Morgunblaðið - 23.11.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 23.11.1996, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B/C 269. TBL. 84. ÁRG. LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Constantinescu tekur við Deilur harðna enn í Hvíta-Rússlandi Þingið hafnar samningi við Lúkasjenko Moskvu, Mínsk. Reuter. Chile hafn- ar Rokke STJÓRNVÖLD í Chile hafa neitað norska stórútgerðarmanninum Kjell Inge Rokke um veiðileyfi fyrir verk- smiðjuskipið American Monarch en það var smíðað sérstaklega með veið- ar _þar í huga. I Chile hefur verið mikil og vax- andi andstaða við fyrirhugaðar veið- ar American Monarch en það er stærsta verksmiðjuskip í heimi og getur unnið úr 1.000 tonnum á dag. Pesquera Yalcho, samstarfsfyrirtæki Rakkes eða RGI, Resource Group International, í Chile bauðst til að úrelda þijú skip til að greiða fyrir leyfisveitingu til American Monarch en að sögn Reuíers-fréttastofunnar var því hafnað. Sjómenn frá Chile, sem sækja á grunnslóð, halda því fram, að stóru verksmiðjuskipin séu að eyðileggja miðin við landið og græningjar hafa barist hart gegn American Monarch, sem þeir segja, að muni fara eins og logi yfir akur á miðunum. ------» ♦ ♦------ Noregrir úr IWC? Ósló. Morgunblaðið. NORÐMENN hafa varað Aiþjóða- hvalveiðiráðið, IWC, við því að verði reynt frekar á þeim vettvangi að auka baráttuna gegn hvalveiðum muni þeir ef til vill segja sig úr ráð- inu. Gefið hefur verið í skyn að á árs- fundi IWC 1998 verði m.a. fjallað um framtíðarstefnu og verslun með hvalafurðir en ekkert hefur verið minnst á að ræða hvernig stjórna skuli nýtingu hvala sem auðlindar. Eru Norðmenn mjög ósáttir við þess- ar áherslur, að sögn Káre Bryn, sem fer með hvalveiðimál fyrir ríkis- stjómina. Verði ekki teknar ákvarðanir um nýtingu er ljóst að ekki verður hægt að uthluta Norðmönnum eða öðrum þjóðum veiðikvótum. RÚMENSKA þingið var sett í gær í risastórri glæsihöll, sem Nicoleau Ceausescu, fyrrverandi einræðisherra, lét byggja í mið- borg Búkarest. Fulltrúadeildin mun sitja þar og síðar er gert ráð fyrir að öldungadeildin flytji einnig í húsið, sem er 66.000 fer- metrar og í því um 3.000 salir, sumir á stærð við knattspyrnu- völl. Á fyrsta fundi fulltrúadeild- arinnar var kjör Emils Constanti- nescu sem forseta staðfest. Petre Roman, fyrrverandi forsætisráð- herra, verður forseti öldunga- deildarinnar og þar með næstur Constantinescu að völdum. For- sætisráðherra nýrrar ríkisstjórn- ar verður Victor Ciorbea, vin- sæll borgarstjóri Búkarest. ÞING Hvíta-Rúss- lands hafnaði í gær málamiðlun sem rússneskir ráða- menn höfðu fengið fulltrúa þess og forseta landsins, Alexander Lúkasj- enko, til að sættast á í deilum um þjóð- aratkvæði. Forset- inn hyggst biðja þjóðina um að kjör- tímabil hans verði framlengt og völd- in aukin. Lúkasjenko tjáði frétta- mönnum að hann myndi ráðfæra sig við Moskvustjórnina áður en hann ákvæði í dag frekari viðbrögð. Ákveðið var í samningnum að niðurstaða þjóðaratkvæðisins á morgun, sunnudag, yrði eingöngu ráðgefandi. Lúkasjenko hótaði þingmönnum að hann myndi neita að standa við samkomulagið ef þingið samþykkti það ekki sam- stundis og með minnst tveim þriðju- hlutum atkvæða. Fjórum sinnum var gengið til atkvæða, mikill hiti var í mönnum og um hríð slegist um hljóðnemann. Færri en 100 af 199 þingfulltrúum greiddu atkvæði með málamiðlun- inni sem var gagnrýnd harkalega og sögð tryggja sigur Lúkasjenkos er myndi geta mistúlkað hana til að hrifsa til sín enn meiri völd. Margir vildu láta einfaldan meiri- hluta duga, ella myndi forsetinn geta notað samþykktina sem rök- semd fyrir auknum forsetavöldum. Lúkasjenko fær full yfirráð nýrrar nefndar um stjórnarskrármál sem samkomulagið frá í gærmorgun kveður á um. Á hún að semja drög að nýrri stjórnarskrá. Kjarnorkuflaugar