Morgunblaðið - 16.11.1996, Síða 20

Morgunblaðið - 16.11.1996, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 ERLENT MORGUNBIAÐIÐ Tekst Korzhakov að launa Tsjúbajs lambið gráa? Getur komið sér illa fyrir Jeltsín oskvu. Reuter. Korzhakov FRIÐURINN, sem ríkt hefur milli núverandi o g fyrrverandi innanbúð- armanna í Kreml, virðist vera úti, að minnsta kosti milli þeirra Ana- tolís Tsjúbajs, skrifstofustjóra Borís Jeltsíns, for- seta Rússlands, og Alexanders Korzhakovs, fyrrverandi yfirmanns forsetalífvarðarins. Moskvublaðið Moskovskí Komso- molets birti í gær samtal milli Tsjúbajs og tveggja aðstoðarmanna Jeltsíns og sagði blaðið, að það hefði verið hlerað 22. júní sl. Það var tveimur dögum eftir að Jeltsín rak Korzhakov að kröfu Tsjúbajs, sem þá stýrði kosningabaráttu forsetans. Af blaðinu mátti skilja, að það hefði heimildir sínar frá Korzhakov eða einhveijum honum nánum. Samkvæmt samtalinu voru þeir Tsjúbajs og Víktor Íljúshín, einn helsti aðstoðarmaður Jeltsíns, að leggja á ráðin um hvernig koma mætti í veg fyrir rannsókn á máli tveggja manna, sem Korzhakov hafði látið hand- taka. Unnu þeir að endurkjöri Jeltsíns en voru að sögn með hálfa milljón dollara, 33 millj- ónir ísl. kr., þeg- ar þeir voru teknir þótt þeir og aðrir talsmenn forsetans hafí aldrei viðurkennt það. Samkvæmt því, sem fram kemur í blaðinu, hafði Íljúshín hringt í Júrí Skúratov, ríkissaksóknara í Rússlandi, og sagt honum að gera ekkert í málinu fyrr en eftir síðari umferð forsetakosninganna í sum- ar. Þá skipar Tsjúbals svo fyrir, að Korzhakov skuli sagt að þegja, „ella sting ég honum í steininn". Segist hann hafa nóg á hann, „þjófnað, morð og misþyrmingar", til að loka hann á bak við lás og slá í 15 ár. Rússneska þingið eða dúman hefur ákveðið að kanna þetta mál frekar en þar eru andstæðingar Jeltsíns í meirihluta og enginn óvin- sælli meðal þeirra en Tsjúbajs. Reuter Til stuðnings Wang NOKKUR hópur manna efndi til mótmæla í Hong Kong í gær og krafðistþess, að kínversk sljórn- völd leystu úr haldi andófsmann- inum Wang Dan. Wang var dæmdur í 11 ára fangelsi fyrir samsæri gegn ríkinu og í gær var áfrýjun hans hafnað. Voru mótmælin á sama tíma og verið var að ræða um væntanlegan héraðsstjóra í Hong Kong undir sljórn Kínveija og var Qian Qic- hen, utanríkisráðherra Kína, við- staddur fundinn. Afsögn Antonios Di Pietros áfall fyrir Ítalíustjórn Telur sig skotspón hatursfullra manna Róm. Reuter. Fljótabátur sökk á Níl Ottast að 20 hafi farist Qalh al-Jabal. Reuter. EGYPSKIR froskmenn fundu í gær fimm lík um borð í fljótabáti, sem sökk á Níl í fyrradag, en óttast er, að enn séu 12 lík ófundin. Flestir þeirra, sem fórust, voru ferðamenn frá Tékklandi og Slóvakíu. Skipið sökk í miklu veðri um 580 km fyrir sunnan Kairó og liggur nú á hliðinni í hálfu kafi. Um borð var nokkuð á annað hundrað manns, erlendir ferðamenn og Egyptar. Ekki þykja mikl- ar líkur á, að þeir, sem sakn- að er, geti enn verið á lífí inni í skipinu en þó er það ekki talið útilokað með ein- hveija. Meðal þeirra, sem fórust, eru þrír egypskir skipveijar þannig að hugsan- lega hafa 20 manns týnt lífi í slysinu. Siglt í versta veðri Ashraf Bennan, egypskur fararstjóri, sagði, að á fjórða tímanum í fyrradag hefði skyndilega komið mikil slag- síða á skipið og vatnið fallið inn. Tókst að bjarga næstífm öllum, sem voru uppi við, en þeir, sem fórust, voru aðal- lega fólk, sem hafði lagst fyrir í klefum sínum. Skipið sökk við bæinn Qalh al-Jabal