Morgunblaðið - 20.11.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 21
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HART barist um sálina hans Jóns, Árni Salomonsson sem óvinurinn sér eftir sálinni inn um hlið himnaríkis. Ómar Bragi Walderhaug er
kerlingin, Oddný Sverrisdóttir Lykia-Pétur sem fylgist grannt með. Á myndinni til hægri er Hala-leikhópurinn sem stendur við Gullna-hliðið.
Himnaríki án þröskulda
LEIKLIST
Ilalalcikhópurinn
GULLNA HLIÐIÐ
Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson
Leikstjóri Edda V. Guðmundsdóttir
Tónlist, leikhljóð: Kristinn Baldvins-
son Lýsing: Vilhjálmur Hjálmars-
son/Axel Om Amarson Förðun:
Harpa Ingólfsdóttir Aðalleikendur:
Ómar Bragi Walderhaug,Jón Eiríks-
son, Guðrún Ólafsdóttir, Ámi Salom-
onsson, Kristinn Baldvinsson, Oddný
Sverrisdóttir. Fmmsýning, Hátúni
10, Reykjavík, 16.11.
EKKI fer á milli mála, að Hala-
leikhópurinn er einn eftirtektarverð-
asti leikhópur áhugamanna hérlend-
is. Þótt aðstæður séu ekki upp á
það besta og flestir leikarar þurfí
að beijast við fötlun af ýmsu tagi
hefur mér jafnan þótt mikil upplyft-
ing af því að sjá sýningar hópsins.
Kannski er það einmitt vegna þess
að í sýningum þeirra verður augljós
sigur mannsins yfir efninu, andleg
reisn hans og styrkur.
Það var því með nokkurri eftir-
væntingu og tilhlökkun að ég fór
að sjá Gullna hliðið í meðförum
Halaleikhópsins. Það er skemmst
frá því að segja að hópurinn brást
ekki vonum mínum frekar en fyrri
daginn. Þessi sýning er ágætlega
unnin innan þess ramma sem hún
setur sér. Hún flæðir áfram hnökra-
laust svo það koma aldrei brestir í
innlifunina og það út af fyrir sig
er ekki svo lítið atriði og meira en
margur getur státað af. Þetta ber
tvímælalaust að þakka Eddu V.
Guðmundsdóttur sem hefur leik-
stýrt Halaleikhópnum um árabil og
þekkir bersýnilega orðið sitt fólk.
Leikmyndin er einföld en notadijúg
og henni er haganlega fyrir komið
í takmörkuðu rými. Þá hæfa búning-
arnir ágætlega efninu og ímynd-
uðum tíma verksins.
Flestir reyndustu leikarar leik-
hópsins skipa sér í aðalhlutverkin
og standa sig með ágætum. Jón
Eiríksson er úfínn og kjaftfor sem
Jón kotbóndi. Guðrún J. Ólafsdóttir
er roggin sem Vilborg grasakelling
og hefur ágæta framsögn. Kristinn
Baldvinsson kitlaði hláturstaugar
áhorfenda sem falskur og væminn
presturinn, og Oddný Sverrisdóttir
var sköruleg og rósemin uppmáluð
í hlutverki Lykla-Péturs. Aðrir sem
fylltu út í sýninguna í aukahlutverk-
um gerðu sínum atriðum góð skil.
Þá eru ótaldir þeir tveir leikarar sem
gera þessa sýningu eftirminnilega,
en það eru þeir Arni Salomonsson
sem óvinurinn, skrattinn sjálfur, og
Ómar Bragi Walderhaug í hlutverki
hinar mæddu, heittrúuðu og ráða-
góðu kerlingar hans Jóns. Arni fór
prýðilega með bundinn texta Davíðs
Stefánssonar og sýndi góð leikræn
tilþrif á sviðinu. Og Ómar Bragi var
svo kankvís og fundvís á glettnina
sem hlutverkið býður upp á og hann
sjálfur býður upp á í kvenhlutverki
að það var hin besta skemmtan.
Og honum tókst líka að koma til
skila hógværð þessarar einföldu al-
þýðukonu og mikilli mæðu hennar
svo snerti hjartataugarnar. Og það
er einmitt til þess sem fólk fer í
leikhús.
Fari nú sem flestir í Hátúnið.
Hafi verið einhveijir þröskuldar á
leiðinni þangað, hefur Halaleikhóp-
urinn rutt þeim úr braut.