á brott Víktor Tsjernomýrdín, forsætis- ráðherra Rússlands, kom sam- komulaginu í kring snemma í gær- morgun eftir langa og stranga samninganótt í Mínsk. Lýsti Borís Jeltsín forseti mikilli ánægju með að Rússum skyldi takast að sætta deiluaðila í grannríkinu. „Ég tel þetta mikinn sigur,“ sagði hann og taldi að hætta hefði verið á átökum vegna málsins. Síðdegis skýrði hvít- rússneskur embættismaður einnig frá því að síðustu kjarnaflaugar úr forðabúrum Sovétríkjanna gömlu hefðu verið fluttar til Rússlands, eins og kveðið er á um í alþjóðlegum afvopnunarsáttmálum. Margir hafa haft áhyggjur af því að kjarnavopn væru í höndum ráðamanna á borð við Lúkasjenko sem þykir óútreikn- anlegur stjórnmálaleiðtogi. Sendiherra Bandaríkjanna í Mínsk, Kenneth Yalowitz, sagði Ör- yggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÓSE, efast um lögmæti þjóðarat- kvæðisins. „Það sem hefur valdið okkur miklum áhyggjum er að stjórnarandstaðan hefur ekki fengið aðgang að fjölmiðlum og fundafrelsi hefur ekki verið virt,“ sagði hann. ■ Vilja að Tsjúbajs/20 Lúkasjenko Afdráttarlaus yfirlýsing Helmuts Kohls Þýskalandskanslara Segir póli- tísk örlög sín velta á EMU Frankfurt. Reuter. Reuter KOHL er gagnrýndur fyrir aðhald í velferðarmálum til að Þjóð- veijar verði gjaldgengir í EMU. Hér sjást bankastarfsmenn í Frankfurt mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði á launum vegna veikinda í gær. HELMUT Kohl, kanslari Þýska- lands, sagði á fundi bankamanna í Frankfurt í gær að pólitísk framtíð hans væri háð því að áætlanir Evr- ópusambandsins um einn gjaldmiðil næðu fram að ganga. Theo Waigel íjármálaráðherra sagði á flokksþingi CSU, systurflokks kristilegra demó- krata Kohls, í Miinchen að stefnt væri að því að „marka leiðina fram á næstu öld með Helmut Kohl í broddi fylkingar". Þessar yfirlýsingar þykja bera því vitni hversu staðráðin stjórnmálafor- usta Þýskalands er í að tryggja að Efnahags- og myntbandalag Evrópu (EMU) komist á samkvæmt áætlun árið 1999. „Ég mun spyrða mín pólitísku örlög við stofnun evrópsks mynt- bandalags," sagði Kohl á Evrópu- þingi bankamanna. Kohl hefur löngum sagt að sam- eining Þýskalands og Evrópu „væru tvær hliðar á sömu mynt“. Kristi- legir demókratar nota nú þetta orðalag þegar þeir tala um þýska markið og evró, hina fyrirhugðu Evrópumynt. Kohl sagði að Þjóðveijar mættu ekki verða eftirbátar annarra í að uppfylla skilyrðin fyrir EMU. Þeir yrðu að ráðast á fjárlagahallann og rífa niður úrelt skipulag á vinnu- markaði. Stéttarfélög hafa gagnrýnt Kohl fyrir að mælast til aðhalds í velferðarkerfinu í því skyni að upp- fylla skilyrðin fyrir Efnahags- og myntbandalaginu. Kohl var spurður hvort áætlunin um EMU gæfi of lítið svigrúm, þrýsti á ríkisstjórnir að sýna of mikið að- hald í fjármálum og stefndi hag- vexti í hættu. Kanslarinn vísaði slíku tali á bug og sagði að umrædd ríki hefðu þurft að grípa til þessara aðgerða burtséð frá áætlunum um að ganga í EMU. Geislavirkt efni hverfur Smyglað um Svíþjóð Stokkhólmi. Reuter. LÖGREGLAN í Stokkhólmi rann- sakar nú hvað hafi orðið af rúmu tonni af geislavirku efni, beryllium, sem hvarf úr vöruhúsi á Arlanda- flugvelli fyrir ári. Efnið korn að lík- indum frá Rússlandi um Eistland. Hægt er að nota beryllium til að búa til kjarnorkuvopn. Athugull vörubílstjóri kom sænsku lögregl- unni á sporið og sagði talsmaður hennar að haft væri samstarf við Interpol í málinu. Fundist hafa leifar af beiyllium á vörubretti þar sem tunnurnar með efninu voru geymdar. Þær áttu að fara til fyrirtækis í New Jersey í Bandaríkjunum með flugi, sam- kvæmt farmskjölum, en ekki er vit- að hvar þær höfnuðu. Talið er að einræðisherrar í þriðja heiminum reyni að komast yfir efni af þessu tagi til vopnagerðar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.