Morgunblaðið - 12.11.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1996 E 17
við sölu á fyrri íbúðum Guðjóns Þor-
1 valdssonar að skipulag þeirra hefur
líkað mjög vel.
íbúðir, sem Guðjón byggði við
I Gullengi í Engjahverfi í fyrra seld-
ust allar á tveimur mánuðum. — Það
var mjög óvenjulegt á þeim tíma,
því að þá var ekki kominn sá skrið-
ur á nýbyggingamarkaðinn, sem er
til staðar nú, en sala hefur verið
mjög góð á nýjum íbúðum í haust,
segir Elías. — Framboðið er líka
mikið, enda mun meira byggt nú en
áður.
Bílskúrarnir að Fálkahöfða 2-4
' eru átta að tölu eða helmingi færri
| en íbúðirnar. — Markmiðið er að
gefa fólki valkost, segir Elías. — Það
er alltaf til staðar viss hópur fólks,
sem kýs heldur að kaupa íbúð án
bílskúrs. Það er þó einkum yngra
fólkið, sem er að byrja, sem ekki
vill kaupa bílskúrinn með, vegna
þess að hann kostar sitt. Bílskúr
skiptir aftur á móti eldra fólk miklu
| meira máli og ræður oft úrslitum
við ákvörðun þess um að kaupa.
Elías víkur síðan að nýbygginga-
| markaðnum í heild og segir: — Það
er óneitanlega auðveldara nú en
áður að fjármagna kaup á nýrri íbúð,
þar sem verð á þeim hefur lækkað
mikið og þær jafnvel orðnar ódýrari
nú en fyrir 4-5 árum þrátt fyrir
verðbólgu á þessu tímabili. Hún hef-
ur að vísu ekki verið mikil en þó
einhver samt.
. Verðmunurinn á nýjum og notuð-
um íbúðum er orðinn það lítill, að
( fólk leitar frekar í nýjar íbúðir. Þær
( eru því orðnar mjög álitlegur val-
kostur fyrir þá, sem eru í íbúðarhug-
leiðingum. Þetta er vafalítið ein
helzta skýringin á því, hve sala á
nýjum íbúðum hefur gengið vel að
undanförnu.
Fólk ekki bundið
gömlum hverfum
I — Þetta hefur það einnig í för
með sér, að fólk er ekki eins bundið
^ vissum hverfum og áður, heldur El-
( ías áfram. — Fólk sem er kannski
fætt og uppalið í Hlíðunum, kysi ef
til vill helzt að kaupa íbúð þar. Á
móti kemur, að því stendur til boða,
kannski á sama verði eða jafnvel
lægra, að kaupa glænýja íbúð, enda
þótt hún sé í öðru hverfi. Þetta fólk
tekur þá gjarnan síðari kostinn til
þess að komast í nýtt og það jafn-
vel þótt íbúðin sé í jaðarhverfi. Þetta
' viðhorf er orðið mjög áberandi á
I markaðnum nú. Fólk setur slíka
( staði ekki fyrir sig í sama mæli og
áður.
Þar við bætist, að nú er hægt að
fá húsbréfalán fyrir 70% af kaup-
verðinu, þegar keypt er í fyrsta sinn
og þá þarf ekki að fjármagna nema
30%. Þegar verð á nýju íbúðum er
6,6 millj. kr., fær fólk hámarkslán,
svo framarlega sem það fær
greiðslumat fyrir slíku láni. Eigið fé
þarf því ekki að vera mjög mikið til
viðbótar til þess að kaupa slíka íbúð,
enda þótt hún sé kannski ekki fullbú-
in.
Við kaup á nýju húsnæði á ekki
að þurfa að huga að viðhaldi, að
minnsta kosti fyrstu árin. Þegar
eldra húsnæði er keypt, þarf gjarnan
að lagfæra eitthvað eða breyta ein-
hverju, þegar flutt er inn, sem kallar
á útgjöld til viðbótar kaupverðinu. í
eldra húsnæði er líka miklu styttra
í viðhald og í mörgum fjölbýlishúsum
er framkvæmdasjóður, sem greiða
þarf í reglulega til þess að standa
undir komandi viðhaldsframkvæmd-
um. Þær greiðslur bætast við afborg-
anir af lánum. í nýju húsnæði er
ekki sama þörf á að safna fé til slíkra
framkvæmda.
Greiðslubyrðin af hverri milij. kr.
í húsbréfum er nú um 6.000 kr. á
mánuði og því um 36.000 kr. miðað
við 6 millj. kr. — Þessi fjárhæð er
senniiega ekki miklu hærri en sú
húsaleiga, sem greiða þarf fyrir
þriggja herb. íbúð, segir Elías.