GuðbrandurGíslason
Jazzkvöld
í Mótel
Venusi
TÓNLISTARFÉLAG Borgarfjarðar
og „Tónlist fyrir alla“ standa að
tónleikum með Jazzkvartett
Reykjavíkur í Mótel Venusi,
fimmtudagskvöidið 21. nóvember
kl. 21. Flytjendur eru Sigurður
Flosason altó saxófónn, Eyþór
Gunnarsson píanó, Tómas R. Ein-
arsson kontrabassi og Einar Valur
Scheving trommur.
Tónlistarflutningur hljómsveitar-
innar er að mestu lög eftir þá Sig-
urð Flókason og Tómas R. Einars-
son. Tónlistin er nútímalegur og
órafmagnaður jazz. Einnig leikur
hljómsveitin fjölbreytta efnisskrá
eftir ýmsa erlenda höfunda. Jazz-
kvartettinn mun næstu daga heim-
sækja grunn- og framhaldsskóla-
nemendur á Vesturlandi á vegum
Tónlistar fyrir alla í samvinnu við
sveitarfélögin í fjórðungnum.
-----» » ♦---
Upplestur
í Gerðarsafni
UPPLESTRARRÖÐ Ritlistarhóps
Kópavogs heldur áfram í kaffistofu
Gerðarsafns, fimmtudaginn 21.
nóvember milli kl. 17 og 18. Gestir
þessa vikuna verða Birgir Svan
Símonarson, Guðríður Lillý Guð-
björnsdóttir og Kjartan Árnason.
Gestir munu að vanda hafa fijáls-
ar hendur um íjörutíu mínútna
skeið, gefa ljóðmyndir, hljóðmyndir
og jafnvel leikmyndir af verkum
sínum.
MYNDLIST
Ú m b r a
LJÓSMYNDIR/ TEXTAR
Sari Tervaniemi. Opið þr.-laug.
13-18, sunnudaga 14-18 til 21
nóvember. Aðgangur ókeypis.
MYNDLISTARKONAN vinnur
með ljósmyndir og texta með tölvu
og einnig myndbandsverk. Við-
fangsefnið er er að skoða viðhorf
manna í nútímasamfélagi og verkin
sem hún sýnir eru úr seríunni
„Darkly comics“ eða Gálgahúmor
frá þessu ári. Um er að ræða sex
stórar tölvumyndir 1X2 m að stærð,
sem hún segir að séu sálrænt rými
fyrir sögur af fólki sem býr í samfé-
lagi þar sem karlar og ijölmiðlar
ráða ríkjum. Samfélagi, sem hefur
búið til hugmyndina um að ná hrað-
astri og mestri ánægju með neyslu.
Sögurnar segja frá smáum og stór-
um félagslegum hremmingum og
andlegum truflunum. Eiginhags-
munaseggir sjást í undarlegri stöðu,
firrtir samfélagi við annað fólk, að
beina tilfínningum sínum og kyn-
þörf að dauðum
hlutum, sumir
sakbitnir og
áhyggjufullir
vegna einhvers
sem þeir geta ekki
skýrt, sumir fullir
þráhyggju um
eina afmarkaða
hugmynd, aðrir
finna ekki heimili
hjá sér. Heimilis-
spenna þar sem
flókin margræð
eða brotin sjálfs-
ímynd leiðir til
draugalegra
endurtekninga.
Þetta er í fáum
dráttum inntak sýningarinnar, svo
sem fram kemur í skrá, og er mjög
í anda samræðu dagsins svo sem
við sjáum hana og meðtökum frá
yngri kynslóð listamanna sem vinn-
ur í hátæknimiðla. Það er svo mjög
rétt og heilbrigt að vera virkur í
sínum tíma og
sínu umhverfi og
eru í sjálfu sér
engin ný sannindi.
Hins vegar er
skráargat þessa
veruleika iðulega
frekar lítið og
sjónarhornið
þröngt þar sem
það gengur helst
út frá því að vera
á móti ákveðnu
samfélagsmynstri
og vera þó virkur
og ólmur þátttak-
andi í því um leið.
