Morgunblaðið - 12.11.1996, Síða 2
2 E ÞRIÐJUDAGUK 12. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Mikilvægi réttra
upplýsinga
Markaðurinn
Réttar og skýrar upplýsingar um húsbréfa-
kerfíð skipta miklu máli, segir Grétar J.
Guðmundsson, rekstrarstjóri Húsnæðis-
stofnunar ríkisins. Villandi yfírlýsingar þjóna
þeim tilgangi einum að valda misskilningi.
Fasteigna-
sölur í
blabinu
í dag
Agnar Gústafsson bls. 6
Almenna Fastéignasalan bls. 13
Ás bls. 14
Ásbyrgi bls. 13
Berg bls. 20
Bifrðst bls. 8
Borgareign bls. 5
Borgir bls. 7
Brynjólfur Jónsson bls. 26
Eignamiðlun bis. 14-15
Eignasalan bls. 26
Fasteignamarkaður bls. 10
Fasteignamiðlun bls. 13
Fasteignas. Reykjavíkur bls. 2
Fasteignamiðstöðin bls. 26
Fjárfesting bls. 22
Fold bls. 4
Framtíðin bls. 14
Frón bls. 17
Gimli bls. 3
Hátún bls. 27
Hóll bls. 18-19
Hraunhamar bls. 25
Húsakaup bls. 11
Húsvangur bls. 23
Kjöreign bls. 9
Kjörbýli bls. 11
Laufás bls. 27
Óðal bls. 6
Sef bls. 20
Skeifan bls. 5
Valhöll bls. 12
Þingholt bls. 28
AÐ fer ekki á rhilli mála, að
meiri stöðugleiki hefur verið
á húsnæðismarkaði hér á landi und-
anfarin misseri en oft áður. Verð á
íbúðarhúsnæði hefur ekki tekið
stökkbreytingum og viðskipti hafa
gengið fyrir sig með nokkuð eðlileg-
um hætti víðast hvar. Segja má,
að viðskipti á fasteignamarkaði séu
tiltölulega hagstæð, jafnt með not-
að húsnæði sem nýtt. Eitt mikil-
vægasta atriði fasteignamarkaðar-
ins eru þau húsnæðislán sem í boði
eru. Miklu máli skiptir að upplýs-
ingar um hin opinberu húsnæðislán,
þ.e. húsbréfakerfið, séu réttar og
skýrar, þannig að fólk viti hvað það
er að fara út í þegar það sækir um
lán til byggingar eða kaupa á íbúð-
arhúsnæði. Því miður hefur það
loðað nokkuð við, að ýmsir, sem
ættu að vita betur, gefa út yfirlýs-
ingar varðandi húsbréfakerfið, sem
eru villandi, og þjóna þeim eina til-
gangi að valda misskilningi, þegar
upp er staðið. Það er alltaf ástæða
til að leiðrétta slíkt.
Flóknara við fyrstu sýn
Húsbréfakerfið virðist vera
flóknara en það raunverulega er,
því það er ekki beint peningalána-
kerfi. Það byggist á því að seljandi
íbúðar lánar kaupanda hluta íbúðar-
verðsins með svokölluðu fasteigna-
veðbréfi. Húsnæðisstofnun kaupir
það skuldabréf af seljandanum og
greiðir fyrir með húsbréfum. Selj-
andinn getur notað húsbréfin sem
greiðslu í næstu íbúðarkaup, átt þau
sem sparnað eða selt á markaði og
fengið þannig greitt fyrir þau í
peningum.
