Morgunblaðið - 12.11.1996, Síða 4
4 D ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1996 D 5
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Sigurdur frá-
bær í herfor-
ingjahlutverki
SIGURÐUR Jónsson stjórnaði varnarleik íslands eins og herfor-
ingi þegar íslenska landsliðið tryggði sér jafntefli, 0:0, gegn írum
í undankeppni HM á Landsdowne Road í Dublin. Sigurður var
mjög yfirvegaður sem aftasti varnarmaður, barðist grimmiiega,
hélt knettinum vei og kom honum frá sér á réttum augnablikum.
írar náðu ekki að brjóta Sigurð og félaga á bak aftur, fundu aldr-
ei leiðina að marki Islands og ef knötturinn nálgaðist markið sá
Birkir Kristinsson, markvörður, um að góma hann. írar voru ekki
ánægðir eftir leikinn, þar sem talað var um að íslendingar yrðu
auðveld bráð - þeir ætluðu að sýna þeim í tvo heimana.
Sigurður val-
inn, Keane
útnefndur
FRÉTTAMENN á leik ír-
lands og íslands voru beðnir
um að velja mann leiksins
og fengu þeir sérstakt blað
tíl að skrifa á nafn leik-
mannsins sem þeir töldu vera
bestan. Menn voru heldur
betur undrandi þegar til-
kynnt var rétt fyrir leikslok
að Roy Keane hafi verið út-
nefndur besti leikmaður
leiksins. Fáir fréttamenn
höfðu ritað nafn hans á blað
sitt, en það var mál frétta-
manna að Sigurður Jónsson
væri maður leiksins og flest-
ir völdu hann. Það var
greinilegt að þeir menn sem
lásu úr miðunum, hafi lesið
annað en stóð á þeim.
Blöðin The Irish Timesd
og Telegraph sögðu fráþess
í gær og undruðust yfir að
Sigurður hafi ekki verið val-
inn maður leiksins.
Phil Babb
skipti á peysu
við Sigurð
EFTIR leikinn skiptust
nokkrir leikmenn liðanna á
peysum. Phil Babb, varnar-
leikmaður Liverpool, skiptu
á peysu við Sigurð Jónsson,
báðir léku þeir í peysum
númer 4.
Ólafur Þórð-
arson með
leikjamet
ÓLAFUR Þórðarson lék sinn
síðasta landsleik í Dublin,
eftir að hafa leikið í tólf ár
með landsliðinu. Ólafur setti
landsleikjamet - leikurinn
gegn írum var hans 72.
landsleikur. Hann og Guðni
bættu met Atla Eðvaldssonar
á dögunum, er þeir léku sinn
71. landsleik gegn Rúmeníu.
„íslendingar
héldu okkur í
skrúfstykki"
MICK McCarthy, jjjálfari
írlands, sagði að Islendingar
hefðu haldið írsku leikmönn-
unum í skrúfstykki. „Þeir
vörðust vel. Stórir leikmenn
íslands komu í veg fyrir að
sendingar okkar rötuðu
rétta leið - þeir náðu að
skalla knöttinn frá marki
hvað eftir annað, þannig að
við náðum ekki að brjóta þá
á bak aftur.“
Írar byijuðu leikinn með miklum
látum, ákveðnir að setja mark
strax í upphafi leiksins._ „Við viss-
um nákvæmlega að íslendingar
komu hingað til að
Sigmunduró. veijast, ná jafntefli.
Steinarsson Við ætluðum að
skrifar reyna að slá þá út
af laginu með því að skora sem
fyrst. Því miður tókst það ekki.
íslendingar voru harðir í horn að
taka og léku mjög yfirvegað,"
sagði Mick McCarthy, þjálfari ír-
lands.
Þegar írar gerðu sér grein fyrir
að þeir ættu í erfiðleikum með að
bijóta niður múr íslands, fór skap-
ið að hlaupa með
þá í gönur. írar
áttu ekki nægi-
lega góða menn
til að bijóta ís-
lendinga á bak
aftur. Það má
segja að írar hafi
aðeins fengið tvö
tækifæri til að
skora í leiknum,
ef tækifæri skal
kalla. Birkir átti
ekki í vandræð-
um með að hand-
sama skalla frá
Roy Keane í byij-
un leiks og þá
skallaði Tony
Cascarino knöttinn rétt framhjá,
eftir homspyrnu. Ólafur Adolfs-
son, Sigurður Jónsson, Lárus Orri
Sigurðsson og Eyjólfur Sverrisson
sáu við háum sendingum sem
komu inn í teig.