og segjast íbúar þar furða sig á því, að siglingu skipsins skuli hafa verið hald- ið áfram eins og veðrið var á fimmtudag. Auk þess sé Níl mjög straumþung nú vegna mikilla rigninga í Eþíópíu á þessu ári. TALIÐ er, að ríkisstjóm Romano Prodis, forsætisráðherra Ítalíu, muni standa af sér skyndilega afsögn Antonios Di Pietros, ráðherra opin- berra framkvæmda. Di Pietro, sem er hetja í augum flestra landa sinna vegna framgöngu sinnar í spillingar- rannsóknunum á síðustu árum, er nú sjálfur sakaður um að hafa mis- notað vald sitt sem dómari og auðg- ast óeðlilega I embætti. „Þetta er áfall fyrir ríkisstjórnina en ég sé ekki fyrir mér neina stjórn- arkreppu," sagði ítalski stjómmála- fræðingurinn Franco Pavoncello og ráðherrar ríkisstjómarinnar vísuðu á bug kröfum stjómarandstöðunnar um að Prodi segði af sér. Di Pietro, sem kunngerði ákvörð- un sína á fimmtudag, segir af sér á erfiðum tíma fyrir stjómipa því að hún er nú að reyna að koma í gegn- um þingið mjög aðhaldssömum íjár- ALESSANDRA Mussolini, leikari og þingmaður, hefur sagt skilið við Þjóðarbandalagið, sem boðar fasisma, og virð- ist því ekki leng- ur eiga hug- myndafræði- lega samleið með afa sínum, Benito Mussol- ini, fyrrverandi leiðtoga Ítalíu. Mussolini sagði að ástæð- an fyrir því að hún yfirgæfi flokkinn væri „pólit- ískur ágreiningur" og flutti sig yfir á vinstri vænginn til flokks, sem nefnist Sjálfstæðisráðið. Hún er þingmaður fyrir Þjóð- arbandalagið í Napolí og telst enn félagi í flokknum, en ekki er búist við að það vari lengi. Hún hefur verið í flokknum í fjögur ár og margir félaga hennar urðu bæði klökkir og hamingjusamir þegar lögpim fyrir næsta ár. Það var því mikill sigur fyrir hana í gær þegar neðri deildin samþykkti þau að mestu leyti, aðeins nokkrum klukku- stundum eftir að Di Pietro sagði af sér. Gert er ráð fyrir að lækka fjár- lagahallann um 3.700 milljarða kr. á næsta ári. Afsögn með tilþrifum Di Pietro sagði af sér með sömu tilþrifunum og einkennt hafa allan hans feril. Þegar hann komst að því, að málefni hans væru til rannsóknar, skrifaði hann Prodi og sagði, að hann væri skotspónn hatursfullra manna, sem vildu sverta hann og spillingar- rannsóknimar, sem steyptu af stóli ef svo má segja hinni ráðandi stétt. Bað hann Prodi að láta það vera að biðja sig að sitja áfram. Di Pietro hefur áður sagt af sér embætti í mikilli skyndingu. Hann hún bauð sig fram fyrir hann snemma árs 1992. Það þótti ekki lítill ávinningur að nafnið Mussol- ini skyldi standa á framboðslist- um flokksins. Reif upp flokkinn Áhrifa þess að hún gekk til liðs við flokkinn var skammt að bíða. Bæði sýndu fjölmiðlar flokknum nú meiri athygli en áður og kjós- endur urðu einnig örlátari á at- kvæði sín til samtaka, sem höfðu verið í kuldanum í hálfa öld. Auknar vinsældir flokksins og nýtt nafn, sem var tekið upp til að veiða atkvæði á miðjunni fyrir síðustu kosningar, leiddu hins vegar til þess að hörðustu flokks- hætti sem dómari í desember 1994 skömmu eftir að rannsókn hófst í máli Silvio Berlusconis, þáverandi forsætisráðherra, en hann var sak- aður um mútur. Aldrei gefur fengist skýring á þeirri ákvörðun hans. Trúa á sakleysi hans Sagt er, að ýmsir samráðherrar Di Pietros gráti afsögn hans þurrum tárum en á Ítalíu er mikill áhugi á þessu máli og hvað við muni taka hjá Di Pietro. Samkvæmt skoðana- könnun í dagblaðinu Corriere della Sera telja 59%, að hann sé saklaus og takist honum að hreinsa nafn sitt þykir ljóst, að vinsældir