Morgunblaðið - 07.11.1996, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 B 3
_________________________VIÐSKIPTI_________
Evrópsk símafyrirtæki
slást um hylli fjárfesta
Morgunblaðið. Montpellier.
EVROPSK símafyrirtæki beijast
um hylli fjárfesta þessa dagana í
tengslum við afnám einokunar rík-
isrekinna símafyrirtækja í aðildar-
ríkjum Evrópusambandsins sem og
í þeim löndum sem eiga aðild að
evrópska efnahagssvæðinu, en
samkeppni í þessum geira verður
gefin ftjáls 1. janúar 1998. British
Telecom hefur að vísu þegar nokkra
sérstöðu meðal evrópskra símafyr-
irtækja, þar sem það hefur verið
einkarekið um alllangt skeið, og
hefur sennilega enn skotið keppi-
nautunum ref fyrir rass með samr-
unanum við MCI.
Næstu stórtíðindi á þessum evr-
ópska markaði verða væntanlega
hinn 18. nóvember næstkomandi
en þá verða hlutabréf þýska síma-
fyrirtækisins Deutsche Telekom
skráð á hlutabréfamarkaði og verða
500 milljarðar hluta, eða sem sam-
svarar um 20% af heildarhlutafé
fyrirtækisins, sem er hið þriðja
stærsta í heiminum, boðin fjárfest-
um til kaups.
Þijú símafyrirtæki á markað í
byijun næsta árs
Þetta hlutafjárútboð, sem talið er
að sé að minnsta kosti um 670
milljarðar íslenskra króna að sölu-
verðmæti, hefur vakið mikla at-
hygli í Frakklandi, á Ítalíu og á
Spáni, þar sem undirbúningur
stendur yfir á sölu á hlut ríkisins í
símafyrirtækjum þessara landa.
Í febrúar eða mars á næsta ári
hyggst ítalska ríkisstjórnin selja
64,1% hlut í STET, móðurfyrirtæki
ítalska símafyrirtækisins Telecom
Italia, en fyrirtækið er sjötta
stærsta símafyrirtæki heims. Sölu-
verðmæti þessara hlutabréfa er
áætlað rúmlega 470 milljarðar ís-
lenskra króna.
Um miðjan apríl á næsta ári
hyggst franska ríkisstjómin síðan
selja 20% hlut í franska símafyrir-
tækinu France Telekom, sem er hið
fjórða stærsta í heiminum. Er sölu-
verðmæti þeirra hlutabréfa áætlað
a.m.k. 270 milljarðar íslenskra
króna.
Þá stefnir spænska símafyrir-
tækið Telephonica að því að skrá
hlutabréf sín á hlutabréfamarkaði
og lýsti spænska ríkisstjórnin því
yfir hinn 14. október síðastliðinn
að hún hygðist selja 21,2% í fyrir-
tækinu strax í byijun næsta árs.
Þessi hlutur er metinn á rúmlega
240 milljarða íslenskra króna.
Svo mikið framboð á hlutabréfum
í sömu atvinnugrein á svo stuttu
tímabili er algert einsdæmi, en
markaðsvirði þeirra hlutabréfa sem
áætlað er að selja er um 1.600
milljarðar íslenskra króna. Þetta
mikla framboð tengist sem fyrr
segir afnámi á einokun ríkisrekinna
símafyrirtækja í aðildarríkjum Evr-
ópusambandsins, en samkeppni
verður gefín fijáls 1. janúar 1998.
Ríkisstjórnir þeirra landa sem hér
eiga í hlut hafa gefið þá ástæðu
fyrir sölu á hlutabréfum í símafyrir-
tækjum, að hún sé liður í því að
búa fyrirtækin undir samkeppni og
tryggja að þau standi jafnfætis
væntanlegum keppinautum sínum
frá og með 1. janúar 1998.
Enn á eftir að móta betur þær
reglur sem koma til með að gilda
um samkeppni í símaþjónustu í að-
ildarríkjum Evrópusambandsins, en
vinna við þær er á lokastigi og
aðeins á eftir að ganga frá fáeinum
atriðum. Gert er ráð fyrir að þessar
reglur muni liggja fyrir ekki síðar
en í lok þessa árs eða byijun þess
næsta, enda þarf að vera nægur
fyrirvari áður en þær taka gildi í
ársbyijun 1998.
