Morgunblaðið - 16.11.1996, Síða 1
88 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
263. TBL. 84. ARG.
LAUGARDAGUR 16. NOVEMBER 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tæp hálf miiljón flóttamanna fer frá Zaire til Rúanda
• •
Oryg-gisráðið nær sam-
komulagi um fjölþjóðaher
Washington, New York, Goma. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) náði í gærkvöldi samkomulagi
um ályktun og orðalag umboðs fjöl-
þjóðaherliðs, allt að 10.000 manna,
sem er á leið til Zaire til hjálpar á
aðra milljón flóttamönnum frá Rú-
anda, sem þangað flýðu vegna
fjöldamorða í heimalandinu 1994.
Fregnum þess efnis að milli 300 og
400 þúsund Hútúa hefðu yfirgefið
Mugunga-flóttamannabúðirnar í
gær og væru á leið til Rúanda var
vel tekið víða um heim.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði það vissulega uppörvandi frétt-
ir að flóttamennimir hefðu lagt af
stað fótgangandi frá Mugunga-búð-
unum í austurhluta Zaire til Rúanda
í gær. Engu að síður væri stjórn
hans staðráðin í að senda hermenn
til hjálparstarfa í Zaire, voldugasta
ríki heims gæti ekki snúið baki við
vandanum sem þar blasti við og yrði,
í samstarfi við önnur ríki, að koma
þjáðu fólki þar til hjálpar. Lofaði
Jacques Chirac afstöðu Bandaríkja-
forsetans og sagði hlutverk fjölþjóða-
liðsins síst hafa minnkað.
Fulltrúar alþjóðlegra hjálpar-
stofnana fögnuðu sömuleiðis heim-
för flóttafólksins. Talsmaður Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
(WHO) staðfesti að kóleru hefði orð-
ið vart meðal flóttamanna í aust-
urhluta Zaire. Óttast væri að farald-
ur gæti brotist þar út.
Franskir embættismenn sögðu
hart lagt að stjórnvöldum í Rúanda
að halda uppreisnarmönnum Tútsa
í Zaire í skefjum. Vegna pólitísks
ágreinings í Öryggisráði SÞ væri nú
útlit fyrir að fjölþjóðaherinn kæmist
ekki til Zaire fyrr en um miðja næstu
viku.
Ráðamenn í Zaire hótuðu í gær
að segja Búrundí og Rúanda stríð á
hendur til þess að veija yfirráð sín
í austurhluta Zaire. „Borgirnar Uv-
ira, Goma og Bukavu [í austurhlut-
anum] eru setnar hersveitum frá
Búrundí og Rúanda," sagði aðstoð-
arutanríkisráðherra Zaire.
Yng’sti
hjarta-
þeginn á
batavegi
New York. Daily Telegraph.
NÝFÆDD stúlka, Cheyenne
Pyle, sem fékk nýtt hjarta
klukkustund eftir að hún
fæddist, er á góðum batavegi.
Hún er yngsti hjartaþegi sög-
unnar.
Stúlkan fæddist á Jackson-
barnaspítalanum í Miami í
Flórída sl. sunnudag. Á sama
tíma dó nýfætt barn og var
hjarta þess, á stærð við borð-
tennisbolta, grætt í hana.
í ljós kom við ómskoðun, er
fóstrið var 33 vikna, að vinstri
helmingur hjarta Cheyenne
Pyle var visinn og gat ekki
dælt blóði. Valkostir foreldra
hennar voru hjartaígræðsla
strax eftir fæðingu eða að bíða
hættulegrar skurðaðgerðar þar
til barnið væri nokkurra ára
gamalt með óhjákvæmilegri
lömun. Að öðrum kosti blasti
dauði við stúlkunni.
Hjartaaðgerðin tók sex
stundir. Fyrst var iíkaminn
tæmdur af blóði, því næst
kældur niður í 17 gráður á
celcíus til að stöðva starfsemi
líffæra, en frá þeirri stundu
höfðu læknar klukkustund til
að Ijúka hjartaflutningnum.
Dugðu þeim 50 mínútur.
Reuter
TÆPLEGA hálf milljón Hútúa yfirgaf flóttamannabúðir í Mugunga í Zaire í gær vegna bardaga
þar um slóðir og hélt heimleiðis til Rúanda. Var myndin tekin við landamærabæinn Goma.
Toto Riina
Mafíósí
fær ekki
eftirlaun
Róm. Reuter.
