða fyrsta leik
fyrrnefndu þjóðariimar í HM
í knattspyrnu.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, hefur fyrir hönd rík-
isstjórnarinnar lofað allt að 100
milljónum punda (um 10,9 milljörð-
um kr.) vegna fyrirhugaðrar
íþróttamiðstöðvar fyrir afreksfólk.
25 umsóknir varðandi uppbygg-
ingu sllks æfingasvæðis hafa bor-
ist en Ólympíunefnd Bretlands lýsti
yfir stuðningi við umsókn frá Hey-
ford á Mið-Englandi og lofaði millj-
ón pundum á ári í reksturinn ef
Heyford yrði fyrir valinu. Fyrir-
tæki og einstaklingar I Heyford,
einkum I byggingariðnaði, sem
hafa í hyggju að reisa gistiaðstöðu
á svæðinu, hafa skuldbundið sig
til að leggja fram 75 milljónir
punda (um 8,175 milljarða kr.)
verði áætlun staðarins tekið en í
henni er gert ráð fyrir að breyta
gamalli bandarískri flugstöð í um-
rætt íþróttamannvirki með aðstöðu
fyrir margar íþróttagreinar, m.a.
borðtennis, spretthlaup og blak.
Bretar voru allt annað en
ánægðir með árangurinn á Ólymp-
íuleikunum I Atlanta í sumar og í
kjölfarið sögðu íþróttaleiðtogar að
meiri stuðningur ríkisvaldsins en
til þessa væri nauðsynlegur til að
hægt væri að gera betur, en Bret-
ar fengu aðeins ein gullverðlaun á
leikunum. Douglas Hurd, fyrrum
utanríkisráðherra Bretlands, er
fulltrúi Heyford á þingi og fylgdi
umsókninni úr hlaði. „íþróttir eru
eða eiga að vera ein helsta eign
Bre*a í heiminum,“ sagði hann.
„Við höfum ekki staðið okkur eins
vel og við ættum að gera. Við
þurfum að skoða málið og finna
leiðir til að ráða bót á vandanum."
Craig Reedie, formaður
Ólympíunefndar Bretlands, sagði
að áætluð íþróttamiðstöð í Heyford
tryggði að allt íþróttafólk, sem
ætti möguleika á að skara fram úr
í alþjóðakeppni, fengi bestu þjálfun
sem möguleg væri byggða á
íþróttavísindum og því væri mikið
í húfi.
HANDKNATTLEIKUR: HAUKASTÚLKUR í EFSTASÆTI / D2