Sérfræðingar
bjartsýnir
Það er líklegt að almenningur í
þessum löndum renni hýru auga til
hlutafjárútboðs á almennum mark-
aði, þrátt fyrir svo mikið framboð
bréfa. Sérfræðingar eru líka bjart-
sýnir á að sala bréfanna muni
ganga vel. „Það efast enginn um
að öll bréfin muni seljast," sagði
Laurence Heyworth, hjá Robert
Flemings Securities, í desember á
síðasta ári á ráðstefnu sem Financ-
ial Times stóð fyrir í London.
BZW, sem sér um sölu á hluta-
bréfum í ítalska símafyrirtækinu
STET, telur engan vafa leika á því
að fjárfestar, sér í lagi stofnanafjár-
festar, muni sækjast eftir því að
bæta símafyrirtækjunum fjórum í
hlutabréfasafn sitt. Þannig sé lík-
legt að stofnanafjárfestar muni
dreifa hlutabréfaeign sinni á öll
símafyrirtækin fjögur.
Þá er einnig bent á væntanlegt
vægi þessara hlutabréfa á hluta-
bréfamarkaði í hveiju landi fyrir
sig. Þannig munu hlutabréf
Deutsche Telekom verða meðal
hlutabréfa þeirra 30 fyrirtækja sem
mynda DAX-hlutabréfavísitöluna í
Frankfurt. Hlutabréf í DT einu og
sér munu vega um 5% af vísi-
töiunni og það eitt og sér geri það
nauðsynlegt fyrir stærri ijárfesta
að eignast hlut í fyrirtækinu til að
viðhalda réttri áhættudreifíngu á
hlutabréfaeign sinni.
Nokkur óvissa ríkir þó um það
meðal fjárfesta hvemig verðleggja
eigi símafyrirtækin fjögur. Sá þátt-
ur, sem veldur hvað mestri óvissu,
er hvernig einokunarfyrirtækjunum
muni ganga að fóta sig í samkeppn-
isumhverfi og hversu stórum hluta
af núverandi markaðshlutdeild þeim
muni takast að halda. Þá er einnig
alveg óvíst hversu mörg ný símafyr-
irtæki muni taka til starfa í hveiju
landi eftir að frelsið kemst á.
Fjárfestar munu því væntanlega
fylgjast grannt með því hvernig
Deutsche Telekom tekst að fóta sig
á hlutabréfamarkaði frá og með 18.
nóvember næstkomandi, og hver
þróunin verður á gengi hlutabréfa
í fyrirtækinu fram að þeim tíma er
hlutafjárútboð í hinum símafyrir-
tækjunum þremur hefst.
USAir
kaupir 120
Airbus
New York.
Bandaríska flugfélagið USAir
mun panta 120 litlar farþega-
þotur af Airbus Industrie og
þar með hafa evrópsku flug-
iðnaðarsamtökin unnið annan
sigur í baráttu sinni við banda-
rísku Boeing-flugvélaverk-
smiðjunnar að sögn Wall Str-
eet Journal.
Flugvélarnar kosta 5.3
milljarða dollara, en verða
seldar með afslætti að sögn
blaðsins. Keyptar verða 120
þotur af gerðunum A-319 og
A-320, sem hver um sig tekur
124-150 farþega. Búizt er við
að afhendingar hefjist 1998.
Fleiri flugfélög í Norður-
Ameríku hafa pantað farþega-
þotur frá Airbus að undan-
förnu. Northwest Airlines, Air
Canada, America West Air-
lines og Federal Express Corp
hafa gert föst tilboð í tæplega
300 124-150 sæta þotur.
Pantanirnar eru ekki aðeins
áfall fyrir Boeing í Seattle
heldur einnig fyrir McDonnell
Douglas Corp í St. Louis, sem
hefur ákaft reynt að tryggja
kaupendur að 100 sæta þotu
sinni, MD-95.
USAir hefur fengið kaup-
rétt á 120-180 þotum til vibót-
ar hjá Airbus og verði þær
allar keyptar eykst verðmæti
pöntunarinnar í yfir 12 millj-
arða dollara að sögn Wall Str-
eet Journal.
Vinsæll vinnuþjarkur
kostar aðeins frá
1.362.000
an
vsk.
?
HEKLA
Volkswagen
Öruggur á a//o vegul