Morgunblaðið - 10.11.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1996 B 13
ATGANGURINN í kring-
um Bruce Willis á kvik-
myndahátíðinni í Fen-
eyjum í september var
langt því frá að vera venjulegur
en kappinn hlýtur að vera ýmsu
vanur því hann var með rólegri
mönnum, mun afslappaðri en
flestir aðrir þeir leikarar og leik-
stjórar sem komnir voru til eyjar-
innar Lídó að kynna myndir sínar.
Eða kannski er Bruce Willis bara
töffari alveg inn að beini, nógu
stællegur var hann með nýja klipp-
ingu, (ef hægt er að tala um klipp-
ingu í hans tilfelli!) og tók sjálfan
sig langt frá því aivarlega og gerði
óspart grín að ímynd sinni, Holly-
wood-lífinu og raðmyndafárinu,
fyrirbæri sem hefur fært honum
milljarða króna í tekjur.
I nýjustu mynd sinni, Last Man
Vildi búa til mynd fyrir
hugsandi fólk
- Er Bruce Willis búinn að finna
gullnu blönduna, að leika í mynd-
um sem höfða jafnt til almennings
og gagnrýnenda?
„Allir leikarar vilja leika fyrir
leikstjóra eins og Tarantino, Gill-
iam og Walter Hill, segir Willis.
Ég var afar hreykinn af því að
Walter skyldi bjóða mér þetta hlut-
verk og tók því samstundis. Ég
vissi að það yrði erfitt að feta í
fótspor hins frábæra Toshiro Mif-
une sem lék hlutverkið sem kar-
akter minn er byggður á í Yojimbo
en Walter gaf mér mikið frelsi og
við vorum staðráðnir í að gera
eitthvað nýtt en reyna ekki að elt-
ast við neitt úr mynd hins mikla
meistara Kurosawa. Ég vil eins
Mynd fyrir
hugsandi
fðlk
Það er alltaf skemmtilegt að leika vondan
gæja, segir Bruce Willis um nýjustu mynd
sína „Last Man Standing“ í viðtali við Einar
Loga Vignisson sem hitti hann ekki alls
fyrir löngu á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.
Sýningar á þessari mynd eru einmitt að
hefjast í Laugarásbíói og Regnaboganum
þessa dagana.
Standing, sem Willis var kominn
til að 'kynna í Feneyjum ásamt
leikstjóranum Walter Hill, með-
leikaranum Christopher Walken
og framleiðandanum Arthur Sark-
issian, bætir hann enn einni
skrautfjöður í hatt sinn eftir frá-
bæra frammistöðu í Reyfara (Pulp
Fiction) Quentins Tar- ________
antino og 12 öpum (12
Monkeys) eftir Terry
Gilliam. Myndin samein-
ar að vera hörku hasar-
mynd eins og Willis er
þekktastur fyrir að leika
í og hafa listrænt gildi
eins og fyrrnefndar ”
myndir.
Myndin er byggð á meistara-
verki Akira Kurosawa, Yojimbo,
en Walter Hill hefur fært söguna
fram til ársins 1930 og gerist hún
í skuggalegum bæ í Texas á bann-
árunum þar. sem tvær glæpaklíkur
berjast um yfirráð yfir leynivín-
sölu. Bruce Willis leikur dularfull-
an einfara sem kemur í bæinn til
þess að gista eina nótt en lendir
fljótlega í hringiðu átakanna.
Hann er bófi sem ákveður að gera
einn heiðarlegan hlut og ákveður
að reyna að losa bæjarbúa við klík-
urnar með því að etja þeim saman.
„Ég ætla að
bæta á mig
150 kílóum og
fá Sharon
Stone til að
gera hið sama
og allir leikarar leika í góðum
myndum sem hafa eitthvað að
segja og á því láni að fanga að
mér bjóðast bitastæð hlutverk."
- Þú leikur yfirleitt nokkuð
góða gæja en í þessari mynd leik-
ur þú karakter sem er nú kannski
ekki alveg beinlínis hreinræktuð
____ hetja eins og John
McClaine úr Die Hard
seríunni?
„Nei, og mér fannst
það stórskemmtilegt,"
segir Willis og hlær.
„Það hefði verið algjör
glæpur að breyta sögu-
_ hetjunni í einstakt góð-
menni. Ég vildi skapa alvöru kar-
akter, búa til mynd fyrir hugsandi
fólk. Þetta er maður sem hefur
gert margt slæmt um dagana en
í myndinni þarf hann að kljást við
ýmsar spurningar og hann spyr
sig stöðugt hvort hann sé að gera
rétt. Hann er ekki hetja og ekki
skíthæll og ég kunni vel við til-
breytinguna við að leika slíkan
karakter. Þetta er vondur maður
sem ákveður að gera eitt góðverk.
