Morgunblaðið - 22.11.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 22.11.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA C 1996 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER BLAÐ Hi Tilbúnir í slaginn Morgunblaðið/Kristinn ÞORBJÖRN Jensson, landsllAsþjálfarl í handknattleik, og Örn Magnússon, framkvæmdastjóri HSÍ, vonast eft- Ir góðum úrslitum í næstu viku. „Við verðum að sigra i þessum lelk og ná öðru stiginu úr síðarl lelknum ef við ætlum okkur efsta sætið,“ sagði Þorbjörn. „Þetta er stórleikur og sigur í honum sklptir sköpum. Vlð þurfum því á stuðnlngi áhorfenda að halda og vonandi náum við að fylla Hölllna," sagðl Örn. Heimir skrifaði undir samning til þriggja ára við KR-inga HEIMIR Guðjónsson, landsl- iðsmaður úr KR, skrifaði í gær undir samning til þriggja ára við KR-inga. „Já, ég er búinn að senya við KR og verð hjá félaginu næstu þrjú árin. Reyndar er endur- skoðunarákvæði I samningn- um eftir tvö ár. Nú er þetta loksins í höfn og þungu fargi af mér létt,“ sagði Heimir við Morgunblaðið í gær- kvöldi. „KR-þjartað slær enn í brjósti mér og ég hef metnað til að vera þátttakandi í því þegar KR hampar íslandsbikarnum og vonandi gerist það á samningstimanum. KR hefur aUa burði til að verða meistari enda margir góðir leikmenn í herbúðum félagsins. Við misstum af meistaratitl- inum á siðustu stundu i haust og vonandi látum við það okkur að kenningu verða næsta sum- ar,“ sagði Heimir. Breiðablik á móti bikarhöfum KA DREGIÐ var i 16-liða úralit bikarkeppni HSÍ i gær. Eftirtalin lið drógust saman og fær það Uð heimaleik sem fyrr er talið upp: Breiðablik - KA, ÍBV-b - FH, KR - Þór, Akur- eyri, Grótta-b - IR, KS/Stjarnan - Valur-b/KA-b, Selfoss - Valur, Grótta - Fram og Haukar - HK. Leikirair í 16-Uða úrslitum eiga að fara fram 29. desember. Suðurnesjamenn í 12. sæti á EM EVRÓPUKEPPNI félagsUða í golfi hófst í Alg- arve í Portúgal í gær og er Golfklúbbur Suður- nesja, sem er fulltrúi íslands, í 12. sæti af 22 lið- um á 154 höggum en félagið i 4. sæti fór á 150 höggum. Frakkar eru efstir á 144 höggum. Helgi Þórisson fór á 76 höggum, Örn Æ. Hjartarson á 78 höggum og Guðmundur Rúnar Hallgrimsson á 85 höggum. Mótinu lýkur um helgina en árang- ur tveggja efstu teiur. íslendingar og Danir leika fyrri leik sinn í undankeppni HM í næstu viku Urslitasætið í Japan í húfi ÍSLENSKA handboltalandsliðið mætir Dönum ífyrri leik liðanna íundankeppni HM í Laugardalshöll nk. miðviku- dagskvöld. Leikurinn er mjög þýðingarmikill fyrir bæði lið- in sem berjast um efsta sætið sem tryggir sæti á HM í Japan á næsta ári. íslendingar verða að vinna ætlj þeir sér efsta sætið í riðlinum því Danir hafa 8 stig og íslend- ingar 7. „Það er nánast allt í húfi i' þessum leik og við gerum okkur fulla grein fyrir því. Við verðum að sigra í þessum leik og ná öðru stiginu úr síðari leiknum ef við ætlum okkur efsta sætið,“ sagði Þorbjörn Jensson, landsl- iðsþjálfari. Síðari leikur liðanna fer síðan fram í Álaborg annan sunnudag. orbjörn gerði eina breytingu á hópnum frá því í leikjunum á móti Eistlandi. Róbert Julian Duranona úr KA kemur inn fyrir Jason Ólafsson. „Það má segja að Duranona verði okkar leyni- “ vopn. Danir hafa ekki séð mikið til hans í leik. Ég hef fulla trú á « r því að við getum unnið Dani. Ég hlakka til leiksins, enda alltaf gaman að leika á móti Dönum," sagði Þorbjörn. Þorbjörn sagði að Danir væru með gott lið og væru m.a. sex leikmenn liðsins sem leika í Þýskalandi. Þar fer fremstur í flokki Claus Jacob Jensen, sem leikur með Dormagen, en hann er þriðji markahæsti leikmaður þýsku deildarinnar. Hann hefur gert 48 mörk í sjö leikjum og ekkert þeirra úr vítaköstum. „Ég er búinn að skoða marga leiki Dana á myndbandi að und- anförnu og tel mig þekkja liðið og leikskipulag þess nokkuð vel. Það er ljóst að við þurfum að ná fram okkar besta leik ætlum við okkur sigur,“ sagði landsliðs- þjálfarinn. íslendingar hafa haft góð tök á Dönum undanfarin ár. í síðustu 14 leikjum frá 1990 til 1996 hefur ísland unnið sjö, þrisvar sinnum hefur orðið jafntefli og fjórir leikir hafa tapast. Síðast mættust liðin í febrúar á þessu ári, í Lotto-keppninni í Noregi, og þá vann Danmörk 29:28. Is- lenska liðið hefur ekki tapað fyr- ir Dönum í Laugardalshöll síðan 1985. Örn Magnússon, framkvæmda- stjóri HSÍ, sagði að leikurinn við Dani væri upp á líf og dauða fyr- ir HSÍ. „Þetta er stórleikur og sigur í honum skiptir okkur sköp- um. Við þurfum því á stuðningi áhorfenda að halda og vonandi náum við að fylla Höllina," sagði Öm. Forsala aðgöngumiða á leikinn verður í versluninni Utilífi í Glæsibæ og á skrifstofu HSÍ í dag og verður haldið áfram á verslun- artíma fram til kl. 17.00 á mið- vikudag. Verði ekki uppselt flyst forsalan eftir það fram að leik sem hefst kl. 20.40 í Laugardalshöll. Miðaverð er 1.000 kr. fyrir full- orðna og 300 kr. fyrir börn 14 ára og yngri. Landsliðs- hópurínn Markverðir: Bergsveinn Bergsveinsson, UMFA (115) Guðmundur Hraínkelsson, Val (246) Hlynur Jóhannesson, HK (0) Aðrir leikmenn: Konráð Olavson, Stjömunni (136) Björgvin Björgvinsson, KA (13) Gústaf Bjamason, Haukuni (60) Geir Sveinsson, Montpellier (291) Dagur Sigurðsson, Wuppertal (64) Gunnar Berg Viktorsson, ÍBV (7) Júltus Jónasson, TV Suhr (228) Ólafur Stefánsson, Wuppertal (51) Bjarki Sigurðsson, UMFA (173) Ingi Rafn Jónsson, Val (9) Róbert Julian Duranona, KA (4) Patrekur Jóhannesson, Essen (117) Valdimar Grímsson, Stjörnunni (206) ■ Geir Sveinsson hefur leikið ails 300 leiki i landsliðsbúningnum, þar af eru níu leikir sem ekki fást skráðir sem A-landsleikir. KÖRFUKNATTLEIKUR: KR OG KEFLAVÍK í ÚRSLIT /C4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.