Morgunblaðið - 15.11.1996, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
LANDIÐ
Ofsaveður með hagléljum gekk yfir Vestfirði í gær
Vmdhraðinn fór mest í
107 hnúta á Þverfjalli
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
MIKILL sjógangur var við ísafjarðarhöfn í gærdag. Sjór flæddi
um allan hafnarkantinn og þurfti að notast við togvíra til að
halda skipunum við hafnarkantinn.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
SJÓRINN gekk yfir Brimnesveginn á Flateyri og skall á nær-
liggjandi húsum. Klæðningin flettist af götunni.
ísafirði - Mikið suðvestan rok með
hagléljum og síðan snjókomu, gekk
yfír norðanverða Vestfirði aðfara-
nótt fimmtudags og fram eftir degi
í gær. Hásjávað var á sama tíma
og urðu því töluverðar skemmdir á
mannvirkjum og þá sérstaklega á
gatnakerfinu. Tjón hefur ekki verið
metið en ljóst þykir að það skipti
tugum milljóna króna á Vestfjörðum
öllum. Meðalvindhraðinn mældist
um 65 hnútar á ísafjarðarflugvelli í
gærdag, en 64 hnútar eru ofsaveð-
ur. í verstu vindhviðunum fór vind-
hraðinn upp í 85 hnúta sem er með
því mesta sem mælst hefur á ísa-
fjarðarflugvelli. Vindmælir sem
staðsettur er á Þverfjalli við Breiða-
dalsheiði, sýndi a.m.k. fjórum sinn-
um vindhraða yfir 100 hnúta, en
mestur mældist hann 107 hnútar,
að sögn Sturlu P. Sturlusonar, flug-
umsjónarmanns á ísafjarðarflug-
velli. _
Á ísafirði varð tjón ekki mikið á
mannvirkjum ef frá er talin Skutuls-
fjarðarbraut og Pollgata, þar sem
snjórinn gróf stór stykki úr vega-
kantinum á stórum kafla og þeytti
gijóti og þara upp á veginn. Sjór
flæddi inn í nokkra kjallara húsa,
auk þess sem klæðning fór að hluta
af húsi við Fjarðarstræti. Þá fuku
vinnupallar til og tvær stórar hurðir
á steypustöðinni Steiniðjunni hf., við
Grænagarð fuku upp og ollu nokkr-
um skemmdum. Tveir togarar voru
í ísafjarðarhöfn á meðan versta
veðrið gekk yfir og þurfti að nota
togvíra annars þeirra til að halda
skipinu við bryggju. Sjór flæddi um
allan Ásgeirsbakka og inn í nær-
statt hús. Þá fór allt á flot við gömlu
húsin í Neðstakaupstað, en sjór mun
ekki hafa komist þar inn og því
skemmdir óverulegar.
^ Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
SJOR flæddi umhverfis fríðuðu húsin í Neðstakaupstað á ísafirði í gærdag. Stoðir flutu undan bátum
við Sjóminjasafnið svo þeir skekktust. Ekki mun hafa flætt inn í húsin og skemmdir því óverulegar.
vindmælir á Þverfjalli a.m.k. fjórum
sinnum vindhraða yfir 100 hnúta,
en í verstu hviðunni mældist hann
107 hnútar,“ sagði Sturla Páll.
Vonumst eftir sjóvörn
„Það er alveg ljóst að það hafa
orðið töluverðar skemmdir á vegum
hér í Súgandafirði. Allur vegurinn
fyrir Spilli er stórskemmdur og
klæðningin af veginum frá Bijótn-
um, sem er norðan við þorpið, og inn
að svokölluðu Stekkjarnesi, hefur
sópast burt á stórum kafla auk þess
sem hann er skemmdur að stórum
hluta á öðrum stöðum. Þá hefur sjór-
inn grafið stóran hluta af norður-
horni Eyrargötu. Um tíma í morgun
var hluti eyrarinnar umflotinn sjó
en það hefur minnkað eftir því sem
liðið hefur á daginn," sagði Óðinn
Gestsson, framkvæmdastjóri Fisk-
iðjunnar Freyju hf. á Suðureyri í
samtali við blaðið.
Óðinn taldi að litlar skemmdir
hefðu orðið á mannvirkjum, öðrum
en vegum, ef frá eru taldar skemmd-
ir á einni húseigna Freyju, þar sem
gafl fór af húsinu. Taldi Óðinn að
tjónið næmi 1-2 milljónum króna.
Ein mesta sjávarhæð til þessa
„Við vitum ekki um neitt tjón á
höfninni. Sjórinn hefur farið upp
fyrir hafnargarðana og því veit mað-
ur ekki hvernig rafmagnsbúnaðinum
hefur reitt af. Stjórnendur þeirra
skipa sem í höfn voru bjuggu sig
undir veðrið og því var allt í stakasta
lagi hjá þeim. Sjávarhæðin í morgun
er ein sú mesta sem maður hefur
séð hér vestra," sagði Hermann
Skúlason, hafnarstjóri ísafjarðar-
bæjar, í samtali við blaðið í gærdag.
Djúpbáturinn Fagranes þurfti að
fara frá bryggju árla morguns vegna
sjávarhæðar, en þá voru flotholt
skipsins komin upp á hafnarbakk-
ann. Hélt skipið sjó við Prestabugt
fram undir hádegi, en það hélt á ný
til hafnar.
