Morgunblaðið - 16.11.1996, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.11.1996, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Fjórir menn í haldi Stærsta e-töflu- mál hérlendis Morgunblaðið/Kristinn IÐNAÐARMENN vinna þessa dagana við að breyta húsnæði Landakots. Ný öldrunardeild verður tilbúin í notkun á Landakoti fyrir áramót Breytingar á húsnæði spítal- ans kosta um 122 milljónir GÍSLI Hermannsson, forstöðu- maður rekstrar- og viðhaldsdeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur, býst við að ein öldrunarlækningadeilda á Landakoti, deild 2B, verði tilbúin í notkun fyrir áramót. Þá býst hann við að breytingar á deild 1B verði langt komnar og deildin hugsanlega tilbúin í janúar á næsta ári en þar er enn starfrækt augn- deild að hluta. Breytingar á hús- næði Landakots vegna öldrunar- lækninga sem þar eiga að fara fram munu kosta 122 milljónir, að Gísla sögn. Tvær deilda spítalans verða fyrir heilabilaða. Gísli segir að miðað hafí verið við að framkvæmdum við deildir 1B og 2B yrði lokið fyrir áramót en að það hafí ekki gengið eftir ýmissa hluta vegna. Þrjár nýjar öldrunarlækningadeildir eru ráð- ÍSLENZK samninganefnd undir forystu Jóhanns Sigurjónssonar, nýs aðaisamningamanns í físk- veiðimálum, heldur til London í næstu viku. Þar hefst á mánudag fundur íslands, Noregs, Rússlands og Færeyja ásamt Evrópusam- bandinu um stjóm sildveiða og á miðvikudag hefst fundur Norðaustur-Atlantshafsfískveiði- nefndarinnar (NEAFC), þar sem meðal annars verður fjallað um stjórn veiða á sfld og karfa. Ekki stjórnlausar veiðar Á fundi strandríkjanna fjögurra og ESB munu strandríkin væntan- lega leitast við að framlengja sam- komulag sitt frá í fyrra um stjórn veiða á norsk-íslenzka síldarstofn- inum. Jafnframt munu þau gera tilraun til að fá ESB til að gerast aðili að samkomulaginu eða a.m.k. að tryggja að skip sambandsins stundi ekki stjómlausar veiðar, eins og raunin hefur verið í ár. gerðar í húsnæði spítalans, það er á fyrrgreindum deildum, 1B og 2B, og auk þess á deild 4B, þar sem 60 sjúklingum verður sinnt. Fjórða hæðin var áður nýtt undir skurð- stofur og hefur verið lokuð um hríð. Engar framkvæmdir eru hafnar þar enn, að Gísla sögn. Starfsmenn hafðir með í ráðum við hönnun Þriðju hæðina á að taka alla undir iðju- og sjúkraþjálfun segir Gísli og þá verður dagspítali fyrir endurhæfíngu sjúkra utan hússins starfræktur. Búið er að teikna aðstöðuna og einungis eftir að kynna útfærsluna og sannfæra stjómendur um að framkvæmdir verði innan kostnaðaráætlunar. Gísli segir ekki ólíklegt að hver deild kosti 30 milljónir en ekki sé Gera má ráð fyrir að fundurinn standi fram á þriðjudag. Reynt að framlengja og útvíkka karfasamninginn Ársfundur NEAFC stendur frá miðvikudegi fram á föstudag. Þar verða m.a. sfldveiðar í Síldarsmug- unni til umfjöllunar, svo og veiðar á úthafskarfa á Reykjaneshrygg. Samkomulag náðist meðal meiri- hluta aðildarríkja NEAFC um veiðistjómun á hryggnum á þessu ári og má búast við að það verði framlengt. Rússland og Pólland stóðu þó utan þess samkomulags og er þess að vænta að reynt verði að fá þau ríki til samstarfs um veiðistjómun á næsta ári. Þá munu íslendingar gera kröf- ur um að