Morgunblaðið - 10.11.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1996 B 11
kærði sig um. Og þegar við komum
í vélstjóraflokknum hélt hann mjög
að okkur hvers konar munaði og
þegar við tókum ekki af neinni
áfergju til okkar bauð hann okkur
niðursoðna ávexti, perur, plómur
og ananas og blandaða ávexti og
leysti svo strákana út með stórum
vindlum og blessunarorðum, varð
eftir einn í búðinni í von um að
geta troðið einhverju upp á ein-
hverja aðra sem rækjust þar inn;
meðan eldurinn lýsti upp í þungbú-
inn himininn rísandi og hjaðnandi
og fretaði frá sér stórum bólstrum
blásvörtum, og leysti nýjar skruðn-
ingar í tilbrigðum við drunurnar
sem aldrei þögnuðu, og stöku sinn-
um virtist einsog ætlaði að rofa i
eitthvað skírara og blámata í tærar
tábaðslaugar himinlinda handa
englum sem komu úr erli sendiferða
með misjöfnum árangri og stopulli
áheyrn í öllum fyrirganginum.
Hver vandi var leystur án fums
eftir því sem að bar. Nú var elds
vant til að kveikja í vindlunum með
hefðbundnum hætti. Og þá tóku
þessir ungu sjómenn með stóru
vindlana frá kaupmanninum stein
sem eldfjallið kastaði að okkur án
erindis því við vorum með hjálma
á höfðinu og svo vorum við í þykk-
um peysum til þess að fá síður
marbletti ef fjallið hæfði okkur með
þessum lausasteinum sínum, það
var nærtækt að taka upp stein full-
an af eldi og nota hann til að kveikja
í stóra vindlinum. Og henda svo
steininum frá sér aftur í átt að fjall-
inu; sem ekki linnti látum.
*
Annars fannst mér fagurt mann-
líf í Vestmannaeyjum. Aður en pen-
ingar tóku aftur gildi. Þarna varð
eins konar kommúnismi í þeirri
mynd sem skáld og hugsjónamenn
hafði dreymt um aldir og virðist
geta stundum sprottið upp skamma
hríð meðal manna þegar stórháski
ógnar. Þorvaldur Skúlason listmál-
ari lýsti því fyrir mér hvað allir
voru góðir og hjálpsamir á flóttan-
um um vegi Frakklands undan nas-
istaherjunum þar sem hann var og
kona hans með barn í vagni í mann-
streyminu á vegum, og allir urðu
að kasta sér út í skurði þegar her-
flaugar Þjóðverja þutu yfir og köst-
uðu jafnvel sprengjum. Þar var,
sagði Þorvaldur: svona fínn kom-
múnismi. Sem menn dreymir um
og virðist aldrei ganga að skipu-
leggja til langframa því að það er
ekki svo lengi í einu sem hægt er
að halda öllum góðum og réttlátum
hver við annan. Og hafa orðið dýr-
keypt slysin við að reyna að láta
slíka drauma rætast. Það er varla
byrjað þegar farið er að svíkja og
tækifærissinnar ná völdum og eyða
hinum sem ólu drauminn og þráðu
betn heim.
Ég var farinn frá Vestmannaeyj-
um þegar tekið var að borga kaup
fyrir björgunarstörf. En ég hef
heyrt frá ýmsum sem voru ennþá
þar að andrúmsloftið hefði snögg-
breytzt, og fór að brydda á því æ
meir að ýmsir vildu gera sér ófarirn-
ar að féþúfu og jafnve! óprúttnir
að jgróðalind.
Eg fór með strandferðaskipinu
Heklu sem talið var þá að myndi
síðasta skip sem sigldi úr Vest-
mannaeyjahöfn. Ég vildi heldur
sigla en fljúga. En þá nótt bjargað-
ist höfnin fyrir hárréttar aðgerðir
þeirra sem voru svo gæfusamlega
galnir að halda að það sé hægt að
berjast við gjósandi eldíjall.
*
Ég hvarf á brott áður en um-
skipti urðu á tvennan hátt, pening-
ar tóku aftur gildi í þessu stríði og
breyttu þeli víða, sveigðu hjá sum-
um hug til ávinnings umfram uppi-
hald fyrir sína í landi. Hitt var að
það fór að bera á gasstreymi í
hvilftum og lægðum sem var lit-
laust og lyktarlaust og banvænt.
0Titill: Fley og fagnir ánir,
301 bls.. Höfundur: Thor
Viihjálmsson. Útgefandi: Mál og
menning. Leiðbeinandi verð: 3680 kr.
Léttir harmonikutónleikar
í Ráðhúsinu í dag kl. 15
Þar koma fram stórsveit H.R. Sóló:
Margrét Amardóttir 12 ára, Jóna Einarsdóttir.
Dúett, Sigríður og Ulrik. Léttsveit H.R.
Byggingaplatan X§'
sem allir hafa beðið eftir
byggingaplatan er fyrir
veggi, loft og gólf
^Msl@<§ byggingaplatan er eldþolin,
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóðeinangrandi
byggingaplatan er hægt
að nota úti sem inni
W1®SX§ byggingaplatan
er umhverfisvæn
byggingaplatan er platan
sem verkfræðingurinn getur
fyrirskrifað blint.
PP
&co
Leitid frekari upplýsinga
Þ. þorgri'msson & co
ÁRMÚLA 29 • S: 553 8640 & 568 6100
Patrol tll sölu
Nissan Patrol GR, 7 sæta, ekinn aðeins 56 þús. km, dökk
blásanseraður, rafmagn í rúðum, fallegar álfelgur. Bíll
sem lítur einstaklega vel út. Verð tilboð.
Upplýsingar í símum 898 5202 og 564 2888.
Aukakraftur
• 1 mán. ótakmarkað kort
í leikfimi og líkamsrækt
• 10 tíma Ijósakort - glænýjar perur
• T-bolur í kaupbæti
Tíundi hver kaupandi fær Gatineau gjöffrd
Smjrtistofunni Ágústu.
S. 533 3355
mimm
flGUSTU & HHRFNS
til að njóta jólanna
og líta vel út f
jólafötunum!
Við hjá Stúdíó Ágústu og Hrafns
ætlum að birgja okkur upp af krafti
og gleði fyrir jólin og bjóða þér upp á
kraftmikið tilboð sem stendur
aðeins í örfáa daga.
Tilbo
aðeins
4.
Hár: Hárið Kjóll: Eva
SKEIFAN 7 108 REYKJAVIK S. 533-3355