Morgunblaðið - 28.11.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
I
B
1996
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER
BLAÐ
Þýskir fengu
aðeins eitt stig
ÞJÓÐVERJAR fóru illa að ráði sínu í gær-
kvöldi er þeir náðu aðeins 21:21 jafntefli
gegn Slóvakíu á útivelli en þjóðirnar leika í
4. riðli. Fimm fastamenn í landsliði Þjóðverja
gáfu ekki kost á sér í þennan leik. Þjóðverjar
eru komnir með sjö stig í riðlinum og geta
mest náð níu stigum. Tapi íslenska liðið á
sunnudaginn fyrir Dönum verður það í öðru
sæti fimmta riðils með níu stig og stendur
betur að vígi en Þjóðverjar, með 86 mörk í
plús en Þjóðveijar aðeins sex. Ekki höfðu
borist úrslit úr leikjunum í 2. riðli þar sem
Úkraína og Litháen áttu að leika annars veg-
ar og Makedónia go Ungveijaland hins veg-
ar. Ungveijar og Litháar gætu náð tíu stigum
hvor þjóð og þá fara þær báðar á HM, en fái
önnur þeirra níu stig, eins og íslendingar
kemst aðeins önnur þeirra áfram, markamun-
ur íslands er það hagstæður.
ff
O
18
Ajaxfékk
skell
HANDKNATTLEIKUR
AÐEINS ári eftir
að Ajax varð
heimsmeistri fé-
lagsliða í knatt-
spyrnu, fékk liðið
skell í hollensku
bikarkeppninni í
gærkvöldi - 2.
deildarliðið
Heracles frá Rotfc-
erdam lagði Ajax
að velli 1:0.
frá Þing-
eyri
„STRÁKARNIR okk-
ar“ hafa átt hug og
hjarta þjóðarinnar,
einkum þegar mikið
hefur legið við og um
keppni í stórmóti að
ræða. Stuðningurinn
er á ýmsan hátt og
hafa landsliðsmenn-
irnir kynnst ýmsu. Að
þessu sinni var sá
óvenjulegasti frá
Þingeyri. „Það var
hringt í mig og mér
sagt að við ættum von
á þremur kílóum af
harðfiski með næsta
flugi,“ sagði Þorbjörn
landsliðsþjálfari.
„Með fylgdi að harð-
fiskurinn ætti að
herða okkur í leikjun-
um við Dani og það
gerir hann.“
Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari átti von á sigri en ekki svona stórum
Fljótum oftast langt á
vöm og markvörslu
Gífurlegur fögnuður braust út
í Laugardalshöll í gærkvöld
þegar íslendingar höfðu unnið
Dani, 27:21, í fyrri leik liðanna í
riðlakeppni heims-
Steinþór meistaramótsins í
Guðbjartsson handknattleik en
skrifar Þorbjörn Jensson
landsliðsþjálfari var afslappaður.
„Ég átti von á svona þriggja marka
sigri en þetta fór fram úr mínum
björtustu vonum,“ sagði hann við
Morgunblaðið rétt eftir að flautað
var til leiksloka.
„Við náðum að spila fasta og
markvissa vörn, markvarslan kom
í kjölfarið og þetta fleytir okkur
oftast langt,“ hélt hann áfram.
„Segja má að eðlilegt hefði verið
að gera um 20 mörk en vörnin og
markvarslan gáfu okkur nokkur
mörk að auki.“
Mikil taugaspenna ríkti fyrsta
stundarfjórðunginn og sagði Þor-
björn það eðlilegt. „Mikið var í
húfi fyrir bæði lið. Fyrir okkur var
að duga eða drepast en Danir voru
í þægilegri stöðu.
Þeir gátu litið á sigur sem bónus
en vissu líka að heimaleikurinn
væri eftir og því þýddi tap ekki
endalok fyrir þá. Samt sem áður
eru þetta jöfn lið og mistökin voru
ekki óeðlileg. Hins vegar var alltaf
ljóst að liðið sem gerði færri mi-
stök sigraði."
Stemmningin var frábær í Höll-
inni og Þorbjörn sagði að áhorfend-
ur hefðu haft mikið að segja. „Við
tókum enga áhættu, tjölduðum öllu
því besta sem við áttum til og
stuðningurinn var frábær. Ef hann
væri alltaf svona þyrfti enginn að
efast um úrslitin."
Eistlend-
ingar og
Skotar í
Mónakó
ALÞJÓÐA knatt-
spyrnusambandið,
FIFA, tilkynnti í
gær að leikur Eist-
lands og Skot-
lands í undan-
keppni heims-
meistaramótsins í
knattspyrnu fari
fram í Mónakó 11.
febrúar. Leik lið-
anna var flautað
af í Tallinn á
dögunum. Eist-
lendingar höfðu
áður stungið upp
á að leika á Kýp-
ur. FIFA greiðir
allan ferðakostn-
að Skotanna.
Morgunblaðið/Golli
ÍSLEIMDINGAR fögnuðu ákaft í leikslok og hér eru það leikmennirnir Guðmundur Hrafnkelsson, Dagur
Sigurðsson, Júlíus Jónasson og Ólafur Stefánsson, sem sést aftan á, að dansa sigurdansinn.
JEPPE SIGFÚSSON Á ÆTTIR AÐ REKJA TIL SIGLUFJARÐAR / B8