Morgunblaðið - 10.11.1996, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1996 B 7
hljómsveit sem hét Tjalz Gissur, við
vorum í músíktilraunum. Ég var
alveg hræðileg. Hljómsveitin hefði
lent í fyrsta sæti hefði ég ekki ver-
ið þarna. Svo hætti ég þar eða var
eiginlega rekin úr hópnum. Þeir
hættu bara að boða mig á æfing-
ar.“ Hún hlær dátt.
„Ég var svo feimin og óörugg,
þorði ekki að taka þátt í neinu í
skólanum. Ég var í Þinghólsskóla
og var aldrei með þegar leik-
rit voru, karaokekeppni eða
annað. Þegar ég kom svo í
Spoon var hljómsveitin búin
að ákveða að gera plötu.
Ég vissi ekkert hvað það
var, en lagði pening í það
eins og hinir því við gáfum
hana út sjálf. Hún gekk rosalega
vel. En ég hætti þar því þetta var
ekki alveg minn smekkur á tónlist."
Feimin og óörugg
Hvemig fer hún að því að standa
á sviði úr því hún er svona feimin?
„Ég á rosalega erfitt með að tala
á sviði, fer í keng og lappirnar fara
að fljúga í allar áttir. Ég er ótta-
lega klaufaleg í framkomu. Ég er
svo stressuð þegar ég fer á svið og
fyrstu tvö lögin eru mér ógurlega
erfið en eftir að ég byija að syngja
veit ég eiginlega ekkert hvar ég er,
hugsa bara um textann og lagið.
Ég elska texta, enda eru textarnir
Mikil áreitni
Svo ertu allt í einu orðin stjarna.
Hvernig er það? Verðurðu ekki fyr-
ir ónæði?
„Stundum líður mér vel og stund-
um illa. Ég er núna búin að átta
mig betur á því að það er ekki ég
sem breytist, bara fólkið í kringum
mig sem hegðar sér öðruvísi. Það
Ég er algerlega á móti öllu dópi. Ég er
búin að missa tvo frændur mína í það,
annan íslenskan og hinn ítalskan, svo
maður fattar að þetta geti komið fyrir
hvern sem er.
er til fólk sem getur verið mjög
grimmt. En þeir eru auðvitað miklu
færri,“ segir Emilíana. Og þegar
gengið er á hana um hvernig það
lýsi sér útskýrir hún að bláókunn-
ugt fólk, sem hún hefur aldrei séð,
geti kannski gengið fram fyrir hana
og hvæst að henni ókvæðisorðum
eða jafnvel reynt að meiða hana
líkamlega, sparka í hana eða henda
í hana glasi. Hún fær ljót bréf, en
líka mikið af mjög fallegum bréfum.
Hún segist oft lenda í einhverjum
leiðindum ef hún fer út að skemmta
sér bara af því að ókunnugt fólk
segist ekki þola hana í sambandi
við sönginn eða eitthvað annað.
„Heldurðu að það geti verið af
því að nafnið er stór hluti af manni.“
Þú ert næm og ör eins og Italir?
„Já, og er fljót að taka hlutina
nærri mér,“ svarar Emilíana um
hæl. Hún segist vera mjög fljóthuga
eins og ítalir, pælir ekkert í hlutun-
um, bara veður í þá. „Það er ítalska
blóðið. Ég er svo fljót á mér, tek
áhættu, annars mundi ég ekki vera
að gefa út disk á eigin vegum.“
Þekkir hún fjölskylduna sína á
Italíu? „Já, ég fer á hverju
sumri til Napólí, þar sem ég
á stóra fjölskyldu. Þetta er
ekta napólísk fjölskylda,
syngur napólíska söngva og
frænkurnar og ömmurnar
fara í kjörbúðina og rífast
hástöfum um hvernig eigi
að búa til makkarónusósu. Þar úti
skiptir matur máli, er fólkinu eins
og eitthvað heilagt. Fjölskyldan mín
er svo skemmtilegt fólk, alveg sér-
stök. Það er mjög skrýtin stemmn-
ing hjá þeim.“
„Hefur ekki einhver úr fjölskyldu
þinni, leikið í frægum kvikmynd-
um?“
Jú, ég átti frænda, sem var
dvergur og lék í Fellini-myndunum.
Mjög sérstakur maðun Ég stóð allt-
af fyrir framan hann og horfði á
hann með aðdáun. Mér fannst svo
skrýtið að sjá kvikmyndir með hon-
um. Svo á ég líka frænda sem er
í fóboltaliðinu Napólí.“ Sjálf segist
Emilíana ekkert vera íþróttasinnuð,
nema hvað henni þykir gaman að
vera á línuskautum.
