Morgunblaðið - 12.11.1996, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER1996 D 3
HANDKNATTLEIKUR
Haukartöpuðu með sex mörkum
Sex marka
tap Hauka
Við vorum ekki að leika eins og
við getum best og vorum
klaufar að missa leikinn niður í sex
mörk í lokin,“ sagði Sigurður Gunn-
arsson, þjálfari Hauka, en á laugar-
daginn töpuðu hans menn fyrri við-
ureign sinni í Borgarkeppni Evrópu
fyrir franska liðinu Creteil 24:18.
Það er því ljóst að Haukar eiga á
brattann að sækja í'síðari leik lið-
anna í Hanfarfirði á laugardaginn.
„Nú er bara hálfleikur og við eigum
möguleika, en það er alveg ljóst að
síðari leikurinn verður erfiður og
við verðum að leika mun betur til
þess að komast áfram.“
Sigurður sagði að Haukar hefðu
verið yfír fram í miðjan fyrri hálf-
leik en þá hafi komið slæmur kafli.
Leikmenn Creteil náðu frumkvæð-
inu og komust yfir. Staðan í hálf-
leik var 13:10. I byijun síðari hálf-
leiks kom slæmur kafli hjá Haukum
og þegar við bættist að þeir voru
tveimur leikmönnum færri um tíma
náðu leikmenn Creteil fimm marka
forskoti, 17:12. Haukum tókst að
laga stöðuna í 18:15 en lengra kom-
ust þeir ekki þrátt fyrir að eiga góð
færi. „Við vorum klaufar í lokin og
lékum illa, en það var engin ástæð-
an til þess að missa þá svona langt
fram úr okkur,“ sagði Sigurður.
„Við vissum að þeir væru sterkir
og í efsta sæti deildarinnar í Frakk-
landi. Þeir eru hávaxnir, sterkir og
eru í mjög góðri æfingu. Ekkert í
þeirra leik kom mér á óvart,“ bætti
Sigurður. „En fyrst og fremst vor-
um við ekki að leika eins og við
getum best.“ Sigurður sagði sigur
Creteil hafa verið verðskuldaðan.
Fyrsti sigur ÍBA
KVENNALIÐ íþróttabandalags
Akureyrar vann sinn fyrsta
deildarsigur í handbolta er liðið
lagði ÍBV að velli í 1. deildinni
í KA-heimilinu sl. laugardag.
Lokatölur leiksins urðu 23:22.
Þetta er annað keppnistímabilið
sem IBA tekur þátt í deildinni.
Önnur úrslit um helgina urðu
þau að Víkingur sigraði Fram
18:15, Stjarnan lagði KR 25:14
og FH vann Fylki í Árbænum,
25:22. Nánar verður sagt frá
þessum Ieikjum á morgun.
ii@l
II!
Morgunblaðið/Kristj án
SERGEJ Ziza, Rússinn í liði KA, kominn í gegnum vörn belgíska iiðsins. Hann skoraði þrívegis.
PATREKUR Jóhannesson
Patrekur
með
áttamörk
Patrekur Jóhannesson gerði átta
mörk fyrir Essen sem vann
Héðin Gilsson og samheija í Fred-
enbeck, 26:20, í þýsku deildinni um
helgina. „Við gerðum út um leikinn
í seinni hluta fyrri hálfleiks þegar
við náðum að leika sterka vörn og
hraðaupphlaup fylgdu í kjölfarið,“
sagði Patrekur við Morgunblaðið
en staðan í hálfleik var 12:6. Pat-
rekur, sem skoraði úr sex vítaköst-
um, sagði að áhersla hefði verið
lögð á að stoppa Héðin. „Hann var
yfirburðamaður í liðinu og gerði tvö
mörk.“ Essen er í 5. til 6. sæti með
níu stig eins og Niederwiirzbach
en Fredenbeck er með fjögur stig
eins og Hameln, sem á leik til góða.
Lærisveinar Kristjáns Arasonar
hjá Massenheim unnu Grosswall-
stadt 30:25 og eru með átta stig
eins og Minden og Grosswallstadt
en eiga léik til góða.
Lemgo er með 14 stig eftir átta
umferðir en síðan koma Flensburg,
Kiel og Nettelstedt með 10 stig.
Róbert Sighvatsson og félagar í
Schutterwald eru í neðsta sæti með
tvö stig.
Erlingur Kristjánsson fyrirliði KA eftir sex marka sigur á Herstal Liege
„Mátulega bjartsýnn“
KA vann öruggan sigur, 26:20, á Herstal Liege er liðin mætt-
ust á Akureyri í 16 liða úrslitum í Evrópukeppni bikarhafa um
helgina. KA fer því með sex mikilvæg mörk ífarteskinu í seinni
leikinn sem fram fer í Belgíu um næstu helgi. Sigur KA var
síst of stór, en það hefði vissulega verið gott að vinna stærri
sigur og vera með meira forskot.
