Morgunblaðið - 22.11.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
C
1996
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER
BLAÐ
Hi
Tilbúnir í slaginn
Morgunblaðið/Kristinn
ÞORBJÖRN Jensson, landsllAsþjálfarl í handknattleik, og Örn Magnússon, framkvæmdastjóri HSÍ, vonast eft-
Ir góðum úrslitum í næstu viku. „Við verðum að sigra i þessum lelk og ná öðru stiginu úr síðarl lelknum ef
við ætlum okkur efsta sætið,“ sagði Þorbjörn. „Þetta er stórleikur og sigur í honum sklptir sköpum. Vlð
þurfum því á stuðnlngi áhorfenda að halda og vonandi náum við að fylla Hölllna," sagðl Örn.
Heimir skrifaði
undir samning
til þriggja ára
við KR-inga
HEIMIR Guðjónsson, landsl-
iðsmaður úr KR, skrifaði í
gær undir samning til
þriggja ára við KR-inga. „Já,
ég er búinn að senya við KR
og verð hjá félaginu næstu
þrjú árin. Reyndar er endur-
skoðunarákvæði I samningn-
um eftir tvö ár. Nú er þetta
loksins í höfn og þungu fargi
af mér létt,“ sagði Heimir
við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
„KR-þjartað slær enn í brjósti mér og ég hef
metnað til að vera þátttakandi í því þegar KR
hampar íslandsbikarnum og vonandi gerist það
á samningstimanum. KR hefur aUa burði til að
verða meistari enda margir góðir leikmenn í
herbúðum félagsins. Við misstum af meistaratitl-
inum á siðustu stundu i haust og vonandi látum
við það okkur að kenningu verða næsta sum-
ar,“ sagði Heimir.
Breiðablik á móti
bikarhöfum KA
DREGIÐ var i 16-liða úralit bikarkeppni HSÍ i
gær. Eftirtalin lið drógust saman og fær það Uð
heimaleik sem fyrr er talið upp:
Breiðablik - KA, ÍBV-b - FH, KR - Þór, Akur-
eyri, Grótta-b - IR, KS/Stjarnan - Valur-b/KA-b,
Selfoss - Valur, Grótta - Fram og Haukar - HK.
Leikirair í 16-Uða úrslitum eiga að fara fram
29. desember.
Suðurnesjamenn
í 12. sæti á EM
EVRÓPUKEPPNI félagsUða í golfi hófst í Alg-
arve í Portúgal í gær og er Golfklúbbur Suður-
nesja, sem er fulltrúi íslands, í 12. sæti af 22 lið-
um á 154 höggum en félagið i 4. sæti fór á 150
höggum. Frakkar eru efstir á 144 höggum. Helgi
Þórisson fór á 76 höggum, Örn Æ. Hjartarson á
78 höggum og Guðmundur Rúnar Hallgrimsson
á 85 höggum. Mótinu lýkur um helgina en árang-
ur tveggja efstu teiur.
íslendingar og Danir leika fyrri leik sinn í undankeppni HM í næstu viku
Urslitasætið í Japan í húfi
ÍSLENSKA handboltalandsliðið mætir Dönum ífyrri leik
liðanna íundankeppni HM í Laugardalshöll nk. miðviku-
dagskvöld. Leikurinn er mjög þýðingarmikill fyrir bæði lið-
in sem berjast um efsta sætið sem tryggir sæti á HM í
Japan á næsta ári. íslendingar verða að vinna ætlj þeir
sér efsta sætið í riðlinum því Danir hafa 8 stig og íslend-
ingar 7. „Það er nánast allt í húfi i' þessum leik og við
gerum okkur fulla grein fyrir því. Við verðum að sigra í
þessum leik og ná öðru stiginu úr síðari leiknum ef við
ætlum okkur efsta sætið,“ sagði Þorbjörn Jensson, landsl-
iðsþjálfari. Síðari leikur liðanna fer síðan fram í Álaborg
annan sunnudag.
orbjörn gerði eina breytingu
á hópnum frá því í leikjunum
á móti Eistlandi. Róbert Julian
Duranona úr KA kemur inn fyrir
Jason Ólafsson. „Það má segja
að Duranona verði okkar leyni-
“ vopn. Danir hafa ekki séð mikið
til hans í leik. Ég hef fulla trú á
« r því að við getum unnið Dani. Ég
hlakka til leiksins, enda alltaf
gaman að leika á móti Dönum,"
sagði Þorbjörn.