í óperusönginn
mínir á nýju plötunni bara litlar
smásögur. Eg ákvað að hafa alla
textana um eitthvað. Það eru fimm
eigin lög, sem við Jón höfum gert
í sameiningu en textarnir eru allir
mínir. Svo eru fimm lög eftir aðra.
Ég er þó orðin miklu skárri en ég
var þegar ég titraði öll og skalf.
Mér þykir ofsalega gaman að koma
fram þó ég sé að stressa mig allan
daginn. Mér þykir gaman þegar ég
finn að fólkið skemmtir sér.“
Er þetta meðfætt úr því hún var
svona strax í skóla? „Ég var bara
vandræðagemsi í skólanum, bara
með læti sem oft fylgir óör-
ygg'i-"
En hún hefur þó ekki fall-
ið í það að nota tóbak, áfengi
eða dóp, eins og mörgum
feimnum og óöruggum
hættir til í þessu umhverfi?
„Nei nei, ég drekk vín,
mér finnst það gott, en reyki
ekki. Og ég er algerlega á móti
öllu dópi. Ég er búin að missa tvo
frændur mína í það. Annan íslensk-
an og hinn ítalskan, svo maður fatt-
ar að þetta geti komið fyrir hvern
sem er. Ég bjó hjá fjölskyldu þess
íslenska, var alltaf hjá þeim um
helgar. Hann var yndislegur strák-
ur, en var í heróíni. Frændi minn
á Italíu og bróðir hans voru í eitur-
lyfjum. Þeir fóru á skemmtistað og
hann dó þar af yfirskammti. Lét
eftir sig lítið barn og konu sem svo
dó úr krabbameini í fyrra eftir
tveggja ára baráttu. Telpan þeirra
er nú munaðarlaus en hann hefði
getað tekið við að sjá um hana. Svo
ég veit um hvað þetta snýst. Alveg
sama hvað fólk er að mæla því bót.
Það þarf kannski að missa einhvem
til að átta sig á því. Það var annað
á hippatímanum, þá vissi fólk ekki
betur. En núna veit hver maður
nákvæmlega um hvað þetta snýst
og hvað það gerir. Það er engin
afsökun til fyrir að prófa þetta, hrein
heimska. Þetta vita allir.“
því að þú ert ekki alíslensk með
erlent nafn. Kynþáttafordómar?
„Ég lendi í þyí líka. Og það tek
ég nærri mér. Ég er ekkert öðru-
vísi í útliti og blandast vel inn í,
en hvað um fólk frá Asíu og öðrum
álfum sem lítur öðruvísi út? Ef ég
verð fyrir áreitni í hverju lenda þau
þá? Það hlýtur að vera miklu verra,
en hefi ég þó lent í mjög alvarlegu.
Kannski kominn tími til að fólk viti
þetta. Þegar ég les blöðin sé ég
kannski að þar stendur að maður,
sem hefur lamið einhvern, sé af
tælenskum uppruna. Það fær rosa-
Eg ætla að reyna að fara til Flórens
næsta haust til að læra músík, á von á
að það verði óperusöngur, annars get
ég ekki ákveðið mig, það er svo erfitt
að fæðast með rödd sem á um margt að
velja í tónlistinni.
lega á mig. Þetta er íslenskur ríkis-
borgari og þjóðin meira að segja
búin að láta hann skipta um nafn
svo hann hafi áreiðanlega ekkert
eftir af sínum uppruna. Málið er
að frásögnin er um gerðir mannsins
en ekki hvaðan hann er. Ég verð
oft mjög reið. Eins og ef ég gerði
eitthvað af mér og kæmi í blöðum
að stelpa af ítölskum uppruna hefði
gert það. Allt í einu væri ég ekki
íslensk. Það skiptir engu máli þótt
maður sé fæddur á íslandi. Pabbi
minn þurfti að breyta um nafn úr
Salvadore Torrini. Fékk nafnið
Davíð Eiríksson. Þegar ég var 10
ára þurfti ég að skrifa nafnið mitt
í vegabréf Emilíana Torrini Davíðs-
dóttir. Ég er ekki Davíðsdóttir, því
pabbi minn var ekki skírður Davíð.
Ég stóð og gargaði framan í kon-
una þar til ég fékk að sleppa því.
Barðist 10 ára gömul fyrir rétti
mínum til að halda nafni mínu.
