Morgunblaðið - 20.11.1996, Síða 52
<<3<3Y1JNDAI
HÁTÆKNI TIL FRAMFARA
m Tæknival
SKEIFUNNI 17
SlMI 550-4000 ■ FAX 550-4001
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<SCENTRUM.IS / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTl 1
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Forystumenn ASI-fólks í störfum hjá hinu opmbera
Morgunblaðið/Soren Steffen (Nordfoto)
Hlýjar móttökur í Kuge
ÓLAFUR Ragnar Grímsson,
forseti íslands, og kona hans
frú Guðrún Katrín Þorbergs-
dóttir fengu hlýjar móttökur,
þrátt fyrir hryssingslegt veður,
er þau komu til bæjarins Kege
á Sjálandi í gær. Börn veifuðu
íslenzkum fánum og heilsuðu
forsetahjónin upp á nokkra
Kogebúa af yngri kynslóðinni.
Forsetahjónin fóru einnig að
Stórabelti í gær og skoðuðu hin
miklu samgöngumannvirki,
sem þar eru í smíðum. Ólafur
Ragnar varð fyrsti erlendi þjóð-
höfðinginn til að fara um nýju
járnbrautargöngin, sem liggja
samhliða Stórabeltisbrúnni á
kafla.
■ Fyrsti þjóðhöfðinginn/6
Ætla ekki að sætta sig
við lakari lífeyriskjör
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Víkingar við
Ægisgarð
ÞESSIR sægarpar renndu að
Ægisgarði í Reykjavíkurhöfn í
gær á víkingaskipinu Islendingi.
Þarna voru á ferð tólf ára börn
í Seljaskóla, en frá í haust hafa
um 1.200 nemendur Grunnskóla
Reykjavíkur farið í stuttar sjó-
ferðir á íslendingi um sundin blá
í boði Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur og Reykjavíkur-
hafnar.
Skipstjóri er Gunnar Marel og
undir stjórn hans stýrðu krakk-
arnir og reru knálega að víkinga-
sið. „Tvo tólf ára nemendur
þurfti á stærstu árarnar en þeim
gekk greiðlega með þær minni,“
sagði Gunnar.
Björk fær
tónlistar-
verðlaun
Norður-
landaráðs
SÖNGKONAN Björk Guðmunds-
dóttir fær tónlistarverðlaun Norð-
urlandaráðs árið 1997. Tilkynnt
var um niður-
stöðu dómnefnd-
ar seint í gær-
kvöldi.
í frétt frá
dómnefndinni
segir, að Björk
hafi þróað sinn
eigin stíl og
ævinlega verið
trú hugsjónum Björk
sínum. Henni Guðmundsdóttir
hafi tekist að
þróa list sína í mörg ár með „há-
marksástríðu“ og vinsældir hennar
út um allan heim væru miklum
tónlistarhæfileikum að þakka.
Arni Harðarson, sem átti sæti
í tilnefningarnefnd vegna verð-
launaveitingarinnar, sagði í sam-
tali við blaðið á miðnætti að þessi
ákvörðun sýndi mikla breidd í
dómnefndinni og myndi eflaust
vekja athygli.
Verðlaunin eru að upphæð
krónur 350.000 danskar og verða
þau afhent 3. mars á næsta ári í
Ósló. Verðlaunin komu síðast í
hlut íslendings árið 1986 þegar
Hafliði Hallgrímsson hlaut verð-
launin.
Lyfjareikningur til TR
aldrei hærri en í október
LYFJAREIKNINGUR til Tryggingastofnunar rík-
isins vegna þátttöku í kostnaði af lyfseðilsskyldum
lyflum var 301 milljón fyrir október. Það er 22
milljónum meira en í júlí þegar útgjöld stofnunar-
innar voru hærri en þekkst hafði áður fyrir einn
mánuð, að sögn Kristjáns Guðjónssonar, deildar-
stjóra í sjúkratryggingadeild TR.
Þrátt fyrir þetta er hlutur Tryggingastofnunar
ríkisins í lyfjakostnaði reiknaður rúmum 6,7 millj-
örðum króna minni á tímabilinu 1991 til 1996 ef
miðað er við að reglum um greiðslur almanna-
trygginga þar að lútandi hefði ekki verið breytt.
Lyfjakostnaður fyrir 1996 er áætlaður 5,2 milljarð-
ar og að þátttaka Tryggingastofnunar í honum
sé rúmir 3,3 milljarðar.
Lyfjareikningur til Tryggingastofnunar var 2,9
milljarðar árið 1995 eða 241 milljón króna á
mánuði að meðaltali að Kristjáns sögn. „Reikning-
urinn fyrir október sló öll fyrri met, sem við viljum
rekja til auglýsingaflóðs og afsláttartilboða lyfja-
búðanna,“ segir hann.