Honum býður við sumu sem hann
hefur gert og verðui' að liorfast í
augu við það.
Mér er mjög mikilvægt að geta
©
BRUCE Willis við opnun
kvikmyndahátíðarinnar
í Feneyjum
BRUCE Dern gamli er
lögreglustjórinn Ed Galt
©
CRISTOPHER Walken
leikur leigumorðingja
írskrar glæpaklíku
WILLIS leikur dularfullan
einfara sem kemur í bæinn
ALEXANDRA Powers
leikur hina þokkafullu
Lucy kærustu glæpa-
foringjans
©
KARINA Lombard er
Felina sem er í haldi
glæpaforingja
LEIKSTJÓRI Last man
standing Walter Hill
: ■;■, .
Morgunblaðið/Sigurður Páll Sigurðsson.
fundið eitthvað sem ég skil og get
nálgast í karakterunum sem ég
leik og John Smith í þessari mynd
heldur fast í sín gildi, hann skilur
á milli þeirra sem eiga hlutdeild
að málunum og þeim sem standa
utan við þau. Þetta er maður sem
hefur staðið í vígaferlum mest allt
líf sitt innan um alls kyns hyski
en hann gætir sín á því að halda
konum og börnum fyrir utan átök-
in, nokkuð sem því miður er sjaldn-
ast virt því konur og börn hafa
yfirleitt orðið verst úti úr vígaferl-
um, ekki síst í nútímanum."
Fituhlunkur brýst
út af salerninu!
- En John Smith er nokkuð
fyndinn náungi, kannski ekki svo
ólíkur John McClaine að því leyti?
„Það eru margir gullmolar í
handriti Walters Hills og hann lét
mig frá alveg hreint frábærar
setningar. En ég reyni að endur-
taka mig ekki og þessi hlutverk
eru gjörólík. Það eru auðvitað
ákveðnir þættir í mér sem leikara
sem fólk þekkir og ef ég næ að
verða góður leikari einn daginn,
þá verður kannski auðveldara að
gleyma síðustu mynd minni þegar
fólk er að horfa á þá nýjustu!“
- Er fjórða Die Hard myndin
væntanleg?
„Ég ætla að bæta á mig 150
kílóum og fá Sharon Stone til að
gera slíkt hið sama og kalja mynd-
ina Die Hard in a Delly. Ég lokast
inn á karlaklósettinu á veitinga-
stað í New York, hryðuverkamenn
yfirtaka staðinn en ég brýst út
með því að hlaupa á vegginn og
kemst þannig inn á kvennaklósett-
ið þar sem Sharon Stone er. Ég
er reyndar ekki búinn að tala um
þetta við hana þannig að það má
ekki hafa þetta eftir mér.
Nei, ég hef ekki hugmynd um,
um hvað hún verður en ég er viss
um að einhver er að skrifa hand-
rit að slíkri mynd núna því þessar
myndir hafa mokað inn svo hrika-
legum peningum. En mér fannst
erfitt að leika í síðustu mynd, því
ef það er erfitt að skapa nýja kar-
aktera, ímyndið ykkur þá hvernig
er að leika sama karakterinn þrisv-
ar. Sem betur fer var ég með góða
menn með mér, Samuel L. Jackson
og Jeremy Irons sem veittu mér
mikinn stuðning og innblástur."
Ennþá að reyna
að verða góður leikari
- Þú fæst við ýmislegt, ert með
þína eigin hljómsveit, á kafi í við-
skiptum í tengslum við Planet
Hollywood-veitingahúsakeðjuna
og hefur verið að skrifa. Hvar ligg-
ur aðaláhugasviðið?
„Ég er fyrst og fremst leikari
og er ennþá að reyna að verða
góður leikari. Ég læri smátt og
smátt, og ég lærði helling á því
að vinna með Walter Hill. Mér
finnst gaman að leika tónlist en
hvað ég geri í framtíðinni verður
bara að koma í ljós.“
- Af þeim myndum sem þú
hefur leikið í, hveija kanntu best
að meta?
„Þessari spurningu er mjög erf-
itt að svara og það fer ekkert eft-
ir vinsældum myndanna. En ef ég
þarf að velja úr yrði það Mortal
Thoughts, Pulp Fiction og Last
Man Standing.“
- Miðað við hvað leikarahjón
eru gjörn á að leika saman í bíó-
myndum kemur mörgum á óvart
að þið Demi Moore skulið ekki
hafa leikið á móti hvort öðru í
stórmynd. Stendur það ekki til?
Bruee Willis er greinilega ekk-
ert alltof hrifinn af því að svara
spurningum um konuna sína því
hann er lengi að velta fyrir sér
svarinu en þegar það kemur loks-
ins er það stutt og laggott: „Að-
eins ef við finnum réttu söguna
og rétta íeikstjórann, aðeins þá.“