Morgunblaðið - 26.11.1996, Qupperneq 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
^íemantaíwöió
Handsmíðaðir 14kt gullhringar
FERÐ LAGANEMA TIL LANDSINS HELGA
Á slóðum píslar-
göngu Krists
og 12. en það er talin vera staðurinn
þar sem María guðsmóðir fékk lík
sonar síns afhent, eftir að það hafði
verið tekið niður af krossinum.
Að lokinni skoðunarferð um efri
hæð Grafarkirkjunnar, fórum við
út og gengum um stund gegnum
þröng stræti í múslimska hluta
Jerúsalemborgar. Einkennileg
kryddblönduð lykt fyllti vit okkar.
Við gengum um stund uns við kom-
um að hverfi gyðinga og að Vest-
urmúrnum.
Vesturmúrinn
'Fi'íihæjl uert
Kringlunni 4-12, sími 588 9944
TILBOÐ
Nýja myndastofan
Laugavegi 18,
sími 551 5125
Afmælisfagnaðir
Árshátíðir - Brúðkaup
Erfidrykkjur
Margrómuð
VEISLUÞJÓNUSTA
fyrir gæði, gott verð
og lipra þjónustu
SKUTAN
Hóishrauni Hafnarfirði
sími: 555 1810
Xlfcr
í Kolaportinu er fjörug sata á
nýrri vöru alla markaðsdaga.
Stemmningin er fróbær
og mannlífið fjörugt.
Kolaportið er góður kostur fyrir
heildsölur og verslanir til að selja
gjafavöru, fatnað, nýja vöru
og í raun alla vöru.
>Pantanasimi
er 562 5030 X
KOLAPORTIÐ
VESTURMURINN - Grátmúrinn.
Via Dolorosa
FJORUG
im
Via Dolorosa þýðir harmavegur
en svo nefndu krossfarar leið þá
sem Kristur gekk og var látinn
bera kross sinn frá dómsstað og
að aftökustað. Á þessum krossferli
Krists eru 14 stöðvar eða áfangar,
sem marka það helsta sem gerðist
á leið Krists að Golgata, þar sem
hann var krossfestur. Fyrstu níu
stöðvamar eru á Via Dolorosa og
gengum við framhjá þeim og skoð-
uðum þær allar.
Fyrsti áfanginn á Via Dolorosa
er staður þar sem talið er að lands-
stjórinn Pontíus Pílatus hafi yfir-
heyrt Jesú og dæmt hann til dauða.
Á næsta áfanga á Jesú að hafa
tekið upp kross sinn en skammt þar
frá er Ecce Homo boginn þar sem
Jesú á að hafa staðið þegar Pílatus
sagði hæðnislega um hann við
mannfjöldann: „Ecce Homo“ („sjáið
manninn"). Á þriðju stöðinni er tal-
ið að Jesú hafi í fyrsta sinn fallið
undan þunga kross síns og fjórða
stöðin er talin marka staðinn þar
sem hann mætti móður sinni og hún
féll í ómegin yfir að sjá kvöl hans.
Fimmti áfanginn er lítil Fransisk-
anakapella en yfir inngöngudyrum
hennar stendur að á þeim stað hafi
Símon frá Kyrene hjálpað Jesús að
bera krossinn. Þessa staðar er getið
*
A Masada-klettinum átti sér stað eitt
mesta hópsjálfsmorð sögunnar, sem á
vart sinn líka, segir Ragnheiður Jóns-
dóttir í 2. grein sinni af flórum.
í öllum guðspjöllunum, að Jóhann-
esar-guðspjallinu undanskildu.
Sjötti áfanginn er hús Veróníku
helgu. Á þeim stað á Veróníka að
hafa þerrað blóðið undan þyrnikór-
ónu Krists og svitann af enni hans.
Er hún leit á klútinn sem hún not-
aði til þess, á mynd af Jesús að
hafa birst á honum.
Á sjöundu stöðinni er talið að
Jesús hafi hnigið niður öðru sinni
og á þeirri áttundu á Jesús m.a.
að hafa sagt við konur sem hörm-
uðu og grétu yfir honum: „Jerúsal-
ems dætur, grátið ekki yfir mér,
en grátið yfir ykkur sjálfum og yfir
börnum yðar.“ Á níundu stöðinni á
Kristur síðan að hafa hnigið til jarð-
ar í þriðja sinn. Fimm síðustu stöðv-
arnar eru inni í Grafarkirkjunni,
sem byggð var yfir Golgatahæð.
