Morgunblaðið - 28.11.1996, Side 1
SAMSKIPTI
Ríkisstofnanir verða
netvæddar/4
_______BANKAR
Samanburðarfræði
bankakerfisins/8
VINNSLUSTÖÐIN
Sóknarfæri i
bolfisk vinnslu/10
piwvfmMíiííiiö
VIÐSKIFn AIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 BLAÐ
Vetni
Niðurstöður forathugunar benda
til að arðbært sé að reisa og reka
15 þúsund tonna vetnisperoxíð-
verksmiðju með 23 starfsmenn á
Reykjavíkursvæðinu. /2
Einkavæðing
Framkvæmdanefnd um einka-
væðingu hefur lagt til að Áburð-
arverksmiðjan verði auglýst til
sölu og leitað verði að einum
öflugum kaupanda. Nefndin vill
einnig að Sementsverksmiðjan
verði gerð að almenningshlutafé-
lagi. Þá hefur náðst samkomulag
milli eigenda Bifreiðaskoðunar
íslands hf. að skipta fyrirtækinu
í tvö félög um áramótin. /16
Taugagreining
Taugagreining hf. hefur gengið
frá samstarfssamningi við
breska fyrirtækið Medelec sem
er eitt þriggja stærstu fyrirtækja
í heiminum á sviði heilarita.
Samningurinn felur í sér að Med-
elec tekur að sér dreifingu á
hug- og vélbúnaði frá Tauga-
greiningu um allan heim að
Norðurlöndum undanskildum. /2
SÖLUGENGIDOLLARS
GENGI NOKKURRA
GJALDMIÐLA
frá 1. nóvember 1995 (sðiugéqgi)
DOLLARI
STERLINGSPUND
Kr.
-------------------------85
+1,80% breyting__________
frá áramótum
-------------------------75
Japanskt YEN Kr
-------------------------0,80
-6,09% breyting
frá áramótum
-------------------------0,75
0,70
—3^-0,6276-yr---------0,65
------------^^V060
0,5894
Vd'jVm'a^'j'j'a's'o'n’ °'55
+10,09% breyting
frá áramótum
Þýskt MARK Kr.
^ 45.56
-4,08% breyting
frá áramótum 38
1995 1996 oc
'n'd j'f'm'a'm'j'j'á's'o'n' '
Franskur FRANKI Kr.
1. ,352
12,901
-3,38% breyting frá áramótum
1995 1996
'n'd j'f'm'a'm'j'j'á's'o'n'10
Breytingar á gjaldeyrismarkaði í vændum
Bankamir
taki upp við-
skiptavakt
SAMKOMULAG er,í vinnuhópi á
vegum Seðlabanka íslands og við-
skiptabankanna um að bankarnir
taki upp viðskiptavakt á millibanka-
markaði með gjaldeyri hliðstætt því
sem gerist og gengur á gjaldeyris-
mörkuðum í nágrannalöndunum.
Ekki hefur enn verið gengið form-
lega frá málinu, en stefnt er að því
að hrinda tillögunum í framkvæmd
einhvern tíma á fyrsta ársfjórðungi
næsta árs.
Yngvi Örn Kristinsson, forstöðu-
maður peningamálasviðs Seðla-
bankans, sagði að meginatriði til-
lagnanna væri að ætla bönkunum
stærra hlutverk á millibankamark-
aði með gjaldeyri. Það væri gert
með því að skuldbinda þá til að
vera viðskiptavakar með erlendan
gjaldeyri. Það þýddi að þeir þyrftu
umbeðnir að vera tilbúnir til þess
að gefa upp kaup- og söluverð á
tiltekinni lágmarksfjárhæð í erlend-
um gjaldeyri þegar annar markaðs-
aðili óskaði þess. Jafnframt hvíldi
sú skylda á bönkunum að vera með
sískráningu í alþjóðlegu upplýs-
ingakerfí um það hver kaup- og
söluverð þeirra eru á gjaldeyri á
millibankamarkaði.
Skráningarfundir lagðir af
Yngvi sagði að þetta þýddi að
það fyrirkomulag sem hefði verið
við lýði frá árinu 1993, að vera
með daglega skráningarfundi með
bönkunum í Seðlabankanum á
hveijum viðskiptadegi, yrði lagt af.
Seðlabankinn myndi byggja sína
skráningu á þeim verðum sem
bankarnir væru með frá einum tíma
til annars. Ef hins vegar Seðlabank-
inn væri ósáttur við þau verð sem
bankamir gæfu upp gæti hann grip-
ið inn í með því að skrá sitt eigið
gengi og haft þannig áhrif á þróun
markaðarins.
„Það sem við erum að sækjast
eftir er að fá lifandi verðgjöf og
meiri viðskipti milli bankanna með
gjaldeyri. Við höfum fundið dálítið
fyrir því í kerfinu sem við tókum
upp árið 1993 að Seðlabankinn er
mikill miðpunktur þess. Við kaup-
um og seljum gjaldeyri og erum því
eiginlega viðskiptavakinn. Við vilj-
um komast úr þeirri stöðu og geta
staðið meira til hliðar við markaðinn
og gripið inn í hann ef aðstæður
krefjast þess,“ sagði Yngvi Örn
ennfremur.
Hann sagði að þeir aðilar sem
hefðu ótakmarkað leyfi til gjald-
eyrisviðskipta og vildu uppfylla of-
angreindar skyldur gætu gerst aðil-
ar að markaðnum, auk Seðlabank-
ans. Að viðskiptabönkunum frátöld-
um gæti til dæmis verið um verð-
bréfafyrirtæki, eignarleigur og fjár-
festingarlánasjóði að ræða fræði-
lega séð, að því tilskildu að þessir
aðilar reyndust tilbúnir til að upp-
fylla þau skilyrði sem sett væru.
HLUTABRÉFAHLAUPIÐ
19 9 6
E R A Ð HEFJAST.
HLJJTABRÉFA
SJOÐURINN
i
t
Nafnávöxtun Hlutabréfasjóðsins hf:
sl. 1 ár 46,5 %
sl 3 ár 40,9 %
sl. 5 ár 12,6 %
sl. 7 ár 15,8%
Stœrsti hlutabréfasjóðurinn á íslandi.
Um 146% stœkkun á einu ári.
Hlutabréfasjóðurinn hf. er stærstur íslenskra hluta-
bréfasjóða með 5.464 hluthafa, heildareignir yfir 3,2
milljarða og um 40% markaðshlutdeild. Á einungis einu
ári hafa 1.575 hluthafar bæst í hópinn og sjóðurinn
stækkað um 146%. Þetta sýnir hversu öflugur sjóðurinn
er, en stærð sjóðsins eykur öryggi hans og stöðugleika.
Sjóðurinn er annað fjölmennasta almenningshlutafélag
landsins, næst á eftir Eimskip. Nafnávöxtun síðastliðið ár
var 46,5%. Nafnávöxtun sl. 6 mánuði var 51,9%.
Verið velkomin í VÍB
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.