Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 4
4 D SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
NISSAN Almera er nú fáanlegur sem fimm hurða hlaðbakur.
Morgunblaðið/Ásdís
Nissan
Almera
hlaðbakur í
hnotskurn
Véh 1,6 lítrar, 4 strokkar,
16 ventlar, 100 hestöfl.
Framdrifinn - fimm manna.
Vökvastýri - veltistýri.
Líknarbelgur í stýri.
Rafdrifnar rúður.
Rafdrifnir hliðarspeglar.
Höfuðpúðar við aftursæti.
Útvarp með segulbandi.
Helmaljós í afturglugga.
Lengd: 4,12 m. Breidd:
1,69 m. Hæð: 1,39m.
Hjólhaf: 2,53 m.
Þvermál beygjuhrings:
9,6 m.
Þyngd: 1.225 kg.
Stærð farangursrýmis:
340 I.
Stærð bensíntanks: 501.
Eyðsla: 9,5 lá 100 kmí
þéttbýli; 5,71 í
þjóðvegahraða.
Hámarkshraði: 168
Staðgreiðsluverð kr.:
1.545.000.
Umboð: Ingvar Helgason,
Reykjavík.
liðugur og röskur
Almeru hlaðbakur
NISSAN Almera er nú
fáanlegur í hlaðbaksútgáfu,
þ.e. fimm hurða bíll með
1.400 eða 1.600 rúmsenti-
metra vélum, hand- eða
sjálfskiptingu og með all-
ríkulegum staðalbúnaði.
Verðið er á bilinu 1.438.000
til 1.545.000 eftir búnaði.
Almera kom á markað fyrir
rúmu ári og er nú fáanlegur
þriggja, fjögurra og fimm
hurða, hann er framdrifinn
fimm manna og frekar laglegur
fólksbíll. Við skoðum í dag fimm
hurða útgáfuna með sjálfskipt-
ingu og stærri vélinni.
Almera er stefnt sérstaklega
á Evrópumarkað enda fór tækni-
hönnun bílsins að mestu fram í
tæknideild Nissan í Belgíu. Þar
starfa 70 manns og fara þar
fram ekki síst margháttaðar
markaðsrannsóknir áður en
megin línur eru lagðar fyrir
hönnun. Bíllinn er hins vegar
framleiddur í sömu verksmiðju í
Japan og útgáfan fyrir heima-
markað er framleidd í. Almera
er sem kunnugt er arftaki Nissan
Sunny, hefur nánast sömu mál
en hjólhafið er rúmum 10 em
lengra sem gefur heldur meira
rými.
Almera er ágætlega heppnað-
ur bíll í útliti, fimm hurða útgáf-
an hefur lítill auka hliðarglugga
aftast og minnir þessi svipur
dálítið á Citroen ZX sem kom
fram fyrir nokkrum árum og
hefur reyndar ekki náð hingað.
Almera er ekki um of ávalur á
homum og framendinn er tiltölu-
lega láréttur. Rúður eru stórar
og góðar og stuðarar hæfilega
umfangsmiklir.
Góðír framstólar
Almera hefur skemmtilegan
svip að innan og hann er sæmi-
lega rúmgóður. Afturí er tæpast
nógu gott rými fyrir fullskipaðan
bfl fullorðnum farþegum og nema
í stuttum ferðum og séu framstól-
amir hafðir aftarlega verður fóta-
iými afturí heldur lítið. Framstólar
fara vel með ökumann og farþega
og þar er rýmið ágætt. Hæð öku-
VEL er frá öllu gengið í mælaborði og er ökumaður fljótur
að ná góðum og öruggum tökum á Almera.
RÝMI fyrir farangur er þokkalegt, 340 lítrar. Hægt er að
leggja fram bak aftursætis til að drýgja það.
mannssætis er stillanleg á gerð-
inni sem prófuð var, þ.e. með
stærri vélinni.
Mælaborð er með nokkuð kant-
aðri umgjörð um mælana sjálfa
en bogadregið eða kúpt sem snýr
beint að ökumanni og farþega.
Allt er frekar aðgengilegt og skýrt
og ökumaður er ekki lengi að átta
sig á öllum staðháttum. Hann nær
jafnframt góðum tökum á allri
stjóm.
Almera SLX hefur talsverðan
staðalbúnað, m.a. fjarstýrða saml-
æsingu, líknarbelg í stýri, höfuðp-
úða við aftursæti, útvarp, rafdrifn-
Rými
í affur-
sætum
FRAMSÆTIN eru góð og
er hæð ökumannssætis
stillanleg.
Staöal-
búnaður
Vinnsla
ar rúður og útispegla og fleira.
Vilji menn frekari búnað má fá
vindkljúf, geislaspilara og fleira.
Dugmikil vél
Vélin er 1.600 rúmsentimetr-
ar, fjögurra strokka, 16 ventla
og 100 hestöfl með beinni innsp-
rautun. Þetta er ágætlega rösk
og dugmikil vél og hún er jafn-
framt hljóðlát og sparneytin,
eyðir 9,5 lítmm í bæjarakstri og
5,7 lítrum á þjóðvegi. Hámarks-
hraðinn er 168 km/klst. og hröð-
un úr kyrrstöðu í 100 km tekur
12,9 sekúndur.
Almera er lipur og ljúfur í
akstri. Viðbragðið og vinnslan
em með ágætum og sjálfskipt-
ingin fer liðlega á milli þrepa
jafnvel í hranalegustu inngjafír.
Hún er með yfirgír og getur
vélin því snúist léttilega þegar
ferðast er á mesta leyfilegum
hraða á þjóðvegi. Fjöðrun er sér-
lega góð í Almera og heldur bíln-
um vel rásföstum á mölinni. Að
framan er sjálfstæð MacPherson
gormafjöðrun og að aftan fjölliða
gormafjöðrun og er greinilegt
að hér hefur verið hugsað bæði
til aksturs á malbiki sem á óslétt-
um vegum því Almera virðist
jafnvígur á hvort tveggja.
Með þessari rösku vél og sjálf-
skiptingu er Almera kjörinn
borgarbíll í hvers kyns snúninga.
Gott er að umgangast hann að
öllu leyti og má endurtaka það
sem áður er sagt að ökumaður
er fljótur að átta sig á öllu varð-
andi bílinn og taka hann í full-
komna sátt.
Sæmllegt verð
Verðið á Nissan Almera hlað-
bak með þessari stærri vél og
sjálfskiptingu er kr. 1.545.000.
Sé hann tekinn með fimm gíra
handskiptingu er verðið kr.
1.496.000 og með minni vélinni,
sem er 87 hestöfl, kostar bíllinn
kr. 1.438.000. Er hann aðeins
fáanlegur með handskipting-
unni. Telja verður þetta verð all-
sæmilegt enda er bíllinn vel bú-
inn og er óhætt að segja að mun
betri kaup séu í gerðinni með
1,6 lítra vélinni. Menn fá þar
frísklegri bíl og skemmtilegri og
rafdrifnar rúður og líknarbelg
að auki. ■
Jóhannes Tómasson