Að sögn Sturlu Páls Sturlusonar,
flugumsjónarmanns á ísafjarðar-
flugvelli, var meðalvindhraðinn á
vellinum í gær um 65 hnútar, en
64 hnútar sem er með því mesta sem
mælst hefur hér á vellinum. Þá sýndi
Talsverðar
skemmdir
í Ólafsvík
Ólafsvík - Talsverðar skemmdir
urðu vegna veðurs í Ólafsvík í
gærmorgun. Á flóðinu gekk sjór
á land yfir Ólafsbrautina og ruddi
grjóti yfir veginn við Klif. Var
hann ófær um tíma. Einnig fór
gijót úr varnargörðum yfir veg-
inn við Bug sem er fyrir innan
Ólafsvík þanngi að vegur lokaðist
um tíma. Malbikið flettist af á
kafla. Vegfarendur fóru gamla
veginn sem var vel fær enda
lengra upp í landinu.
Möl og grjót gekk yfir veginn
undir Ólafsvíkur Enni en ekki svo
mikið að hann yrði ófær.
Á Hellissandi gekk sjór á land
Morgunblaðið/Guðlaugur Wíum
við hús nr. 15 á Keflavíkurgötu
og fyllti kjallara hússins. Talsvert
eignaljón varð vegna þess. Hitat-
úpa og fleira sem í kjallaranum
var eyðilagðist. í samskonar veðri
í fyrra fylltist sami kjallari vegna
sjógangs. Tjón vegna þess var
einnig verulegt.
MORGUNBLAÐIÐ
í
„Að öðru leyti höfum við það mjög
gott og óskum eftir því að sam-
gönguráðherra sjái til þess að við
fáum þá sjóvörn, sem við erum lengi
búnir að biðja um,“ sagði Óðinn.
Man ekki eftir öðrum eins
látum
Líkt og á flestum stöðum á Vest-
fjörðum gekk mikið suðvestan rok
yfir Flateyri með miklum sjógangi.
Hluti eyrarinnar var umflotinn sjó
um tíma í gærmorgun og nokkrar
skemmdir munu hafa orðið þar á
húseignum. „Brimnesvegurinn er
nánast ónýtur. Öll klæðning er farin
af veginum auk þess sem þar er
mikið gijót. Þá fór mikið vatn inn á
Grundarstíg og flæddi þar inn í kjall-
ara nokkurra húseigna. Ég hef nú
búið hér í yfir fjörutíu ár og man
ekki eftir svona látum. Þetta er með
meiri veðrum sem við höfum lent í
hér á Flateyri," sagði Guðjón Guð-
mundsson, verkstjóri í áhaldahúsinu
á Flateyri.
Björgunarsveitarmenn á Flateyri
voru kallaðir út snemma í gærmorg-
un og unnu þeir sleitulaust í allan
gærdag við að aðstoða íbúa á Flat-
eyri. Hjá skrifstofu ísafjarðarbæjar
á Þingeyri fengust þær fréttir í
gærdag, að þakplötur hefðu losnað
af hraðfrystihúsi staðarins, auk þess
sem mikið flóð hefði verið við svo-
nefndan Sandasand, sem er utan við
þorpið. Þá fauk klæðning af hluta
vegarins við Ketilseyri í Dýrafirði.
Mesttjón á
gatnakerfinu
„Það er erfítt að meta skemmdim-
ar á þessari stundu, en það er Ijóst
að það hefur verið mikið gnauð á
gatnakerfínu," sagði Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri ísafjarðar-
bæjar, er blaðið náði sambandi við
hann í gærdag, en hann var þá
staddur á Flateyri eftir að hafa
verið í skoðunarferð um Suðureyri.
„Það er alveg ljóst að gatnakerf-
ið hefur orðið verst úti. Hér á Flat-
eyri er vegklæðningin farin af Brim-
nesveginum og ekkert annað að
gera en að sópa henni burt. Þá
hafa töluverðar skemmdir orðið á
vegum í Súgandafirði sem og í
Skutulsfirði. Ég hef ekki fengið
nákvæmar upplýsingar um tjónið á
ísafirði, en mér sýnist túnið mitt
vera farið og því ljóst að ég slæ
ekki Pollgötuna næsta sumar. Að
öllu gamni slepptu, þá er ljóst að
tjónið er töluvert. Við munum skoða
þessi mál þegar um hægist,“ sagði
Kristján Þór.
Gísli Eiríksson, umdæmisstjóri
Vegagerðarinnar á ísafirði, sagði í
samtali við blaðið ekki væri vitað
um heildartjón af völdum veður-
hamsins en ljóst væri að þær skiptu
milljónum króna.
„Mestu skemmdirnar urðu í Pat-
reksfirði og aðallega á tveimur stöð-
um, í botni fjarðarins og við pláss-
ið, í Strandgötunni. Þá hafa orðið
skemmdir í Dýrafirði, Súgandafirði
og í Skutulsfirði. Viðgerð hefst um
leið og veður lægir og ég reikna
með að gert verði við flesta vegina
til bráðabirgða. Það má reikna með
því að fullnaðarviðgerð fari að ein-
hverju leyti ekki fram fyrr en næsta
vor,“ sagði Gísli Eiríksson.
Flóðhæð
með allra
mesta mótí
Akureyri - Flóðið var með
allra mesta móti á Akureyri
um hádegi í gær, þótt hvorki
hafi flætt yfir bryggjur né
tjón hlotist af.
Flotbryggjan við Torfu-
nefsbryggju stóð ansi hátt
þegar Guðmundur Sigur-
björnsson hafnarstjóri kann-
aði aðstæður í gær. Hann
stendur á brúnni sem vana-
lega er notuð til að ganga
niður á flotbryggjuna en að
þessu sinni stóð hún lárétt,
frekar að aðeins þyrfti að
ganga upp í móti til að ganga
út á flotbryggjuna.
i
I
>
;
>
i
\
>
t
i
>
E
>
l
t'
t
\-