Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
c
1996
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER
BLAD
HANDKNATTLEIKUR
Fyrsti sigur
Bosníumanna á
kostnað ítala
MIÐHERJINN Elvir Bolic hjá Fenerbache í
Tyrklandi, sem sá til þess fyrir viku að Manchest-
er United tapaði á Old Trafford í fyrsta sinn í
Evrópukeppni i 40 ár, var aftur í sviðsljósinu í
gær. Þá tók landslið Bosníu á móti ítðlum og
heimamenn fögnuðu 2:1 sigri, sem var jafnframt
fyrsti sigur Bosníu í knattspymulandsleik á
heimavelli, en Bolic gerði sigurmarkið skömmu
fyrir hlé. Hasan Salihamidzic, leikmaður HSV í
Þýskalandi, skoraði fyrir Bosníu á fimmtu mín-
útu en Enrico Chisa jafnaði með þrumuskoti
skömmu sfðar.
Leikurinn fór fram á Kosevo leikvanginum í
Sarajevo og var litið á hann sem táknrænan
viðburð í tilefni friðar en ekki er vist að Arrigo
Sacchi, landsliðsþjálfari ítaliu, fái frið í heima-
landinu vegna úrslitanna þó margir lykilmenn
hafi verið Qarri þar sem þeir voru að leika með
félagsliðum sínum. Gestirnir áttu Ieikinn lengst
af en fóru illa með marktækifærin. „Við vorum
nær óaðfinnanlegir þar til flautað var til leiks,"
sagði Sacchi. „ítalska knattspyrnan á í erfiðleik-
um um þessar mundir og ég gæti komið með
1.000 afsakanir en geri það ekki. Við erum at-
vinnumenn og gerðum ekki það sem við þurftum
að gera.“
Óvissa um heima-
leiki Bosníu í HM
EFTIRLITSMAÐUR Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, FIFA, gaf til kynna að loknum æfinga-
leik Bosníu og Ítalíu í gær að enn gæti liðið
nokkur tími þar til Kosevo-leikvangurinn yrði
viðurkenndur af FIFA. Bosnía fékk Ítalíu til að
leika á vellinum í þeirri von að ráðamenn al-
þjóða knattspymu gerðu sér grein fyrir hættu-
ástand ríkti ekki í Sarsýevo og leikurinn yrði
til þess að heimaleikimir færa rram á þjóðarleik-
vanginum í framtíðinni. Fyrsti heimaleikur
Bosníu í riðlakeppni heimsmeistaramótsins -
við Króatíu - fór fram í Bologna á Ítalíu og
næsti leikur, á móti Grikklandi, er ráðgerður á
sama stað 2. aprfl nema FIFA samþykki Kosevo-
leikvanginn. Til þessa hefur FIFA bannað Bosn-
íu að leika opinbera leiki heima af öryggisástæð-
um.
Emie Walker, formaður vallaraefndar UEFA
og fyrram framkvæmdasijóri Knattspymusam-
bands Skotlands, sagði að hlutverk sitt í Sarajevo
hefði ekki aðeins verið að taka út völlhm.
„Greinilega hafa n\jög miklar endurbætur átt
sér stað en enn er margt ógert,“ sagði hann og
visaði ma. til þess að ekki er eingöngu um númer-
uð sæti að ræða eins ogtilskilið er. Eins nefndi
hann að ytra umhverfi skipti miklu máli, flug-
völlur, hótel, aðstaða fyrir fjölmiðla og fleira.
Jafnt og
spennandi
í gærkvöldi
ÞAÐ var víða spenna í leikjum
gærkvöldsins í 1. deild karla í
handknattleik. Afturelding
treysti stöðu sína á toppnum
með sigri á lokasekúndunni á
Gróttu, 28:27, og Valsmenn
sluppu fyrir horn á heimavelli
einnig með eins marks sigri,
21:20, yfir HK. í Eyjum voru
taugarnar einnig þandar en þar
tryggðu heimenn sér 21:20 sigur
á Fram með marki úr vítakasti
á síðustu sekúndu. KA-menn
heimsóttu Selfyssinga og sigr-
uðu 34:26 og FH-ingar lögðu
ÍR-inga að velli í Kaplakrika,
29:26. Hér skorar Guðjón Árna-
son eitt marka FH án þess að
ÍR-ingarnir Magnús Þórðarson
og Ólafur Gylfason fái við nokk-
uð ráðið.
KNATTSPYRNA
St. Miiren
vill fá Ólaf
Tony Fitzpatrick, knattspyrnu-
stjóri skoska 1. deildarliðsins
St. Mirren hefur sýnt Fylkismann-
inum Ólafí Stígssyni áhuga. Ólafur
hefur æft með liðinu að undanförnu
á Love Street. Fitzpatrick ætlaði
að láta hann leika með gegn Clyde-
bank á laugardaginn, en ekkert
verður úr því, þar sem Ólafur leikur
með 21 árs landsliðinu gegn írum
í Dublin.
„Ólafur hefur staðið sig vel á
æfíngum og með varaliðinu. Hann
kemur aftur til okkar eftir leikinn
í Dublin og þá kemur í ljós um fram-
haldið," sagði Fitzpatrick í viðtali
við eitt skosku blaðanna í gær.
Þess má geta að tveir íslendingar
hafa leikið með St. Mirren, marka-
hrókarnir Þórólfur Beck og Guð-
mundur Torfason.
Ef Ólafur gerist leikmaður með
St. Mirren er hann þriðji leikmaður
Fylkis sem fer frá liðinu. Þórhallur
Dan Jóhannesson er genginn til liðs
við KR, Finnur Kolbeinsson er far-
inn til Leifturs í Ólafsfirði og þá
hafa Grindvíkingar áhuga á að fá
Kristin Tómasson, miðheija Fylkis,
til liðs við sig.
ÓLAFUR Stígsson tll hœgrl í baráttu viö KR-lnginn RíkharA
Daðason í leik KR og Fylkis ( sumar.
HANDKNATTLEIKUR: FH SIGRAÐISTJÖRNUNA í 1. DEILD KVENNA / C4