Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 1
h
B L A Ð A L L R A L / \ N [ ) S M A N W A
I 1
4
i
m
1996
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER
BLAD
C
Geir
fertil
Moskvu
GEIR Sveinsson,
fyrírliði íslenska
landsliðsins í hand-
knattleik, heldur i
dag til Moskvu með
liði sinu Montpellier,
en franska liðið og
CESKA Moskva
leika síðari leik sinn
i EHF keppninni á
laugardag. Geir
meiddistí bakií
fyrri leik liðanna um
siðustu helgi og
lengi vel var útlit
fyrir að hann yrði
ekki með i siðarí
leiknum. í gær
ákvað læknir liðsins
að Geir færí með til
Moskvu. „Heilsan er
nú svona og svona,“
sagði Geir í samtali
við Morgunblaðið í
gærkvöldi. „Ég er
byrjaður að pakka
og það eru sprautur,
bólgueyðandi lyf og
vetrarfatnaður sem
einkennir það sem
fer í töskumar. Ég
er ekkert viss um að
ég geti leikið, en það
eru enn tveir dagar
i leik og vonandi
verð ég búinn að ná
mér þegar að leikn-
um kemur. Það er
þó erfitt að spila
þegar maður hefur
ekki æft i heila
viku,“ sagði Guðni.
KORFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Golli
Fyrsti sigur Grindvíkinga í Seljaskóla í tvö ár
HELGI Jónas Guðflnnsson og félagar hans í iiði Grindvíkinga höfðu betur eftir fram-
lengdan leik í viðurelgnlnni við ÍR í úrvarlsdelldinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Þetta
var fyrstl slgur Grindvíkinga á ÍR í íþróttahúsi Seljaskóla í tvö ár. Á myndinni rennlr
Helgi Jónas sér framhjá Márusi Arnarssynl áður en hann leggur boltann í körfuna.
Leikirnir í úrvalsdeildinni / C2
KNATTSPYRNA
Körfulandsliðið
á sterkt mót í
Danmörku
LANDSLIÐI íslands í körfuknattleik hefur
verið boðið á sterkt mót í Danmörku á milli
jóla og nýárs og hefur Körfuknattleikssam-
bandið þekkst boðið. Landsliðið heldur til
Kaupmannahafnar 27. desember og verður
leikið í höfuðstað Danmerkur 28., 29. og 30.
desember og komið heim á gamlársdag. Auk
íslendinga verður danska landsliðið með I
mótinu og hin sterku landslið Frakklands og
Litháens.
Úrslitaleikur HM
verður í Japan
SEPP Blatter, framkvæmdastjóri FIFA, sagði
í gær að úrslitaieikurinn IHM í knattspymu
árið 2002 yrði í Japan. Tveir leikir verða leikn-
ir í Suður-Kóreu, fyrsti leikur mótsins og leik-
urinn um þriðja sætið. Þing Alþjóða knatt-
spymusambandsins, sem er haldið í tenglsum
við HM, verður haldið í Suður-Kóreu. „Fyrst
þetta er farið að spyijast út, þrátt fyrir sam-
komulag um að halda þessu leyndu, er engin
ástæða til að neita þessu,“ sagði Blatter í gær.
Hann tók þó skýrt fram að ennþá væm þetta
tíllögur sem framkvæmdastjóm FIFA ættí eft-
ir að ræða um, en nefndin kemur saman í
Barcelona 7. desember.
Emerson lætur
ekki sjá sig
BRYAN Robson, knattspyrnustjóri Middlesbro-
ugh, er ekki ánægður með framkomu Brasilíu-
mannsins Emersons, sem hefur verið í frii í
Brasilíu síðan í síðustu viku og ekki látíð heyra
í sér né mætt á æfingar hjá enska liðinu eins
og hann áttí að gera. „Ég skal láta ykkur vita
um leið og ég heyri frá honum,“ sagði Robson
við blaðamenn eftir æfingu liðsins í gær.
