Morgunblaðið - 26.11.1996, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 31
LISTIR
Nýjar hljómplötur
JÓN STEFÁNSSON sljórnandi og systkinin Sibyl, Eiríka og
Pétur Urbancic að tónleikunum loknum.
Morgunblaðið/Ásdís
STJÓRNANDA og flytjendum var vel fagnað í lok tónleikanna.
Góð fæðing
eftir Þyrni-
rósar-svefn
TÓNLIST
Langholtskirkja
KÓR - BLÁSARAS VEIT
Óður Skálholts eftir dr. Viktor Urb-
ancic. 23. nóv. kl. 16. Flytjendur Kór
Langholtskirkju, Blásarasveit, Jón
Stefánsson, framsögn Gunnar Eyj-
ólfsson.
AF MÖRGUM ágætum þýsku-
mælandi tónlistarmönnum sem
flýðu nasismann fyrir heimsstyrj-
öldina síðari og til Islands, var dr.
Viktor Urbancic, ásamt konu sinni
dr. Melitu, sá sem var fámennri
þjóð norður við Dumbshaf kannski
hvað hollastur.
Ekki verða þó hér tíunduð þau
verk og þau áhrif sem Viktor Urb-
ancic hafði á þróun tónlistar hér-
lendis, bæði hefur það að nokkru
verið gert annars staðar og þeir
fáu dálkar sem ég hef til umráða
næðu ekki að gera því teljandi
skil. Eins þáttar í starfi Urbancic
vil ég þó minnast hér, þáttar sem
of fáir fengu að kynnast, en það
var kennarinn Viktor Urbancic,
en sem slíkur var hann óviðjafnan-
legur. Undirritaður fékk að njóta
kennslu hans í hljómfræði og
hvernig honum tókst að leysa upp
rúnir, sem áður höfðu verið hálf-
gerðir galdrastafir fyrir manni var
ógleymanlegt. Ótrúlega auðvelt
virtist hann eiga með að finna leið-
ina að nemandanum og í ofanálag
fékk maður á tilfinninguna að
hann hefði ómælda ánægju af að
miðla okkur sinni miklu þekkingu.
Þessa hæfileika hefur sá einn sem
skaparinn hefur til þess valið.
Annað atriði úr þessum kennslu-
stundum er og minnisstætt en það
var lestrarhæfileiki hans. Sama
var hversu illa skrifaðar svokallað-
ar „tónsmíðar“ við nemendurnir
komum með í tímana, allt spilaði
hann við fyrstu sýn sem fullæft
væri. Kennslan var aðeins einn
þáttur þeirra fjölmörgu starfa sem
hann hafði hér og þrátt fýrir öll
þessi störf virtist hann alltaf hafa
nægan tíma til að aðstoða aðra.
Þessi hjálpsemi hans við aðra held
ég hafi valdið því að hann gleymdi
gjarnan að auglýsa sjálfan sig, -
með öðrum orðum að troða sér
fram fyrir aðra. Þannig lentu
margar tónsmíðar hans á kistu-
botninum og í skugga gleymsk-
unnar. Víst hefði höfundur kant-
ötunnar sem við heyrðum á laug-
ardaginn haft tækifæri til að flytja
hana alla eða hluta hennar, en
annar hlaut verðlaunin og þar með
skyldi hans verk víkja, það verkið
sem við heyrðum í Langholts-
kirkju, fjörutíu árum eftir tilurð
þess. Sem betur fer fékk Óður
Skálholts mjög góða fæðingu eft-
ir allan Þyrnirósar-svefninn.
Eftir stuttan hljómsveitarinn-
gang hóf Lanholtskórinn upp raust
sína í voldugum inngangskór
verksins, „Hringið inn heilagar tíð-
ir“. Verkið er að mestu byggt á
mótífum úr íslenskri kirkjutónlist-
arsögu og er afar vel skrifað fyrir
kórinn svo og hljómsveitina, enda
kunni enginn hérlendur í þann tíð
betur að skrifa fyrir þessi tvö
hljóðfæri, kór og hljómsveit. Hæst
reis verkið í 7. þættinum, „Skál-
holt“, sem endar á feikn vel skrif-
aðri og glæsilegri fúgu, en verkinu
lýkur á sálmi þar sem allar raddir
sameinast einum rómi í „Er nú sem
mæli minning hver; - Þigg þjóð
mín, gjöf. Þigg, Drottinn Guð!“.
Ágætlega tókst allur flutningur
kantötunnar. Framsögn á texta
skildist að vísu illa þegar hljóm-
sveitin lék með og dálítið fannst
mér sópraninn sár á efstu nótun-
um, en þetta voru smámunir hjá
öllum öðrum ágætum flutningi.