Sigurður Jónsson komst næstur
því að setja knöttinn í mark íra í
fyrri hálfleik, þegar hann tók auka-
spyrnu af 30 m færi - knötturinn
fór í varnarmann íra og rétt fram-
hjá marki. íslensku leikmennimir
áttu ekki í vandræðum með að
brjóta niður spil íra í seinni hálf-
leik. írar náðu þá aldrei að ógna
marki, aftur á móti hefði Helgi
Sigurðsson getað skorað mark með
smá heppni. Heimir Guðjónsson
átti góða sendingu inn fyrir varnar-
vegg íra, þar sem Helgi komst á
ferðina og bmnaði með knöttinn
að marki, fór aðeins of nálægt
markinu, þannig að hann var kom-
inn í þrönga stöðu þegar hann
skaut - Alan Kelly varði skot hans.
Varnarleikur íslenska liðsins var
góður, en aftur á móti náðu leik-
menn sér ekki á strik í skyndisókn-
um - léku oftast of þröngt og
sáust þá stuttar
ónákvæmar send-
ingar. Leikmenn
börðust vel og
voru alltaf á ferð-
inni, Helgi Sig-
urðsson og Þórð-
ur Guðjónsson,
sem hefur oftast
leikið betur, voru
mikið á hlaupum
án knattar. Eins
og fyrr segir lék
Sigurður Jónsson
mjög vel, Eyjólfur
Sverrisson, Birkir
Kristinsson og
Ólafur Adolfsson
voru traustir, aðr-
ir stóðu fyrir sínu. Leikur írska
liðsins var máttlaus, ekki eins
kraftmikill og undir stjórn Jack
Ch'arltons. írar dóluðu mikið með
knöttinn og reyndu að byggja upp
spil frá öftustu línu. Þeir eiga ekki
nægilega góða leikmenn til að leika
knattspyrnu eins og hún er leikin
á meginlandi Evrópu - knatttækni
leikmanna er ekki svo mikil, að
þeir geti náð tökum á þannig
knattspyrnu.
Tveir írar heppnir
að sjá ekki rautt
TVEIR leikmenn írska landsliðs-
ins voru heppnir að fá ekki að
sjá rauða spjaldið í leiknum, fyrir
grófan leik. David Kelly, mið-
heiji hjá Leeds, braut tvisvar
gróflega á Birki Kristinssyni, eft-
ir að Birkir hafði handsamað
knöttinn. í bæði skiptin varð að
stöðva leikinn til að gera að
meiðslum Birkis. „Mér fannst að
dómarinn hefði átt að sýna Kelly
spjald í seinni hálfleik, þegar
hann dæmdi á hann fyrir að
sparka í olnbogann á mér,“ sagði
Birkir. „Ég var aftur á móti
ánægður með hvað dómarinn gaf
okkur góðan tíma, eftir brotið.
Þegar menn komu hlaupandi með
börur og vildu bera mig af lei-
kvelli, sagði dómarinn: „Sjáið þið
ekki, að þetta er markvörðurinn?"
og rak þá í burtu.“
Jason McAteer, Liverpool, lét
eins og óþroskaður unglingur á
vellinum - mótspyrna íslendinga
fór í taugarnar á honum og var
hann stöðugt að brjóta á leik-
mönnum íslands. Hann braut
gróflega á Heimi Guðjónssyni í
fyrri hálfleik.
SIGURÐUR Jónsson.