— Nú eru nýjar íbúðir mjög
gjarnan auglýstar til sölu án gólf-
efna og auðvitað munar þetta ein-
hverju í kaupverði, segir Elías Har-
aldsson að lokum. — Margir láta
sér nægja í fyrstu að hafa filter-
teppi eða mála bara gólfin. Það má
því segja, að verðið sé þá orðið
endanlegt, þannig að kaupendur
þurfa ekki að leggja út meira fé
vegna íbúðarkaupanna. Þetta skipt-
ir vissulega máli og sýnir glöggt,
hve meðvitaðir kaupendur nýrra
íbúða eru gagnvart verði.
Smiðjan
Búum til
jólagjafir
Þær gjafir eru öðrum
gjöfum dýrmætari, sem
gefandinn hefur sjálfur
búið til, segir Bjarni
—
Olafsson. Að baki þeim
liggur góður vilji.
ÞEIR eru ófáir, sem þegar hafa
unnið nokkuð að slíkum gjöf-
um, þótt enn séu sex vikur til jóla.
En nú kann einhver að spyija sem
svo: Hvað get ég búið til? Eg er svo
hugmyndasnauður, mér kemur aldr-
ei neitt skemmtilegt í hug.
Engin vandræði ættu að vera með
að finna hentug verkefni. Eg nefni
fáeinar hugmyndir: Þeir sem kunna
að pijóna eða sauma geta t.d. ptjón-
að vettlinga, sokka, hosur, leppa í
skó, trefla, eyrnaskjól, húfur eða
jafnvel stærri flíkur.
Þeir sem kunna t.d. bótasaum
geta saumað ýmiskonar smámyndir,
púða, smádúka eða bakkadúk.
Onnur efni
pennateikningar að jólagjöf-
um fylgja með, ef þær mættu
koma hugmyndafluginu
á skrið.
an, líma svo pappírinn ofan á efnið
og saga bátinn síðan út eftir snið-
inu. Að því loknu þarf að tálga, raspa
og hefla bátinn til og pússa hann
vel sléttan. Brú og stromp, ef þurfa
þykir, verði mastur sett á bátinn er
best að það sé fremur lágt og ekki
oddmjótt að ofanverðu.
FASTEIGNASALAN
f rÓ n
FINNBOGI KRISTJÁNSSON LÖGG. FASTEIGNASALI
SÍÐUMÚLI 1 SÍMI 533 1313 FAX 533 1314
Síðan vil ég nefna harðari efni svo
sem tré, málma, pappa og leður.
Auðvitað veltur mikið á því, að við
höfuin verkfæri til að vinna efnið
með. Úr tré getum við hugsað okkur
ýmsa smáhluti svo sem leikföng
handa litlum bömum: rúm, kerrur
og vagna fyrir brúður, trébíla, báta
og flugvélar, barnastóla og borð. Sem
gjafir handa fullorðnum má nefna:
skeið og gaffal í hrásalat, ostabretti,
brauðbretti, ef möguleiki er að kom-
ast að rennibekk fjölgar verkefnum
og nefni ég pipar og salt-sett, eggja-
bikara, skopparakringlur o.fl.
Málmvinna er e.t.v. erfiðari, nema
fyrir þá sem hafa lært eitthvað þess
háttar. Auðvelt getur þó verið að
vinna litia fallega hluti úr grönnum
vír. Eirþráður er sérstaklega mjúk-
ur. Hann fáum við með því að taka
einangrun utanaf rafmagnsvír. Ný-
silfurvír er hægt að kaupa og mess-
ingvír. Álþynnur, eir og messingplöt-
ur er einnig hægt að kaupa t.d. í
blikksmiðjum. Ég nefni sem dæmi
hengiskraut á jólatré, men, eyrna-
lokka, kertastjaka o.fl.
Úr bylgjupappa má búa til lítil
hús, verslunarhús, brúðuleikhús, hús
sem geta verið dótakassar, t.d. með
því að lyfta þakinu af. Leður er
gott efni til þess að búa til gjafir,
buddur, punga og veski og margt
fleira.
Trésmíði
Nú mun ég segja betur frá fáein-
um verkefnum og ætla ég að nota
tvær smiðjugreinar fyrir smávægi-
legar leiðbeiningar, þessa grein og
næstu.
Brúðurúm úr furu getur verið
samsett úr fimm hlutum, 2 stk. gafl-
ar, br. 165 mm x h. 140 mm x þ.