Of snemma féll dr. Victor Urb-
ancic frá, og enn deyja þeir ungir
sem guðirnir elska, og kannski
verður minningin ennþá tærari um
þá sem kveðja svo snögglega.
Ragnar Björnsson
• ÍSLENSKIRjólasöngvarogMar-
íukvæði eru viðfangsefni Hamra-
hlíðarkórsins undir stjórn Þorgerð-
ar Ingólfsdóttur á nýrri geislaplötu
sem gefin er út hjá íslenskri tón-
verkamiðstöð.
Elsta lagið sem er úr upphafi Þor-
lákstíða er frá aldamótunum 1400
og nýjustu tónsmíðarnar eru Maríu-
kvæði Atla Heimis Sveinssonar sem
hann samdi árið 1995 við Ijóð Hall-
dórs Laxness og útsetning Jóns Ás-
geirssonar á Grýlukvæði sem hann
lauk við á þessu ári. Sumar tónsmíð-
anna eru sungnar í sinni upprunalegu
mynd. Aðrar eru útsetningar gam-
alla sálma margar þeirra hafa sér-
staklega verið_gerðar fyrir Hamra-
hlíðarkórinn. Utsetningar Þorkels
Sigurbjörnssonar eru úr Hymnodia
sacra 1742 og Grallaranum en jafn-
framt eru hér þijár frumsmíðar hans,
Ljóð og hljómar við ljóð Hannesar
Péturssonar, Leikur handa Grýlu-
börnum og Mariuvísur úr leikritinu
Jón Arason. Auk Grýlukvæðis Jóns
Ásgeirssonar sem áður er getið er
að finna á plötunni útsetningu hans
á öðru þjóðlagi - Hátíð fer að hönd-
um ein. Þá eru alþekktar útsetningar
Róberts Abrahams Ottóssonar á sál-
munum Nú kemur heimsins hjálparr-
áð og Heiðra skulum við Herrann
Krist og útsetning Jóns Þórarinsson-
ar á sálminum Oss barn er fætt í
Betlehem. Lag Jórunnar Viðar Það
á ap gefa börnum brauð og þjóðlag-
ið Ég söng þar út öll jól heyra til
veraldiegri hluta geisladisksins. Þá
er ótalin útsetning Fjölnis Stefáns-
sonar á sálminum Svo vítt um heim
sem sólin fer, tónsmíðin Máría eftir
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og
Vöggukvæði Sigvalda Kaldalóns,
sem betur er þekkt undir heitinu
Nóttin var sú ágæt ein.
Systkinin Hallveig og Ólafur E.
Rúnarsson syngja einsöng í nokkrum
verkanna á plötunni en þau eru bæði
félagar í Hamrahlíðarkórnum.
I bæklingi sem fyigir plötunni og
er bæði á íslensku og ensku fjallar
Hiafn Sveinbjarnarson umjólasöng
á ísiandi ogjafnframt ritar hann
skýringar við einstök lög. Upptökur
fóru fram í Kristskirkju íLandakoti
ífyrra ogáþessu ári. Hijóðstjórn
var í höndum tæknimanna Ríkisút-
varpsins ogÞórir Steingrímsson sá
um úrvinnsiu. Verð 1.999 krónur.
Nýjar plötur
• Á PLÖTUNNI „Fögru ver-
öld‘‘ syngur Guðmundur Guð-
jónsson tenórsöngvari 14 lög
Sigfúsar Halldórssonar tón-
skálds við Ijóð 10 kunnra skálda.
Það er höfundurinn sjáifur sem
leikur undir á píanó. Upptökur
fóru fram á hluta úr degi þann
6. desember 1978 ogkom platan
síðan útá vordögum 1979.
• PLA TAN „Þegar mamma
var ung“ geymir túlkun þeirra
Diddúarþ.e. Sigrúnar Hjálm-
týsdóttur og Egils Olafssonar á
13 gömlum revíuvísum frá
blómaskeiði Islensku revíunnar.
Kom hún útárið 1978, um líkt
leyt.i og EgiII var að hætta í
Spilverki þjóðanna ogstofna
Hinn íslenska þursaflokk. Þetta
var einskonar lokaverkefni
gamla Spilverkshópsins því Val-
geir Guðjónsson stjórnaði upp-
tökum og Sigurður Bjóla Garð-
arsson annaðist hljóðritun. Und-
irleik önnuðust Árni Elfar
píanóleikari, Grettir Björnsson
harmonikuleikari, Guðmundur
E. Einarsson trommuleikari,
Sigurður Rúnar Jónsson fiðlu-
leikari og Helgi Kristjánsson
bassaleikari. Tókst þessum
hljómlistarmönnum ásamt
Diddú og Agli einstaklega vel
upp við flutninginn. Páll Bald-
vin Baldvinsson rekur sögu Is-
lensku revíunnar ígeisla-
plötubæklingi ásamt öllum
söngtextum.
