Morgunblaðið - 12.11.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.11.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA plor^iHttWíiíitíi 1996 ÞRIÐJUDAGUR 12. NOVEMBER BLAD D KNATTSPYRNA HNEFALEIKAR: EVANDER HOLYFIELD SIGRAÐIMIKETYSON / D8 Bosman- 5 máliðnær | einnig til i handknatt- leiksins Líklegt er að eftirlitsstofnun EFTA sendi frá sér greinar- d gerð á næstu dögum þar sem fram •fí kemur að íslensk félagslið geti ekki k krafist greiðslu fyrir leikmenn sem * : skipta yfir í evrópsk félagslið, séu :>l leikmennirnir ekki á samningi hjá 'jj,: félaginu. Frá þessu var skýrt í : !■ kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær- kvöldi. Forsaga málsins er að Aftureld- i9 ing krafðist greiðslu fyrir Róbert Sighvatsson en hann gekk til liðs við þýska liðið Schuttervald í sum- ar. Þjóðveijar kærðu til fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins sem sendi málið áfram til eftir- litsstofnunar EFTA. Þetta er fyrsta _ málið sem upp kemur varðandi ís- lenska handknattleiksmenn, en samkvæmt Bosman-málinu svokall- aða eiga leikmenn rétt á að skipta um félag, eftir að samningur þeirra er úti, án þess að til komi greiðsla. Forsvarsmenn íslenskra hand- knattleiksliða hafa skellt skollaeyr- um við þessu og hafa félög verið að greiða fyrir leikmenn sem ekki eru samningsbundnir. Verði niður- staða eftirlitsstofnunarinnar eins og búist er við má vænta þess að í framtíðinni geti samningslausir leikmenn farið þangað sem þá lang- ar til án þess að fyrra félag geti sett strik í reikninginn. Nokkur mál eru enn óleyst í þessu sambandi og gæti niðrustaða eftirlitsstofnunar- innar haft áhrif á þau. Dagur Sig- urðsson og Ólafur Stefánsson úr Val fóru til Wuppertal og komust félögin að samkomulagi um greiðslu og evrópska handknatt- leikssambandið (EHF) hefur veitt þeim leyfi til að leika með þýska liðinu en jafnframt fryst greiðslunar til Vals. Mál Magnúsar Sigurðsson- ar, sem leikur með þýska liðinu ; Wilderstatt, gæti einnig einkennst af niðurstöðunni. Sama má segja af viðskiptum KA og Essen vegna Patreks Jóhannessonar. Félögin komust að samkomulagi með þeim formerkjum þó að beðið yrði eftir niðurstöðu EHF og vænta má niður- stöðu þaðan fljótlega eftir að eftir- litsstofnunin hefur sent frá sér greinargerðina. Barátta í Dublin RÚNAR Kristinsson og Andy Townsend, fyrirliði írlands, berjast um knöttlnn í Dublin, þar sem íslenska landsliðið náði jöfnu við íra á sunnudaglnn, 0:0. „Við náðum því sem við ætluðum okkur, að halda marklnu hreinu. Við lékum mjög skynsamlega og allt, sem Logl lagði fyrir okkur, heppnað- ist,“ sagði Birkir Kristinsson, markvörður, sem lék vel. ■ Allt um leikinn i Dublin / D4,D5 FRJALSIÞROTTIR Sáttum HM Valdabarátta Andreas Fouras, íþróttamálaráðherra í Grikk- landi, og Stratos Molivas, forseta Fijálsíþróttasambands Grikklands, varðandi framkvæmd mála og skipulag vegna heimsmeistara- mótsins í fijálsíþróttum í Aþenu í ágúst á næsta ári varð til þess að Alþjóða fijálsíþróttasambandið, IAAF, hafði miklar áhyggjur af mótshaldinu, en fyrir tilstuðlan þess náðust sættir milli manna um helg- ina. Primo Nebiolo, forseti IAAF, sagði að deilunum hefði verið ýtt til hliðár og Fouras og Molivas hefðu undirritað bréf þar sem þeir heita fullri samvinnu. Nebiolo sagð- ist sannfærður um að mótshaldið yrði Aþenu til sóma. „Vandamálið er úr sögunni og Aþena verður höfuðborg íþrótta í heiminum í ág- úst.“ Árni Gautur til Stoke ÁRNA Gauti Arasyni, mark- verði ungmennaliðsins í knatt- spyrnu og Stjömunnar, hefur verið boðið að koma og æfa með Stoke City, en með því féiagi leikur Láras Orri Sig- urðsson sem kunnugt er. „Lou Macari, knattspyraustjóri Stoke, sá landsleikinn gegn Irum og kom að máli við mig á eftir og bauð mér að koma til liðsins og æfa með því í eina viku,“ sagði Árni Gautur í gær. Hann sagðist ætla að þekkj- ast boðið en hefði ekki ákveð- ið hvenær af því yrði að hann færi til Englands. „Ég vil fara sem fyrst á meðan ég er í þokkalegri æfingu, en á móti kemur að vegna knattspyrn- unnar hefur námið setið á hakanum. En þessi mál skýr- ast fljótlega." HANDBOLTI l'RSJ.n í \l KAI TDR f.ri l 0 ^ ^ ^ ^ ^ Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö ■J . 6 af 6 3 22.170.000 O 5 af 6 í~- - tjO'MI,. 2 1.217.430 3. 5»16 4 93.320 4. 4 af 6 275 2.150 rr 3 af 6 O. + bónus 1,171 210 Samtals: 1.455 70.155.300 70.155.300 3.645.300 05 96 UPPLÝSINGAR 1. vinningur er áætlaöur 40 milljónir kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.