Atli Eðvaldsson, þjálfari ungmennaliðsins, eftirsigurinn í Dublin
Eins og ég sé orð-
inn átján ára aftur
verður hægt að fara með liðið út í
æfingabúðir í janúar-febrúar og
leika æfingaleiki. Við verðum að
huga vel að strákunum sem eiga
eftir að halda merki íslands á lofti
næstu ár. Þegar við hófum keppni
í sumar tefldum við fram þrettán
nýliðum í sextán manna hópi. Átta
af leikmönnum í byijunarliði okkar
leika einnig með ungmennaliðinu í
næstu keppni, forkeppni fyrir
Ólympíuleikana í Sydney árið
2000,“ sagði Atli.
írsku leik-
mennirnir
klæddust
smóking
Þ AÐ var allt annað en létt
yfir leikmönnum írlands eftir
leikinn gegn íslandi. Eftir
leikinn mættu þeir allir í
smóking í mikla veislu, þar
sem menn fengu ýmsar viður-
kenningar og leikmaður árs-
ins útnefndur, Alan
McLoughlin hjá Portsmouth.
Upphaflega ætluðu þeir einn-
ig að fagna sigri á íslending-
um og því að vera með fullt
hús stiga. íslendingar komu í
veg fyrir að sá fögnuður færi
fram.
Johannsson
sér ísland
ekki tapa
LENNARD Johannsson, for-
seti Knattspyrnusambands
Evrópu, UEFA, var heiðurs-
gestur á leiknum og í hófinu
hjá írum eftir leikinn. Jo-
hannsson hefur ekki séð ís-
land tapa leik að undanförnu.
Hann var heiðursgestur þeg-
ar íslendingar gerðu jafntefli
við Svía, 1:1, í Stokkhólmi í
fyrra. Annar lieiðursgestur á
leiknum I Dublin yar Mary
Robinson, forseti írlands, sem
heilsaði upp á leikmenn fyrir
leikinn.
Rúnar í bann
RÚNAR Kristinsson getur
ekki leikið næsta leik íslands
í undankeppni HM, í Makedó-
níu 7. júní. Rúnar fékk að sjá
gula spjaidið í Dublin, hans
annað gula spjald í keppninni.
Birkir Kristinsson lék vel í markinu:
„IMáðum því sem
við ætluðum okkur“
Við náðum því sem við ætluðum
okkur, að halda markinu
hreinu í Dublin. Við lékum mjög
skynsamlega og allt það, sem
Logi Ólafsson lagði fyrir okkur,
heppnaðist. Hann fór vel yfír leik-
skipulag íra og sýndi okkur
hvernig best væri að bijóta þá að
bak aftur, með því að sýna okkur
leiki íra á myndbandi. Við vissum
að háar fýrirgjafir væru þeirra
hættulegasta vopn,“ sagði Birkir
Kristinsson, markvörður, sem var
mjög ánægður með úrslitin í
Dublin. „Ég veit vel að leikurinn
var ekki fyrir augað. Það er aldr-
ei nein skemmtun að sjá þegar
leikið er svona. Við náðum að
ergja írsku leikmennina, sem ætl-
uðu að vinna okkur stórt. Irarnir
voru orðnir óþolinmóðir og þá
sérstaklega þegar áhorfendur
urðu það einnig er líða fór á leik-
inn - fóru að baula á eigin leik-
menn. Ég er ánægður og .þegar
maður las í írsku blöðunum eftir
leikinn, að ,,ísbjörninn hefði
skemmt fyrir Irum,“ sá ég svart
á hvítu að ætlunarverk okkar
tókst fullkomlega,“ sagði Birkir.
Reuter
ROY Keane stekkur upp og skallar knöttinn að markl Islands - Birklr átti ekki í miklum erfiöleikum. Jason McAteer er nr. 10, Eyjólfur
Sverrlsson er fyrlr aftan hann.
ÍSLENSKA ungmennaliðið stóð
sig mjög vel á Dalymount Park
f Dublin, þar sem liðið lagði það
írska að velli, 0:1. Atli Eðvalds-
son, þjálfari ungmennaliðsins,
var ánægður með sína menn
og sagði að það væri stórkost-
legt að umgangast leikmenn
sína. „Það er eins og ég sé
orðinn átján ára aftur.11
Strákarnir léku sterkan varnar-
leik í fyrri hálfleik, en gáfu sér
of lítinn tíma til að leika með knött-
inn þegar þeir náðu honum, þannig
að írar fengu hann fljótt aftur. Und-
ir lok fyrri hálfleiksins fóru þeir að
bijótast fram miðjuna og í upphafi
seinni hálfleiks héldu þeir sóknarað-
gerðum sínum áfram og voru betri
en írar. Þorbjörn Atli Sveinsson hélt
knettinum vel og Bjarni Guðjónsson
ógnaði með hreyfanleika sínum.
