Morgunblaðið - 07.11.1996, Qupperneq 12
3Mfr»gnHM<frlfr
VIÐSKIPTIAIVINNULÍF
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996
Fólk
Nýir starfs-
menn hjá
Samskipum
• ANNA Guðný Aradóttir hóf
störf sem framkvæmdastjóri
Landflutninga 1. september síð-
astliðinn. Anna
Guðný er stúdent
frá MA og lauk
rekstrar- og við-
skiptanámi frá
Endurmenntun
HÍ vorið 1996.
Hún var áður að-
stoðarmarkaðs-
AnnaGuðný stjóri Stöðvar 2.
Aradóttir Anna Guðný er
gift Ásgeiri Hermanni Stein-
grímssyni trompetleikara og eiga
þau tvær dætur.
• ARNÓR Steingrímur Guð-
jónsson hefur hafið störf sem
deildarstjóri hagdeildar. Amór
lauk námi í við-
skiptafræði frá
HÍ 1995. Hann
hefur starfað hjá
Samskipum síðan
hann lauk námi.
Hann er kvæntur
Auði Ólínu
Svavarsdóttur
rekstrarhagfræð-
ingi og eiga þau
eina dóttur.
• RAGNAR Þór Ragnarsson
hefur verið ráðinn deildarstjóri
tölvudeildar. Ragnar Þór er tölv-
unarfræðingur
frá HÍ og útskrif-
aðist 1993. Hann
hefur starfað hjá
Samskiptum frá
þeim tíma. Ragn-
ar Þór er kvænt-
ur Hólmfríði
Einarsdóttur og
Ragnar Þór eiga þau einn
Ragnarsson son
• KRISTINN
Þór Geirsson
hefur verið ráðinn
framkvæmda-
stjóri rekstrar-
sviðs Samskipa.
Hann er fæddur
27. júlí 1966.
Kristinn Þór lauk
námi í viðskipta-
fræði frá HÍ árið
1991 og prófi í rekstrarhagfræði
(MBA) frá Wharton Business
School í Bandaríkjunum árið 1995.
Hann hefur starfað hjá Samskip-
um frá árinu 1989 og sem deildar-
stjóri hagdeildar Samskipa frá
1995. Kristinn Þór er kvæntur
Thelmu Víglundsdóttur og eiga
þau eina dóttur.
Ráðinn til Op-
inna kerfa hf.
• HJÖRLEIFUR Kristinsson
hefur hafið störf hjá Opnum kerf-
um hf. Hjörleifur lauk prófi í raf-
magnstækni-
fræði frá Odense
Teknikum árið
1987. Hann
starfaði áður hjá
Gísla J. Johnsen
& Skrifstofuvél-
um 1987-1990.
Síðan starfaði
Hjörleifur hjá
Einari J. Skúla-
syni frá 1990 til 4. okt. 1996 er
hann hóf störf hjá Opnum kerfum
hf. Hjörleifur hefur lokið ýmsum
prófum hjá Microsoft og má þar
m.a. nefna MCP (Microsoft
System Engineer) og MCSE
(Microsoft Certifíed System Eng-
ineer). Hjörleifur mun vinna í þjón-
ustudeild fyrirtækisins að ráðgjaf-
ar- og þjónustustörfum. Sambýlis-
kona Hjörleifs er Bjarney Kol-
brún Garðarsdóttir skrifstofu-
maður og eiga þau tvö börn.
Ráðinn til
Prenthönnunar
• SIGURÐUR Bjarnason hefur
verið ráðinn hjá Prenthönnun
ehf. til að annast þar markaðsmál
Arnór
Steingrímur
Guðjónsson
Kristinn Þór
Geirsson
Hjörleifur
Kristinsson
ásamt fram-
leiðslustjórnun.
Sigurður lauk
námi sem prent-
smiður frá Iðn-
skólanum í
Reykjavík 1964.
Að loknu sveins-
prófi starfaði
hann meðal ann-
ars hjá Mynda-
mótum hf. fram til ársins 1974
að hann stofnaði Prentþjónustuna
Korpus hf. og starfaði þar til í
desember 1993 að hann réðst til
starfa hjá Prentþjónustunni ehf.
sem framleiðslustjóri. Fyrirtækið
Prenthönnun ehf. er prentþjónusta
sem hefur yfir að ráða fullkomn-
ustu tækni til forvinnslu ■ prent-
verks og hefur á að skipa sjö
starfsmönnum.
Eiginkona Sigurðar er Helga
Eyjólfsdóttir ritari hjá Reykjavík-
urborg og eiga þau þrjú uppkomin
börn.
Ráðinn hús-
næðis- og hygg-
ingafulltrúi á
Húsavík
• GAUKUR Hjartarson verk-
fræðingur hefur verið ráðinn hús-
næðis- og byggingafulltrúi Húsa-
víkurbæjar.
Hann er fæddur
15. janúar 1965.