í karfasamninginn verði bætt ákvæðum um stórhert eftirlit og tilkynningaskyldu, auk þess sem gripið verði til aðgerða til að hindra veiðar hentifánaskipa á Reykj aneshrygg. vitað hver endanlegur kostnaður verði vegna nýrrar aðstöðu til end- urhæfíngar. „Það verður mjög erfítt að halda framkvæmdum innan áætlunar og því hugsanlega beðið með endan- 'legan frágang á einhveijum þátt- Um. Hönnun deildanna hefur verið gerð í góðu samstarfi við þá sem eiga að vinna þar, sem að vísu hefur tekið talsvert lengri tíma en ella. Ég lít hins vegar þannig á að þegar svo miklir fjármunir era settir í eina byggingu sé mjög mikilvægt að hafa á hreinu hvem- ig starfseminni verður háttað," segir Gfsli. Á 3. hæð var eitt sinn, meðal annars, kapelia St. Jósefssystra sem afhelguð var fyrir um 20 áram og rýmið nýtt til samkomuhalds á vegum spítalans eftir það. Engin FÍKNIEFNALÖGREGLAN vinnur nú að rannsókn á máli, sem sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins, er stærsta e-töflumál sem upp hefur komið hérlendis. Lagt hefíir verið hald á 1.000 e-töflur og um 60 grömm af kókaíni. Fjórir menn hafa verið úrskurð- aðir í þrigga vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar málsins. Einn þeirra er 29 ára Hollendingur en hinir era íslendingar á aldrinum 18-26 ára. Mennimir vora handteknir í Kópavogi á þriðjudag og hafa set- ið í haldi síðan en vora úrskurðað- ir í gæsluvarðhald á miðvikudag. Fíkniefnalögreglan verst frétta af málinu en samkvæmt upplýsing- starfsemi er nú á hæðinni en Gísli segir kapellu á 1. hæð enn í notk- un og engar breytingar á döfínni þar. Loks segir hann aðspurður að ástandi hússins hafi verið ábóta- vant og að líkindum þurfi að skipta um gólfefni alls staðar vegna slits. „Það þarf að gera við þetta á þokkalega myndarlegan hátt án þess að um nokkurt óhóf sé að ræða. Húsnæði Landakots var í mjög bágbomu ástandi þegar ég kom að þessum málum fyrir tveim- ur áram. Það þurfti til dæmis að yfírfara alla glugga að utan og innan en vatnslagnir era í þokka- legu lagi þótt einhverra breytinga sé þörf. Þá þurfti að draga í raf- lagnir því vírar vora orðnir gamlir og ekki í réttum litum, samkvæmt reglum," segir Gísli. um Morgunblaðsins hefur verið lagt hald á fyrrgreint magn fíkni- efna, sem er mesta magn e-taflna sem lögregla hérlends hefur komið höndum yfír. Nýfallinn dómur í stærsta e-töflumáli, sem áður hefur komið upp hérlendis, var ný- lega dæmt í Héraðsdómi Reykjavík- ur. Þá vora íjórir menn dæmdir í 2 'A árs fangelsi fyrir innflutning og sölu á 350 e-töflum. í því máli var hins vegar refsað fyrir allt ferl- ið frá innflutningi til smásölu til ijölda ungmenna, en í málinu sem nú er til rannsóknar er um að ræða efni sem lögregla lagði hald á áður en það fór í dreifíngu innanlands. Lífeyris- sjóði þing- manna verði breytt FRIÐRIK Sophusson íjármálaráð- herra segir eðlilegt að lög um Líf- eyrissjóð alþingismanna og Lífeyr- issjóð ráðherra verði endurskoðuð með hliðstæðum hætti og lög um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóð hjúkranarkvenna. Hann segir hins vegar eðlilegt að Alþingi en ekki fjármálaráðherra hafí foiystu um þá endurskoðun. Um síðustu áramót námu áfalln- ar skuldbindingar Lífeyrissjóðs al- þingismanna 2.460 milljónum. Áfallnar skuldbindingar Lífeyris- sjóðs ráðherra námu á sama tíma 306 milljónum. Sjóðimir eiga eng- ar eignir til að mæta útgreiðslum úr þeim. Það þykir nokkuð Ijóst að ef breyta á sjóðunum með sambæri- legum hætti og samkomulag hefur tekist um að breyta öðram Iífeyris- sjóðum ríkisins dugi ekki að ríkið hækki iðgjaldagreiðslur sínar úr 6% í 11,5%. 