Af þessari lýsingu á verkgangi í
húsbréfakerfinu sést hve nauðsyn-
legt er að upplýsingar um það séu
öflugar og þá jafnframt að misskiln-
ingur og rangfærslur sem upp koma
séu leiðréttar. Það kemur nokkuð
oft fyrir að fólk misskiiur hvernig
húsbréfakerfið er uppbyggt og
hvaða hugsun býr að baki einstök-
um þáttum þess. í gegnum tíðina
Fasteignasala Reykjavíkur
sími 588 5700
Fax 588 5702
-íS, 2. ÍJidiJ. JD'jfíi/iji. ujijurújijj
EINIMELUR-BYGG.LÓÐIR
Tvær einbýlishúsalóðir nr. 22 og 24 til
sölu fyrir ca 200-320 fm hús. Frábær
staðsetning. Uppl. gefur Þórður. Verð:
Tilboð .
DOFRABORGIR Skemmtilega
hannað einbýli á einni hæð tæpl. 180
fm á einum besta stað í Borgunum í
Grafarvogi. Húsið selst fullb. að utan
og fokhelt að innan. Teikningar á
skrifstofu. Verð 9,3 millj.
EINIBERG HF. Skemmtilegt timbur-
hús á einni hæð ca 157 fm á góðum stað
ásamt 28 fm bílskúr, í Setbergslandi Hf.
Góðar innréttingar, 4 svefnherbergi, suð-
urverönd og garður. Skipti ath. á minni
eign. Hagst. langt.lán. Verð 12,8 millj.
<iq -4 í> horb.
LOGAFOLD. Glæsileg 6 herb.
sérhæð. í tvibýli ca 168 fm ásamt 70 fm
innb. bílskúr. Arinn í stofu, flísal. baðherb.
Eikarinnr. í eldhúsi, 5 svefnherb. Frábær
staðsetning. Skipti á minni eign. Áhv.
5,7 millj. Verð 14,7 millj.
GRENIMELUR-SÉRH. Mjög
góð neðri sérhæð í góðu þríbýlishúsi
ca 113 fm. Rólegur og góður staður.
Nýtt baðherbergi, parket o.fl. Laus
strax, lyklar á skrifstofu. Áhv. 4,7
millj. Verð 9,6 millj.
NEÐSTALEITI Vel skipulögð og
björt 4ra herb. íbúð á 3. hæð og efstu,
í litlu fjölb. Parket, flísar á baði, Alno
innr. i eldh. Suðursvalir og útsýni. Góð
eign. Bílskýli.
ENGIHJALLI Mjög góð og vel með
farin 5 herb. íbúð á 2. hæð i góðu 2ja
hæða fjölbýli tæpl. 110 fm Mikið útsýni,
góð aðkoma. Skipti á mi nni eign. Áhv.
4,1 millj. Verð 7,9 millj.
NORÐURMÝRI Góð 4ra herb. íbúð í
kjallara ca 96 fm Nýlegt gler og gluggar,
góðar innréttingar, saunaklefi. Sérhiti og
rafmagn. Skipti á 2ja herb. á sömu slóð-
um. Verð aðeins 5,9 millj.
LJÓSHEIMAR Falleg og mikið
endurnýjuð 4ra herbergja. íbúð á
5.hæð í nýviðgerðu fjölbýli ca 97 fm.
Laus fljótlega. Áhv. 4,1 millj. Verð 7,4
millj.
FLÓKAGATA Falleg og rúmgóð 3ja
herb. sérhæð á 1. hæð í steinhúsi ca 91
fm. Sérinng., parket og nýjar hurðir.
Eikarinnr. í eldhúsi. Verð 7,9 millj.
ENGIHJALLI Snyrtileg 3ja herb. íbúð
á 1. hæð. í lyftuhúsi. ca 80 fm Þvottahús á
hæðinni, vestursvalir, Securitas dyrasimi
og gervihnattad. Áhv. 2,2 Verð 6,0 millj.
VÍKURÁS Mjög góð 3ja herb. íb.
ca 85 fm á 3. hæð (2. hæð) í fjölb.
Studio eldhús, parket og flísar á gólf-
um. Flísalagt baðh. Stæði i bílageym-
slu fylgir. Verð 7,1 millj.