Kristján segir að þótt læknar verði að ávísa á
lyf sem Tryggingastofnun tekur þátt í að greiða
aukist þrýstingur á þá að gefa út lyfseðla við
þessar kringumstæður.
Lyfjareikningur til TR í júlí var 279 milljónir
og var aukningin skýrð með því að ný lyf og
dýrari væru á markaði auk þess sem kostnaður
fellur á stofnunina við aukna aðhlynningu sjúkra
í heimahúsum en ekki á spítalana.
Kristján segir aðspurður hvort innkaupsverð
lyfja sé hærra hér en í nágrannalöndum að slíkt
hafi verið kannað. Tíu lyf hafi fundist sem reynd-
ust umtalsvert dýrari hér en á Norðurlöndum og
hafi verðlækkunar verið krafist. „Lyfjaverðs-
nefnd er með það á sínu borði. Þetta voru hins
vegar miklu færri lyf en við bjuggumst við.“
Hann segir ennfremur að sjúklingar séu ekki
einir um að hafa notið góðs af lækkunum því
Tryggingastofnun hafi samið um tiltekinn afslátt
við félag lyfsöluleyfishafa frá 1. ágúst til ára-
móta. Samið var um þak þannig að afslátturinn
yrði ekki meiri en 85 milljónir á samningstímanum
og segir Kristján að því hafi verið náð með lyfja-
reikningum fyrir september og október.
„Það hefur sýnt sig í heilbrigðisgeiranum að
eftir því sem framboð eykst, eykst eftirspurnin,
öfugt við venjuleg hagfræðilögmál. Eftir því sem
lyfjabúðum fjölgar, verður selt meira. Það er okk-
ar skoðun. Auglýsingarnar hafa bein og óbein
áhrif til aukinnar sölu á öllum lyfjum," segir Krist-
ján loks.
■ Reiknaður kostnaður/26
FORYSTUMENN stéttarfélaga og
sambanda innan ASI sem hafa
félagsmenn í störfum hjá ríki og
sveitarfélögum telja að nýgert
samkomulag ríkisins og samtaka
opinberra starfsmanna um breyt-
ingar á Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins muni valda umtalsverðum
vandræðum í komandi kjaravið-
ræðum. Ekki verði við það unað
að starfsmenn innan ASÍ sem
starfa hjá ríki og sveitarfélögum
búi við lakari kjör þegar ákveðið
sé að bæta kjör og lífeyrisréttindi
opinberra starfsmanna.
Verður tekið upp
í kjaraviðræðum
Gert er ráð fyrir því í samkomu-
lagi ríkisins og opinberra starfs-
manna að lífeyrisiðgjald _ ríkisins
hækki úr 6% í 11,5%. Á annað
þúsund félagsmanna í starfs-
mannafélaginu Sókn starfa hjá
hinu opinbera. Þórunn Sveinbjöms-
dóttir, formaður Sóknar, segir að
fljótt á litið virðist ætlun stjóm-
valda vera sú að nýja lífeyriskerfið
standi ekki opið fyrir Sóknarkon-
um. Hún segir það sína skoðun að
ef eigi að mismuna Sóknarkonum
að þessu leyti sé það brot á jafn-
ræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Þórunn segir að þessi mál verði
skoðuð mjög rækilega á næstunni
og þau verði tvímælalaust tekin
upp í komandi kjaraviðræðum.
„Þessu verður mætt af mjög mikl-
um þunga,“ segir hún.
Veldur flækjum
hjá Pósti og síma
Nokkur hundmð félagsmenn í
Rafiðnaðarsambandinu starfa hjá
ríki og sveitarfélögum og þar af
eru á þriðja hundrað rafíðnaðar-
manna við störf hjá Pósti og síma.
„Þetta á eftir að flækja málin
mikið til dæmis hjá Pósti og síma.
Við erum að afla okkur upplýsinga
um hvaða réttindi er þarna að
ræða. Við áttum okkur ekki fylli-
lega á hvað vakir fyrir mönnum
með þessu,“ segir Guðmundur
Gunnarsson, formaður sambands-
ins.
„Póstur og sími hefur sett fram
óskir um að gera einn kjarasamn-
ing fyrir allt sitt starfsfólk. Það
gengur ekki upp að hluti starfs-
manna eins og sama fyrirtækisins
séu í lífeyrissjóði sem veitir mun
betri réttindi en annar hluti starfs-
fólksins býr við. Ef í ljós kemur
að þarna er um slíkan mun að
ræða á milli opinbera lífeyris-
sjóðsins og SAL-sjóðanna hlýtur
það að leiða til þess að þeir sem
ekki njóta þess að vera i þeim
sjóði geri kröfu um að fá það
borgað út í launum,“ segir Guð-
mundur.