Morgunblaðið - 26.11.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 26.11.1996, Síða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Prentsmiðja Morgunblaðsins ■ • - - - - Þriðjudagur 26. nóvember 1996 Blað D Greiðslu- áætlanir VIÐ greiðsiumat liggur yfírleitt ekki fyrir, hvaða íbúð á að kaupa eða byggja, segir Grétar J. Guðmundsson í þættinum Markaðurinn. Þegar ákveðin íbúð liggur fyrir, er kominn grundvöllur til að gera nákvæm- ari greiðsluáætlun. / 2 ► Lántaka og lögveð KÆRUNEFND fjöleignarhúsa- mála telur, að lögveðsréttur húsfélags miðist við eitt ár frá greiðslu til verktaka vegna til- tekinnar framkvæmdar við sameign, en framlengist ekki umfram það vegna lántöku hús- félagsins. /16 ► Ú T T E K T Glæsihús við Laug- arásveg LAUGARÁSVEGUR hefur Iengi þótt ein eftir- sóttasta gatan í Reykja- vík og hús þar ávallt verið í háu verði, enda mörg þeirra stór og vegleg. Hjá fasteigna- sölunni Laufási er nú til sölu húsið Laugarásvegur 27, sem er án efa eitt af glæsilegustu húsuni borgarinnar. í viðtalsgrein við Magnús Axelsson, fasteignasala í Lauf- ási, er fíaliað um þetta hús. Það er 373 ferm. auk bílskúrs og stendur á mjög góðum stað við Laugarásveg. Húsið var byggt á árunum 1956-1958 af Hirti Hjartarsyni, stórkaup- manni og forstjóra fyrirtækis- ins J. Þorláksson og Norð- mann. Núverandi eigendur eru þau Birna Smith heilsuráðgjafí og Guðmundur Lárusson tann- læknir og hafa þau gert marg- víslegar endurbætur á húsinu. — Það hefur tekizt að breyta húsinu miðað við nú- tímaþarfír án þess að nokkuð af eldri virðuleik þess hafí glat- azt, segir Magnús Axelsson. Hærra er til lofts í húsinu en gengur og gerizt og er sal- arhæð 3 metrar á neðri hæð en 2,6 metrar á efri hæð og í kjallara. Húsið stendur ofar- lega í lóðinni, sem er rúml. 1000 ferm. og umgirt steypt- um garði. — Þetta er einstakt hús og sennilega bezta húsið, sem ég hef séð á 18 ára ferli mínum, sem fasteignasali, segir Magn- ús Axelsson. /16 ► Stöðugt fasteigna verð hér á landi FASTEIGNAVERÐ hefur verið mun stöðugra hér á landi undanfar- in tíu ár en á hinum Norðurlöndun- um, eins og teikningin hér til hliðar ber með sér. Þróunin var þó áþekk í öllum löndunum að því leyti, að upp úr 1985 tók fasteignaverð að hækka mikið, en lækkaði síðan í kjölfarið. Þessi verðþróun endurspeglar að verulegu leyti efnahagsþróunina í þessum löndum. Öll bjuggu þau við efnahagsörðugleika, sem höfðu sín áhrif á fasteignaverð, en mismun- andi þó. Á hinum Norðurlöndunum varð nánast verðhrun á íbúðum, er þær gerðust illseljanlegar á almennum markaði, með þeim afleiðingum, að fjöldi fólks missti íbúðir sínar og sat síðan uppi með fasteignalán, sem það réð ekkert við. Hér á landi hef- ur þessi verðlækkun verið miklu minni og mun meira jafnvægi ríkt á þessu sviði. Á þessu ári hefur verið hér vax- andi eftirspurn eftir nýjum íbúðum og af þeim sökum má gera ráð fyrir hækkandi verði, ef eitthvað er. Hreyfing hefur líka verið meiri á notuðum eignum og umsvif á fast- eignamarkaðnum í heild mun meiri en í fyrra. Að sögn fasteignasala rík- ir nú meiri bjartsýni á markaðnum en áður. Þessu veldur aukin atvinna og bjartari horfur í efnahagslífinu. í Danmörku hafa orðið mikil um- skipti að undanfömu, en þar hefur eftirspum, bæði eftir íbúðarhús- næði og atvinnuhúsnæði, vaxið til muna og verð hækkað á ný í kjölfar- ið. Svipaða sögu er að segja um Nor- eg. Verð á fasteignum í þessum löndum er þó enn langtum lægra en þegar það komst hæst á síðasta ára- tug. I Finnlandi hefur verðsveiflan verið hvað mest, en þar í landi komst fasteignaverð upp úr öllu valdi á þensluámnum í lok síðasta áratug- ar. Eftir það lækkaði verðið mjög mikið og hefur ekki náð að rétta aftur úr kútnum. Þróun fasteignaverðs á Norðurlöndum 1985-1995 (Vísitala, 1985 = 100) SLAND Kynntu þér kosti Fasteignalána Fjárvangs hjá rádgjöfum Fjárvangs i síma 5 40 50 60 Dæmi um mánaðariegar afborganir af l.000.000 kr. ftsteignaláni Fjárvaiigs* Vtxtiri*/.) 10 ár 15 ár 25 ár 7,0 11.610 8.990 7.070 7,5 11.900 9.270 7.500 8,0 12.100 9.560 7.700 Miðað cr við jafngrciðslulán. *Auk verðbóta Fjárvangur hf. Laugavegi 170, 105 Reykjavík, Sími 5 40 50 60, Fax 5 40 50 61

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.