20% iðgjald ríkisins þykir nærri lagi. Friðrik sagði að sú hefð hefði skapast að forysta þingsins hefði framkvæði að breytingum sem lúta að kjöram alþingismanna. Þingið hefði t.d. sjálft haft framkvæði að breytingum á biðlaunarétti þing- manna. Sama hlyti að eiga við í þessu máli. Hann sagðist hins veg- ar styðja að sambærilegar breyt- ingar yrðu gerðar á lífeyrissjóðum alþingismanna og ráðherra og ákveðið hefur verið að gera á LSR. -----------» ♦ ♦------ Vilja þjóð- sönginn áfram LIÐLEGA 68% landsmanna vilja hafa núverandi þjóðsöng áfram, samkvæmt skoðanakönnun Gall- ups. Tæplega 32% vilja nýjan þjóð- söng. Alþingismaður velti nýlega upp þeirri spumingu hvort ekki væri rétt að fá annan þjóðsöng, við hlið hins eldra. í skoðanakönnun Gall- ups var spurt: Vilt þú að íslending- ar skipti um þjóðsöng eða vilt þú hafa núverandi þjóðsöng? Yfir- gnæfandi meirihluti vildi ekki breytingu. í Þjóðarpúlsi Gallups kemur fram að þetta er svipuð niðurstaða og fékkst í skoðana- könnun fyrir tveimur og hálfu ári. Samningavið- ræður um síld og karfa í London Tónlistarmenn og útgefendur kvarta við ljósvakamiðla Of lítið flutt af íslenskri tónlist FÉLAG ísl. hljómlistarmanna, Félag tónskálda og textahöfunda og Samtök hljómplötuframleið- enda hafa vakið athygli útvarps- stöðva á hlutdeild íslenskrar tón- listar í dagskrá stöðvanna. Bent er á að á Rás 1 var áætlaður flutn- ingur íslenskrar tónlistar á síð- asta ári 21% og 17,67% á Rás 2. Á Bylgjunni og á Aðalstöðinni var hlutur íslenskrar tónlistar 15% og á X-inu innan við 5% en hlut- deild íslenskrar tónlistar í sölu geislaplatna var 42% árið 1995. Spurt um stefnu „Við teljum að allt of lítið sé flutt af íslenskri tónlist í ljósvaka- miðlum," sagði Björn Th. Árna- son, formaður Félags ísl. hljóm- listarmanna. „íslensk tónlist tengist þeirri menningu sem við viljum viðhalda á þessu landi, ís- lenskri tungu, atvinnumarki og um leið lögum um ljósvakamiðla." Bjöm sagði að í erindi til út- varpsstöðvanna væri óskað eftir upplýsingum um hvort einhver stefna væri ráðandi um flutning á íslenskri tónlist, hvort um tilvilj- un væri að ræða eða hvort það væri rétt sem komið hefði fram í einu blaðanna, þar sem haft var eftir forráðamanni útvarpsstöðvar að íslensk tónlist væri léleg. „Þá er spumingin hvort um er að ræða mat einstaklinga sem stjórna þess- um stöðvum," sagði hann. „Eða hvort um er að ræða opinbera stefnu þeirra sem eiga stöðina." Bjöm sagði að hlutdeild ís- lenskrar tónlistar í dagskrá stöðv- anna væri mjög lítil borið saman við flutning erlendra útvarps- stöðva á þarlendri tónlist. í sum- um löndum hafi lagasetningu ver- ið komið á vegna innlendrar tón- listar eins og til dæmis í Frakk- landi en þar er hlutur franskrar tónlistar 40%.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.