Morgunblaðið - 13.11.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
+
:w
ft
I
£
w
C
1996
MIDVIKUDAGUR 13. NOVEMBER
BLAD
KNATTSPYRNA
Mikill gróði varð á Evrópukeppni landsliða í Englandi
KSI fær rúmar
25 millj. króna
Heppnin ekki
með Guðmundi
Benediktssyni
GUÐMUNDUR Benediktsson, leikmaður KR-liðs-
ins í knattspyrnu, hefur ekki haft heppnina með
sér. Hann var skorinn upp vegna meiðsla í hné
á dögunum. Fljótlega eftir að Guðmundur kom
heim, fann hann til verkja í hnénu. Við skoðun
kom í ljós að sýking hafði komist í skurðinn og
var Guðmundur lagður á ný inn á sjúkrahús, þar
sem hann hefur verið og verður að vera í tólf
daga.
Byrjað að selja
miða á HM 1998
eftirtværvikur
FYRSTU miðarnir á leiki Heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu í Frakklandi 1998 verða sett-
ir í sölu eftir hálfan mánuð. Til að byija með
verða seldir passar, miðar á fimm eða sex leiki
í riðlakeppninni og næstu umferð þar á eftir, en
í febrúar á næsta ári verður byrjað að selja miða
á einstaka leiki í riðlakeppninni. í lok næsta árs
hefst sala á miðum á fyrsta leikinn, sem verður
á nýjum þjóðarleikvangi í París 10. júní 1998, á
leikina í átta liða úrslitum, undanúrslitum og leiki
um sæti en úrslitaleikurinn verður 12. júlí.
Alls verða 2,5 milljónir miða í umferð og hefur
franska framkvæmdanefndin þegar selt 525.000
passa til fólks innan knattspyrnuhreyfingarinnar
s.s. leikmanna, stjórnarmanna, dómara og við-
skiptamanna sem tengjast keppninni. Miði á leik
í riðlakeppninni kostar frá 145 til 350 franka (um
1.885 kr. til 4.550 kr.) en 350 til 2.950 franka (um
38.350 kr.) á úrslitaleikinn.
EVRÓPUKEPPNI landsliðs íknatt-
spyrnu, sem fór fram í Englandi í sum-
ar, heppnaðist mjög vel og var mikili
gróði á keppninni. Knattspyrnusam-
band Evrópu, UEFA, hefur fengið hluta
af gróðanum til umráða. UEFA ákvað
í gær að verja 6,4 milljörðum ísl. króna
til úthlutunar til aðildarþjóða sam-
bandsins. Knattspyrnusamband ís-
land nýtur góðs af - sambandið fær
rúmar 25 milljónir ísl. króna í kassann.
Peningunum verður skipt á milli þeirra
sextán þjóða sem tóku þátt i EM -
4,7 milljarða - annars vegar og hins vegar
1,7 milljörðum skipt á milli þeirra þjóða sem
eru meðlimir í UEFA en þær eru fímmtíu
og ein. Hver Evrópuþjóð á von á 25 millj.
kr., sem greiðast með fjórum jöfnum
greiðslum - 6,3 millj. kr. árlega næstu fjög-
ur árin.
Skiptingin á milli þjóðanna sextán, sem
tóku þátt í Evrópukeppni landsliða, er þann-
ig að Þjóðverjar fá 572,4 milljónir fyrir fyrsta
sætið, Tékkar 524,7 milljónir fyrir annað
sætið. Englendingar og Frakkar fá 405,4
millj. fyrir að komast í undanúrslit. Króat-
ar, Portúgalir, Spánveijar og Hollendingar
fá 286,2 millj. fyrir að komast í 8-liða úr-
slit, Skotar, Búlgarar, ítalir og Danir fá
238,5 millj. fyrir að hafna í þriðja sæti í
riðlakeppninni og Svisslendingar, Rúmenar,
Rússar og Tyrkir 190,8 millj. fyrir að verða
í fjórða og neðsta sæti í riðlakeppninni.
Sigurjón á parinu
SIGURJÓN Arnarsson, kylfingur
úr GR, keppti á móti í Tommy
Armour-mótaröðinni í Bandaríkj-
unum á mánudaginn og varð í 3.
sæti af 56 keppendum. Leikið var
á Harbor Hills-vellinum sem er par
72 og á mánudaginn var erfiðleik-
astuðullinn 73. Veður var ekki hag-
stætt, kalt og hvasst, en Sigurjón
lét það ekki á sig fá heldur lék af
miklu öryggi á parinu og það dugði
í 3. sætið en sigurvegarinn lék á
69 höggum.
SKIPTING í Evrópuleik gegn Svíum. Þorvaldur Örlygsson kemur af leikvelli,
Bjarkl Gunnlaugsson (16) tekur stöðu hans.
Hvítlaukur gegn mörkum
ANDONI Cedrun markvörður Logrones í 1. deildar
keppninni í knattspyrnu á Spáni beitti nýstárlegri
aðferð til að koma í veg fyrir að skorað yrði hjá
honum um helgina, er hann ásamt félögum sótti
Real Madrid heim. Cedrun hefur fengið á sig fjórtán
mörk á leiktíðinni. Fyrir viðureignina dreifði hann
hvítlauk viðsvegar um markteiginn, en það er göm-
ul þjóðtrú víða við Miðjarðarhafið að hægt sé að
bægja illum öndum frá með hvítlauk. Hvort sem
það var hvítlauknum að þakka eða öðru þá fékk
Cedrun ekki á sig mark í leiknum. Spurningin er
hvort að Peter Schmeichel, markvörður Man. Utd.,
fer að ráðum Cedrun fyrir leik gegn Arsenal á laug-
ardaginn?
Guiterrez til
liðs við KR
RAY Guiterrez, kúb-
anskur handknattleiks-
markvörður, sem hefur
verið hjá KA, hefur
verið lánaður til 2.
deildarliðs KR.
Helga Orms-
dóttir úr leik
HELGA Ormsdóttir,
handknattleikskona úr
KR fer í uppskurð í
vikunni og mun líklega
ekki verða með fyrr en
á næsta ári.
Sigurganga
Frakka rofin
FRAKKAR töpuðu fyr-
ir Dönum í vináttu-
landsleik í knattspymu
um sl. helgi í Kaup-
mannahöfn, 1:0. Fyrir
leikinn höfðu Frakkar
leikið 30 landsleiki og
ekki tapað neinum
þeirra.
Klinsmann
skoraði tvö
JÍÍRGEN Klinsmann
skoraði tvö mörk fyrir
Bayem Miinchen, sem
lagði Werder Bremen í
8-liða úrslitum bikar-
keppninnar í Þýska-
landi í gærkvöldi, 3:1.
Bayem er í fyrsta skipti
komið í undanúrslit síð-
an 1988. „Ég tel að við
höfum leikið okkar
besta heimaleik í vet-
ur,“ sagði Lothar Matt-
háus, fyrirliði Bayem.
KÖRFUKNATTLEIKUR: CHICAGO BULLS HEFUR ALDREIBYRJAÐ EINS VEL / C8