Þorbjörn sagði að Danir væru
með gott lið og væru m.a. sex
leikmenn liðsins sem leika í
Þýskalandi. Þar fer fremstur í
flokki Claus Jacob Jensen, sem
leikur með Dormagen, en hann
er þriðji markahæsti leikmaður
þýsku deildarinnar. Hann hefur
gert 48 mörk í sjö leikjum og
ekkert þeirra úr vítaköstum.
„Ég er búinn að skoða marga
leiki Dana á myndbandi að und-
anförnu og tel mig þekkja liðið
og leikskipulag þess nokkuð vel.
Það er ljóst að við þurfum að ná
fram okkar besta leik ætlum við
okkur sigur,“ sagði landsliðs-
þjálfarinn.
íslendingar hafa haft góð tök
á Dönum undanfarin ár. í síðustu
14 leikjum frá 1990 til 1996
hefur ísland unnið sjö, þrisvar
sinnum hefur orðið jafntefli og
fjórir leikir hafa tapast. Síðast
mættust liðin í febrúar á þessu
ári, í Lotto-keppninni í Noregi,
og þá vann Danmörk 29:28. Is-
lenska liðið hefur ekki tapað fyr-
ir Dönum í Laugardalshöll síðan
1985.
Örn Magnússon, framkvæmda-
stjóri HSÍ, sagði að leikurinn við
Dani væri upp á líf og dauða fyr-
ir HSÍ. „Þetta er stórleikur og
sigur í honum skiptir okkur sköp-
um. Við þurfum því á stuðningi
áhorfenda að halda og vonandi
náum við að fylla Höllina," sagði
Öm.
Forsala aðgöngumiða á leikinn
verður í versluninni Utilífi í
Glæsibæ og á skrifstofu HSÍ í dag
og verður haldið áfram á verslun-
artíma fram til kl. 17.00 á mið-
vikudag. Verði ekki uppselt flyst
forsalan eftir það fram að leik sem
hefst kl. 20.40 í Laugardalshöll.
Miðaverð er 1.000 kr. fyrir full-
orðna og 300 kr. fyrir börn 14
ára og yngri.
Landsliðs-
hópurínn
Markverðir:
Bergsveinn Bergsveinsson, UMFA (115)
Guðmundur Hraínkelsson, Val (246)
Hlynur Jóhannesson, HK (0)
Aðrir leikmenn:
Konráð Olavson, Stjömunni (136)
Björgvin Björgvinsson, KA (13)
Gústaf Bjamason, Haukuni (60)
Geir Sveinsson, Montpellier (291)
Dagur Sigurðsson, Wuppertal (64)
Gunnar Berg Viktorsson, ÍBV (7)
Júltus Jónasson, TV Suhr (228)
Ólafur Stefánsson, Wuppertal (51)
Bjarki Sigurðsson, UMFA (173)
Ingi Rafn Jónsson, Val (9)
Róbert Julian Duranona, KA (4)
Patrekur Jóhannesson, Essen (117)
Valdimar Grímsson, Stjörnunni (206)
■ Geir Sveinsson hefur leikið ails 300 leiki
i landsliðsbúningnum, þar af eru níu leikir
sem ekki fást skráðir sem A-landsleikir.
KÖRFUKNATTLEIKUR: KR OG KEFLAVÍK í ÚRSLIT /C4