„Frænka hans er veik og hann fór til að heim-
sækja hana. Það er það siðasta sem ég fréttí
af honum. Hann er alla vega enn í Brasilíu.“
Steve Gibson, sljómarformaður Middlesbro-
ugh, segist ætla að fara með málið til FIFA
ef Emerson skOi sér ekki og fara fram á að
hann verði settur í leikbann. Emerson er með
fjögurra ára samning upp á fjórar milljónir
punda við félagið. Hann áttí að koma tíl Eng-
lands á miðvikudag en hefur enn ekki látíð sjá
sig.
Hann fékk fri í nokkra daga tíl að fara heim,
en síðan var haft eftír honum að hann ætlaði
ekki að snúa aftur tíl Englands og óskaði eftír
að vera leystur undan samningi. Hann sagði
ástæðuna vera mikla heimþrá, en ástæðan
gætí einnig verið sú að Barcelona hefur sýnt
honum áhuga.
i Svíinn Blomqvist
seldurtil Milan
Sænski landsliðsmiðheijinn Je-
sper Blomqvist var í gær seld-
ur frá IFK Gautaborg og er talið
að kaupverðið á hinum 22 ára
gamla leikmanni hafi verið um 300
milljónir íslenskra króna, en for-
ráðamenn félaganna vildu ekki
segja hversu mikið Milan greiddi
fyrir hann. Formaður Gautaborgar
sagði þó að hann væri dýrasti leik-
maður sem félagið hefði selt.
Blomqvist vakti fyrst athygli fyrir
rúmum tveimur árum er Gautaborg
sigraði Manchester United og hafa
mörg stórlið borið víurnar í pilt en
hann vildi bíða eftir réttu tilboði
og nú er það komið. Hann verður
fímmti Svíinn sem leikur með Milan,
en Qórir landar hans léku með lið-
inu fyrir mörgum árum, þeir Gunn-
ar Gren, Gunnar Nordahl, Nils Lied-
holm og Kurt Hamrin. Síðasti leikur
Blomqvist með Gautaborg verður
væntanlega 4. desember er Svíarnir
taka á móti Portó í Meistaradeild-
inni. Þess má til gamans geta að
hann er níundi erlendi leikmaðurinn
sem leikur með Milan í vetur.
AIK hefur áhuga
áaðfáRúnar
AIK frá Solna í Svíþjóð, sem sló
KR-inga út úr Evrópukeppni
bikarhafa, hefur sýnt áhuga á að
fá Rúnar Kristinsson til félagsins.
„Ég veit af áhuga AIK og félagið
hefur sett sig í samband við Or-
gryte. Ég bíð spenntur eftir að
heyra hvað það hefur upp á að
bjóða. Ég hitti forráðamenn Ör-
gíyte á morgun [í dag] til að ræða
um áframhaldandi samning við fé-
lagið,“ sagði Rúnar.
Hann segist hafa áhuga á að
breyta til, enda hefur hann ekki
verið ánægður með það sem félagið
hefur verið að bjóða honum. „Hing-
að til hef ég ekki verið sáttur. Það
verður að styrkja liðið með tveimur
til þremur leikmönnum fyrir næsta
tímabil ef þetta á að ganga betur
og enn hefur enginn verið keyptur.
Ég hef áhuga á að breyta til og
komast í sterkara lið. Ég hef ekki
fengið að spija „mína“ stöðu á miðj-
unni með Örgryte - annaðhvort
verið bakvörður eða kantmaður.
Leikaðferð þjálfarans er heldur ekki
uppörvandi því það er yfirleitt lagt
upp með stífan varnarleik og byggt
á skyndisóknum," sagði Rúnar.
KNATTSPYRNA: ÁHORFENDUM FÆKKAR ENN A KNATTSPYRNULEIKJUM HÉRLENDIS / C4