Morgunblaðið - 14.11.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1
1996
|)l9r$sm!Wafót>
■ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER
BLAÐ
Landsliðsfyrirliðinn rúmfastur í tvo daga eftir Evrópuleik
Geir meiddur í baki
Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska lands-
liðsins í handknattleik, meiddist í
Evrópuleik með félagi sínu, Montpellier,
sl. laugardag. Liðið tók þá á móti CSKA
Moskvu í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslit-
um í EHF-keppninni og sigraði 24:18 eft-
ir að staðan í hálfleik hafði verið 10:9
fyrir Montpellier. Síðari leikur liðanna fer
fram í Moskvu um næstu helgi.
Geir fór útaf eftir 15 mínútna leik vegna
bakmeiðsla. Talið er að tognað hafi á lið-
böndum í kringum hryggjarliðina. Hann
lá rúmfastur í tvo daga, en hefur verið í
sprautumeðferð tvisvar á dag síðan. „Ég
fann mig vel í upphafi leiksins og svo gaf
þetta sig allt i einu og ég stífnaði allur
upp og var studdur af leikvelli," sagði Geir
í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Hann sagðist hafa fundið fyrir bakverk í
nokkur ár og hefði grunað að nú færi að
koma að því að hann fengi slæman verk
á ný. „Ég hef fengið þetta áður, en ekki
eins slæmt. Ég þarf að hvíla mig til að
jafna mig af þessu en það er enginn tími
til þess. Ég fer til læknis á morgun og
hann dæmir um hvort ég sé leikfær fyrir
leikinn í Moskvu. Mig grunar svo sem
hvað hann muni segja því hann er hliðholl-
ur þjálfaranum," sagði Geir, sem sagðist
helst vilja fá hvfld í fjóra til fimm daga.
Morgunblaðið/Valur
SIGURÐUR M. og Pálmar.
Pálmar og Sigurð-
ur í fjögurra mán-
aða æfingabúðir
SKÍÐAMENNIRNIR efnilegu Pálmar Pétursson
og Sigurður Magnús Sigurðsson úr Armanni
héldu í dag í fjögurra mánaða æfingaferð til
Bandaríkjanna og Evrópu. Þeir verða fyrsta
mánuðinn í Colorado í Bandaríkjunum og æfa
þar undir handleiðslu pólska þjálfarans Andrezje
Bielawa, sem hefur verið þjálfari skíðadeildar
Ármanns undanfarin ár. Þeir fara síðan til
Frakklands ásamt Pólverjunum og æfa þar fram
í febrúar, auk þess sem þeir taka þátt í alþjóðleg-
um stigamótum.
Kristinn og Arnór
æfa með Finnum
LANDSLIÐSMENNIRNIR Kristinn Björnsson
frá Ólafsfirði og Arnór Gunnarsson frá ísafirði
eru við æfingar í Noregi um þessar mundir, en
þeir æfa með finnska landsliðinu í vetur.
Heimsbikarkeppnin í alpagreinum hefst í Park
City í Utah í Bandaríkjunum 21. nóvember.
Pétur og
Ásmund-
urtil
Fram
PÉTUR Arnþórs-
son, fyrrum lands-
liðsmaður í knatt-
spymu, sem hefur
þjálfað Leikni R.
undanfarin ár,
hefur ákveðið að
ganga á ný til liðs
við Fram. Reynsla
Péturs mun koma
hinu unga liði
Fram að góðum
notum. Þá hefur
Ásmundur Arnar-
son, sem lék með
Völsungi og áður
Þór, ákveðið að
ganga í raðir
Framara.
Santos
bjargaði
Ajax
MARCIO Santos
bjargaði Ajax frá
tapiánýjavelli
liðsins í Amster-
dam, skoraði jöfn-
unarmark gegn
Fortuna Sittard,
2.2, úr vítaspyrnu
tveimur mín. fyrir
leikslok. Patrick
Kluivert, besti
maður vallarins,
skoraði hitt mark
liðsins á 13. min.
Fortuna hefur
ekki unnið Ajax
síðan 1961-62.
KNATTSPYRNA
Draumur Lárusar Orra
á Highbury varð að
Ma
LÁRUS Orri Sigurðsson, landsliðsmaður,
hafði lengi átt sér þann draum að leika á
Highbury, þar sem hann hélt mikið upp á
Arsenal á yngri ámm. Draumurinn rættist í
gærkvöldi, varð síðan að martröð - Láms
Orri og samheijar hans þjá Stoke máttu hirða
knöttinn fimm sinnum úr netinu hjá sér, töp-
uðu 5:2 í deildarbikarkeppninni.
Láms Orri beið spenntur eftir að leika gegn
leikmönnum eins og Ian Wright og Dennis
Bergkamp - þeir skomðu þrjú af mörkum
Arsenal, Wright tvö og hollenski landsliðsmað-
urinn eitt. David Platt og Paul Merson skor-
uðu hin mörk Arsenal. Mike Sheron skoraði
bæði mörk Stoke - fyrsta og síðasta mark
leiksins.
Arsenal mætir Liverpool, sem vann Charl-
ton á Anfield Road 4:1, í næstu umferð. Robbie
Fowler skoraði tvö mörk og hefur hann skor-
að átta mörk í síðustu sex leikjum Liverpool.
Mark Wright og Jamie Redknapp skomðu hin
mörkin, Shaun Newton skoraði fyrir Charlton.
Gillingham lagði Coventry með marki Neil
Smith á 71. mín.
Reuter
RAY Wallace, sóknarlelkmaður Stoke, sækir að markl Arsenal, Tony Adams og Martln Keown
eru tll warnar.
Ziege fer frá Bayern til AC Milan
ÞÝSKI landsliðsmaðurinn Christ- samning, sem tryggir honum 132 að greiða honum nema 85,8 millj.
ian Ziege mun gerast leikmaður millj. ísl. kr. í laun á ári. Fréttin í árslaun. Samningur Ziege við
með AC Milan á Ítalíu eftir þetta í gær er áfall fyrir Evrópumeistara Bayem rennur út í júní 1997, í
keppnistímabil, að sögn ítalska Juventus, sem hafa verið að fylgj- samningnum er klásúla um að
blaðsins Corriere dello Sport, sem ast með honum í mánuð. Að sögn Bayem fái 396 millj. ísl. króna
sagði að hann geri fjögurra ára blaðsins var Juventus ekki tilbúið fyrir hann.
HAIMDKNATTLEIKUR: AUÐVELT HJA HAUKUM GEGN AFTURELDINGU / D3