Morgunblaðið - 10.11.1996, Blaðsíða 14
14 B SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1996
DÆGURTONLIST
MORGUNBLAÐIÐ
Fjögura laga stutt-
diskur úr Stone Free
LEIKRITIÐ Stone Free hefur nú
gengið fyrir fullu húsi í Borgarleik-
húsinu frá því um miðjan júlí og
plata með tónlist úr verkinu er sölu-
hæsta plata ársins. Til að fagna því
meðal annars kemur út diskur með
fjórum lögum úr sýningunni á
næstu dögum.
Adisknum, sem heitir einfaldlega
Love eftir lokalagi myndar-
innar er að finna einmitt það lag.
Að sögn aðstandenda verksins hef-
ur óskum um á fá það lag útgefið
ekki linnt frá því sýningar hófust,
en það var valið í sýninguna eftir
að búið var að vinna breiðskífu þá
sem kom út snemmsumars með
tónlist úr verkinu. Love er eftir
John Lennon og hann og Paul
MeCartney semja saman annað lag
á disknum, I’ve Got a Feeling. Auk
þessara laga tveggja er að finna á
disknum iagið Rainy Day Women
eftir Bob Dylan og Barabajagat
eftir Donovan. Öll lögin voru tekin
upp utan hljóðvers, Love var tekið
upp í Perlunni en hin lögin eru tek-
in upp á sýningum í Borgarleikhús-
inu.
Smásagnasafn
Emilíönu
SEGJA má að Emilíana Torrini
hafi byijað sinn tónlistarferil í
fremstu röð; hún söng hljómsveitina
Spoon inn á kortið á sínum tíma
og gerði plötu sveitarinnar að einni
söluhæstu plötu þarsíðasta árs og
sólóskífa hennar sem kom út á síð-
asta ári varð ein söluhæsta plata
ársins.
etta ár hefur ekki síður verið
viðburðaríkt fyrir Emilíönu því
breiðskífa með lögum úr Stone Free
er söluhæsta plata ársins hingað
til, að mestu leyti fyrir framlag
hennar, og síðan kom út önnur sóló-
skífan, Merman í nýliðinni viku.
Emilíana segist hafa dregið sig
úr sviðsljósinu að mestu til að fá
frið til að vinna plötuna samhiiða
vinnu í Stone Free. Á Merman sem-
ur hún með Jóni Ólafssyni nokkur
lög og segir að þar á meðal séu
hugmyndir sem hún hafi átt í ára-
raðir. „Okkar samstarf gekk vel
fyrir sig og hefur ailtaf gengið vel;
ég fæ að ráða því sem ég vii og
get verið eins frek og mér er eigin-
legt, en samt tek ég mikið mark á
því sem hann segir og ekki síður
mikið mark á öðrum sem komu að
vinnu plötunnar. Hún er í raun
mikið samvinnuverkefni þó þetta
sé mín sólóplata." Emilíana segir
að hún hafi valið lögin sjálf en Jón
hafi bent henni á ýmis lög sem hún
síðan skoðaði.
Platan var tekin upp á mánuði
og Emilíana segist fyrirfram ekki
hafa átt von á því að vinnan myndi
klárast á svo skömmum tíma. „Mér
fannst þetta rosaleg törn og ég
held ég gæti aldrei gert eina plötu
á ári, ég var búin að fá svo mikið
nóg af plötunni þegar við vorum
búin. í dag get ég þó hlustað á
hana og haft gaman af.“
Emilíana segir að textar hennar
séu smásögur og lögin reyndar öll
valin með það fyrir augum að þau
segi sögu. „Mér finnst textarnir
mínir mjög fyndnir, en það er ekki
víst að allir sjái þá fyndni, kannski
finnst fólki þeir svo sorglegir að
það fer að gráta,“ segir Emilíana
og hlær við.
Törn Emilíana Torrini.
Gamall
draumur
MEÐAL nýrra listamanna sem
láta í sér heyra í fyrsta sinn fyrir
þessi jól eru Ragnar Karl Ingason
og Harpa Þorvaldsdóttir, sem
skipa Dúettinn Tromp. Þau sendu
frá sér breiðskífuna Myndir fyrir
skemmstu.
