Morgunblaðið - 23.11.1996, Side 1

Morgunblaðið - 23.11.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 3H9rgtuiÞlflMto C 1996 LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER BLAD Rögnvald og Stefán dæma í Kiel ROGNVALD Erlingsson og Stefán Arnaldsson, handknattleiksdómarar, hafa fengið tvö verk- efni á vegum EHF á erlendri grundu í byrjun næsta árs. Þeir eiga að dæma leik þýska liðsins THW Kiel og Pfadi Winterthur frá Sviss í Meist- arakeppni Evrópu sem fram fer í Þýskalandi 19. janúar. Þeir hafa einnig verið settir á leik norska liðsins Drammen HK og US Creteil frá Frakklandi í Borgakeppni Evrópu sem fram fer í Noregi 15. febrúar. Gunnar Viðarsson og Sigurgeir Sveinsson hafa einnig fengið verkefni hjá dómaranefnd EHF. Þeir dæma leik IFK Skövde, Svíþjóð, og Kolding frá Danmörku sem fram fer í Svíþjóð 15. febrúar og er í Borgakeppni Evrópu. Gunnar K. Gunnarsson hefur verið settur eft- irlitsdómari á leik danska liðsins Ikast og Rapid Búkarest í Borgakeppni kvenna sem fram fer 9. febrúar. Kjartan Steinbach verður eftirlits- dómari á fyrri leik US Creteil og Drammen HK í Borgakeppninni 9. febrúar. Tékkar vilja halda EM 2006 meðöðrum Tékkneska ríkisstjórnin hefur staðfest stuðning sinn við hugsanlega umsókn Tékklands og Austurríkis varðandi mótshald Evr- ópukeppninnar í knattspyrnu 2004. Vaclav Klaus forsætisráðherra er mikill knattspyrnuunnandi og taldi stuðninginn nauðsynlegan umsókn- inni til framdráttar en ekki var greint frá því hvort um opinberar peningagreiðslur yrði að ræða. For- sætisráðherrann hefur átt fund með Frantisek Chvalovsky, formanni Knattspyrnusambands Tékklands, og Beppo Mauhart, formanni Knatt- spyrnusambands Austurríkis, um málið en Mauhart hefur einnig talað við starfsfélaga sína í Sviss, Ung- vetjalandi og Króatíu um að sam- böndin bjóði sameiginlega í EM. Talið er að Spánvetjar eigi mikla möguleika á að halda keppnina en gert er ráð fyrir að UEFA ákveði keppnisland 1998. EM 200 verður í Hollandi og Belgíu en það verður í fyrsta sinn sem úrslitakeppnin fer fram í tveimur löndum. 4Mh V"* Italskur sigur í ParkCity KEPPNISTÍMABIL skíðamanna hófst með stórsvigi kvenna í Park City í Bandaríkjunum í gær en þar verða Vetra- rólympíuleikarnir haldnir árið 2002. ítalska skíða- konan Sabina Panzanini, sem er á myndinni, sigr- aði og var það jafnframt annar sigur hennar í heimsbikarnum. „Það yrði gaman að keppa hér á Ólympíuleikunum 2002,“ sagði Panzanini eftir sigurinn. „Altént virðist brekkan hér henta mér vel.“ Einnig átti að keppa í stórsvigi karla á sama stað í gær, en því var frestað vegna rigningar. KNATTSPYRNA Reuter Helgi á einu höggi yfir pari GOLFKLÚBBUR Suðrnesja, sem tekur þátt í Evrópu- keppni félagsliða í Algarve í Portúgal, er 12. sæti eftir tvo fyrstu keppnisdagana með samtals 303 högg. GS var einnig i 12. sæti af 22 þjóðum eftir fyrsta keppnis- daginn, en mótinu lýkur á morgun. Frakkar eru efstir á 288 höggum, Norðmenn í 2. sæti á 291 höggi og Þjóð- veijar í þriðja á 292 höggum. Helgi Þórisson lék best GS- sveitarinnar á 73 höggum, sem er einu höggi yfir pari vallarins. Örn Ævar Hjartar- son kom næstur á 76 högg- um og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson lék á 78 högg- um. Sampras í undanúrslit PETE Sampras lét tapið á móti Boris Becker í fyrra- kvöid í heimsmeistaramót- inu í tennis ekki á sig fá og tryggði sér sæti I undanúr- slitum í gær þegar hann vann Rússann Yevgeny Ka- felnikov 6-4,6-4 í 75 minútna leik. „Ég hefði viþ'að frá frí í einn dag eftir leikinn við Becker,“ sagði hann. „Ég ýtti þeim leik til hliðar þó ekki væri auðvelt að snúa blaðinu við,“ sagði Sampras sem er efstur á heimslistan- um en hann mætir Króatan- um Goran Ivanisevic í dag. FRJÁLSÍÞRÓTTIR Keppa þær bestu við Völu í Höllinni? IR-ingar hafa boðið Erki Nool, Evrópumeistara í sjöþraut inn- anhúss, til keppni við Jón Arnar Magnússon UMSS í Laugardalshöll í janúar nk. og freista þess sömuleið- is að fá nokkrar af bestu stang- arstökkskonum heims til keppni við Völu Flosadóttur, ÍR, á mótinu. „Við höldum mótið í tilefni níutíu ára afmælis ÍR á næsta ári. Fer það fram laugardaginn 25. janúar. Eftir breytingar á Laugardalshöll býður hún upp á meiri möguleika til móta- halds og við viljum nota þann mögu- leika sem best fyrir fijálsíþróttirnar. Auðvitað er þó draumur okkar að fá fullkomna innanhússaðstöðu," sagði Þráinn Hafsteinsson þjálfari ÍR-inga. „Við bíðum svara frá Nool og rætt hefur verið við nokkrar af þeim stúlkum sem eru á lista yfir 10 bestu stangarstökkvara kvenna í heimin- um í ár. Það yrði stórkostlegt að sjá þær glíma við Völu hér heima,“ sagði Þráinn. Vala er í sjötta sæti á heimslist- anum í ár með 4,17 metra sem er heimsmet unglinga og Norðurlanda- met. Allar stúlkurnar á undan henni settu persónuleg met, en efst er Emma George, Ástralíu, með 4,45, önnur Cai Wiyan, Kína, með 4,33, þriðja Daniela Bartova, Tékklandi, með 4,27, fjórða Sun Caiyun, Kína, með 4,25 og fimmta Stacy Dragila með 4,20. Milli þessara stúlkna og Völu á afrekaskránni frá upphafi er Andrea Múller Þýskalandi sem stökk 4,18 í fyrra. Alls hafa 24 stúlkur stokkið yfir 4,00 metra í stöng, lang- flestar á þessu ári. Fengur yrði einnig að keppni Jóns Arnars og Nool en þeir háðu harða hildi á EM innanhúss í Stokkhólmi sl. vetur. Ætlunin er að í þríþraut- inni verði ein kastgrein, ein hlaupa- grein og ein stökkgrein. Nool hefur verið í fremstu röð tugþrautarmanna í heiminum undanfarin ár, varð t.d. fjórði í tugþraut á HM utanhúss í Gautaborg í fyrra. Hans besti árang- ur í tugþraut er 8.575 stig á móti í Götzis í Austurríki vorið 1995. ís- landsmet Jóns Arnars er 8.274 stig. SUND: Á GÓEHISKRIÐI? / C2, C3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.