ÍTÖLSK félagasmálayfirvöld
hafa úrskurðað að mafíósinn
Salvatore „Toto“ Riina, foringi
foringjanna, fái ekki lífeyri á
þeirri forsendu
að hann hafi
auðgast á glæpa-
starfsemi.
Riina afplánar
nokkra lífstíð-
ardóma fyrir
mafíustarfsemi
og er nú fyrir
rétti ásamt 27
öðrum fyrir
morð sem framin voru í
sprengjuherferð í Róm, Mílanó
og Flórens árið 1993. Hann var
gómaður 1992 eftir 23 ár á flótta
undan réttvísinni.
Hann hefur ætíð haldið fram
sakleysi sínu, kveðst blásnauður
almúgamaður sem alltaf hafi
þurft að hafa mikið fyrir því að
draga fram lífið.
Því trúa fáir, ekki síst eftir
að mikill fjársjóður, m.a. tugir
kílóa af gullstöngum, verðmæt-
um gullúrum og demöntum fund-
ust undir gólfi íbúðar í eigu Riin-
as á Sikiley fyrir tveimur mánuð-
um. Þá hafa um 300 íbúðir og
hús, sem talin voru í eigu Riinas
en skráð á skyldmenni hans, ver-
ið gerð upptæk.
Rétt fyrir 65 ára afmæli sitt í
fyrra sótti Riina um að fá rétt
til lágmarks eftirlauna frá rík-
inu. Þau nema 370.000 lírum á
mánuði, jafnvirði 15.500 króna.
„Eg skil ekki hvers vegna mér
hefur verið hafnað, ég er at-
vinnulaus og á ekki grænan
eyri,“ sagði Riina í yfirlýsingu
sem lögfræðingur hans afhenti
fjölmiðlum í gær.
Varað við
tilræðum
STUÐNINGSMENN Irska lýð-
veldishersins (IRA) í norðurhluta
Belfast hafa málað kveðjur til
mótmælenda á veggi að undan-
förnu þar sem þeir eru beðnir
að búa sig undir sprengjuregn.
Breska öryggisþjónustan telur
að hryðjuverkamenn IRA undir-
búi sprengjuherferð á Norður-
írlandi og í Bretlandi fyrir jól.
Matvælaráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Róm
Ríkar þjóðir segja fátæk-
um að hjálpa sér sjálfar
Róm. Reuter.
HINAR auðugri þjóðir heims svör-
uðu í gær ákalli ráðamanna fátækra
ríkja um aukna aðstoð fyrir van-
nærða með því að segja að þeir
Reuter
þyrftu að axla meiri ábyrgð sjálfir.
Saudi-Arabar og Þjóðverjar voru
meðal þeirra sem lögðu áherslu á
það á fimm daga matvælaráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í Róm að þró-
unaraðstoð ein og sér væri ekki nóg
til að ná árangri.
Of háð aðstoð?
„Til langs tíma er það ekki til
fyrirmyndar hvað mörg þróunarríki
eru að miklu leyti háð matvælaað-
stoð frá þróuðum ríkjum og hjálpar-
stofnunum," sagði Abdullah bin
Abdul-Aziz bin Muammar, landbún-
aðar- og vatnsveituráðherra Saudi-
Arabíu, í ræðu í gær.
Hann sagði að þessi ríki yrðu að
vera reiðubúin til að „taka á mat-
vælavandanum af meiri alvöru,
raunsæi, ákveðni og sjálfstæði [og]
nýta eigin auðlindir, möguleika og
fólk“.
Á ráðstefnunni hefur það mark-
mið verið sett að fækka vannærðum
jarðarbúum um helming árið 2015.
Talið er að nú búi 840 milljónir
manna við fæðuskort.
Jochen Borchert, landbúnaðarráð-
herra Þýskalands, sagði að tvö skil-
yrði væru fyrir því að þetta mark-
mið næðist: „Annars vegar þarf skil-
virka, alþjóðlega samhæfingu og
eftirlit. Hins vegar veltur árangur
fyrst og fremst á því hvað þróunar-
ríkin sjálf leggja af mörkum,“ sagði
ráðherrann.
Fátt um leiðtoga
Ráðstefnan er haldin hjá Mat-
væla- og landbúnaðarstofnun Sam-
einuðu þjóðanna (FAO) og hafa
færri leiðtogar vestrænna rikja sótt
hana en vonir stóðu til.
I yfirlýsingum stofnunarinnar
kemur fram að það mikill matur sé
framleiddúr í heiminum að í raun
ætti enginn að þurfa að líða skort.