Ragnar Karl á öll lög á disknum
nema eitt og hann segist hafa
vitað af Hörpu, enda _séu þau bæði
frá Hvammstanga. „Ég heyrði
Hörpu synga fyrst skömmu fyrir
jól og langaði þá strax að fá hana
til að syngja eitthvað fyrir mig. Á
endanum fannst okkur upplagt að
halda áfram upptökum og í fram-
haldi af því að gefa út plötu.“
Ragnar Karl segir að lengi hafi
blundað með honum sá draumur
að gefa eitthvað út og þegar
Harpa kom til sögunnar var ekki
eftir neinu að bíða.
Ýmsir komu þeir Ragnari Karli
og Hörpu til aðstoðar þegar að
upptökum kom, þeir helstir Jens
Hansson sem stýrði upptökum og
lék á hljómborð og saxófón, og
Áhyggjulaus Dúettinn Tromp:
Ragnar Karl Ingason og Harpa
Þorvaldsdóttir.
Björgvin Gíslason lék á rafgítar
og hljómborð aukinheldur sem
hann aðstoðaði Jens og Ragnar
Karl við útsetningar.
Ragnar Karl segist ekki hafa
ýkja miklar áhyggjur af því hvern-
ig honum muni farnast, en plötuna
gefur hann út sjálfur, enda skipti
mestu að platan sé vel úr garði
gerð. „Með þessari útgáfu er gam-
all drauinur að rætast og ég reyni
bara að njóta þess.“
Eitthvað nýtt
FÁTT ER um tónleikastaði í
Reykjavík þar sem hljómsveit-
ir geta spreytt sig, ekki síst
ef þær eru að kynna frums-
amdatónlist. Undanfarið ár
hafa þær þó átt þess kost að
leika á síðdegistónleikum í
Hinu húsinu sér að kostnaðar-
lausu.
Morgunblaðið/Júlíus
Guðir „Við hjálpum þeim sem hjálpa sér
sjálfir.“ Birgir Thoroddsen og Birgir Örn
Steinarsson.
Hugmyndina að síðdegist-
ónleikum Hins hússins,
sem hófust fyrir rúmu ári,
færðu sig út á Ingólfstorg í
sumar og eru nú aftur komnir
í hús, eru þeir Birgir Örn Stein-
arsson og Birgir Thoroddsen. Fyrstu
tónleikarnir voru haldnir 1. septem-
ber á síðasta ári og síðan hvern föstu-
dag upp frá því með hléi á milli jóla
og nýárs og sumarfríi í ágúst. „Við
vorum ráðnir til að skipuleggja opn-
unartónleika Hins hússins á síðasta
ári og í kjölfarið á því báram við upp
þá hugmynd að koma á síðdegistón-
leikum á föstudögum og því var strax
vel tekið." .
Þeir félagar segja að tónleikarnir
séu helst ætlaðir fyrir hljómsveitir
sem séu að gera eitthvað sjálfar, að
reyna að koma sér á framfæri, halda
tónleika og semja lög. „Við erum
eins og guð,“ segir Birgir Thorodds-
en og hlær mikið, „hjálpum þeim sem
hjálpa sér sjálfir. “
Sem vonlegt er hafa fjölmargar
hljómsveitir troðið upp á tónleikum
í Hinu húsini á síðastliðnu ári, þar
á meðal nokkrar erlendar, sem þeir
félagar segjast hafa hleypt að til
tilbreytingar. „Við höfum hafnað
ýmsum hljómsveitum sem okkur
finnst ekki eiga erindi á síðdegistón-
leika; þeir eiga helst að vera fyrir
nýjar hljómsveitir eða hljómsveitir
sem eru að gera eitthvað nýtt.“
M„NESROKK“ er geisladiskur
sem inniheldur 10 frumsamin lög
og texta sem eiga það sameigin-
legt að vera eftir tónlistarfólk frá
Neskaupstað. Allur hljóðfæraleik-
ur og söngur er í höndum heima-
manna. Upptökur fóru allar fram
frá mars fram í byijun júlí 1996,
í hljóðverinu Risi sf. í Neskaupstað
nema lagið „Himnaganga“ sem
hljóðritað var haustið 1994.