Þangað héldum við næst. Við byij-
uðum eiginlega á öfugum enda þ.e.
á því að skoða 14. og síðasta áfang-
ann, litla marmarakapellu, kapellu
grafarinnar helgu, þar sem gröf
Jesús er. Inngöngudyrnar að kapell-
unni eru svo litlar að við urðum að
beygja okkur til þess að komast inn
fyrir þær. í kapellunni er stallagröf
Krists sem gætt var af munki.
Eftir að hafa komið inn í Graf-
arkapelluna, fórum við upp á efri
hæð Grafarkirkjunnar, til þess að
skoða hinar stöðvarnar sem eftir
voru. Efri hæð Grafarkirkjunnar
skiptist í tvennt milli rómversk-
kaþólsku og grísk-kaþólsku kirkju-
deildanna. Við innganginn að róm-
verska hlutanum eru 10. stöðin þar
sem Jesús var afklæddur og 11.
stöðin, þar sem Jesús var negldur á
krossinn. í grísk-kaþólska hlutanum,
sem er þar rétt hjá, er 12. stöðin,
þar sem Jesús á að hafa dáið á kross-
inum. 13. stöðin er milli þeirrar 11.
Vesturmúrinn ber einnig nafnið
Grátmúrinn (Hakotel Hama’aravi).
Þar biðjast gyðingar fyrir og stinga
samanrúlluðum miðum inn á milli
sprungna í múmum. Múrinn hlaut
nafnið Grátmúr, vegna þess að þar
gráta gyðingar fall Jerúsalem árið
70 e.Kr. og brunann á helgasta
stað þeirra, musterinu, sem Heród-
es reisti. Vesturmúrinn, er eini hluti
musterisins sem eftir stendur.
Musterisbyggingin hlýtur að hafa
verið glæsileg. Þangað kom Jesús
m.a., en hann sá fyrir fall Jerúsalem
og eyðileggingu musterisins sbr.
Markúsarguðspjall 13,2: „Og er
hann gekk út úr helgidóminum,
segir einn af lærisveinum hans við
hann: Meistari, líttu á, hvílíkir stein-
ar og hvílík hús! Og Jesús sagði við
hann: Sér þú þessi miklu hús? Ekki
mun hér verða eftir skilinn steinn
yfir steini, er eigi verði rifinn niður.“
Þannig var að árið 66. e.Kr. náðu
gyðingar Jerúsalem á sitt vald af
rómverska heimsveldinu og héldu
borginni um skeið. Rómverski her-
foringinn Títus sat um borgina og
hreinlega svelti gyðinga inni. Hung-
ursneyðin var gífurleg, drepsóttir
geisuðu og þeir sem reyndu að flýja
borgina voru umsvifalaust kross-
festir eða skornir á kviðinn því sú
saga gekk að gyðingar gleyptu gim-
steina og peninga til þess að reyna
að koma þeim þannig undan. Að
lokum brenndi Títus Jerúsalem,
„ekki var skilinn eftir steinn yfir
steini“.
Gyðingum var eftir þetta meinað
að koma til Jerúsalem, nema einu
sinni á ári, allt til ársins 1967 þeg-
ar ísraelski herinn hertók borgina
en sú stund er ógleymanleg í ísra-
elskri sögu. Af þeim gyðingum sem
lifðu af bruna Jerúsalem árið 70
e.Kr. er það að segja að stór hópur
flykktist suður á bóginn og hertók
klettavirki Heródesar á Masada.
Tókst þeim að halda því í 3 ár. Til
Masada lá ferð okkar næst.
Masada
Við keyrðum suður á bóginn til
Masada og það sem var einna
merkilegast var hversu veðráttan
fór hlýnandi. Masada er eini staður-
inn, sem við komum til í ferð okk-
ar, þar sem sólin skein og það varð
bara nokkuð heitt.
Unnt er að komast upp á Masada-
klettinn með tvennu móti: ganga upp
stíginn sem Rómveijar hjuggu í
klettinn og er nefndur snákastígur-
inn eða taka kláf. Við tókum kláfinn.
MARKAÐSTORC
Parket
ooe
Yfir 40
tegundir
•••
Maraar
aar
oir
stær
Vmi
• AA
zíppo
Lækkað verð -
100 mismunandi tegundir.
GARÐAR ÓLAFSSON
úrsmiður — Lækjartorgi
- s. 551 0081.