LUNDARBREKKA Falleg 3ja
herb. íb. ca 87 fm á 1. hæð i litlu fjölb.
Parket og flísar á gólfum. Útsýni, sér-
inng. af svölum. LAUS FLJÓTLEGA.
Áhv. 4,8 húsbr. Verð 6,9 millj.
ÆSUFELL Falleg 3ja herb. íb. á 1.
hæð ca 87 fm Rúmgóð herb., nýl. parket
á öllu, góðir skápar. Húsið nýtekið í gegn
að utan. Skipti á 3ja herb. á svæði 101-
108 Áhv. 3,5 millj. Verð 6,3 millj.
i iijii herb.
GRETTISGATA ósamþ einstak-
lingsíb. í kj. ca 30 fm Nýtt gler, rafl. og
ofnar. Húsið er klætt að utan. Áhv. 900.
þús. Verð 2,3 millj.
NÝBÝLAVEGUR Mjög falleg 2ja
herb. endaib. ca 56 fm á 2. hæð i litlu
fjölbýli ásamt 25 fm innb. bílskúr.
Parket, flísar, suðursvalir og fl. íbúðin
er laus strax. Verð 5,9 millj.
VIKURÁS Mjög falleg einstaklingsíb. á
l.hæð í litlu fjölb. Nýtt parket, geymsla
innan íbúðar, flisar á baðherb. Ahv. 2,0.
Verð 3,750 millj.
ASPARFELL Mjög góð 2ja herb.
íb. á 3. hæð ca 54 fm Parket, flísar og
frábært útsýni. nýtt baðherb. Áhv. 2,9
Verð 4,9 millj.
EYJABAKKI Rúmgóð 2ja herb. ib. á
1. hæð ásamt aukaherb. í kj., ca 54 fm
Parket; flisar og frábært útsýni. nýtt bað-
herb. Ahv. 2,8 Verð 4,9 millj.
FELAG FASTEIGNASALA
GRANASKJÓL. Sérlega glæsilegt og vandað endaraðhús á
tveimur hæðum innst í botnlanga á þessum vinsæla stað í vestur-
bænum. Húsið er allt hannað af arkitekt, byggt oa fullklárað 1983
og skiptist þannig: Neðri hæð: Forstofa, snyrting, nol, siónv.-herb.
(svefnherb), eldhus, þvotthús, geymsla, borðstofa, sólskáli og bíl-
skúr. Efri hæð: Stofa, 2 barnaherb., hjónaherb. m/fataherb. innaf og
baðherbergi. Frábær lóð og upphitað bílaplan. Verð 16,9 millj.
Teikningar a skrifstofu.
3j;i IhmIi.
hefur helsti misskilningurinn verið
varðandi greiðslumatið.
Misskilningur leiðréttur
Algengt er, að því oftar sem eitt-
hvað er endurtekið, séu meiri líkur }
á að fólk trúi því sem sagt er. Þá
skiptir ekki alltaf máli hvað er rétt
og hvað er rangt. Vonandi á það
þó einnig við, að ef það sem er rang-
túlkað er leiðrétt nógu oft, komist
hið rétta að lokum til skila. Með
hliðsjón af þessu er nauðsynlegt að
leiðrétta einu sinni enn rangtúlkan-
ir, sem hafa endurtekið sig nýlega j
varðandi greiðslumatið í húsbréfa-
kerfinu. Helst er ástæða til að leið- "
rétta þá fullyrðingu, að greiðslumat- I
ið miðist við flatan prósentureikning
og að ekki eigi að taka tillit til að-
stæðna umsækjenda um húsbréfa-
lán. Fullyrðingar sem þessar eiga
að sjálfsögðu ekki við rök að styðj-
ast. Þær eru á misskilningi byggðar.
