Morgunblaðið - 10.11.1996, Síða 11

Morgunblaðið - 10.11.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1996 B 11 kærði sig um. Og þegar við komum í vélstjóraflokknum hélt hann mjög að okkur hvers konar munaði og þegar við tókum ekki af neinni áfergju til okkar bauð hann okkur niðursoðna ávexti, perur, plómur og ananas og blandaða ávexti og leysti svo strákana út með stórum vindlum og blessunarorðum, varð eftir einn í búðinni í von um að geta troðið einhverju upp á ein- hverja aðra sem rækjust þar inn; meðan eldurinn lýsti upp í þungbú- inn himininn rísandi og hjaðnandi og fretaði frá sér stórum bólstrum blásvörtum, og leysti nýjar skruðn- ingar í tilbrigðum við drunurnar sem aldrei þögnuðu, og stöku sinn- um virtist einsog ætlaði að rofa i eitthvað skírara og blámata í tærar tábaðslaugar himinlinda handa englum sem komu úr erli sendiferða með misjöfnum árangri og stopulli áheyrn í öllum fyrirganginum. Hver vandi var leystur án fums eftir því sem að bar. Nú var elds vant til að kveikja í vindlunum með hefðbundnum hætti. Og þá tóku þessir ungu sjómenn með stóru vindlana frá kaupmanninum stein sem eldfjallið kastaði að okkur án erindis því við vorum með hjálma á höfðinu og svo vorum við í þykk- um peysum til þess að fá síður marbletti ef fjallið hæfði okkur með þessum lausasteinum sínum, það var nærtækt að taka upp stein full- an af eldi og nota hann til að kveikja í stóra vindlinum. Og henda svo steininum frá sér aftur í átt að fjall- inu; sem ekki linnti látum. * Annars fannst mér fagurt mann- líf í Vestmannaeyjum. Aður en pen- ingar tóku aftur gildi. Þarna varð eins konar kommúnismi í þeirri mynd sem skáld og hugsjónamenn hafði dreymt um aldir og virðist geta stundum sprottið upp skamma hríð meðal manna þegar stórháski ógnar. Þorvaldur Skúlason listmál- ari lýsti því fyrir mér hvað allir voru góðir og hjálpsamir á flóttan- um um vegi Frakklands undan nas- istaherjunum þar sem hann var og kona hans með barn í vagni í mann- streyminu á vegum, og allir urðu að kasta sér út í skurði þegar her- flaugar Þjóðverja þutu yfir og köst- uðu jafnvel sprengjum. Þar var, sagði Þorvaldur: svona fínn kom- múnismi. Sem menn dreymir um og virðist aldrei ganga að skipu- leggja til langframa því að það er ekki svo lengi í einu sem hægt er að halda öllum góðum og réttlátum hver við annan. Og hafa orðið dýr- keypt slysin við að reyna að láta slíka drauma rætast. Það er varla byrjað þegar farið er að svíkja og tækifærissinnar ná völdum og eyða hinum sem ólu drauminn og þráðu betn heim. Ég var farinn frá Vestmannaeyj- um þegar tekið var að borga kaup fyrir björgunarstörf. En ég hef heyrt frá ýmsum sem voru ennþá þar að andrúmsloftið hefði snögg- breytzt, og fór að brydda á því æ meir að ýmsir vildu gera sér ófarirn- ar að féþúfu og jafnve! óprúttnir að jgróðalind. Eg fór með strandferðaskipinu Heklu sem talið var þá að myndi síðasta skip sem sigldi úr Vest- mannaeyjahöfn. Ég vildi heldur sigla en fljúga. En þá nótt bjargað- ist höfnin fyrir hárréttar aðgerðir þeirra sem voru svo gæfusamlega galnir að halda að það sé hægt að berjast við gjósandi eldíjall. * Ég hvarf á brott áður en um- skipti urðu á tvennan hátt, pening- ar tóku aftur gildi í þessu stríði og breyttu þeli víða, sveigðu hjá sum- um hug til ávinnings umfram uppi- hald fyrir sína í landi. Hitt var að það fór að bera á gasstreymi í hvilftum og lægðum sem var lit- laust og lyktarlaust og banvænt. 0Titill: Fley og fagnir ánir, 301 bls.. Höfundur: Thor Viihjálmsson. Útgefandi: Mál og menning. Leiðbeinandi verð: 3680 kr. Léttir harmonikutónleikar í Ráðhúsinu í dag kl. 15 Þar koma fram stórsveit H.R. Sóló: Margrét Amardóttir 12 ára, Jóna Einarsdóttir. Dúett, Sigríður og Ulrik. Léttsveit H.R. Byggingaplatan X§' sem allir hafa beðið eftir byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf ^Msl@<§ byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi byggingaplatan er hægt að nota úti sem inni W1®SX§ byggingaplatan er umhverfisvæn byggingaplatan er platan sem verkfræðingurinn getur fyrirskrifað blint. PP &co Leitid frekari upplýsinga Þ. þorgri'msson & co ÁRMÚLA 29 • S: 553 8640 & 568 6100 Patrol tll sölu Nissan Patrol GR, 7 sæta, ekinn aðeins 56 þús. km, dökk blásanseraður, rafmagn í rúðum, fallegar álfelgur. Bíll sem lítur einstaklega vel út. Verð tilboð. Upplýsingar í símum 898 5202 og 564 2888. Aukakraftur • 1 mán. ótakmarkað kort í leikfimi og líkamsrækt • 10 tíma Ijósakort - glænýjar perur • T-bolur í kaupbæti Tíundi hver kaupandi fær Gatineau gjöffrd Smjrtistofunni Ágústu. S. 533 3355 mimm flGUSTU & HHRFNS til að njóta jólanna og líta vel út f jólafötunum! Við hjá Stúdíó Ágústu og Hrafns ætlum að birgja okkur upp af krafti og gleði fyrir jólin og bjóða þér upp á kraftmikið tilboð sem stendur aðeins í örfáa daga. Tilbo aðeins 4. Hár: Hárið Kjóll: Eva SKEIFAN 7 108 REYKJAVIK S. 533-3355

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.