hans muni aukast um allan helming. Þetta er raunar ekki í fyrsta sinn, sem hann er sakaður um að hafa óhreint mjöl í pokahominu því að dómarar í Bresc- ia sökuðu hann um spillingu en ákær- um þeirra var vísað frá í apríl sl. mennirnir fóru að efast um heil- indi barnabarns „II Duce“ eða leiðtogans og gruna hana um óviðeigandi hófsemi. Grunsemdir um að hún væri farin að hneigjast til vinstri vökn- uðu fyrst þegar hún lofsöng An- tonio Bassolino, hinn vinstrisinn- aða borgarstjóra Napólí, sem jafnframt átti að heita hennar helsti andstæðingur. Eftir að Mussolini, sem einnig er frænka leikarans Sophiu Lor- en, eignaðist barn í fyrra fór að bera á stuðningi við feminisma, fóstureyðingar og réttindi sam- kynhneigðra í málflutningi henn- ar. Hún og sex aðrar konur úr röðum þingmanna komust í frétt- Róm. The Daily Telegraph. Alessandra Mussolini segir skilið við fasista Alessandra Mussolini Foringj- ar styðja Mladic Han Pyesak. The Daily Telegraph. GLUNDROÐI var meðal serbneskra yfirvalda í Bosníu á miðvikudagskvöld eftir að Biljana Plavsic, forseti Bosn- íu-Serba, reyndi að svipta Ratko Mladic, sem hefur ver- ið sakaður um stríðsglæpi, embætti yfirmanns hersins. Þótt Mladic og tugir stuðn- ingsmanna hans hafi verið reknir um helgina er ekki að sjá að þeir hyggist virða þá ákvörðun. Á þriðjudag lýstu 100 stuðningsmenn Mladic úr foringjasveit hers Bosníu- Serba yfir því að þeir ætluðu að reka sína eigin herstjórn í nokkrum sprengjubirgjum í Han Pijesak, þar sem Josip Tito marskálkur hafði eitt sinn bækistöðvar. í yfirlýsingunni sökuðu foringjarnir Plavsic um að ógna stöðugleika í lýðveldinu Srpska, þeim hluta Bosníu, sem Serbar ráða. „Tvöföld stjóm hersins flækir ástandið í lýðveldinu Srpska, en her- ráðið [sem styður Mladic] framkvæmir allar skyldur sínar,“ sagði í yfirlýsingunni. Arekstrar- hætta yfir Skotlandi London. Reuter. FLUGSTJÓRAR farþega- þotna British Airways og AirUK segja flugvélar sínar hafa verið hættulega nálægt hvorri annarri yfir Skotlandi í fyrradag. Tjlkynntu báðir um árekstrarhættu til bresku flugmálastjórnarinnar (CAA). Þota British Airways, af gerðinni Boeing-767, var á leið frá London til Edingborg- ar og Fokker F-100 þota AirUK á leið frá Amsterdam til Glasgow er leiðir þeirra skárust í 20.000 feta flug- hæð. Óljóst er hversu langt var á milli þeirra en flugmenn geta tilkynnt um árekstr- arhættu ef hæðaraðskilnaður er innan við 1.000 fet og lá- réttur aðskilnaður allt að 8 km. Flugmenn beggja áttuðu sig á hvert stefndi. Talsmaður CAA sagði, að rannsókn á atvikinu hefði verið sett í gang í gær. ir þegar þær fengu samþykkt frumvarp, sem herti viðurlög við nauðgun svo um munaði. Lög þessi komu í stað laga, sem afi hennar setti á fjórða áratugnum. Hún gagnrýndi einnig hægri- sinnaða snoðhausa, sem settu allt á annan endan á fæðingarstað afa gamla, með orðunum: „Þetta mundi aldrei gerast ef vinstri- menn ættu í hlut.“ Hún sagði for- ustu flokksins vera einráða og reyna að þagga niður í þeim, sem væru á öndverðum meiði. „Einn af mínum göllum er sá að ég segi alltaf það, sem ég hugsa, en hið pólitíska umhverfi einkennist af hræsni og þagna- reiði mafíunnar," sagði Mussolini. Flótti Mussolini frá fasistum kemur mönnum því ekki að öllu leyti í opna skjöldu. Hann gæti hins vegar valdið vandræðum þjá flokknum, sem hefur þrefaldað styrkleika sinn á þingi frá því að hún gekk til liðs við hann. I i t ! ) ) ) I > I f

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.