11 mm. 2 stk. stokkar, lengd 320
mm x br. 45 mm x þ. 11 mm, og
1 stk. botn, lengd 320 mm x br.
143 mm x þ. 11 mm. Skemmtileg-
ast er að hver og einn móti útlit
hlutarins að eigin vali. Með þeim
hætti verður gjöfin persónulegri.
Þarna er gott að vinna gafla rúms-
ins að ofanverðu með laufskurði,
útsögun, mála mynd, eða skera út.
Að lokinni formun og pússningu
er best að byija á að líma stokkana
utan á botninn. Auk límsins má nota
granna nagla eða skrúfur. Á eftir
má svo festa gaflana á enda botns
og stokka á sama hátt.
Bátur úr furu: lengd 140 mm x
br. 90 mm x þ. 30 mm. Gott ráð er
að klippa snið bátsins út úr pappírs-
örk sem er jafnstór og efniviðurinn.
Til þess að fá sniðið rétt er gott að
bijóta örkina saman eftir miðlínu
og klippa báðar hliðarlínurnar sam-
Félag {F fasteignasala
Opið frá kl. 9-18 virka daga.
Netfang: fron@mmedia.is
Atvinnuhúsnæði
Skrifstofuhúsnæði óskast.
Höfum veriö beðnir aö útvega til kaups
eöa leigu 150-200 fm skrifstofuhús-
næði meö 3-5 herbergjum.
Síðumúli. Rúml. 155 fm atvinnuhúsnæði
á 3ju hæð í risi, sem hentar vel fyrir teiknistof-
ur, verkfræðistofur og aðra snyrtilega starf-
semi. Plássið er einn óinnréttaður salur. Finn-
bogi á Fróni veitir allar frekari uppl.
Einbýlishús
Háholt Gb. Um 300 fm hús á tveim-
ur hæðum og sér svefnherbergisálma.
Geta verið tvær íbúðir. 66 fm tvöfaldur bíl-
skúr. Fimm svefnherbergi, tvær stofur og
arinn. Feikimikið útsýini, frá „Jökli" og
suður með sjó. Óbyggt svæði í austur.
Skipti á minni eign.
Einbýii óskast Traustur kaupandi
óskar eftir góðu einbýti. Góðar greiðslur í
boði. Nánari upplýsingar á Fróni.
Rað- og parhús
Nýlegt raðhús í Mosfb. um uo fm
nýtt fullbúið raðhús á premur hæðum. Falleg-
ar stofur, 4 svefnherb. og vandaðar innrétting-
ar. 27 fm bílskúr'fylgir. Ahv 7,2 Góð kjör.
Brekkubær. Um 255 fm vandað rað-
hús á þessum rólega stað. Sex svefnher-
bergi, rúmgóðar stofur og tvö böð. Auð-
velt að breyta í tveggja íbúða hús. 23 fm
sérbílskúr fylgir. Skipti á minni eign
möguleg.
Hæðir
Hlíðar. Mjög falleg 139 fm sérhæð með
bílskúr á þessum vinsæla stað, stórar
stofur, parket, flisar og arinn. Herbergi,
snyrting og eldhús í kj. Skipti á stærra
möguleg
Sérhæð óskast. 120 - 150
fm hæð í Hiíðunum og vesturbæ,
óskast. Staðgreiðsla í boði fyrir
rétta eign.
4ra herb.
Kópavogur. 95 fm ibúð á 1. hæð,
lítii sameign. Aukaherbergi á jarðhæð með
snyrtingu sem er leigt út. Útsýni yfir
Fossv. Nýtt parket og lítið viðhald á
húsi.
Eskihlíð. 101 fm íbúð á 3ju hæð á
þessum vinsæla stað. Nýtt parket á stofu
og gangi. Útb. 2.625 og 23 á mán.
Háaleitisbraut. 122 tm íb. á 3ju
hæö með þvottarhúsi og geymslu innan
íbúðar. Tvennar svalir, fallegt parket, fjög-
ur svefnherbergi og vel standsett hús.
Góð lán áhvílandi. Skipti á sérhæð í
sama hverfi.
3ja herb.
Óskast strax. 3ja til 4ra herb.
íbúð í Vesturbæ eða Hliðum fyrir ungt
fólk með góða útborgun. Hafðu sam-
band.
Við Ránargötu. 88 tm ibúð á 3ju
hæð i nýlegu húsi í gamla góða vestur-
bænum. Vandaðar ínnréttingar. Bílskúr
fylgir með. Áhv. 4,3 afb. 30 þús. á
mán.
