Morgunblaðið - 19.11.1996, Side 1

Morgunblaðið - 19.11.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1996 ■ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER BLAÐ Arsenal vill skoða Árna Gaut Arason ÁRNI Gautur Arason, hetja ungmennaliðs íslands í 1:0 sigri á írum í Evrópukeppni IJ-21 liða í knattspyrnu á dög- unum, fékk í kjölfarið tilboð um að æfa með tveimur ensk- um liðum, Stoke og Arsenal, og gerir ráð fyrir að fá nán- ari upplýsingar frá Arsenal í dag. „Eftir leikinn við Ira talaði einn af þjálfurum Arsenal við Sigurð Jónsson og sagðist hafa áhuga á að fá mig á æfíngar þjá liðinu,“ sagði Árni Gautur við Morgunblað- ið í gærkvöldi, en sem kunn- ugt er, er Sigurður fyrrum leikmaður enska úrvalsdeild- arliðsins. „Siggi sagði mér frá þessu og áréttaði það eftir að félagið hafði aftur haft samband við hann. Talað hef- ur verið um að ég æfi með liðinu í tvær vikur og ég geri ráð fyrir að það verði í byrjun desember en mér stendur líka til boða að æfa með Stoke,“ sagði markmaðurinn, sem skipti nýlega úr ÍA í Stjöm- una - gerði samningtil eins árs - og æfði í fyrsta sinn með Garðbæingum í gær- kvöldi. ISLANDSMOTIÐ I VAXTARRÆKT Á hæsta þrepi ÍSLANDSMÓTIÐ í vaxtarrækt fór fram um hejgina og var keppt í níu flokkum. Á myndinni að ofan er Magnús Bess Júliusson, íslandsmeistari í opnum flokki karla, en á hinni myndinni eru þrjár efstu í opnum flokki kvenna. Nína Óskarsdóttir, ís- landsmeistari, er í miðjunni, Mar- grét Sigurðardóttir, sem varð í 2. sæti, er til hægri og til vinstri er Björg Einarsdóttir, sem hafn- aði í þriðja sæti. KNATTSPYRNA Tillaga um 12 lið í 1. deild og breytta bikarkeppni Um helgina sendi KSÍ út tillögur um breytingar á lögum og reglugerðum sem verða lagðar fyrir ársþing sambandsins um aðra helgi. Þar er ma. tillaga frá Breiðabliki, Fylki og Þrótti um fjölgun liða í 1. og 2. deild karla úr 10 í 12. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að eftir deildarkeppnina 1997 leiki liðið í 9. sæti í 1. deild við liðið í 4. sæti 2. deildar og liðið í 10. sæti 1. deildar við liðið í 3. sæti 2. deildar um tvö laus sæti í 1. deild 1998. Leikið verði heima og að heiman en tvö efstu liðin í 2. deild færist upp í 1. deild. í tillögunni kemur fram að fjögur efstu lið 3. deildar færist í 2. deild 1998 og sigurvegarar fyrstu um- ferðar átta liða úrslita 4. deildar færist í 3. deild en leikið verði um tvö sæti í 2. og 3. deild á sama hátt og fyrr er nefnt varðandi 1. deild. Óbreyttur fjöldi hjá KSÍ Stjórn KSÍ leggur fram tillögu um breytingu á heiti deilda. Hún gerir ráð fyrir fjórum deildum í meistaraflokki karla og vill nefna efstu deild 0. deild, sem verði skip- uð 10 liðum, en stjórnin ákveði á hveiju ári nafn hennar. Síðan komi 1. deild með 10 liðum, 2. deild með 10 liðum og 3. deild með liðum sem ekki eiga sæti í fyrrnefndum deild- um. Samsvarandi breyting er lögð til í meistaraflokki kvenna en í greinargerð með tillögunni kemur fram að breytingin sé sett fram til að styrkja stöðu KSÍ og samtaka 1. deildar félaga karla og kvenna í samningum við aðalstyrktaraðila deildanna og tryggja sem unnt er að niðurstaðan verði virt af öllum. Bikarkeppni í fyrra horf Knattspyrnufélag ÍA leggur til að í aðalkeppni bikarkeppni karla verði 16 lið, liðin í 1. deild og þau sex lið sem komast áfram úr svæða- skiptri undankeppni en slíkt fyrir- komulag var við lýði til 1993. ■ STALDUR/D2 HANDKIMATTLEIKUR: KA í ÁTTA LIÐA ÚRSUT EM / D3 Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð Vinningar Samtals: Vinnings- upphæð Vinningar vinninga 'FjiirtiilíRir 1. vinnlRiguir Vertu viöbtiin(n) vinningi 1. vinningur er áætiaður 40 miiljónir kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.