Lánasaga og neyslumynstur
Hægt er að taka tillit til j
framfæslukostnaðar frjölskyldu með <
mismunandi hætti. Það má t.d. gera
með því að áætla hver framfærslu- }
kostnaðurinn ætti að vera eftir mis-
niunandi fjölskyldumynstrum og eft-
ir öðrum mismunandi aðstæðum og
búa þannig til töflur, sem segja til
um eitthvert meðaltal fyrir einstaka
liði framfærslunnar. Þetta er m.a.
hægt að gera með því að fá ein-
hvern tiltekinn fjölda fjölskyldna til
að halda heimilisbókhald í ákveðinn }
tíma og skrá allt niður. Þannig feng- k
ist ákveðið meðaltal út frá ákveðnu
mynstri. Það er gott og blessað ef P
menn vilja fara út í þetta, þ.e. ef
vilji er fyrir því að staðla þannig
greiðslugetu fólks. Þetta jafngildir
því að fara út í flatan prósendur-
teikning, sem reyndar er skipt upp
í nokkra liði.
Önnur leið til að taka tillit til fram-
færslukostnaðar er að meta fólk á
sínum eigin forsendum, með hliðsjón |
af þeirri reynslu sem fólkið sjálft t
hefur skapað. Þeir sem hafa verið í ?
viðskiptum við einn banka eða spari- I
sjóð í nokkurn tíma, búa þannig til
sína eigin viðskipta- og lánasögu,
sem liggur að verulegu leyti fyrir á
einum stað. í viðkomandi banka eða
sparisjóði safnast þá saman upplýs-
ingar um fólkið, upplýsingar sem
geta sagt vel til um neyslumynstur
þess. Greiðslumatið í húsbréfakerf-
inu miðast við þennan útgangs- |
punkt.
Vinnureglur varðandi
greiðslumat
{ vinnureglum Húsnæðisstofnun-
ar varðandi greiðslumatið í hús-
bréfakerfínu er miðað við að
greiðslugeta íbúðarkaupenda og
húsbyggjenda skuli metin að há-
marki 18% af heildarlánum. Sam-
kvæmt reglugerð um húsbréfakerfið
er hins vegar svigrúm til að meta
greiðslugetuna allt að 30%. Þess
vegna er í vinnureglunum tekið f
fram, að gert sé ráð fyrir því, að
fjármálastofnanir seni þekkja vel til
fjármála umsækjenda og viðskipta-
vina sinna eigi að leggja sjálfstætt
mat á greiðslugetu hvers og eins
og nýta til þess öll venjuleg banka-
gögn. Þá er gert ráð fyrir því, að
ef fjármálastofnun, sem annast gerð
greiðslumats, telur að greiðslugeta
umsækjanda sé lægri eða hærri en
18%, verði tekið tillit til þess. Þetta
er vísir að því að meta greiðslugetu ■
fólks út frá lána- og viðskiptasögu *
þess.
Vandamálið hér á landi er líklega
það, að mönnum hættir oft til að
vera of bráðir. Húsbréfakerfíð hefur
verið starfrækt í 7 ár og er óhætt
að fullyrða að reynslan af því hefur
verið góð. Kerfíð hefur stuðlað að
öryggi og stöðugleika á fasteigna- ,
markaði. Með greiðslumatinu í hús-
bréfakerfínu hefur verið reynt að
vinna að öruggari lánveitinugm j
lánastofnana almennt. Að því hefur
verið stefnt, að koma þeirri hugsun
að, að lánasaga fólks og neysluvenj-
ur þess skipti máli og verði hluti af
lánveitingum almennt. Slíkt fyr-
irkomulag er algengt víða erlendis
og alls ekki fráleitt að gera ráð fyr-
ir að svo geti einnig orðið hér á landi
ef menn gefa þessu kerfí tíma ti)
að festa sig í sessi. Einn liður þar í
er að leiðrétta mistúlkanir og rang-
færslur um húsbréfakerfíð sem upp
koma öðru hverju.