Nafnið er svo stór hluti af manni
og maður er svo stoltur af nafninu
sínu. Fólk gerir sér ekki grein fyrir
Og nú ætlar hún að fara að læra
á Ítalíu?
„Ég ætla að reyna að fara til
Flórens næsta haust til að læra
músík. Á von á að það verði óperu-
söngur. Annars get ég ekki ákveðið
mig. Það er svo erfitt að fæðast
með rödd sem á um margt að velja
í tónlistinni." Þegar hún er beðin
um að lýsa röddinni meira, kveðst
hún geta sungið nánast allt. Hún
segir að Þuríður Pálsdóttir, kennar-
inn hennar, virði það sem hún er
að gera núna. Hafi bara gaman af
því. Hún haldi henni þó á þeirri línu
að hún geti sungið hitt líka.
En henni finnst voðalega gaman
að syngja poppið eins og hún gerir
núna. „Þetta er stúss, gerir mig
ofsalega glaða og annað fólk líka.
Mér finnst þetta svo gaman og er
ekkert að velta mér upp úr því þótt
nóta á plötunni minni sé ekki rétt,
bara ef rétta tilfinningin er í gangi
í laginu og textanum."
Laus og liðug næstu 10 árin
Emilíana býr með mömmu sinni,
er ekkert í sambúð eða slíku. Seg-
ist eiga eftir að gera allt of mikið.
Ekki hafa í hyggju að binda sig
næstu 10 árin. Hvað langar hana
mest til að gera? „Læra að syngja.
Svo langar mig til að gera bíó-
myndatónlist. Semja fyrir bíó. Þá
langar mig til að fara til
framandi landa, svo sem
Tælands. Besta vinkona mín
í Þýskalandi er tælensk. Ég
á vinkonur úti um allan
heim. Við erum 10 í bestu-
vinahópi frá Þýskalandi, þar
af eru aðeins tveir Þjóðveij-
ar. Hin eru víða að úr heim-
inum og af öllum trúarbrögðum.
„Þau hafa boðið mér að koma og
ég á eftir að heimsækja þau. Síðan
endar maður auðvitað alltaf heima
á íslandi."
„Nú hefur frést af glæsilegu til-
boði frá Englandi, er það úr sög-
unni?
„Það er orðið langt síðan. Þetta
var samningur upp á fjögur ár fyr-
ir mig sem söngkonu. Þetta var fínt
tilboð, en það var svo mikil bið og
ég frestaði svo mörgu fyrir það, svo
ég nennti þessu ekki lengur, gaf
það frá mér eftir níu mánaða samn-
ingsþóf. Ég hefi fengið nokkur til-
boð síðan og hafnað þeim. Ég hafði
heldur ekki áhuga á að fara út.
Hefði ekki getað gefið út diskinn
minn. Ég er nýbyrjuð að fá kjark
til að gefa út mitt eigið. Ég hefi
enga reynslu og var svo óviss af
því ég veit ekkert hvernig er að
vera frægur úti í löndum. Og ég
held að ég hafi ekki verið að missa
af neinu. Sakna einskis. Það koma
önnur tækifæri."
LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL,
komdu í Kripalújóga:
Byrjendanámskeið • Framhaldsnámskeið
Hádegistímar alla virka daga!
Heimsljós býður upp á opna tíma í jóga og umbreytingardansi sem hér segir:
Mán. Þri. Mið. Fim. Fös. Lau.
06.55-07.55 Jón Ágúst Jón Ágúst
07.30-08.30 Áslaug Áslaug
10.30-11.45 Hulda Hulda
12.15-13.15 Anna Guðfinna Jón Ágúst Guðfinna Ingibjörg
16.30-17.45 Guðfinna Jenný Nanna/dans Jenný
18.00-19.30 Ingibjörg Jón Ágúst Ingibjörg Jón Ágúst Guðfinna
20.00-22.00 Námskeið Námskeið Dans/ýmsir
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 588-4200 kl. 13-19.
IÓGASTÖÐIN
HEIMSLJÓS
Ármúla 15
STORBORGARPLUS
Innifalið: Flug, flugv.skattar og gisting (2ja m. herb. 4 nœtur.
Brottfarir: 15. og 29. nóvember
Takmarkað sætaframboð
-Þœgileg hótelgisting í hjarta Lundúna-
Nánari upplýsingar OPIÐ
hjá sölumönnum. Á LAUGARDÖGUM
Faxafeni 5 108 Reykjavík. S(mi: 568 2277 Fax: 568 2274