Morgunblaðið - 10.11.1996, Side 1

Morgunblaðið - 10.11.1996, Side 1
VATNAJÖKULL VAKNAR Í ‘ v ; iSiSSlÍSiS8^!ÍS8 f * 'r *f *- 1 ^Ml|slí®5»SSíi^^g#f»#?SÍ|S|^iftS; , - '* i *' fÍÉ WM B !|§Jf§|SJ| SSSfiSSiSlSstf Émmwmmam SsSffíjllftfcsipls tl«3|v!;teliS*^8ga9 ÍSliSiteSlllSSíi ' > i! Í'Site -, rj|l» ‘ . ’í'--^lV'te'iT5 'l ■ Morgunblaðið/Oddur Sigurðsson ELDURINN varð laus suðaustan við Bárðarbungu sem rís efst t.h. á myndinni. Nær má sjá eldstöðina og svört askan litar jökulinn. ísinn yfir og umhverfis eldstöðina bráðnaði og rann vatnið niður í Grímsvötn. Greinilega má sjá hvernig yfirborð jökulsins hefur sigið yfir rásinni þar sem hlaupið braust síðan meðfram GrímsQalli og niður á Skeiðarársand. Sprett hlaup HLAUPIÐ í Skeiðará kom ekki á óvart — en það kom hratt. Hlaupið hófst í sama mund og vegurinn yfír Skeiðarársand var opnaður að morgni 5. nóvember síðastlið- inn. Lögreglumaðurinn sem opnaði leiðina mátti hafa sig allan við til að komast aftur heim áður en flóðið lagði sand- inn undir sig og lokaði. Eftir tvo daga var hlaupið hjaðnað og hrikalegt um að lit- ast á Vatnajökli og Skeiðarár- sandi. Jökulhellan yfir Gríms- vötnum sem hafði risið undra- hratt á liðnum vikum var nú fallin saman, margsprungin og gliðnuð. Gríðarlegt ísgljúfur með feiknastórum kötlum komið þar sem flóðið hafði ruðst fram úr vötnunum undir jöklinum. Hið neðra voru ís- jakar um allan sand, horfnar brýr og hálfar, slitur af vegi og kolsvartur aurinn yfír öllu. Munnmælasögur um risahlaup fyrri ára fengu staðfestingu vaskra vísindamanna sem mældu náttúruhamfarirnar og skrásettu í rúmkílómetrum, sekúndulítrum og milljóna- tonnum. Tölur á blaði ná ekki að túlka tilfinningarnar sem öflin í iðrum Vatnajökuls vöktu með sjónai'vottum hamfaranna í liðinni viku. Morgunblaðið/RAX Morgunblaðið/Þorkell GOSIÐ hófst á 6 km langri sprungu undir jöklinum um miðnætti 30. september. Grfðar- miklir sigkatlar mynduð- ust á fyrsta degi og stað- festu að eldgos var hafið líkt og jarðskjálftamælar höfðu gefið til kynna. JÖKULÞEKJAN yfir eldstöðinni rofnaði rúm- um sólarhring eftir að gosið hófst. Mikil gjá, um 3,5 km löng og 200-500 metra breið opnaðist í jökulinn. Loks myndaðist lítil eyja og stakk kollin- um úr vatninu. Kolsvart- ar öskusprengingar og eldglæringar í gosmekk- inum minntu sjónarvotta á Surtseyjargosið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.