Leikurinn var jafn framanaf í
fyrri hálfleik og jafnt á öllum
tölum þar til staðan var 5:5, en
þá kom góður leikkafli KA og lið-
ið náði þriggja
ReynirB. marka forystu.
Eiríksson Leikurinn var
skrifar nokkuð köflóttur
frá Akureyn fram að hálfleik en
þegar flautað var til hálfleiks var
staðan 13:10, KA í vil. í upphafi
síðari hálfleiks voru KA-menn
mjög ákveðnir með Duranona í
broddi fylkingar. Hann gerði þrjú
fyrstu mörk hálfleiksins og jók
VALDIMAR Grímsson
forystu KA í 6 mörk og eftir það
var aldrei spurning um hvers sig-
urinn var, heldur einungis hversu
stór hann yrði. Gestirnir náðu að
klóra í bakkann um miðjan hálf-
leikinn, gerðu þijú mörk í röð og
minnkuðu muninn í fjögur mörk
en KA var sterkara undir lokin
og góður sigur þeirra, 26:20, varð
staðreynd.
KA liðið lék nokkuð vel í þessum
leik og verður að telja möguleika
liðsins á að komast í 8 liða úrslit
mjög mikla en þeir verða þó að
halda vel á spöðunum í Belgíu því
Stjarnan í Garðabæ braut blað
í sögu félagsins þegar liðið
tryggði sér sæti í átta Iiða úrslitum
EFH-keppninnar í handknattleik
en Stjarnan hefur ekki náð svo
langt í Evrópukeppni.
Garðbæingar léku á móti Spar-
kasse og fóru báðir leikirnir fram
í Bruck í Austurríki. Stjarnan vann
fyrri leikinn 33:24 sl. föstudags-
kvöld en tapaði útileiknum 35:32
í fyrradag.
„Við vorum með leikinn í okkar
höndum allan tímann en þegar við
vorum þremur mörkum yfir í lok
lið Herstal Liege er mjög gott og
til alls víst á heimavelli. Duranona
lék vel, var bestur KA-manna og
gerði hann 13 mörk. Það er greini-
legt að hann er að senda landsliðs-
þjálfaranum skilaboð um að hann
sé tilbúinn i slaginn, eftir að hafa
verið settur út úr landsliðinu ný-
verið. Vörn liðsins virkaði mjög
sterk, fundu gestirnir oft ekki
glufur nema helst þá í homunum.
Herstal Liege hefur á að skipa
mjög léttleikandi liði en það vantar
sárlega stórar og sterkar skyttur.
Þeirra bestur var homamaðurinn
Robert Nijdam sem sýndi mjög
skemmtilega takta og hreint frá-
bæra tækni með knöttinn.
Nokkuð sáttur
„Ég er nokkuð sáttur með sex
marka sigur okkar og leikinn í
heild sinni,“ sagði Erlingur Krist-
seinni hálfleiks slökuðu strákarnir
á,“ sagði Magnús Andrésson,
fararstjóri og stjórnarmaður, við
Morgunblaðið. „Strákarnir spiluðu
mjög sannfærandi og öruggt."
Leikmenn Stjörnunnar voru
samtals í 16 mínútur utan vallar
í fyrri hálfleik og einu sinni voru
aðeins þrír útileikmenn inn á en
engu að síður var liðið marki yfir
í hálfleik, 16:15. í seinni hálfleik
var munurinn mest þijú mörk en
svo fór að heimamenn unnu með
þriggja marka mun.
„Ég var hræddur við þennan
jánsson fyrirliði KA eftir leikinn.
„Við vissum í raun ekkert um
þetta lið og það tók nokkurn tíma
að átta okkur á því hvernig það
leikur. Leikurinn úti eftir viku
verður örugglega erfiður og það
þýðir ekkert fyrir okkur annað en
að leggja allt í leikinn. Ég er
mátulega bjartsýnn á framhaldið
og tel helmings líkur á því að við
komumst áfram í keppninni.“
Erfiður lelkur
„Þetta var mjög erfiður leikur,"
sagðir Raphael Crnjak fyrirliði
Herstal Liege að leikslokum. „Leik-
menn KA eru mun stærri og sterk-
ari en við og það sagði mjög mikið
til sín í seinni hluta leiksins. Ég tel
það nærri ómögulegt að vinna upp
forskot KA í seinni leiknum og
sigra með meira en 7 mörkum, en
allt er hægt á góðum degi.“
leik þrátt fyrir góðan sigur okkar
á föstudaginn því austurríska liðið
er með stóra, þunga og reynslu-
mikla jaxla,“ sagði Valdimar
Grímsson, þjálfari og leikmaður
Stjörnunnar.
„Leikurinn þróaðist líka eins og
ég bjóst við. Allt var á móti okkur
í fyrri hálfleik, ekkert mátti gera
og menn voru reknir út af hvað
eftir annað. En markvörður mót-
heijanna hélt okkur á floti því
hann varði nánast ekki neitt. En
ég er ánægður með að strákarnir
stóðust þessa prófraun.11
Nýr áfangi í sögu
Stjömunnar