Spor ehf. gefur plöturnar út
og annast dreifingu og kostar
hvert eintak kr. 1.299.
• SÖNGVARINN Alfreð
Clausen sönginn á fjölmargar
78 snúninga og 45 snúninga
plötur á sjötta áratugnum.
Komin er út 25 laga yfirlitsút-
gáfa frá upptökuferli Alfreðs
Clausen, en íhaust voru Iiðin
fimmtán ár frá andláti hans.
Þessi útgáfa er einskonar end-
urgerð safnútgáfu þeirrar sem
Svavar Gests hljómplötuútgef-
andi stóð fyrir árið 1981. Svavar
hafði nokkru áður keypt öll út-
gáfuréttindi Islenskra tóna, sem
vinur hans Tage Ammendrup
hafði starfrækt á sjötta ára-
tugnum. Lét Svavar afrita 78
sn. plötur þær sem Alfreð söng
inná fyrir Tage og valdi kunn-
ustu lögin saman á tvær hæg-
gengar hljómplötur. Plötualb-
úmið var ekki fyrr komið á
markað, en Alfreð féll frá eftir
stutta sjúkralegu. Það hefurþví
tekið nokkur ár að lagfæra af-
ritanirnar sem Svarar Gests
gerði á sínum tíma aflögum
Alfreðs, velja það besta úr og
ganga frá lögum Alfreðs til út-
gáfu á geislaplötu. Á sama tíma
var ráðist í að rita nokkur orð
um feril Alfreðs Clausen, grafa
upp nöfn þeirra tónlistarmanna
sem störfuðu með honum og
tína saman alla söngtextana.
Að þessu verki vann Jónatan
Garðarsson og naut við það
aðstoðar Svavars Gests, en hann
féll frá áður en hann sá afrakst-
nr þessa verks.
Tæknivinnsla fór fram í
Ríkisútvarpinu, Grjótnámunni
og hjá Sony DADC í Austurríki.
Spor ehf. gefur útog annast
dreifingu. Geislaplatan kostar
1.899 krónur.
llííiiYclnmgar
Skagfirðingar & Húnvetningar fjölmcnna
á Hótel ísland föstudaginn 29. nóvember nk. kl. 21:00
StórUostleg slænuntiatriði:
Rökkurkórinn
Skagafiröi:
Sljórnandi:
Sveinn Árnason.
Undirleikari Pál Szabo.
Tvísöngur:
Hallfríður Hafsteinsdóttir
og Ragnar Magnússon.
Tvísöngur:
Björn Sveinsson
og Hjalti Jóhannsson.
Hagyrðingaþátlur
að Skagflrskum
hætti:
Stjórnandi:
Eiríkur Jónsson
Lóuþrælamir:
Karlakór Vestur-Húnvctninga.
Stjórnandi:
Ólöf Pálsdóttir.
Undirleikari: Elínborg Sigurgeirsdóttir.
Kariakór
Bólstaðarhlíðarhrcpps:
Stjórnandi: Sveinn Ámason.
Undirleikari: Pál Szabo.
Tvísöngur:
Svavar Jóhannsson
og Sigfús Guðmundsson.
Norðlcnski
stórtenórinn:
Jóliann IMár Jóhannsson
Sönghópurinn
Sandlóur:
Undirleikarar:
Þorvaldur Pálsson
og Páll Sigurður Björnsson.
Gamanmál:
Ómar Ragnarsson
fer á kostum.
Veislustjóri:
Geirmundur
Valtýsson.
‘Torréííur:
tur i bnittdktvtm
jntui koniakssósu.
iTSalréttur:
.Tteilsleiklur lambavo3vi'Dijon,
mcd (jrœnmetisfirennu.
sinjörsti'iktum jarðcplum, m; sólberjasósu
Tftirréttur:
tsðúcll. mcð konfektsósu.
Ver3 me3 kvöldver3i er kr. 3,900, en verS
á skemmlun er kr. 2000 og hefst hún kl. 21:00.
Ver3 á dansleik kr. 1.000.
Matargestir mæti3 stundvíslega kl. 19:00.
SértilboS á gistingu og skemmtun
fyrir Norðlendinga, upplögð
helgarferð með fyrirtækið og
starfsfólkið og sjá svo Bítlaárin
á iaugardeginum!
Forsala aðgöngumiða er á Hótel íslandi
milii kl. 13 og 17 alia daga.
Sími 568-7111 • Fax 568-5018