Morgunblaðið - 20.11.1996, Side 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 BLAD
Ráðstefnur
3 Gædi, vald, mark
aðir, hótanir og
möguleikar
Aflabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipa
Markaðsmál
0 Sérhæfð fram-
leiðsla vænleg
leiðfyrir minni
fyrirtækin
Greinar
7 Samúel
Guðmundsson
Útflutningur á ferskri
ýsu hefur aukizt um 56%
Á LÍNU Á LÓNSBUGT
• SKIPVERJARNIR á Særúnu
HF 4 voru að fá góðan þorsk á
línuna útí á I.ónsbugt á dögnnuni
og ein og ein ýsa slæddist með.
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirason
Það er skipstjórinn Valdimar S.
Halldórsson, sem er hér með sýn-
ishorn af aflanum.
UTFLUTNINGUR á ferskri
r tí ni . • __ * n____________ ýsu á fiskmarkaðina í Bret-
Utflutnmgur a ferskum iandi hefm aukizt um se% &
kAnclrJ í lófririQrkÍ fyrstu lf) mánuðum þessa árs
i'Ul OlV.1 1 lagllldl Ivl miðað við sama tíma í fyrra.
Verðið hefur hins vegar lækkað um 2%. Á sama tíma hefur sala á ýsu á innlend-
um mörkuðum aukizt um 8% og verðið lækkað um 8%. Útflutningur á þorski
á sömu markaði er nú 6% meiri en á sama tíma í fyrra en verðið hið sama. Sala
á þorski á innlendum mörkuðum hefur aukizt um 9% en verð lækkað um 4%.
Alls fóru um 7.450 tonn af ísaðri
ýsu utan á þessa markaði til loka októ-
bermánaðar, en 4.670 á sama tíma í
fyrra. Alla mánuði þessa árs hefur
farið meira utan en í sömu mánuðum
í fyrra að undanskildum maí og októ-
ber. Oftast hefur verðið verið lægra
en í fyrra, en meðalverð nú er 108
krónur. Ljóst virðist að eftirspurn ytra
sé tæpast næg til að taka við auknu
framboði héðan, en þess verður einnig
að geta að framboð á ferskri ýsu frá
öðrum löndum, svo sem Færeyjum,
hefur einnig aukizt mikið.
Fyrstu 10 mánuði þessa árs voru
seld rúmlega 12.000 tonn af ýsu á
innlendu fiskmörkuðunum, um 900
tonnum meira en í fyrra. Meðalverð
var 81 króna og hafði lækkað um 8%
miðað við sama tímabil í fyrra.
Aukning og verðlækkun
innan tands
Útflutningur á ferskum þorski á
brezku uppboðsmarkaðina hefur verið
í lágmarki síðustu árin eftir mikinn
samdrátt. Fyrstu 10 mánuði ársins
fóru aðeins tæp 1.600 tonn á þessa
markaði sem er tæpum 90 tonnum
meira en á sama tíma í fyrra. Þar ríð-
ur baggamuninn 300 tonna útflutning-
ur í október nú á móti 90 tonnum í
fyrra. Meðalverð nú er 129 krónur,
hið sama og í fyrra.
Sala þorsks á innlendu mörkuðunum
er nú nærri 30.000 tonn á móti 27.500
í fyrra. Meðalverð er 92 krónur og
hefur lækkað um 3 krónur.
Fréttir
Loðnukvótinn
1600 þús. tonn
• HAFRANNSÓKNA-
STOFNUN leggur til að
heildarloðnukvóti á vertíð-
inni 1996/1997 verði 1.600
þúsund tonn sem er í sam-
ræmi við fyrri spár um
stofnstærð og aflamark í
loðnu./2
Urelding
fiskiskipa
• STYRKIR til úreldingar
fiskiskipa, sem veittir hafa
verið úr Þróunarsjóði sjáv-
arútvegsins frá stofnun
hans fyrir tveimur árum,
nema nú þegar rúmum
tveimur og hálfum millj-
arði króna. Þessum styrkj-
um hefur verið varið til
úreldingar 366 fiski-
skipa./2
Vöruvottun
er mikilvæg
• UMHVERFISMERKING
vöru, vottun, þar sem fram
kemur uppruni hennar og
meðhöndlun er stórmál í
framleiðslu fyrir nútíma
neytendur, sem vilja vita
hvort tekið sé tillit til um-
hverfisins eða ekki. Þetta
gildir jafnt um fisk sem og
aðra vöru./3
Hætta á hruni
í Norðursjó
• ÞORSKSTOFNINN í
Norðursjó er að hrynja og
sóknin í hann er meiri en
í þorskstofnana á Mikla-
banka við Nýfundnaland
áður en þeir hrundu 1992.
Kemur þetta fram í yfirlýs-
ingu sérstakrar vísinda-
nefndar Evrópusambands-
ins sem hefur verið ráðgef-
andi varðandi fiskveiði-
stjórnunina./3
Skyldleiki
karfastofna
• ÞESS er vænst að erfða-
fræðirannsóknir geti varp-
að nýju Ijósi á stofngerð
karfategundanna í Norður-
Atlantshafi. í fyrra var
gerð nokkurra ára rann-
sóknaráætlun og hafist
handa við erfðafræðirann-
sóknir karfastofna sem not-
ið hefur mikils velvilja
hagsmunaaðila./8
Markaðir
SÍF með
50-55%
útflutningsins
• MARKMIÐIÐ með stofn-
un SÍF árið 1932 var að
bregðast við verðlækkunum
á saltfiski og undirboðum á
mörkuðum erlendis í kjölfar
heimskreppunnar miklu.
SÍF hafði sérleyfi til útflutn-
ings á saltfiski frá Islandi í
60 ár, frá 1932-1992, og þá
var opnað fyrir samkeppni
í saltfiskútflutningi. Veru-
legar breytingar urðu á
starfseminni árið 1993 þeg-
ar útflutningur á saltfiski
var gefinn fijáls og SÍF
breytt í hlutafélag. Nú eru
útflyljendur saltfisks um 20
að tölu og hefur SÍF hf. með
höndum 50-55% af salt-
fiskútflutningi frá íslandi.
Útflutningur á
helstu markaði
Mark- Tonn Áæti.
aður 1994 1995 1996
Portðgal 3.097 4.133 4.500
Spánn 4.390 3.374 4.410
Ítalía 3.669 3.283 4.042
Grikkland 1.054 722 797
Frakkland 7.368 5.797 6.810
Þýskaland 578 680 660
Kanada 5.414 4.334 4.320
Annar 2.976 3.455 4.014
SAMTALS: 29.146 25.778 29.553
Stærstir
í saltfiski
Velta 1991-1995
Milljónir ísl. króna
11.889
____ ____ _____ L___ ___
1991 1992 1993 1994 1995
• SÍF hf. og dótturfélög eru
stærstu seljendur á saltfiski
í heiminum. Heildarmark-
aðurinn fyrir saltfisk er
áætlaður um 240 þús. tonn,
en hlutur SÍF hf. og dóttur-
félaga er um 30 þús.tonn.
Markaðshlutdeild SÍF-sam-
steypunnar telst þannig
vera um 12-13% af heildar-
sölu saltfisks i heiminum.
Þetta graf sýnir veltutölur
SIF í ísl. krónum frá
1991./6