Myndmálið verð-
ur þannig ófrá-
víkjaniega mjög einhæft og staðlað
og textarnir sömuleiðis því hvoru-
tveggja gengur út frá síbylju sem
gerist neyðarlega fljótt leiðigjörn og
innihaldslaus. Þannig verður ekkert
jafn leiðigjarnt og staðlaðir frasar
um kynlíf eða gróf ástþrungin tján-
ing á myndfleti sem ekki er borin
uppi af neinni tegund skynrænna
lífsmagna í lit og efnismeðferð.
Þetta er einn angi myndræns öfug-
uggahátar og klámbylgju sem ruðst
hefur fram á vettvanginn á undan-
förnum árum í samfloti við yfir-
gengilegan hávaða og sjónrænt ljós-
flóð líkt og á rokktónleikum.
Þá er því ijarri að karlar ráði
alfarið ríkjum í samfélaginu svo sem
sér greinilegast stað í listum, þar
sem konur eru víðast í meirihluta
er svo er komið og það er fólkið að
baki fjölmiðlanna sem stjórnar og
ræður og því þarf að kafa dýpra í
samfélagsvettvanginn en að vera
stöðugt með sömu tuggurnar. Flest-
ir munu vera sammála því að tölvan
geti aldrei orðið annað en hjálpar-
tæki, en hins vegar er það kórvilla
að eitthvert ákveðið afmarkað form
listar sé öðru nýstárlegra. Það ber
í sér keim af bókstafstrú, því það
er útfærslan sjálf, lifunin og fersk-
leikinn, sem máli skiptir í skapandi
athöfnum og án þeirra þátta kemst
enginn langt. Ei heldur með því að
afgreiða og útiloka aðra miðla nýj-
um sannleika til framdráttar ...
Bragi Ásgeirsson
„Gálgahúmor44
EITT af verkunum sem
Tervaniemj sýnir í Gallerí
Umbru.
gönguskor
Makalu dömu- og herraskór
Skórnir tyrir veiðimanninn og þá sem tara
í lengri gönguferðir.
Hágæðaleður, saumlaus nsðri skór. Gore-
tex i innra byrði, góð útöndun.Vibram
Multigriff sóli.
Makalu, stærðir 40-46 Kr. 18.700,-
Makalu Pro, stærðir 40-46 Kr. 19.500.-
-ferðin gengur vel á Meindl
HSÖTIIJFHffl
OLÆSIBÆ . S/MI081 2923
Opinbók
á Hótel ísafirði
Sex höfundar lesa úr verkum sínum
MENNINGARMIÐSTÖÐIN Edin-
borg stendur fyrir Opinni bók,
kynningu á nýútkomnum skáld-
verkum frá Máli og menningu og
Forlaginu, á Hótel Isafirði, sunnu-
daginn 24. nóvember kl. 16.
Eftirtaldir höfundar lesa úr
verkum sínum; Einar Kárason
kynnir nýtt smásagnasafn, Böðvar
Guðmundsson með framhald af
sögu sinni um Vesturfarana, Guð-
mundur Andri Thorsson les úr ís-
landsförinni, ævintýralegri ferða-
sögu frá 19. öld, og Þórarinn Eld-
járn er með sögulega skáldsögu
um brotamann.
Tveir ungir höfundar lesa úr
sínum fyrstu skáldsögum; Gerður
Kristný úr Regnbogi í póstinum
og Andri Snær Magnason úr Eng-
ar smá sögur. Gísli Sigurðsson
íslenskufræðingur flytur erindi um
hvernig má rannsaka munnlega
hefð á miðöldum.
Tónlistarflutningur og kaffi-
veitingar. Allir velkomnir.
Freysteinn Bjamason
er útgerðarstjóri Síldarvinnslunnar hf. Neskaupstað.
Hann er
Vélf neðinaur...
Starf hans felst í umsjón með útgerð og úthaldi fimm
skipa sem Síldarvinrtslan gerir út. Vélfræðimenntunin
gerir það að verkum að Freysteinn hefur góða yfirsýn
og innsýn í það sem lýtur að viðhaldi og innkaupum
á flóknum tæknibúnaði til nútímafiskveiða.
Vanti ykkur traustan starfsmann
með víðtæka sérmenntun á taeknisviði,
bæði bóklega og verklega,
þá eru þið að leita að vélfræðingi.
Nánari upplýsingar veitir:
Vélstjórafélag
íslands
Borgartúni 18,105 Reykjavík
Sími: 562-9062
Við skiptum við
SPARISJÓÐ VÉLSTJÓRA