Morgunblaðið - 09.11.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ flT LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996 25
1 1
AMERÍSKAR blómarósir í SUMIR tóku daginn snemma og
koddaslag á dekkinu. skokkuðu á hlaupabrautinni.
að skoða rústir og menjar um
þessa fornu menningu sem nú er
horfin af sjónarsviðinu og létu
þáttakendur allir afar vel af ferð-
inni. Skipið hélt hins vegar áfram
til eyjunnar Cozumel úti fyiár
ströndinni, þar sem farið var í land.
Einhverjir voru svo heppnir að
rekast fyrir tilviljun á baðströnd-
ina Chankanaab, sem þeir lýstu
sem „paradís á jörðu“. Aðrir fóru í
bæinn og skoðuðu sig um.
TH heljar ag
heím aftur
Á eyjunni Grand Cayman var
ákveðið að sleppa hinum hefð-
bundnu skoðunarferðum Carnival
skipafélagsins og fara þess í stað í
sjálfstæða skoðunarferð, sem
skipulögð var af Heimsklúbbi Ing-
ólfs og sérstaklega sniðin með
þarfír Islendinga í huga, að því er
sagt var. Eftir að mannskapurinn
hafði verið ferjaður í land á smá-
bátum var tekin 30 manna rúta og
ekið sem leið lá í litla rommútsölu
þar sem mönnum gafst kostur á að
smakka á framleiðslunni sér að
kostnaðarlausu. Því næst var hald-
ið á búgarð, þar sem skjaldbökur
af öllum stærðum og gerðum eru
ræktaðar og dvöldu menn þar dá-
góða stund, báru saman mismun-
andi stærðir og útlit þessara
skepna og rökræddu ástarlíf
þeirra. Þaðan lá leiðin beint til
„Helvítis". Sjálfir eru eyjaskeggjar
afar stoltir af þeim stað, sem eru
nokkrar hraunnibbur, gii-tar af
í SÓLBAÐI á dekkinu
með grindverki. íslendingum
fannst hins vegar minna til „Hel-
vítis“ koma og töldu sig oft hafa
séð úfnara hraun og varð mörgum
hugsað til gossins í Bárðarbungu,
sem þá var nýhafið.
Ferð íslendinga um Grand Cay-
mann lauk á baðströnd, en dvölin
þar varð þó styttri en ætlað var þar
eð angi af fellibylnum Jósefínu sá
ástæðu til að minna á sig með því
að skvetta hnefastórum dropum af
regni yfir ströndina og forðaði
mannskapurinn sér á hlaupum inn
á bar. Þar væsti auðvitað ekkert
um menn og eftir nokki-ar ölkollur
var farið í bæinn að versla.
Úlíkir heimar
Á Jamaica er mannlífið með allt
öðrum svip en á hinum tveimur
stöðunum. Á SKÍpinu höfðu farþeg-
ar verið minntir á að fara varlega
og fara ekki um svæðið á eigin veg-
um. Neysla kannabisefna og ann-
arra vímugjafa er enda landlæg á
Jamaica og menn þar sagðir svífast
einskis í þeim viðskiptum. Það var
líka eins og við manninn mælt að
um leið og stigið var þar á land
gáfu sölumenn vímuefna sig fram
og einn var svo djarfur að bjóða
okkur ferð með „rútu frænda síns,
þar sem við máttum reykja eins og
við vildum." Tilboði mannsins var
vitaskuld hafnað, en þá vildi hann
bjóða okkur „reyklausa ferð“ með
rútu frænda síns. Því var líka hafn-
að.
Eftirminnilegast frá Jamaica
dvölinni var sigling meðfram
ströndinni og klifur í fossum Dunn
árinnar. Reyndar fannst mörgum
líka gaman að skoða mannlífið í
Ocho Rios, og þótt ekki væri ör-
grannt um að margir hinna inn-
fæddu væru með rakan vímugljáa í
augum voru þeir glaðlegir og
skemmtilega kærulausir í viðmóti.
Skipsfélagar voru þó flestir fegnir
því að komast aftur í verndað um-
hverfið um borð, þar sem tekið var
til óspilltra málanna að skemmta
sér, á löglegan hátt, um leið og
stefnan var aftur tekin „heim“ til
Miami.
SOLUSYNING I DAG
FRA 10:00
TIL 17:00
BLÁSTURSOFNAR
Miele
EINSTAK/IR
ÞVOTTAVELAR
r—— -v
RJÚKANDI
HÁFAR
caso
FYRIR HEIMILIÐ
SuðurlanJshraut 20 « 108 Reykjavík » Simi 588 0210 1
Miele
ÞRIGGJA HÆÐA
UPPÞVOTTAVELAR