Morgunblaðið - 12.11.1996, Page 1
• MARKAÐURINN • SMIDJAN • LAGN AFRÉTTIR • GRÓDUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
Réttar
HÚ SBRÉF AKERFIÐ virðist flókn-
ara en það raunverulega er, segir
Grétar J. Guðmundsson í þættinum
Markaðurinn. Því eru góðar
upplýsingar um það nauðsynlegar
og brýn þörf á að leiðrétta miskiln-
ing og rangfærslur, þegar þær
koma fram. /2 ►
iIIHIH
n ' **'**' 3 % f lli ÍíT#if| tltia
. Big»iiyYisaypeDiifpf
ílÝlr>, “ '1 v- *S' .
Ferða-
miðstöð
ÁFORMAÐ er koma upp ferða-
miðstöð á Mýrum í Borgarfirði.
Hún verður eins konar þorp, sem
skiptist í 7 orlofshús og 25 svefn-
skála ásamt hestaleigu og tjaid-
stæði. Á svæðinu er ennfremur
51 leigulóð fyrir almenning
undir sumarhús. / 24 ►
Ibúðabyggingar
mestar hér á
Norðurlöndunum
Ú T T E K T
Nýjar
íbúðir í
Mosfellsbæ
MOSFELLSBÆRhefúr
haft mikið aðdráttarafl
fyrir marga, en litið
framboð verið þar á nýjum
ibúðum í fjölbýlishúsum. Við
Fálkahöfða 2-4 þar í bæ er
Guðjón Þorvaldsson múrara-
meistari nú að byggja þriggja
hæða fjölbýlishús með 16 íbúð-
um. Framkvæmdir standa sem
hæst, en íbúðimar eiga að verða
tilbúnar til afhendingar í vor.
Ibúðimar em 3ja eða 4ra her-
berga. Þriggja herb. íbúðirnar
eru ýmist 87 eða 97 ferm. og
fjögurra herb. íbúðirnar eru 117
ferm. Stórar svalir em á íbúð-
unum og snúa þær í suðvestur.
íbúðirnar eru til sölu ýmist
tilbúnar undir tréverk eða full-
búnar en án gólfefna. Bílskúrar
em átta og seldir sér.
Markmiðið er að fólk hafi
valkost, en það er alltaf til
staðar viss hópur, einkum
yngra fólk, sem kýs heldur að
kaupa íbúð án bílskúrs, þar sem
hann kostar sitt. Bílskúr skiptir
meira máli fyrir eldra fólk og
ræður oft úrslitum um
ákvörðun þess um að kaupa.
I viðtalsgrein við þá Guðjón
Þorvaldsson og Elías Haralds-
son hjá fasteignasölunni Hóli,
þar sem íbúðirnar em til sölu,
er fjallað um þessar íbúðir.
Húsið stendur á mjög góðum
stað í Mosfellsbæ með útsýni í
suðvestur yfir borgina og
fióann og síðan vestur á jökul
og þaðan til norðurs yfir sundin
til Esju. / 16 ►
í þeirri efnahagslægð, sem gekk yfir
Norðurlönd seint á síðasta áratug og
staðið hefur yfir til skamms tíma,
varð byggingariðnaðurinn illa úti.
Þar sem verst fór má segja, að hrun
hafi orðið með stórfelldum
samdrætti í íbúðabyggingum.
Ástandið hélzt þó langbezt hér á
landi, en frá 1988-1995 voru full-
gerðar hér 6,1 til 6,9 íbúðir á hverja
1000 íbúa árlega. Aðra sögu er að
segja um Finnland, Danmörku og
Svíþjóð, þar sem stórfelldur sam-
dráttur varð í smíði íbúðarhús-
næðis.
Þessum stöðugleika í íbúðabygg-
ingum hér á landi fylgdi jafnframt
mikið jafnvægi á fasteignamarkaði,
öfugt við það sem gerðist í
nágrannalöndunum, en þar skapaðist
í raun og veru ófremdarástand sum
árin. Kom það fram í vérðhruni á
íbúðum,. sem urðu illseljanlegar á
almennum markaði, þannig að fjöldi
fólks missti íbúðir sínar og sat síðan
uppi með fasteignalán, sem það réð
ekkert við.
I rauninni skiptir mjög í tvö horn,
hvernig Norðurlöndin hafa spjarað
sig á þessu tímabili. Annars vegar eru
Finnland, Svíþjóð og Danmörk og
hins vegar Noregur og Island, en öll
bjuggu þessi lönd við efnahagserfið-
leika. í Svíþjóð svöruðu íbúðabygg-
ingar á síðasta ári aðeins til bygging-
ar 1,4 íbúða fyrir hverja 1000 íbúa,
sem jafngildir því, að hér á landi
hefðu aðeins verið byggðar 400 íbúðir
á því ári.
I fyrra var hér aftúr á móti lokið
við smíði 1642 íbúða, árið 1994 voru
þær 1718 og árin þar á undan um og
yfir 1600. Líklegt er að aukning verði
á fullgerðum nýjum íbúðum í ár og
næsta ár. Mikil fjölgun hefur orðið í
húsbréfaumsóknum byggingaraðila
að undanförnu vegna íbúða, sem þeir
eru með í smíðum og kláraðar verða
í lok þessa árs eða á næsta ári.
(Heimild: Húsnæðisstofnun ríkisins)
í þessu lyftuhúsi við Fjarðargötu 17 í Hafnarfirði eru sex íbúðir til
sölu hjá fasteignasölunni Hugin. Þær má fá með óvenjulegum
greiðslukjörum, en hægt er að fá 90% kaupverðs lánuð til 25 ára.
Fullgerðar íbúðir á Norðurlöndum
Óvenjuleg
greiðslukjör
HJÁfasteignasölunniHugin erutil
sölu íbúðir við Fjarðargötu 17 i
Hafnarfirði. „Greiðslukjör eru
óvenjuleg, en það er hægt að fá allt
að 90% af kaupverðnu lánuð til 25
ára,“ segir Þórður Jónsson hjá
Hugin.
„Þetta hús er fullbyggt, öll
sameign fullfrágengin og íbúðunum
verður öllum sköað fullfrágengnum
án gólfefna," segir Þórður. „Bað-
herbergjum verður þó skilað með
flísum á gólfi og veggjum, en í þeim
eru bæði baðkar og sturtuklefi.“
Húsið er lyftuhús á fimm hæðum.
Á efstu hæð eru tvær þakíbúðir, um
200 fermetrar hvor að stærð, en þær
eru báðar seldar. Alls eru fjórtán
íbúðir í húsinu og eru sex þeirra
óseldar. Þar er annars vegar um að
ræða 127 ferm. íbúðir og svo 140
ferm. íbúðir.
„Húsið stendur í hjarta Hafnar-
fjarðar með frábæru útsýni yfir
höfnina. Öll þjónusta er þarna í ná-
grenninu og allt umhverfíð er nýtt
og vel frá gengið," segir Þórður.
„Ibúðirnar sem eru til sölu, eru
ýmist þriggja eða fjögurra her-
bergja. Öllum íbúðunum fylgir sér
þvottahús og sér geymsla, þannig að
sameignin er í raun aðeins stiga-
gangurinn og lyftan.
Seljandi þessara íbúða býður upp
á lánakjör sem eru óvenjuleg. Fólk
getur fengið allt að 90% kaupverðs
að láni til 25 ára með breytilegum
vöxtum. Greiðslubyrði getur í viss-
um tilvikum orðið mun lægri en
venjuleg húsaleiga.“