Strákarnir náðu að skora sigurmark-
ið á 63. mín. er Bjarnólfur Lárusson
átti góða sendingu út á hægri kant
til Sigurvins Ólafssonar, sem sendi
knöttinn fyrir markið — Þorbjörn
Atli var við nærstöngina og Bjarni
fjærstöngina er sending Ólafs kom
fyrir markið. Knötturinn barst til
Bjarna, sem skoraði með skalla.
Markið var gullfallegt og vel að því
staðið á allan hátt.
Eftir markið kom smáafturkippur
í leik íslenska lisðins, leikmennirnir
hugsuðu mest um að halda fengnum
hlut. Irar fóru að pressa, en Árni
Gautur Arason, sem var frábær í
markinu - öruggur og lék óað-
finnanlega, sá við þeim og bjargaði
vel, eitt sinn á frábæran hátt. írsku
leikmennirnir voru orðnir óþolinmóð-
Öryggi Birkis hafði góð áhrif
„ÉG get ekki verið annað en
ánægður með hvernig við lék-
um vörnina, náðum að loka
svæðum og hleyptum frsku
leikmönnunum ekki upp kant-
ana, þannig að þeir gætu gefið
knöttinn fyrir markið. Við vor-
um búnjr að æfa okkur í að
stöðva íra á þennan hátt og það
tókst," sagði Logi Ólafsson
landsliðsþjálfari eftir viðureign-
ina við íra i Dublin.
VIÐ erum með stóra og sterka
leikmenn til að stöðva háar
fyrirgjafir og þá var Birkir Kristins-
son mjög öruggur í markinu. Það
var mjög góð útfærsla á varnarleik
okkar, aftur á móti náðum við ekki
- sagði Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari, ánægðurmeðjafnteflið íDublin
að útfæra skyndisóknir okkar nægi-
lega vel, eins og við vildum.
Við gerðum okkur grein fyrir því
að írarnir myndu byija leikinn með
miklum látum og sækja grimmt.
Við biðum átekta, létum þá koma
9g stöðvuðu sóknaraðgerðir þeirra.
írar leika venjulega þannig að þeir
dæla háum sendingum inn á Tony
Casvarino, en hann náði ekki að
ógna okkur. Sigurður Jónsson lék
geysilega vel sem aftasti maður,
hann er yfirvegaður, leikinn og les
leikinn vel - þá er hann sterkur í
loftinu. Það hentar Ólafi Adolfssyni
og Eyjólfi Sverrissyni betur að leika
gegn liði eins og því írska, heldur
en gegn rúmenska liðinu á dögun-
um. Þeir stóðu sig mjög vel. Það
er erfitt að eiga við Ólaf í skallaein-
vígum og Eyjólfur ósérhlífinn og
vinnusamur, sterkur leikmaður sem
barðist allan tímann,“ sagði Logi.
Verður erfitt fyrir Guðna Bergs-
son að koma aftur inn, eftir stórleik
Sigurðar?
„Nei, við leikum næsta leik okkar
eftir nokkra mánuði. Guðni er hæfi-
leikaríkur leikmaður og þeir Guðni
og Sigurður getur vel leikið í sama
liði. Það sást best í þessum leik, að
við eigum ekki í vandræðum með
að færa leikmenn til á vellinum. Við
eigum marga góða hæfileikaríka
leikmenn, sem gott lið þarf að hafa.
