Morgunblaðið - 10.11.1996, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓNLIST
Ævintýraleg Margrét Kristín Sigurðardóttir.
Ævintýraleg
tónlist
ALLTAF eru það gleðitíðindi þegar
nýjar söngkonur kveða sér hljóðs
og í liðinni viku kom út breiðskífa
ungrar söngkonu, laga- og texta-
smiðs Margrétar Kristínar Sigurð-
ardóttur, Fabula.
Margrét Kristín segist hafa dval-
ist erlendis undanfarin ár en
sé nýflutt til íslands. Hún lærði
leiklist og kvikmyndagerð við Há-
skólann í Þrándheimi og segir að
lengi hafi tónlist og leiklist togast
á í huga hennar. „Tónlistin hafði
vinninginn, því á endanum tók ég
mig upp og fluttist til Lundúna að
læra hljómfræði hjá Ungveijanum
Peter Sander,“ segir hún, en áður
hafði hún lært á píanó í tónmennta-
skólanum í Reykjavík og á trommur
hjá Gunnlaugi Briem. Hún segist
hafa unnið að plötunni undanfarið
ár en hana vinnur hún með Jóni
Elvari Hafsteinssyni, sem annast
forritun og leikur á gítar og bassa
og semur eitt laganna. Sjálf syngur
Margrét og leikur að auki á hljóm-
borð í flestum laganna.
Flest lögin segist Magrét hafa
samið á síðastliðnu ári, tvö séu frá
því fyrir tveimur árum en eitt mun
eldra. Hún segir erfítt að lýsa tón-
listinni eftir að hafa legið yfir henni
svo lengi. „Ég held að henni sé
best lýst með því að segja að þetta
sé ævintýraleg myndræn tónlist
með jassáhrifum, því óneitanlega
gætir hljómfræðilegra jassáhrifa
hér og þar og síðasta lagið er jass-
ballaða. Samt er þetta alls engin
jassplata; tónlistin er jaðartónlist,
nær poppinu en jissinum."
Margrét segist leggja mikla
áherslu á textana, „þeir eru mér
jafn mikilvægir og tónlistin. í flest-
um laganna er um myndhverfingar
eða litlar sögur að ræða og verða
orðin þá til fyrst og laða fram tón-
ana.“
Margrét segist ekki hafa flutt
lögin á tónleikum enn sem komið
er en hún sé að búa sig undir þann
flutning. „Það er erfitt að flytja
lögin á tónleikum eins og þau eru
á plötunni og ég á því von á að ég
fari þá leið að breyta útsetningum
verulega þegar kemur að tónleika-
haldi.“
Danspopp Stefán Hilmarsson
kannski velja óhefðbundin hljóð- formlegir útgáfutónleikar verða
færi,“ segir Stefán að lokum, en í Borgarleikhúsinu 2. desember.
SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1996 B 15
FLEIRI BILR5TIEÐI
Mánndagur ll.nóv.
Gœðastaif Svœðisskrifstofu málefna fatlaðra
á Reykjanesi.
Ævar Kolbeinsson. • Kl. 8.15 - 9.30
Digranesvegur 5,2. hæð, Kópavogi.
Visthæfferðaþjónusta og umhveifisstjómun.
Anna Dóra Sæþórsdóttir
og Helga Guðrún Jónasdóttir.
Kl. 8.15 -10.00 • Ráðhús Reykjavíkur.
Þátltaka crölluni Itcimil án gjalds
Gœði í þágu þjóðar
Vinnum saman!
Dagskrá Gæðaviku 1996
Þriðjudagnr 12. nóv.
Gœði íþágu þjóðar - Vinnum saman.
Geir A. Gunnlaugsson frkv.stj. Marel hf. og Páll
Skúlason próf. í heimspeki við HÍ. • Kl. 8.30-10.00
Stjórnstöð Landsvirkjunar, Bústaðavegi 7.
Stefna heilbrigðisráðuneytis í gœðamálum.
Kristján Erlendsson og Högni Óskarsson.
Kl. 14.30 - 15.45 • Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið, Laugavegi 116.
Miðvikudagur 13. nóv.
Innskyggnir
Reynsla fyrirtækja af notkun Innskyggnis.
Haraldur A. Hjaltason og Oddur Eiríksson.
Kl. 8.15-9.30 • íslenskar sjávarafurðir hf., Sigtúni 42.
Verkefni iír atvinnulífinu:
Nemendur í viðskiptadeild HÍ.
Kl. 14.00 - 17.00 • Þjóðarbókhlaðan, 2. hæð.
Flmmtudagnr 14. nóv.
10 ára afmœli GSFÍ.
Islensku gæðaverðlaunin kynnt
og veittar viðurkenningar.
Kl. 17.00 - 19.00 • Listasafn íslands.
Fostudagur 15. nóv.
Gerð gœðaketfis í Smáraskóla.
Kl. 14.00-15.30
Smáraskóli, Dalsmára 1, Kópavogi.
HVlTA HÚSIO / SlA