Gaukur varð
stúdent frá
Menntaskólan-
um á Akureyri
árið 1985 og lauk
byggingaverk-
Gaukur fræðiprófi_ frá
Hjartarson Háskóla íslands
1990 og meistaraprófi frá Uni-
versity of Washington 1991 með
burðarþolsfræði sem sérgrein.
Hann hefur unnið hjá Tækniþjón-
ustunni ehf. á Húsavík frá 1992
við fjölbreytt verkfræðileg störf,
þó einkum á sviði hönnunar og
byggingaeftirlits. Eiginkona
Gauks er Sigurlaug Elmarsdótt-
ir, yfirlyfjafræðingur í Húsavík-
urapóteki, og eiga þau einn son.
Sigurður
Bjarnason
Bill Gates og félagi hans
gefa Harvard 25 millj. dala
Cambridge, Massachusetts. Reuter.
BILL GATES og félagi hans hjá
Microsoft, Steven Ballmer, hafa
gefið Harvardháskóla 20
milljónir dollara til að reisa
tölvuvísindabyggingu — 20
árum eftir að Gates hætti námi
í skólanum án þess að ljúka því.
Gates og Ballmer gáifu 5 millj-
ónir dollara að auki til rann-
sóknarstarfa og stofnunar pró-
fessorsembætti fyrir deildina.
Andvirði gjafarinnar á íslensk-
an mælikvarða eru því nærri
1,7 milljarður.
Gates hætti námi í Harvard
á öðru námsári sínu þar til að
stofna Microsoft. Ballmer, sem
er einn æðstu manna Micro-
soft, útskrifaðist frá Harvard
1977 í hagnýtri stærðfræði.
„Háskólar hafa gegnt megin-
hlutverki í þróun alnetsins og
alls konar tækni,“ sagði Gates
í yfirlýsingu.„Steve og ég viljum
hjálpa Harvard að efla þessa
þróun þannig að hún leggi bein-
an skerf til einstæðra nýjunga,
sem hafnar eru á sviði upplýs-
ingatækni, og nákvæmrar skoð-
unar á áhrifum hennar á þjóðfé-
lagið.“
Nýja byggingin á að heita
Maxwell Dworkin til heiðurs
mæðrum gefendanna, Mary
Maxwell Gates og Beatrice
Dworkin Ballmer.
Bock hættir hjá Lonrho
London. Reuter.
ÞÝZKI fjármálamaðurinn Dieter
Bock, sem vék „Tiny“ Rowland
úr starfí yfirmanns Lonrho fjöl-
greinafyrirtækisins eftir harða
valdabaráttu, hefur nýlega selt öll
hlutabréf sín í fyrirtækinu og mun
láta af starfí forstjóra.
Þessar ráðstafanir eru liður í
þeirri fyrirætlun Bocks að stjórna
viðskiptasviði Lonrho þegar fyrir-
tækinu hefur verið skipt í þrjú
aðskilin fyrirtæki að því er Lonrho
sagði í yfírlýsingu.
Bock seldi 18,3% hlut sinn í
Lonrho suður-afríska námurisan-
um Anglo American.
Bock er fýrrverandi lögfræðing-
ur og fasteignajöfur, sem kom til
liðs við Lonrho í febrúar 1993, en
fljótlega kastaðist í kekki með
honum og Rowland, hinum um-
deilda yfírmanni hans.
Deilur þeirra náðu hámarki í
marz 1995 þegar Rowland var
vikið úr stjórn Lonrho, 34 árum
eftir að hann stofnaði fyrirtækið
44 ára gamall.
Lonrho segir að Bock hafi
ákveðið að segja af sér og taka
við stöðu varastjórnarformanns án
framkvæmdavalds til að auðvelda
fyrirtækinu að ljúka við fyrirhug-
aða skiptingu þess.
Torgið
Kerfið á upplýsingaöld
í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinn-
ar frá 23. apríl 1995 er lagður
grunnur að stefnumótun í málefn-
um upplýsingasamfélagsins. Þar
er gefið fyrirheit um mótun heildar-
stefnu um hagnýtingu upplýsinga-
tækni í þágu efnahagslegra fram-
fara og uppbyggingar í atvinnulíf-
inu, vísindarannsókna, lista og
annarra menningarmála. Aðgang-
ur fólks að opinberum upplýsing-
um verði tryggður, dregið verði úr
skrifræði í samskiptum borgar-
anna við stjórnvöld og óþarfa laga-
og reglugerðaákvæði afnumin.
Samhliða þessu verði þjónusta rík-
isins sniðin að nútímatækni td.
með nettengingu þjónustustofn-
ana og pappírslausum viðskiptum.
I framtíðarsýn ríkisstjórnar ís-
lands sem gefin var út í október
sl. segir að upplýsingatæknin verði
virkjuð til þess að bæta samkeppn-
isstöðu íslenskra atvinnuvega,
fjölga atvinnukostum og auka
framleiðni, fjölbreytni starfa og
nýsköpun. íslenskt atvinnulíf verði
þannig í fremstu röð við hagnýt-
ingu upplýsingatækni og sam-
keppnishæft í alþjóðlegu umhverfi.