Ef við komum í veg fyrir það
að gefa mörk, eins og við gerðum
gegn Litháen og Rúmeníu, þá get-
um við staðið hvaða liði sem er
snúning. Við náðum að gera írum
lífið leitt fyrir framan rúmlega þijá-
tíu þúsund áhorfendur og það er
góður árangur að ná jafntefli hér
í Dublin. írsku leikmennirnir voru
orðnir mjög ergilegir og það var
óskemmtilegt að sjá hegðun Jasons
McAteer á vellinum, sem var hon-
um til skammar.“
Logi var mjög ánægður með
þátt Birkis Kristinssonar í leiknum,
hann stóð sig vel í markinu. „Birk-
ir lék afar vel og öryggi hans hafði
góð áhrif á varnarmennina, sem
urðu öruggari fyrir bragðið. Það
er alltaf hægt að treysta á Birki.
Hann er mikill persónuleiki, sem
hefur yfir miklum sjálfsaga að ráða
og tekur á hlutunum er þeir eru
ekki í lagi. Égtreysti Birki fullkom-
lega, en hann hefur ekki fengið
nægilegt traust hjá liði sínu, Brann.
Þar hefur þjálfarinn verið að refsa
honum fyrir að hann hefur farið í
landsleiki, með því að taka hann
úr liði sínu. Birkir sýndi og sannaði
það gegn Irum, að hann er trausts-
ins verður,“ sagði Logi Ólafsson.
ir, þeir náðu ekki að sækja hratt á
íslenska markið, eins og þeir ætluðu
sér og er þeirra sterkasta hlið.
Árni Gautur átti stórleik, en ann-
ars léku strákarnir vel og sigurinn
var liðsheildarinnar.
Glæsilegur árangur
Atli Eðvaldsson sagði að árangur
strákanna væri mikill og þá sérstak-
lega þegar hugsað er um þær að-
stæður sem þeir hafa verið að æfa
við síðustu sex vikurnar. „Við tók-
um þátt í haustmóti og þá hlupu
strákarnir sjálfir þetta tvisvar til
fjórum sinnum í viku, til að halda
sér í sem bestri æfingu."
Eftir leikinn í Dublin ræddi Atli
við írska blaðamenn og sagði þeim
frá þeim aðstæðum sem íslenskir
knattspyrnumenn búa við yfir vetr-
armánuðina. „Ég sagði við þá, að
þjálfarar á íslandi kæmu með hvítu
kúluna - boltann, til manna sinna
fyrir æfingar og segðu: „Sjáið þið
þessa hvítu kúlu. Það er engin að-
staða til að ieika með hana, þið
verðir að fara út og hlaupa í rok-
inu.“
Þegar hugsað er um þessar að-
stæður, er sigur okkar sætari - við
vorum að leggja leikmenn að velli,
sem leika með atvinnuliðum í Eng-
landi. Leikur okkar er mjög agaður
og strákarnir eru þolinmóðir. Það
er örugglega hundleiðinlegt að leika
gegn okkur. Við höfum ekki fengið
á okkur mark í þremur af fjórum
leikjum okkar í Evrópukeppninni,
unnið þijá, en urðum að sætta okk-
ur við tap fyrir Rúmeníu, í leik sem
við áttum að fá annað stigið. Það
stig getur orðið okkur dýrmætt, við
verðum að vinna það upp í Rúmen-
íu,“ sagði Atli.
Atli hefur náð að byggja upp
stemmningu hjá leikmönnum liðs-
ins. Þegar hann var spurður hvort
reynslan frá því að hafa leikið sjö-
tíu landsleiki og verið fjölmörg ár
sem atvinnumaður komi ekki að
góðum notum, sagði hann: „Mér
finnst mjög skemmtilegt að vinna
með strákunum og yfirleitt missi
ég röddina inni í búningsklefa fyrir
leikinn. Ef maður heldur ekki mikla
stemmningsræðu og tekur þátt í
því sem þeir eru að eiga við af full-
um krafti, get ég hætt að sjá um
liðið. Ég hef svo gaman af að starfa
með strákunum, það er eins og ég
sé orðinn átján ára aftur.“
Atli sagði að á næstu dögum
kæmu hann og þeir sem væru í
ungmennanefndinni saman til að
ræða framhaldið, hvernig væri best
að skapa strákunum verkefni fyrir
næsta ár. Islenska liðið leikur þá
fjóra leilci í Evrópukeppninni, tvo
heima - gegn írlandi og Litháen,
og tvo úti - gegn Rúmeníu og
Makedóníu. „Það væri gaman ef það