Morgunblaðið - 21.11.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 21.11.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA C 1996 FIMMTUDAGUR 21. NOVEMBER BLAÐ HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Kristinn Theódór velur Finnlandsfara "Theodór Guðfinnsson, landsliðsþjálfari kvenna- 1 liðsins í handknattleik, hefur valið sinn fyrsta landsliðshðp, sem mun taka þátt í fjðgurra þjóða móti í Finnlandi 27. til 29. desember. Auk heimamanna og íslendinga verða Belgar með og annaðhvort landslið Hvita-Rússiands eða Ítalíu. Landsliðshópurinn er þannig skipaður: Fanney Rúnarsdóttir, Stjörnunni, ogHelga Torfadóttir, Víkingi, markverðir. Aðrir leikmenn: Björk Ægis- dóttir, FH, Þórunn Garðarsdóttir, Fram, Auður Hermannsdóttir og Hulda Bjarnadóttir, Haukum, Anna Blöndal, ÍBA, Brynja Steinsen, KR, Nína Björnsdóttir, Stjörnunni, Guðmunda Kristjáns- dóttir, Víkingi, Halla María Helgadóttir, Sola, Noregi, Svava Sigurðardóttir, Eslöv, Svíþjóð, og Ingibjörg Jónsdóttir, ÍBV. Fjórar stúlkur verða valdar til viðbótar í hóp- inn, eftir forleik landsliðsins gegn úrvalsliði - fyrir landsleik íslands og Danmörkur í HM karla, miðvikudaginn 27. nóvember. Tvær af leikreyndustu handknattleiksstúikum landsins, Guðný Gunnsteinsdóttir, fyrirliði Stjöm- unnar og Herdis Sigurbergsdóttir, Ieikstjóraandi liðsins, gefa ekki kost á sér í landsUðið. KA hafnaði boði FotexVeszprém FORRÁÐAMENN ungverska liðsins Fotex Veszprém sendu KA-mönnum simbréf í gær og buðu þeim að leika báða leikina í Evrópukeppni bikarhafa í Ungveijalandi. KA-menn eru ekki á þeim buxunum og hafa ákveðið að bjóða Ungveij- unum að leika báða leikina á Akureyri. Vilja ekki dómar- ann í sturtu ENSKUR knattspyrnudómari, hin 41 árs gamla Janet Freweings, er ekki vinsæl meðal eigin- kvenna leikmanna. Það er engin nýlunda að dóm- arar séu ekki vinsæUr en ástæða óvinsælda Frew- eings er að hún skellti sér á dögunum í sturtu með leikmönnunum eftir leik í Exeter. Konur leikraanna eru óánægðar með þetta og talsmenn enska knattspyrnufélagsins segjast vita af þvf að búningsaðstaða sé ekki alls staðar til fyrirmyndar en benda á að það sé dómaranna og aðstoðar- manna þeirra að gera ráðstafanir tii að komast í sturtu eftir leiki. FH-ingar biðu skip- brot í Safa- mýri FRAM komst í annað sæti 1. deildar karla í gærkvöldi eftir stórsigur á FH á heimavelli, 34:15. Eins og tölurnar gefa til kynna léku Framarar við hvurn sinn fingur á sama tíma og leik- menn FH vissu vart hvort þeir voru að koma eða fara. Að loknum leikjum kvöldsins er Afturelding í efsta sæti með 16 stig eftir 25:23 sigur á ÍR í Seljaskóla. Haukar lögðu ÍBV í hörkuleik í Hafnarfirði 26:23 og Grótta lagði Val á Nesinu 25:22. HK vann sinn annan leik á tíma- bilinu, tók Selfoss 27:23. A myndinni að ofan er Fram- arinn Daði Hafþórsson að sækja inn í vörn FH í leiknum í gær- kvöldi en Guðjón, Hálfdán og Sigurjón reyna að varna honum vegar. ■ Leikirnir/C4-CS TENNIS Agassi stóð ekki undir væntingum og hætti í HM Andre Agassi fékk góðar mót- tökur hjá áhorfendum á heimsmeistaramótinu í tennis í Hannover í Þýskalandi í gær en ánægja viðstaddra breyttist fijótt í óánægju og undir lok viður- eignarinnar við Pete Sampras var púað á kappann. Leikurinn stóð aðeins yfir í 48 mínútur en Sampras vann 6-2, 6-1. Skömmu síðar tilkynntu mótshaldarar að Agassi hefði dregið sig úr keppni vegna veik- inda og tæki Svíinn Thomas Enq- vist stöðu hans. Hann mætir Rúss- anum Yevgeny Kafelnikov í dag en Þjóðveijinn Boris Becker, sem á titil að veija, spilar við Sampras. „Ég var slappur og ekki tilbúinn að keppa,“ sagði Agassi, sem hef- ur verið magaveikur og með flensu undanfarna daga. „Það var ekki gaman að standa í þessu og áður en mótið hófst var ég að hugsa um að draga mig úr keppni.“ Um viðbrögð 12.000 áhorfenda sagði Agassi: „Ég get ekki ásakað þá. Ég lék ekki vel og mér leið verr en þeim.“ Michael Chang tapaði fyrir Ric- hard Krajicek í fyrstu umferð og varð að sætta sig við álíka úrslit í gær en þá vann Thomas Muster 6- 4, 6-3. Tveir efstu úr hvorum riðli fara áfram í undanúrslit og varð Goran Ivanisevic frá Króatíu fyrstur til að tryggja sér þar sæti. Hann sigr- aði Thomas Muster í fyrrakvöld og tók Richard Krajicek 6-4 6-7 7- 6 í gærkvöldi. ANDRE Agassi eftlr ófarirnar í gærkvöldl. Reuter KIMATTSPYRNA: LOKS SIGUR HJÁ RAIMGERS í MEISTARADEILDINNI / C8

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.