Á fundi sem iðnaðar- og við-
skiptaráðuneyti stóð fyrir sl. þriðju-
dag var umræðuefnið, upplýsinga-
tækni og einföldun starfshátta rík-
isstofnana til að gera samskipti
fyrirtækja og almennings við stofn-
anir auðveldari.
í erindi Sveins Hannessonar,
framkvæmdastjóra Samtaka iðn-
aðarins, kom meðal annars fram
að opinber rekstur er umfangs-
meiri hér heldur en víða annars
staðar í nágrannalöndunum. Ekki
eru mörg ár síðan að það tók
marga daga að fyrir almenning að
fá keyptan erlendan gjaldeyri og
ríkisbankarnir voru þeir einu sem
höfðu leyfi til að versla með hann.
Undanfarið hafi orðið miklar fram-
farir í frjálsræðisátt. Má þar nefna
að hjá tollstjóraembætlinu er
stefnt að pappírslausum viðskipt-
um við tollafgreiðslu á innfluttri
vöru fyrir árið 2000.
Raunir fiskútflytjenda
Lítið hefur verið fjallað um tollaf-
greiðslu og afgreiðslu á útflutn-
ingspappírum. Á fundinum kom
fyrirspurn frá fiskútflytjenda sem
spurði hvort hann mætti vænta
þess að eiga pappírlaus viðskipti
við opinberar stofnanir hvað varð-
ar pappíra vegna útflutnings á fiski
til Evrópu.
Til þess að geta flutt út fisk þá
þurfa útflytjendur að leita til Fiski-
stofu og fá þar stimplað heilbrigð-
isvottorð fyrir vöruna. Síðan þarf
að fara með heilbrigðisvottorðið,
afrit af vörureikningi, útflutnings-
skýrsluna og vottorð sem staðfest-
ir uppruna vörunnar og farmbréf á
skrifstofu tollstjóra fyrir klukkan
15:00, en þá lokar tollafgreiðslan.
Þar er farmbréfið stimplað, gefið
leyfi til útflutningsins og útflutn-
ingsskýrslan stimpluð. Þaðan þarf
fiskútflytjandinn að fara með papp-
írana í skipafélagið sem sér um
fraktflutningana til þess að útflutn-
ingurinn sé leyfilegur.
Ekki er langt síðan að fiskútflytj-
endur þurftu einnig að leita til ut-
anríkisráðuneytis til þess að fá leyfi
til útflutnings. í kjölfar dómsúr-
skurðar fiskútflytanda í hag þarf
þess ekki lengur.
Engin tæknileg
vandkvæði
Fiskútflytjendur eru að vonum
óánægðir með hversu mikill tími
fer í fá skjöl stimpluð og aðilar sem
eru með mikinn útflutning hafa
ráðið til sín starfsfólk sem ein-
göngu sinnir þessum sendiferðum
enda fer oft langur tími í að bíða
eftir afgreiðslu á Fiskistofu og tolli
þar sem margir aðilar eru að flytja
út fisk með sömu skipunum.
Á áðurnefndum fundi kom það
fram hjá fulltrúa Pósts og síma að
engin tæknileg vandkvæði væru á
að hægt væri að afgreiða útflutn-
ingsskjöl á rafrænan hátt. Aftur á
móti taldi fundarstjóri að þetta
væri spurning um lagalegu hliðina
á því að afgreiða skjöl á þennan
hátt.
í framtíðarsýn rikisstjórnarinnar
um upplýsingasamfélagið kemur
fram að endurskoða þurfi löggjöf-
ina til að tryggja að hún taki í senn
mið af þróun upplýsingatækninnar
og setji nauðsynlegar skorður við
notkun hennar. Standa þurfi vörð
um gildi eins og friðhelgi einkalífs
og öryggi, en gæta þess þó að
ganga ekki of langt í hömlum og
ofverndun.
Ekki er langt síðan stefnumörk-
un ríkisstjórnarinnar á sviði upplýs-
ingatækni leit dagsins Ijós enda
hefur þróunin verið mjög hröð á
upplýsingartæknisviðinu. Hjá toll-
stjóraembættinu hefur verið já-
kvæð framþróun í afgreiðslu toll-
skjala á undanförnum árum og
vonandi verður ekki staðar numið
við innflutning heldur er ekki síður
mikilvægt að gera útflytjendum
auðveldara fyrir og að þeim gefist
kostur á að eiga viðskipti við opin-
berar stofnanir með rafrænum
hætti. Jafnframt þurfa opinberar
stofnanir að taka að sér frum-
kvæðið á því sviði að útflytjendum
berist með skilvirkum hætti allar
upplýsingar um tollafgreiðslu,
breytingar á reglum og skilyrðum
í samkeppnislöndum frá opinber-
um aðilum. Þetta gæti sparað fyrir-
tækjum fé og tíma um leið og það
bætir samkeppnisstöðu íslenskra
atvinnuvega. GH