Vinnsla frumeintaks var í höndum
Bíóhljóðs hf. Reykjavík. Hug-
myndin að útgáfunni disks kvikn-
aði hjá nokkrum meðlimum tón-
listarklúbbsins Brjáns (Blús,
rokk og jassklúbburinn á Nesi),
sem hefur áralangt staðið fyrir
tónleikum og öðrum tónlistaruppá-
komum í bænum. Lögin eru mis-
munandi gömul þar sem sumir
voru að láta gamlan draum rætast
með því að setja þau á geisladisk.
Tónlistarlíf er mikið í bænum og
margar hljómsveitir verið starf-
andi á undanförnum árum. Disk-
urinn er nokkurs konar safndiskur
þar sem margir tónlistarmenn
koma að honum. Fyrirhugað er
framhald á útgáfu þessari meðal
annars fyrir ungar hljómsveitir
sem í dag eiga það takmark að
koma frumsömdu lagi á disk.
MHLJÓMSVEITIN geðþekka
Saktmóðigur heldur tónleika næst-
komandi fimmtudag í Kaffi Kult.
Hljómsveitin hefur leik sinn um kl.
23.00 og hyggst meðal annars leika
efni af væntanlegri 10“ meðal ann-
ars. Aðgangur er ókeypis.
Stundarstemmning
STEFÁNS
STEFÁN Hilmarsson sendi frá
sér sína aðra sólóskífu í liðinni
viku. Á henni kveður við nýjan
tón og Stefán sameinar það sem
hæst ber í breskri danstónlist og
lagvissu poppi.
Stefán Hilmarsson vann plöt-
una nýju með Mána Svav-
arssyni og Friðriki Sturlusyni,
en hann segir að þeir félagar
hafi brugðið sér í sumarbústað
í haust, „eins og er víst tíska í
dag“, segir hann og kímir, og
samið af kappi í þijá daga. „Við
unnum þetta mikið eftir „gro-
ovi“,“ segir Stefán, „Máni samdi
taktgrunn og síðan sömdum við
laglínurnur ofan á þann grunn.
Síðar fór ég til Hveragerðis og
var það einn í aðra þrjá daga
að semja texta,“ segir Stefán,
en tvö lög á plötunni átti hann
frá gamalli tíð. „Þetta voru mjög
frábrugðin vinnubrögð frá því
sem ég hef áður gert, en mig
langaði einmitt að reyna eitt-
hvað nýtt. Það var ekki mikið
mál að falla inn í þessi vinnu-
brögð og þessa tónlist því henni
svipar til þeirrar tönlistar sem
ég hef haldið mest upp á í gegn-
um árin.“
Lagasmíðar og öll vinna við
plötuna gekk hratt fyrir sig en
Stefán segir að hann þrátt fyrir
hraðann hafi hann nostrað við
laglínur, enda skipti þær meira
máli í danstónlist eins og hann
sé að fást við, danspoppi. „Við
gáfum hveiju lagi góðan tíma,
en vinnan gekk ekki síst hratt
fyrir sig vegna þess að við gerð-
um engar prufur en unnum lögin
og útsetningar jafnóðum," segir
Stefán og bætir við að gaman
hafi verið að reyna vinnubrögð
sem þessi, en hann breytti einnig
útaf í textagerð, í stað þess að
eltast við stuðla og höfuðstafi
reyndi hann að hafa þá sem
fæsta og byggja textana á stund-
arstemmningu.
Stefán segir helsta og reyndar
eina vandamálið við gerð plöt-
unnar hvernig best sé að kynna
hana á tónleikum. „Mér hefur
aldrei þótt það ganga nógu vel
upp að vera að halda tónleika
með því að menn standi við
hljómborð og spili af bandi. Ég
er enn að velta því fyrir mér
hvaða leið sé vænlegust og þá
hefur komið upp sú hugmynd
að útsetja lögin fyrir órafmagn-
aðan flutning að nokkru og þá