Kerra fyrir brúðuna kann að verða
kærkomin réttum aldurshópi. I kerru
þarf 2 furubúta lengd 160 mm x
br. 140 mm x þ. 11 mm, og í kjálk-
ana 2 stk. lengd 540 mm x br. 22
mm x þ. 11 mm, 2 stk. lengd 250
mm x br. 22 mm x þ. 11 mm, og í
1 handfang lengd 182 mm, sívalt,
að gildieika eins og kústskaft, 4 tré-
hjól.
Smærri gjafir
Vel má hugsa sér að búa til enn
minni gjafir, þær gleðja engu síður.
Flögg eru vel fallin til skrauts á jóla-
tré, en það getur á sama hátt verið
fallegt að nota lítil flögg til skrauts
á borð. Finna má hæfilega gilda tijá-
grein, þvermál 30-35 mm, og saga
hana niður í 6-7 mm þykkar sneið-
ar og pússa þær vel. Það gerir mað-
ur með því að leggja sandpappír á
slétt borð og halda honum föstum
með annarri hendinni en nota hina
höndina til þess að stijúka sneiðinni
nokkrum sinnum yfir sandpappírinn.
Síðan þarf að bora gat fyrir fána-
stöngina í miðju sneiðanna. í sjálfa
fánastöngina má nota niðurklipptan
logsuðutein um 1,5 mm gildan og
90 mm langan bút í hverja stöng. I
flögg má nota samskonar flögg og
notuð eru til skrauts á jólatré. Einn-
ig er hægt að búa til flögg af þeirri
stærð með því að klippa niður papp-
ír með réttum fánalitum og líma þá
saman.
Einnig er hentugt að búa til lítil
dýr úr furu í þeim tilgangi að hengja
þau á jólatré til skrauts. Litla fugla,
fiska, jólaketti, stjörnur, engla nefni
ég sem dæmi um hugmyndir. Smá-
gerðar myndir úr furu fara vel við
grænan lit jólatrés. Svona skraút
getur orðið kærkomin jólagjöf.
Vesturbær-Melar. Faiieg 3-4
herb. íbúð í góðu fjölb. Parket, suðursval-
ir, verðlþunalóð. Hús og sameign nýtekið í
gegn. Útb. 2,1 m og 25þ á mán.
Vogar. Hæð í góðu þríþýli í þessu nota-
legu umhverfi með 25 fm þílskúr, suður-
svalir. Áhv. 3,7 millj. góð lán.
2ja herb.
Háaleitisbraut. Faiieg 70 fm rúm-
góð (búð á jarðhæð. Stór stofa, þarket og
flísar á gólfum. Þvottaaðstaða í íbúð. Áhv.
2,4 millj. í byggsj. Þú bætir við 1,6 út-
borgun. Afb. um 18 þús. á mánuði.
Hlíðarhjalli. Um 70 fm stórglæsileg
íbúð á 3ju hæð. íbúðin er með sérsmíðuð-
um innréttingum. Handgerðar flisar i eld-
húsi. Þvottahús og geymsla inn af eldhúsi.
Verðlaunalóð og sameign sérlega snyrti-
leg. Áhv. 4,2. Skipti á stærra.
Við Hringbraut. 53 fm skemmtileg
ibúð i nýlegu húsi, hátt til lofts. Parket og
flísar. Bílskýli. Örstutt í alla þjónustu. Laus
strax. Útb. 1,5 og afb. 18 þús. á mánuði.
Við Brekkulæk. 55 fm góð íbúö á
3ju hæð. Svalir í suðvestur. Fallegt útsýni
yfir borgina. Útb. 1,6 millj. og afb. 19
þús. á mánuði.
Kóngsbakki. Skemmtileg íbúð meö
sér garöi í suður í þessu barnvæna hverfi.
Parket á gólfi, nýjar innróttingar. Húsið ný-
málað aö utan. Útb. 1,4 og afb. 18 á
mánuði.
Snorrabraut, fyrir aldraða. 56
fm ný íbúð á 1. hæð, þarket og sér
geymsla innan íbúðar. Suðurverönd.
Skemmtileg sameing, stutt í miðbæinn og
alla þjónustu. Gott verð. Laus stax.
Seljahverfi. Um 70 fm sérhæð á jarð-
hæð í þríbýli með sérgarði. Ágætar inn-
réttingar. Áhv. 3,0 millj. Byggingasjóður.
EKKERT GREiÐSLUMAT. Hentugt fyrir
byrjendur.
Efra Breiðholt. Rúmgóð 63 fm íbúð
á 4. hæð í nýstandsettu lyftuhúsi. Vönduð
sameign. Stórar svalir. Húsvörður. Útb.
1,6 millj. og afb. 20 þús. á mán.